Skessuhorn


Skessuhorn - 24.02.2021, Qupperneq 25

Skessuhorn - 24.02.2021, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 24. FeBRúAR 2021 25 Háskóladagurinn fer fram laugar- daginn 27. febrúar milli kl. 12 og 16 en þá gefst öllum sem hyggja á há- skólanám kjörið tækifæri að kynna sér allt grunnnám allra háskóla á landinu. Í ár verður Háskóladag- urinn alfarið á netinu vegna sam- komutakmarkana sem tengjast Co- vid-19. Háskóladagurinn hefur í hátt á annan áratug verið einn mikilvæg- asti vettvangur landsmanna við að kynna sér háskólanám en í síðustu viku var opnaður ný vefur Háskóla- dagsins (www.haskoladagurinn.is) sem mun einfalda aðgengi allra að upplýsingum um allt háskólanám í boði. Á laugardaginn munu um 300 fjarfundir tengjast vefnum þar sem hægt verður að fá upplýsingar um allar námsbrautir en á fjarfundun- um geta áhugasamir spurt spurn- inga um námið og spjallað við full- trúa háskólanna, nemendur og kennara. Á vefnum er öflug og ein- föld leitarvél sem auðveldar verð- andi nemendum að finna drauma- námið. Leitarvélin birtir náms- brautir frá öllum háskólum lands- ins en hverri námsbraut fylgja til- tekin leitarorð sem hjálpa notend- um við að finna nám þótt þeir slái ekki endilega inn heiti námsbraut- arinnar sjálfrar. Fyrst um sinn er áhersla vefsins, sem og Háskóladagsins, á grunn- nám en fljótlega að Háskóladeg- inum loknum verður framhalds- og doktorsnámi bætt við. Háskóladag- urinn er árvisst samstarfsverkefni allra sjö háskóla landsins þar sem þeir kynna námsbrautir sínar fyrir verðandi háskólanemum. mm Háskóladagurinn stafrænn að þessu sinni Hægt verður að kynna sér allt háskólanám í landinu á netinu laugardaginn 27. febrúar Svipmynd úr safni frá Háskóladeginum 2016. Nú verður hinsvegar gjörbreytt fyrirkomulag þar sem væntanlegir nemar geta setið heima og kynnt sér námsframboðið í gegnum tölvur og snjalltæki. Öskudagurinn á nokkrum stöðum á Vesturlandi Öskudagur skír og fagur var í síðustu viku í sannkölluðu blíðviðri. Alla jafnan eru fáir dagar sem börnin hlakka jafn mikið til. Fá að fara út og syngja fyrir nammi eða slá kött- inn úr tunnunni. Reyndar er mjög misjafnt hvernig þessu er háttað milli bæjarfélaga. Nú í ár voru hefðbundin há- tíðarhöld sumsstaðar felld niður vegna sóttvarna eða fyr- irkomulaginu breytt. Meðfylgjandi eru svipmyndir frá nokkrum stöðum. mm Á Akranesi var tekinn saman listi yfir þau fyrirtæki sem höfðu opið fyrir að fá börn í heimsókn. Mörg þeirra fóru því kerfis- bundið milli staða. Söngatriði voru yfirleitt stutt og hnitmiðuð og svo drifið sig á næsta stað á listanum. Hér eru stúlkur í gervi séra Þráins og brúðar sem leitaði heppilegs vonbiðils. Ljósm. ki. Hressir síamstvíburar í Búðardal. Ljósm. sm. Blómarósir á fer í Búðardal. Ljósm. sm. Hressir krakkar, misjafnlega árennilegir, á ferð um götur Búðardals. Ljósm. sm. Þær komu við á skrifstofu Skessuhorns. Ljósm. ki. Í Grundarfirði var öskudagurinn með nokkuð hefðbundnum hætti í ár. Reyndar var kötturinn ekki sleginn úr tunnunni á vegum foreldrafélagsins eins og svo oft áður heldur var það gert innan veggja grunnskólans á skólatíma. Krakk- arnir fóru svo í sína hefðbundnu nammileit eftir hádegið í blíðskaparveðri. Fyrirtæki í bænum voru búin að skrá sig hjá foreldrafélaginu ef þau hyggðust taka á móti börnum og hlusta á söng í skiptum fyrir slikkerí. Vinirnir Alexandir Dominik og Ölnir Þorri voru í gervi frægs töframanns frá Hogwarts. Ljósm. tfk. Magni Rúnar Sigurbjörnsson í Grundarfirði vandar hér valið er hann fékk að velja úr risastórri nammifötu hjá Hamrahlíð 9 Guesthouse. Ljósm. tfk.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.