Skessuhorn - 24.02.2021, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 24. FeBRúAR 2021 29
Stykkishólmur –
miðvikudagur 24. febrúar.
Snæfellskonur fá Skallagríms-
konur í heimsókn í íþróttahús-
ið í Stykkishólmi í Dominos deild
kvenna. Leikurinn hefst kl. 19:15
Borgarnes –
sunnudagur 28. febrúar.
Skallagrímskonur fá Keflavík í
heimsókn í íþróttahúsið í Borg-
arnesi, Fjósið, í Dominosdeild
kvenna. Leikurinn hefst kl. 16:00.
Akranes –
föstudagur 26. febrúar.
ÍA konur taka á móti Grindavík
í Akraneshöllinni í Lengjubikar
kvenna, b-deild. Leikurinn hefst kl.
20:00. Atvinna óskast
Óska eftir vinnu
sem þroskaþjálfi
Þroskaþjálfi með vinnuhund ósk-
ar eftir vinnu – helst í eftirfarandi
póstnúmerum: 109-116, 300, 301
eða 310. Allt getur komið til greina,
er m.a. opin, sveigjanleg og sam-
viskusöm manneskja. Uppl. thros-
kathjalfi2021@gmail.com
Til sölu
Einbýlishús til sölu eða leigu
107fm hús til sölu eða leigu á Hell-
issandi, Hellisbraut 5. Þrjú svefn-
herbergi, stór kjallari og garður.
Glæsileg staðsetning, sjarmerandi
hús. Fleiri upplýsingar á skind-
bjerg13@gmail.com
Fuglahús til sölu
Fuglahús í garðinn fyrir sumarið. Á
nokkra kornpalla og eplahaldara
fyrir smáfuglana í vetur. Tréhúsið
Handverk, Ægisbraut 11, Akranesi
s. 868-4410.
Nýfæddir Vestlendingar
Getir þú barn þá
birtist það hér,
þ.e.a.s . barnið!
www.skessuhorn.is
Markaðstorg
Vesturlands
11. febrúar. Drengur. Þyngd: 4.156
gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Erla
Magnúsdóttir og Halldór Kristinn
Guðjónsson, Kópavogi. Ljósmóðir:
Unnur Berglind Friðriksdóttir.
Á döfinni
AtvinnA
Smáauglýsingar
tiL SÖLU
12. febrúar. Stúlka. Þyngd: 4.352 gr.
Lengd: 51 cm. Foreldrar: Kara Lau
Eyjólfsdóttir og Markús Ingi Jó-
hannson, Hvanneyri. Ljósmóðir:
Guðrún Fema Ágústsdóttir.
17. febrúar. Drengur. Þyngd: 3.374
gr. Lengd: 50,5 cm. Foreldrar: Stef-
anía Rós Th. Karlsdóttir og Ingólfur
Örn Sigurbjörnsson, Mosfellsbæ.
Ljósmóðir: Hrafnhildur Ólafsdóttir.
19. febrúar. Stúlka. Þyngd: 3.618
gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Alma
Rós Þórsdóttir og Birkir Hlynsson,
Mosfellsbæ. Ljósmóðir: Aníta Rut
Guðjónsdóttir.
Rannsóknaskipið Pourquoi pas?
fórst eins og kunnugt er við
Straumfjörð á Mýrum 16. septem-
ber árið 1936. Með skipinu fórst
franski vísindamaðurinn og land-
könnuðurinn Jean-Baptiste Char-
cot ásamt nærri allri sinni áhöfn en
alls fórust 40 manns í slysinu og að-
eins einn skipverji komst lífs af. Nú
hefur verið gefin út bók um forn-
leifarannsókn á flaki skipsins sem
hvílir enn á botni Straumfjarðar.
Bókina skrifuðu í sameiningu Jean-
Pierre Joncheray, skýrsluhöfund-
ur og leyfishafi fornleifarannsókn-
arinnar, Svanur Steinarsson, sem
er vel kunnugur svæðinu sem flak-
ið liggur á og hefur verið leiðsögu-
maður kafara í þetta flak í 37 ár, og
René Tamarelle, sem sá um skipu-
lag leiðangurs að flakinu auk þess
að vera fjárhagslegur stuðningsaðili
rannsóknarinnar.
Jean-Pierre Joncheray hefur
stundað kafanir og rannsóknir á
skipsflökum um allan heim í rúma
hálfa öld og gefið út 33 bækur. Bók-
in um Pourquoi pas? var síðasta
bókin sem hann gaf út en hann lést
viku eftir útgáfu bókarinnar, 80 ára
gamall. Í bókinni er hægt að finna
allar upplýsingar um skipið, tilgang
þess og leiðangra. Bókin er gefin
út á þremur tungumálum; frönsku,
ensku og íslensku og hana er hægt
að kaupa hjá Svani í verslun hans
Brúartorgi í Borgarnesi. „Ég ákvað
að kaupa nokkur eintök og selja hér
heima því það var enginn annar að
selja þessa bók hér á Íslandi. Þetta
er merkileg saga og mikilvægt að
geta nálgast upplýsingar um skip-
ið og slysið,“ segir Svanur í samtali
við Skessuhorn. Svanur keypti auk
þess nokkur eintök og gaf á nokkur
söfn. Hann átti þrjú eintök eftir nú
fyrir helgi en átti von á fleiri ein-
tökum til landsins. „Þessi bók er í
raun bara skýrsla um skipið fléttað
saman við sögu þess og rannsóknir
á liðnum árum,“ segir Svanur.
arg
Svanur Steinarsson hefur tekið bókina um Pourquoi pas í sölu hjá Brúartorgi í
Borgarnesi.
Bók um rannsókna-
skipið Pourquoi pas?
Vinstrihreyfingin grænt fram-
boð í Norðvesturkjördæmi verð-
ur með forval til að ákveða fram-
boðslista fyrir komandi alþingis-
kosningar. Flokkurinn á nú einn
þingmann í kjördæminu; Lilju
Rafneyju Magnúsdóttur á Suður-
eyri, en varaþingmaður er Bjarni
Jónsson á Sauðárkróki. Sam-
kvæmt heimildum Skessuhorns
stefna þau bæði á forystu áfram.
Kjörstjórn hefur nú auglýst eft-
ir frambjóðendum. Forvalið fer
fram með rafrænum hætti dag-
ana 23., 24. og 25. apríl, en kosn-
ing hefst á miðnætti 23. apríl og
stendur til kl. 17:00, 25. apríl.
Kosið verður um fimm efstu sæti
á listanum, þar af bindandi í efstu
þrjú en í samræmi við forvalsregl-
ur VG. Framboðsfrestur renn-
ur út á miðnætti 2. apríl. Þá mun
kjörstjórn taka við tilnefningum
almennra félaga um frambjóð-
endur fram til 26. mars á netfang-
ið nordvestur@vg.is Atkvæðisbær
í forvalinu eru allir sem skráðir
eru í hreyfinguna í kjördæminu
tíu dögum fyrir kjörfund, eða 13.
apríl. mm
Forval verður hjá VG í
Norðvesturkjördæmi