Skessuhorn - 05.05.2021, Side 25
miðvikudagur 5. maí 2021 25
Útskriftarnemendur Fjölbrauta-
skóla vesturlands á akranesi héldu
lokahóf sitt, dimmisjón, í gær,
þriðjudaginn 4. maí. venju sam-
kvæmt hófst fögnuðurinn á því að
nemendur buðu kennurum og öðru
starfsfólki skólans upp á morg-
unverð í sal skólans. að því búnu
lögðu útskriftarnemendur af stað í
skemmtiferð þar sem hópurinn átti
góðan dag saman.
arg/ Ljósm. Björg Bjarnadóttir
knattspyrnufélagið kári leikur í 2.
deild karla fjórða árið í röð í sum-
ar en liðið endaði í sjöunda sæti í
fyrra. Ásmundur guðni Haraldsson
var ráðinn þjálfari kára í nóvember.
við settumst niður með Ása í smá
spjall og fórum yfir fótboltasumar-
ið sem framundan er:
Hvernig hefur undirbúnings-
tímabilið gengið? „Það hefur geng-
ið heilt yfir ágætlega en þó með
einhverjum faraldurshöktum og
slíku. Liðið hefur æft tiltölulega
vel en kannski ekki fengið nógu
marga leiki núna síðastliðnar vikur
eins og lög gerðu ráð fyrir. Hóp-
urinn minnkaði svo eftir því sem
á leið og aðeins búið að grisja út
og búa til pláss fyrir hina ungu og
efnilegu leikmenn ía sem nú hafa
bæst í hópinn. Úrslitin úr þessum
fáu leikjum hafa verið upp og ofan
en alltaf framþróun í spilamennsku
liðsins sem er mjög mikilvægt fyrir
káraliðið.“
Líst vel á deildina
„mér líst mjög vel á deildina, held
að hún verði jöfn og skemmti-
leg. mörg lið eru mönnuð og vel
þjálfuð lið sem ætla sér stóra hluti
í deildinni. virkilega sterk deild og
það er eitthvað sem við hlökkum til
að takast á við. deildirnar eru alltaf
að verða betri og betri og metnað-
urinn á bak við klúbbana og starfið
er mikill. Það eru bara miklu fleiri
betri leikmenn í þessari deild en
voru fyrir 10-15 árum og því held
ég að það verði virkilega gaman að
taka þátt í sumar.“
Það má með sanni segja að önnur
deildin sé mikil landsbyggðardeild,
en er ekki alltaf stemning að spila
úti á landi fyrir þessa ungu stráka
og er það ekki gott í reynslubank-
ann?
„Það myndi ég nú halda. Það er
mikill sjarmi við það að fara út á
land, heimsækja falleg bæjarfélög
og spila fótbolta við stórkostlegar
aðstæður. með brekkuna fulla af
ástríðufullu heimafólki sem styður
sitt lið. Ef þessar aðstæður eru ekki
til þess fallnar að undirbúa unga
stráka fyrir alvöruna þá eru fáar
slíkar til. Þeir hafa svo með sér eldri
og reyndari leikmenn sem hafa séð
tímana tvenna til þess að leiða þá í
gegnum þetta.“
Heimaleikir í höllinni
Nú spilar kári alla heimaleiki sína
á gervigrasi og inni í akraneshöll,
er þetta eitthvað sem hentar ykk-
ur sérstaklega eða sjáið þið fram á
að kíkja út í góða veðrið á næstu
árum?
„auðvitað væri gaman að geta
spilað úti við bestu aðstæður á
sumrin í góða veðrinu á Skagan-
um. Ég hugsa að allir geti verið
sammála því. En ég held bara að
það henti allri umgjörð og öðru að
spila í akraneshöllinni eins og sakir
standa á meðan að okkur býðst ekki
önnur aðstaða. Hugsa að við séum
ekki að fara að spila á aðalvellinum
og æfingasvæðið býður okkur ekki
upp á aðstæður sem myndu teljast
boðlegar fyrir 2. deild,“ segir Ás-
mundur guðni að lokum.
kári spilar við kF í fyrstu um-
ferð íslandsmótsins á laugardaginn
næsta í akraneshöllinni og hefst
leikurinn kl. 14.
vaks
rafíþróttaaðstaða ungmennafélags
grundarfjarðar er tilbúin og nú er
ekkert að vanbúnaði að hefja nám-
skeið. Stefnt er að því að fyrstu raf-
íþróttanámskeiðin hefjist 10. maí
næstkomandi. miðvikudaginn 28.
apríl mættu meðlimir úr stjórn
umFg ásamt þjálfurum og um-
sjónarmönnum hússins til að prófa
aðstöðuna með allar tölvur í notk-
un. Það gekk ljómandi vel og því
ekkert að vanbúnaði að hefja æf-
ingar. Á meðfylgjandi mynd má
m.a. sjá þau Loft Árna Björgvins-
son þjálfara, mikael mána Hinriks-
son iðkanda og Sigríði guðbjörgu
arnardóttur formann umFg þar
sem þau reyndu á hæfileika sína í
tölvuleiknum rocket League.
tfk
í dag, miðvikudaginn 5. maí, mun
íþrótta- og Ólympíusamband ís-
lands hefja heilsu- og hvatningar-
verkefnið Hjólað í vinnuna í nítj-
ánda sinn. verkefnið stendur að
vanda yfir í þrjár vikur eða til 25.
maí. Á þeim tíma eru landsmenn
hvattir til að hreyfa sig og nýta sér
heilsusamlegar, umhverfisvænar og
hagkvæmar samgöngur með því að
hjóla, ganga eða nota annan virkan
ferðamáta.
Nú sem aldrei fyrr er nauðsyn-
legt að huga vel að heilsunni og
sinna sinni daglegu hreyfingu. Það
er mjög mikilvægt fyrir vinnustaði
landsins að standa vörð um starfs-
andann á þessum fordæmalausu
tímum. verkefnið Hjólað í vinnuna
er góð leið til þess að hressa upp á
stemninguna og þjappa hópnum
saman. Hjólreiðar eru bæði virk-
ur og umhverfisvænn ferðamáti og
jafnframt eru þær frábær útivist,
hreyfing og öflug líkamsrækt.
mm
Mikill sjarmi við það að fara út á land
Segir Ásmundur Guðni þjálfari Kára á Akranesi
Ásmundur Haraldsson þjálfari Kára.
Gyða Sól hjólar hér í vinnuna. Ljósm. úr safni.
Verkefnið Hjólað í vinnuna hefst í dag
Rafíþróttahús UMFG tilbúið
Steinunn
skólameistari
tekin föst.
Dimmi-
terað í
FVA
Útskriftarnemendur ásamt Steinunni skólameistara.