Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Page 3

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Page 3
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2012 Svala Rakel Hjaltadóttir: Amma mín Þórhildur Vigdís Sigurðardóttir Ég mælti mér mót við ömmu mína, hana Þórhildi Vigdísi Sigurðardóttur (Dúddu) og við ræddum saman yfir volgum vöfflum og ilmandi kaffi. Hún erfæddþann 17.jú!í 1943, í Hafi'iarfirði, en fluttist til Reykjavíkur nokk- urra mánaða gömul. Æskustöðvarnar eru bœði í Reykjavík og á Höfða í Biskupstungum, við túnfótinn í Skálholti. Höfði er óðalsjörð og landnámsjörð. Þar nam Gissur hvíti land og gaf spildu úr landi sínu til sonar síns, Isleifs Gissurarsonar, sem varð fyrsti bisk- up í Skálholti. Það var langamma ömmu minnar, Guðrún Guð- mundsdóttir, fædd 1852, ættuð frá Stóra-Fljóti í Biskupstungum, af Kópsvatnsætt, sem fékk Höfðann í heimanfylgju er hún fór úr föðurgarði. Hún eignaðist þrjá eiginmenn og missti þá alla unga. Hún hóf búskap á Höfða ásamt unnusta sínum, Katli Sigurðssyni, en hann lést, aðeins 24 ára að aldri, eftir að hafa ofkælst. Þá giftist hún Þorsteini Einarssyni, frænda sínum, en þau hjónin voru systkinaböm. Þau vora mjög samhent og bæði vel efnuð er þau hófu búskap. Það var svo dóttir þeirra, Jóhanna, sem varð amma ömmu minnar. Hún fæddist og bjó á Höfða alla sína tíð. Þriðji maður Guðrúnar var Þórður Þorsteinsson. Kaffi og kames Amma horfir dreymin ofan í kaffibollann þegar hún rifjar upp fyrstu minningar sínar frá Höfða, sem eru frá því um fjögurra ára aldurinn. Hún segir frá því þegar móðir hennar og hún sváfu saman í herbergi, sem kallað var kamesið, sem var gamla hjónaherberg- ið. Það var með mjög fallegu betrekki á öllum veggj- um. Þá var afi ömmu dáinn og amma hennar flutt inn í baðstofuna. Þær mæðgumar sváfu saman í rúmi sem hægt var að stækka og minnka. Rúna, móðursystir hennar, sem bjó á Höfða fram á elliár, kom og vakti þær með kaffi á hverjum morgni og að sjálfsögðu fékk hún sér einnig kaffi og mola með. Sem barn og unglingur fór amma austur að Höfða í maí, ár hvert, og dvaldi þar fram í september. Einnig kom fyrir að hún dvaldi þar vetrarlangt. Eg spurði hana hvernig hún hefði ferðast á milli, og kvaðst hún iðulega hafa tekið áætlunarbíl með Ola Ket., Olafi Ketilssyni, frá bifreiðastöðinni austur að Brúará, oft ásamt Gunnu frænku sinni. Þá fóru þær alltaf með köttinn hennar Gunnu í strigapoka og sátu þannig með hann í fanginu austur. Síðan fóru þær ýmist fótgangandi eða á hestum að Höfða, en Gunna frænka var mikil hestakona. Hesta segist amma hafa byrjað að sitja fjögurra ára gömul, þótt ég eigi nú bágt með að trúa því, og hún segist hafa verið hverja stund sem hún mátti á hestbaki. Mjólkin á klakk Þegar þarna er komið rifjar amma upp sögu af því þegar Ragnheiður, dóttir Brynjólfs biskups, strauk frá Bræðratungu, þar sem hún dvaldi, og sundreið Hvítána. Kom hún upp í Ferjuklaufinni í Höfðalandi. í Höfða er sagan við hvert fótmál enda Skálholt innan seilingar. Jón biskup Arason, Brynjólfur biskup og Ragnheiður dóttir hans voru, ásamt Jóni Gerrekssyni, eins og heimilisvinir og mikið um þau rætt, og allt eins og hefði það gerst í gær. Þegar amma dvaldi í sveitinni var hún oftast eina barnið. Hún segir frá því hversu sérstakt og þrosk- andi það hafi verið að alast upp með fullorðnu fólki og gamalmennum. Mér lék hugur á að vita hvað amma hefði helst ver- ið að sýsla í sveitinni svona ung. Hún sagðist hafa sótt og rekið kýrnar, frá því hún var smástelpa, og stundum mokað flórinn, þótt það hafi verið leiðinlegt. Svala Rakel Hjalta- dóttir erfœdd 14. nóvember 1992. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Islands vorið 2012 og leggur nú stund á lífeindafræði við Háskóla Islands. Faðir hennar er Hjalti Jónsson, rekstrarhagfrœðing- ur og móðir hennar er Jóhanna Andrea Guðmundsdóttir lífeindafrœðingur. Svala Rakel á tvo bræður: Jón Andra, 23 ára, sem stundar framhaldsnám í verkfrœði í Bandaríkjunum og Hjalta Dag sem er 11 ára. Meðfylgjandi ritgerð um ömmu sína skrifaði Svala Rakel á nœstsíð- asta ári sínu í Verzlunarskólanum. http://www.ætt.is 3 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.