Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Page 18

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Page 18
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2012 En þegar flytja átti ullina í kaupstað um vorið sá Gunnar að einn pokann vantaði. Sagði Anna að Gunnar hefði orðið vondur og sagt ljótt, en aldrei komst hann að sannleikanum. Anna var hjá Jónasi og Maríu, fyrst á Alfgeirs völlum og síðar á Asum í Húnaþingi. Eitt sumar voru tvær kaupakonur á Asum, Þórdís og Margrét. Urðu þær báðar ófrískar af völdum þeirra bræðra Pálma og Sigurðar. Fæddust svo tveir dreng- ir á réttum tíma. Sonur Pálma heitir Baldur og vinnur hann hjá Utvarpinu. Sonur Sigurðar heitir Marínó og er hann nú bóndi á Alfgeirsvöllum. Margrét er dóttir Kristófers á Asum í Köldukinn í Húnaþingi. Hún ól sjálf upp son sinn, Baldur. Þórdís vildi ekkert hafa með sinn son að gera. Olst hann því upp hjá afa sínum og ömmu á Alfgeirsvöllum. Skilin eftir allslaus Ekki var vistin of góð fyrir Önnu hjá Jónasi og Maríu á Ásum; var hún látin vinna verk með iélegum áhöld- um og aðbúnaði, svo sem að moka fjós með hross- herðablaði og bera mykjuna á haug í fötu, sækja vatn í fjós og bæ, svo eitthvað sé nefnt. Eitt sinn datt hún og braut þumalfingur á annarri hendi. Var ekkert við það gert eða hlíft við verkum meðan hún var í sárum. Anna Gunna ✓ Finnsdóttir á Asum Fólkið burt flutti afbænum ífjarlœgð með bjarta vorblænum. Pað girntist ei gamla hjúið, sem greinilega orðið var lúið. Anna sat eftir í hreysi ein með sitt umkomuleysi. Grátin afsöknuði sárum, sá hún ei neitt fyrir tárum. Hvar fœ ég kaffi að drekka? Kerlingin mœlti með ekka. Enginn vill auma mig gleðja ellegar hungur mitt seðja. A vergang því víst má ég fara, til vinnunnar síst skal mig spara, þvífái égfœði og larfa, fús er ég œtíð til starfa. O, Guð, þú sem grœðir hrjáða gleður og huggar smáða, víst má ég á þig vona vesöl og einmana kona. Agnes Guðfinnsdóttir Agnes Guðfinnsdóttir kynntist Önnu Guðrúnu Finnsdóttur vel þegar hún var vinnukona hjá henni og manni hennar, Jóni Jóhannessyni, á Ytra-Skörðugili í Skagafirði. Árið 1920 keypti Jónas Álfgeirsvelli af Ólafi Briem, er hann flutti suður. Skildu þau Jónas og María Önnu allslausa eftir í Ásabænum. Sögðust þau ekkert hafa með hana að gera og yrði hún að sjá um sig sjálf. Anna hafði aldrei haft neitt kaup öll þau ár er hún var búin að vera hjá þeim hjónum annað en gömul og útslitin föt af Maríu sem ekki voru til annars en að fleygja. Þó var það betra en í Syðra- Vallholti, því ekki hefur stórbóndakonan gengið í strigapilsi eða sjóvettlingum í sokkastað. Enda kvart- aði Anna ekki undan því. Sat hún nú eftir grátandi í Ásabænum. Hafði hún ekki flet til að sofa í og ekk- ert til að nærast á. Tók hún það ráð að leggja á stað gangandi til Skagafjarðar og leita á náðir hreppsnefndar Seyluhrepps. Vildi hún komst að Álfgeirsvöllum. Fór nefndin að hitta Jónas bónda. Hann neitaði að taka við Önnu, nema fá meðgjöf með henni, en nefndarmenn töldu að Anna ætti það inni hjá Jónasi, þar sem hún hefi aldrei fengið annað kaup hjá hon- um en gömul og ónýt föt fyrir áratuga vinnu. Varð það úr að Jónas tók hana í fá ár og skilaði henni svo á Seyluhrepp. Fróð og minnug Mér virtist Anna hafa sæmilega greind. Hún var fróð og minnug um menn og málefni frá fyrri árum en henni gekk illa að segja frá vegna hósta. Hún var komin hátt á tíunda áratuginn er hún sagði skilið við þennan vonda heim. Eg heyrði sitt hvað sagt frá Gunnari Gunnarssyni í Syðra-Vallholti þegar eg kom í Skagafjörð. Hann var sagður mesta hörkutól og fara illa með skepnur. Hann hafði alltaf fjölda hrossa en hirti ekki um að hafa fóður handa þeim. í hörðum vetrum hrundu þau niður úr hor og hirðingarleysi. Þegar þessir vesaling- ar voru að snöltra heim við bæ, hálfdauð úr bjarg- arleysi, sparkaði hann þeim bara fram af bæjarhóln- um og lágu þau þar unns yfir lauk. Mannorðið lifir þótt maðurinn deyi. (millifyrirsagnir eru ritstjóra) http://www.ætt.is 18 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.