Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Blaðsíða 4

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Blaðsíða 4
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2012 Dúdda, amma mín, uppábúin á ljósmyndastofu, fjög- urra eða fimm ára gömul. „Þegar ég fór að stálpast mjólkaði ég kýrnar og svo fór ég með mjólkina fram að Laugarási á hestum. Heima var mjólkin geymd ofan í djúpum brunni, til kælingar, og brúsamir síðan dregnir upp með reipum. Síðan voru þeir hengdir upp á klakk á hestunum. Bændurnir í Auðsholti komu á bátum, á hverjum degi,yfirHvítámeð sínamjólk,aðAuðsholtshamrinum í Laugaráslandi. Þeir hjálpuðu mér alltaf að taka brús- ana af klökkunum,“ sagði amma. Þangað kom svo mjólkurbíllinn og bakkaði alveg niður að árbakk- anum. Mjólkurbílstjórinn var frá Skálholti og þótti afar myndarlegur og því mikil spenna, þegar amma eltist, að fara með mjólkina. Til að panta vörar úr kaupstaðnum skrifaði amma hennar lista sem á stóð eftirminnilega: ostur, saltfiskur og „export“. Miðann afhenti hún mjólkurbílstjóranum sem kom svo með vörurnar næsta dag. Það var einmitt gegnum svona pöntunarmiða sem amma stalst til þess að panta sinn fyrsta varalit. Fyrir aftan orðið skrifaði hún: Bleikan! Þegar hann svo kom, fór hún út í móa, með spegil, og prófaði grip- inn. Hann var þá eldrauður! Setta, mamma hennar, skildi ekkert í hvaða vitleysa þetta væri, þegar það stóð varalitur á reikningnum! Prati og púðar „Jóhanna, amma mín, sem var fædd 1880, var mjög pjöttuð og söngelsk og mikil hestakona," segir amma. Hún var sögð eiga besta hestinn í sveitinni, hann hét Prati og var mikill skeiðhestur. Hún reið alltaf í söðli. Amma segist hafa fengið hestabakteríuna frá ömmu sinni. Hún svaf, segir amma, með marga púða undir höfðinu, næstum því upprétt, og alla púðana þurfti að hrista á hverju kvöldi. En undir öllum púðunum geymdi hún líka fallega, hvíta svuntu og hárlokk af Helgu dóttur sinni, sem hafði dáið úr lungnabólgu rétt rúmlega tvítug. Þessir hlutir voru ömmu heilagir og við þeim mátti aldrei hrófla. Oft greiddi „amma Dúdda“ og fléttaði hárið á Jóhönnu ömmu sinni, er þær sátu í baðstofunni. Hún hugsar til baka og það færist bros á vör þar sem hún sönglar í hálfum hljóðum lagið „Það gefur á bátinn við Grænland“, sem var það lag sem þær sungu oft- ast saman meðan á hárgreiðslunni stóð. Þetta sama lag spilaði svo hún amma mín á píanó, yfir Jóhönnu ömmu sinni, þegar kistan hennar stóð uppi, í Tungu við Suðurlandsbraut, þar sem amma mín bjó lengst af sem barn og unglingur. Þá hafði Sigurður, faðir ömmu, ásamt Steina og Gunnu, börnum Jóhönnu, brotist yfir Hvítá, á báti, í aftakaveðri, með kistuna, en þetta var snjóaveturinn mikla 1954. En það kom ekki annað til greina en að jarða Jóhönnu fyrir sunnan þar sem Víglundur, maður hennar, var jarðaður. Morgunblaðið og Tíminn Langamma mín, Sesselja, kenndi ömmu minni eftir- farandi vísu um Jóhönnu móður sína: Er í Höfða hún Jóhanna hrundin glaðlynd teljast má. Fjölmargt starfar.fríð í ranni fögur, meður börnin smá. „Fastur liður hjá mér í sveitinni, var að fara með Rúnu frænku út að Hrosshaga með Morgunblaðið. í staðinn fengum við Tímann, blað framsóknarmanna. Það var altalað að á þessum slóðum væri ferlega reimt, einkum við Langasundskelduna, en þar á ein- um Skálholtspresti eða biskupi að hafa verið drekkt. Ég var alin upp við draugasögur og því alltaf smá uggur í mér, en samt sem áður fannst mér þetta spenn- andi.“ Amma segir frá því að þegar Margrét, húsfrú í Hrosshaga, kom að Höfða, sem var oft, og alltaf í peysufötum, spurði hún alltaf: „Urðuð þið vör við eitthvað á undan mér?“ Þessi orð Margrétar fylltu ömmu forvitni og enn meiri spennu. Eitt sinn, sagði amma, datt ein kýrin dauð niður áður en Margrét kom að bænum. I annað sinn brotnaði ljárinn í hesta- sláttuvélinni, skömmu áður en Margrét birtist. Amma man líka eftir álagalaut í túninu þar sem bjó huldufólk. Kona kom til Guðrúnar, langömmu hennar, í draumi og bað hana um að láta hvorki slá né hreyfa við þessum bletti, en í klettum þar rétt hjá http://www.ætt.is 4 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.