Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Page 6

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Page 6
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2012 Hér stendur hún amma mín á heimreiðinni að Höfða, bænum sem er henni svo kær. í bakýn er Hvítá þar sem laxinn var veiddur og Auðsholtið sem var að hluta í eigu forfeðra hennar og fjölskyldu fram á miðja síðustu öld. Vörðufellið rís hátt í suðrinu. asti „flakkarinn“ í Tungunum. Hann var víst einbúi þótt hann væri á sífelldu flakki. Sagt var að hann ætti tuttugu ketti. Hann var kallaður „Palli í Kotinu“. Hann var illa til fara, með mikið skegg, og ömmu fannst hann ógnvekjandi. Hann var alltaf með stóran poka með sér og amma var hrædd um að hann mundi stinga henni í pokann og taka hana með sér. Hann flakkaði á milli bæja og dvaldi stundum næturlangt á Höfða. Pokinn hans var alltaf fylltur af mat þegar hann fór. Afanöfnin Víglundur, móðurafi ömmu Dúddu, var mjög söng- elskur. Hann varforsöngvari íkirkjunni áTorfastöðum á yngri árum og síðar alla sína tíð í Skálholtskirkju. Einar Kri stjánsson stórsöngvari var bróðursonur hans. Víglundur missti föður sinn ungur og var settur í fóstur til Magnúsar Helgasonar prófasts á Torfastöðum, síð- ar skólastjóra Kennaraskólans, og hlaut þar mjög gott uppeldi og atlæti. Víglundur skírði síðar elsta son sinn, Magnús Víglundsson, í höfuðið á honum. Víglundur var búfræðingur og var því vel undir búskapinn búinn þegar hann giftist Sesselju, fyrri konu sinni, frá Auðsholti. Með henni fékk hann hálft Auðsholtið. Hann missti hana mjög fljótlega og Sesselja langamma mín, sem var fyrsta barnið hans í seinna hjónabandi, með Jóhönnu, var skírð nafninu hennar. Víglundur tók móður sína, Halldóru Snorradóttur, til sín að Höfða, eftir að þau Jóhanna giftust. Halldóra, sem lést 1932, var blind árum saman. Þannig dóu báðar ömmur „ömmu Dúddu“ á Höfða. Halldóra hafði misst Helga mann sinn, aðeins 42 ára gamlan, frá fjórum drengjum, níu, sex, fimm og þriggja ára. Amma var skírð Þórhildur eftir föðurafa sínum, Þórði í Vötmúla, sem dó ári áður en hún fæddist, og Vigdís eftir Víglundi, móðurafa sínum. Víglundur náði að sjá ömmu mína nýfædda, en hann lést þegar hún var á fyrsta ári. Bjargaði Skálholti Amma er mjög stolt þegar hún segir mér að Víglundur afi hennar hafi farið ásamt tveim öðrum hreppsnefnd- armönnum, þeim Þorfinni á Spóastöðum og Tómasi í Auðsholti, suður á fund biskups, til þess að mótmæla því að Skálholtskirkja var lögð af og sóknin flutt að Torfastöðum. Það varð til þess að gert var við kirkj- una og sóknin stofnuð aftur. Um þessa „suðurför“ þeirra hreppsnefndarmannanna vitnar lítið skilti í anddyri Skálholtskirkju. En Víglundi, afa „ömmu Dúddu“, sem þótti ein- staklega vandaður og vammlaus maður, tókst ekki eins vel til þegar hann skrifaði upp á plagg þar sem hann afsalaði sér Arnarholtinu, föðurleifð sinni Þá hafði honum verið gefið einum of mikið í glas, sögðu þær dætur hans, en annars mátti varla á þessi hræðilegu mistök minnast. Amma segir mér að flest leiðin í Skálholtskirkju- garðinum hafi verið sléttuð út, en leiði Halldóru Snorradóttur, ömmu hennar, sé þó enn sýnilegt og vel merkt, og hjá henni hvílir sonardóttir hennar, Helga, sem dó úr lungnabólgunni tvítug að aldri. Við þessa löngu frásögn ömmu minnar geri ég mér ljóst hversu djúpar rætur hennar eru í Biskupstungunum og minningarnar margar. Þar raða bæirnir sér upp hver við annan: Höfði, Arnarholt og Auðsholt sem allir voru í eigu forfeðra hennar og svo Skálholt, Bræðratunga, Hvítárbakki, Hrosshagi og Spóastaðir, þar sem sam- skiptin voru mikil, kynslóð fram af kynslóð. http://www.ætt.is 6 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.