Morgunblaðið - 26.01.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 2021
Fenix
• Slitsterkt og hitaþolið yfirborðsefni
• Silkimjúk áferð við snertingu
• Sérsmíðum eftir máli
Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Nokkur tilboð hafa borist í Lands-
bankahúsið við Pólgötu á Ísafirði
sem er til sölu. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu á dögunum er ætl-
unin að flytja starfsemi útibús bank-
ans í byggingu skammt frá núver-
andi stað, það er Hafnarstræti 19
þar sem Sparisjóður Vestfirðinga
var áður. Starfsemin verður þó
áfram í hjarta bæjarins.
Hús Landsbankas á Ísafirði er á
fjórum hæðum; kjallari, tvær hæðir
og ris. Grunnflötur er um 220 m2 en
alls er húsið um 830 m2. Af-
greiðslusalur og aðstaða fyrir við-
skiptavini var á 1. hæð en á 2. hæð
var m.a. íbúð fyrir útibússtjóra. Í
svip er bankahúsið mjög líkt bygg-
ingu Landsbankans á Selfossi, er þó
minna og hlutföll önnur. Sem kunn-
ugt er var húsið á Selfossi selt ný-
lega, enda hentar það ekki lengur
starfsemi bankans. Sama er uppi á
teningnum á Ísafirði. Breyttur veru-
leiki í bankastarfsemi kallar á önnur
húsakynni.
„Nokkur tilboð hafa borist í hús
Landsbankans við Pólgötu á Ísafirði
en engu þeirra hefur verið tekið af
hálfu bankans,“ segir Rúnar Pálma-
son, upplýsingafulltrúi Landsbank-
ans.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ísafjörður Landsbankahúsið er afar sterkur hluti af bæjarmyndinni.
Bankahúsið er óselt
Tilboðum sem borist hafa ekki tekið
Landsbanki áfram í hjarta bæjarins
lega,“ segir Nanna Kristín sem
skrifaði handritið sem byggist á
söngleik Dr. Gunna. Hún segir að
myndin verði dans- og söngvamynd
fyrir alla fjölskylduna. „Grunnurinn
og boðskapurinn verður sá sami þó
ýmislegt breytist. Þetta verður ótrú-
lega skemmtilegt,“ segir Nanna sem
segir ekki tímabært að ljóstra upp
um leikara í myndinni. Hún getur
þess þó að Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson útsetji og semji tónlist, Val-
gerður Rúnarsdóttir sé danshöf-
undur og Ásgrímur Guðbjartsson
sjái um kvikmyndatöku. Ekki liggur
fyrir hvenær myndin verður frum-
sýnd.
Auk þessara tveggja mynda hafa
þrjár kvikmyndir fengið vilyrði um
framleiðslustyrk í ár; Fálkar að ei-
lífu sem Óskar Þór Axelsson leik-
stýrir, Northern Comfort sem Haf-
steinn Gunnar Sigurðsson stýrir og
Volaða land eftir Hlyn Pálmason.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta verður fyrsta bíómynd mín í
rúm tíu ár sem er mér og mínum
mikið gleðiefni. Ég er mjög spennt-
ur fyrir þessu verkefni, bæði verður
leikhópurinn frábær og svo er þetta
öðruvísi mynd en ég hef áður gert,“
segir Hilmar Oddsson kvikmynda-
leikstjóri.
Hilmar hefur fengið vilyrði fyrir
110 milljóna framleiðslustyrk frá
Kvikmyndamiðstöð Íslands til að
gera kvikmyndina Á ferð með
mömmu. Hlín Jóhannesdóttir fram-
leiðir og nú er unnið að framhalds-
fjármögnun í öðrum löndum. Mynd-
inni er lýst svona á vef Kvikmynda-
miðstöðvar: „Þegar móðir Jóns og
hans mesti áhrifavaldur fellur frá
verða alger umskipti í lífi hans. Með
uppáklætt líkið í aftursætinu og
hundinn Brésnef við hlið sér tekst
hann á hendur ferð þvert yfir landið
til að heiðra hennar síðustu ósk. En
mamma hefur ekki sagt sitt síðasta.“
Þröstur Leó Gunnarsson leikur
Jón og Kristbjörg Kjeld leikur
mömmu hans. Þá fer Hera Hilm-
arsdóttir, dóttir leikstjórans, með
stórt hlutverk í myndinni. Tökur
hefjast í ágúst.
„Ég er búinn að stefna leynt og
ljóst að því að gera þessa mynd í 25
ár þannig að þetta er einhver
lengsta meðganga kvikmyndar sem
um getur. Það er reyndar gott þegar
hlutir fá að veltast í undirmeðvitund-
inni lengi, ég finn það núna þegar ég
vinn að þessu verkefni,“ segir Hilm-
ar sem segir hugmyndina hafa orðið
til eftir samtal hans og Þrastar Leós
við gerð myndarinnar Tár úr steini
1994. „Við vorum á Bíldudal og hann
var að segja mér sögur úr sínum
heimahögum. Úr varð hugmynd sem
ég gleymdi aldrei. Aðalhlutverkið er
því brennimerkt Þresti Leó,“ segir
leikstjórinn.
Fleiri kvikmyndir eru í farvatninu
í ár. Tökur eru hafnar á Abbababb! í
leikstjórn Nönnu Kristínar Magnús-
dóttur. „Vegna Covid dreifast tökur
meira en ella. Fólk er að taka hlé,
þetta er flóknara tímabil en venju-
Hugmyndin 25 ára gömul
Fimm kvikmyndir hafa fengið vilyrði fyrir framleiðslu-
styrk í ár Hilmar Oddsson með stórskotalið í vegamynd
Morgunblaðið/Hari
Tökur Minnst fimm nýjar íslenskar kvikmyndir eru á teikniborðinu í ár.
Hilmar
Oddsson
Nanna Kristín
Magnúsdóttir
Allt að þrettán íslenskar kvikmyndir og átta sjónvarpsþáttaraðir gætu
verið frumsýndar á árinu, samkvæmt yfirliti á Klapptré.is. Meðal kvik-
mynda eru Alma eftir Kristínu Jóhannesdóttur, Saumaklúbburinn sem
Gagga Jónsdóttir leikstýrir, en myndin er einskonar systurmynd Veiði-
ferðarinnar, og Skjálfti sem Tinna Hrafnsdóttir leikstýrir. Sú mynd er
byggð á bók Auðar Jónsdóttur og Anita Briem fer með aðalhlutverkið.
Tvær aðrar myndir sem byggðar eru á þekktum skáldsögum eru í píp-
unum; Svar við bréfi Helgu sem Ása Helga Hjörleifsdóttir gerir og Sum-
arljós og svo kemur nóttin í leikstjórn Elfars Aðalsteinssonar. Af þátta-
röðum má nefna Kötlu, Ófærð 3 og Stellu Blómkvist 2.
Mikið af nýju efni í pípunum
BLÓMLEGUR KVIKMYNDABRANSI Á ÍSLANDI
Í síðustu viku samþykkti manna-
nafnanefnd aðra útgáfu af nafni en
það sem lagt hafði verið fyrir nefnd-
ina. Þannig var eiginnafninu Alaia
hafnað, en þess í stað var ákveðið að
úrskurða nafnmyndina Alaía í
mannanafnaskrá. Að sögn Sigurðar
Konráðssonar, prófessors og nefnd-
armanns í mannanafnanend, heyrir
það til undantekninga að nefndin
leggi til aðra framsetningu á nafni
sem ekki hlýtur brautargengi. „Það
er mjög óalgengt en ef það er eitt-
hvað alveg náskylt sem samræmist
lögum þá kannski bendum við á það.
Það gerist ekki oft enda er það í
sjálfu sér óþarfi að gera það. Hins
vegar getur það verið ákveðið vinnu-
hagræði í þeim skilning að þá þarf
viðkomandi ekki endilega að byrja
aftur frá byrjun,“ segir Sigurður.
Eins og áður hefur verið greint
frá hefur Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir dómsmálaráðherra lagt fram
frumvarp á Alþingi sem snýr að
auknu frelsi við nafnaval. Hluti af
umræddu frelsi er að afnema há-
mark á fjölda nafna auk þess að
leggja niður mannanafnanefnd.
Sjálfur segist Sigurður ekki hrifinn
af ráðstöfuninni. „Þetta verður erf-
iðara og dýrara í framkvæmd. Í stað
þess að hafa áhugamannanefnd þá
þarf að standa fyrir sérstakri deild
eða manni í fullu starfi.“
Í nýjustu úrskurðum manna-
nafnanefndar má sjá margar
skondnar tillögur að nöfnum, þar á
meðal Aquamann, Lilith og Brett-
ingz. Aðspurður segir Sigurður að
ákveðinn galli sé á reglunum hvað
sérstök nöfn varðar. „Það er stór
galli á reglunum að öll nöfn sem
samþykkt eru fara inn á manna-
nafnaskrá. Eftir það getur hver sem
er notað þau. Með öðrum orðum
skiptir engu hvort sá sem er að
breyta um nafn sé fertugur karl á
fylleríi eða ungbarn. Það væri mikill
fengur í því að fá sérstaka skrá fyrir
þá sem vilja taka upp sérviskunöfn.“
Vill sérstaka skrá
fyrir sérviskunöfn
Nýtt fyrirkomulag verður dýrara
Andlát manns sem lést í Sundhöll
Reykjavíkur á fimmtudag er rannsak-
að sem vinnuslys. Er það vegna þess
að maðurinn var að störfum þegar and-
látið átti sér stað. Þetta staðfestir Jó-
hann Karl Þórisson, yfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn var með geðfatlaðan ein-
stakling í liðveislu þegar andlátið átti
sér stað. Er málið þess vegna á borði
lögreglufulltrúa og rannsakað sem
vinnuslys en ekki hjá miðlægri deild
lögreglu. „Við fengum málið til okkar
því hann var í vinnunni þar sem hann
starfaði sem stuðningsfulltrúi,“ segir
Jóhann Karl.
Í tilkynningu frá íþrótta- og tóm-
stundasviði Reykjavíkurborgar kemur
fram að laugarverðir hafi verið á sínum
stað í sal og turni Sundhallarinnar þeg-
ar slysið varð. Maðurinn er sagður
hafa verið sex mínútur á botni laug-
arinnar. Lögregla hefur fengið sendar
öryggisupptökur af atvikinu.
Andlátið rannsakað
sem vinnuslys
Segja verði hafa verið á sínum stað
Morgunblaðið/Eggert
Sundhöllin Slysið átti sér stað þar.