Morgunblaðið - 26.01.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 2021
Heimssýn hugsar upphátt aðgefnu tilefni:
Eins og viðmátti
búast sömdu
Bretar og
Evrópusam-
bandið á ell-
eftu stundu.
Sá samn-ingur lýtur að frjálsri verslun,
báðum til hagsbóta og hann veldur
mörgum í Noregi og á Íslandi heila-
brotum.
Hvernig stendur á því að Íslend-ingar greiða verulegar upp-
hæðir fyrir aðgang að markaði
Evrópusambandins sem er svo ekki
hindranalaus fyrir helstu útflutn-
ingsafurð Íslendinga, sjávaraf-
urðir?
Hvernig má það vera að Íslandætli að leyfa Evrópusamband-
inu að skattleggja alla ferðamenn
sem til Íslands koma frá löndum ut-
an Schengensambandsins?
Hvernig stendur á því að Íslend-ingar láta óteljandi reglur og
tilskipanir yfir sig ganga, óháð því
hvort þörf sé á þeim og hvað það
kostar samfélagið?
Hvernig stendur á því að Íslend-ingar framselja vald í orku-
málum til Evrópusambandsins?
Er ekki tímabært að endurskoðafyrirbærið EES?“
Íslensk stjórnvöld verða að líta íeigin barm. Væru þau burðugri
og gættu þeirra hagsmuna sem
þeim ber og ekki annarra hefðu
slíkar spurningar aldrei vaknað.
Von að spurt sé
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Borgarráð hefur samþykkt úthlut-
un lóðar og sölu byggingarréttar
fyrir 36 íbúðir við Skyggnisbraut
21-23, Silfratjörn 1-3 og Gæfutjörn
18 í Úlfarsárdal. Lóðarhafi er
Blær, leigufélag VR. Úthlutunin
byggist á lóðarvilyrði til VR sem
borgarráð staðfesti í nóvember
2018.
Hámarksbyggingarmagn er
samtals 3.405 fermetrar ofanjarðar
auk 1.204 m2 neðanjarðar. Greitt er
fyrir byggingarréttinn 45.000 kr.
pr. fermetra, sem er verð bygging-
arréttar fyrir húsnæðisfélög sem
rekin eru án hagnaðarsjónarmiða.
Heildargreiðsla fyrir byggingar-
rétt lóðarinnar, að meðtöldum
gatnagerðargjöldum, er krónur
198.662.418.
Lóðarhafi skuldbindur sig til þess
að selja tvær íbúðir, auk sameignar
og hlutdeildar í bílakjallara, á
kostnaðarverði til Félagsbústaða hf.
Fyrstu hugmyndirnar um Blæ
voru teiknaðar upp í kjarasamning-
unum 2015 þegar leigufélagið Bjarg
var sett á laggirnar, sagði Ragnar
Þór Ingólfsson formaður VR nýlega
í viðtali hér í blaðinu.
Alltaf hafi staðið til að vera með
hliðarfélag sem átti að heita Blær
og myndi styðja við starfsemi
Bjargs, þ.e.a.s. vera með meiri fé-
lagslega blöndun þannig að þessi
tvö félög gætu saman náð til fleiri
hópa sem væru jaðarsettir á mark-
aðnum.
Til hafi staðið að Blær myndi
byggja 400-500 íbúðir á ári og yrði
almennara leigufélag en Bjarg.
sisi@mbl.is
Blær hyggst byggja í Úlfarsárdal
Morgunblaðið/Ingó
Blær byggir Leigufélagið hefur
fengið úthlutaða lóð í Úlfarsárdal.
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur
ákveðið að tillögu svæðisráðs suður-
svæðis þjóðgarðsins, að fella nú þeg-
ar niður áður ákveðnar fjöldatak-
markanir í samningum sem gerðir
voru við fyrirtæki í atvinnutengdri
starfsemi í íshellaferðir og jökla-
göngur veturinn 2020-2021. Ástæð-
an er sögð vera sú að nú sé orðið
ljóst að sóttvarnaráðstafanir stjórn-
valda muni hafa mikil áhrif á ferða-
þjónustu á yfirstandandi ári og litlar
líkur séu á að veruleg aukning verði
á gestakomum ferðamanna til Ís-
lands fyrr en árið 2022 miðað við
þróun mála og áætlanir um bólu-
setningar.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu var ákveðið í fyrra að
koma á fót kvótaúthlutunum og setja
hámark á fjölda gesta sem mega
fara daglega í íshellaferðir og jökla-
göngur á fimm svæðum á sunnan-
verðum Vatnajökulsþjóðgarði til að
létta álag ferðamanna á þessum
stöðum. Slíkar ferðir voru flokkaðar
sem takmörkuð gæði og var því tak-
markað aðgengi í þær auglýst í fyrra
og gengið til samninga við fyrirtæki
sem bjóða upp á íshellaferðir og
jöklagöngur á suðursvæðinu. „Eftir
auglýsingu frá Vatnajökulsþjóðgarði
var 26 fyrirtækjum úthlutað dag-
legum sætum samkvæmt samningi
um atvinnutengda starfsemi í ís-
hellaferðum og jöklagöngum vet-
urinn 2020 – 2021,“ segir í frétt á
vefsíðu Vatnajökulsþjóðgarðs.
Tekið er fram að þrátt fyrir að nú
hafi verið ákveðið að fella niður
fjöldatakmarkanir í ljósi aðstæðna í
ferðaþjónustu, þá gildi áfram að
öðru leyti áðurnefndir samningar
um atvinnutengda starfsemi.
omfr@mbl.is
Fjöldatakmarkanir í
íshella felldar niður
Ferðirnar ekki
kvótasettar vegna
færri ferðamanna
Morgunblaðið/RAX
Íshellir Vegna fjölda gesta átti að
takmarka aðgengi í íshella.