Morgunblaðið - 26.01.2021, Page 12
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Bein erlend fjárfesting í heiminum
öllum dróst saman um 42% á síðasta
ári, samkvæmt Ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um viðskipti og þróun,
UNCTAD. Bein erlend fjárfesting í
heiminum var 1,5 trilljónir Banda-
ríkjadala árið 2019, en var 859 millj-
arðar dala á síðasta ári.
Segir UNCTAD í nýrri skýrslu að
óvissa vegna framvindu kórónu-
veirufaraldursins valdi áframhald-
andi neikvæðum áhrifum á erlenda
fjárfestingu í heiminum árið 2021.
Sögulega lágar tölur
Í frétt um málið sem birt er á vef
UNCTAD segir að jafn lágar tölur
hafi ekki sést síðan á tíunda áratug
síðustu aldar, og fjárfestingin sé 30%
undir fjárfestingu í kjölfar fjármála-
hrunsins 2008 – 2009.
Í frétt BBC af málinu er bent á að
Kína hafi nú í fyrsta skipti tekið fram
úr Bandaríkjunum sem það land sem
fær mestu beinu erlendu fjárfest-
inguna. Kína, sem var með 140 millj-
arða dala fjárfestingu árið 2019, óx
um fjögur prósent á síðasta ári upp í
163 milljarða dala. Á sama tíma
dróst fjárfesting í Bandaríkjunum
saman um 47% og fór úr 251 millj-
arði dala niður í 134 milljarða.
Í frétt BBC er bent á að þó að
Kína sé nú í forystu hvað nýja beina
erlenda fjárfestingu varðar, tróni
Bandaríkin enn á toppnum þegar
kemur að beinni erlendri fjárfest-
ingu samtals. Það endurspegli þá
staðreynd að landið hafi í áratugi
verið mest aðlaðandi staðurinn í
heiminum fyrir erlend fyrirtæki sem
vilja færa út kvíarnar í nýju landi.
Sérfræðingar í frétt BBC segja að
tölurnar núna undirstriki sókn Kína
inn að miðju heimshagkerfisins, þar
sem Bandaríkin, stærsta hagkerfi í
heimi, hafa verið leiðandi aðili um
langt skeið.
BBC segir einnig með vísan í spá
rannsóknarstofnunarinnar Centre
for Economics and Business Rese-
arch, að Kína muni taka fram úr
Bandaríkjunum árið 2028 hvað varð-
ar beina erlenda fjárfestingu sam-
tals.
Mjög lítil fjárfesting hér á landi
Á Íslandi hefur einnig dregið
verulega úr erlendri fjárfestingu á
síðustu árum og hefur fjárfesting al-
mennt leitað frá landinu, eins og seg-
ir í tillögum sem Viðskiptaráð Ís-
lands sendi frá sér í byrjun
desember sl. og fjallað var um í
Morgunblaðinu. Konráð S. Guðjóns-
son aðstoðarframkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs sagði þá við Morgunblað-
ið að ráðið teldi mögulegt að draga
úr óbeinum hindrunum sem standi í
vegi fyrir erlendri fjárfestingu hér á
landi. Það sjáist á t.d. á gögnum
OECD að óvíða séu meiri hömlur á
beina erlenda fjárfestingu meðal að-
ildarríkja samtakanna.
Konráð segir í samtali við
Morgunblaðið að bein erlend fjár-
festing hafi síðustu misseri verið
mjög lítil sem hlutfall af landsfram-
leiðslu og Ísland standi nágranna-
löndunum langt að baki.
„Erlend fjárfesting skiptir mjög
miklu máli er kemur að því að byggja
upp nýjar og gamlar atvinnugreinar,
og getur stutt við flestan atvinnu-
rekstur. Í þeirri stöðu sem við erum í
núna vantar sárlega fjárfestingu,
enda mikið atvinnuleysi. Það er til
mikils að vinna að laða erlent fjár-
magn til landsins,“ segir Konráð.
Hann segir að þegar rofi til í far-
aldrinum og fé byrji aftur að flæða á
milli landa, hljóti að myndast tæki-
færi í þessum efnum.
Aukning á þessu ári
Spurður um mat á því hvort gera
megi ráð fyrir aukningu á þessu ári
segir Konráð að vel gæti farið svo.
Margt lítið geri eitt stórt. „Vísisfjár-
festing var til dæmis óvenjukröftug í
fyrra, og það er ekki óvarlegt að hafa
væntingar um að það haldi áfram og
geti birst í beinni erlendri fjárfest-
ingu á næstu misserum, sem færi þá
í að byggja upp nýja tækni, fyrirtæki
og fjölbreytta starfsemi. Sérstak-
lega ef við sjáum óvissuna vegna
veirunnar minnka, þá má hafa fulla
trú á að við sjáum aukningu aftur á
þessu ári.“
Þróuð lönd misstu mest
Eins og fram kemur í skýrslu
UNCTAD og sjá má á meðfylgjandi
mynd urðu þróuð lönd fyrir mestum
samdrætti á árinu í Bandaríkjadöl-
um talið, en bein erlend fjárfesting
dróst saman um 69%, eða úr 730
milljörðum dala niður í 229 milljarða
dala.
Í einstaka Evrópulöndum má þó
sjá ljós í myrkrinu. Fjárfesting í Sví-
þjóð jókst til að mynda úr 12 millj-
örðum dala upp í 29 milljarða dala,
og á Spáni varð 52% vöxtur, sem
einkum er rakið til nokkurra við-
skipta, eins og fjárfestingu banda-
rísku fyrirtækjanna KKR og Provi-
dence sem keyptu 86% í
fjarskiptafyrirtækinu Masmovil.
Þegar litið er til annarra þróaðra
hagkerfa dróst erlend fjárfesting í
Ástralíu saman um 46%, og féll niður
í 22 milljarða Bandaríkjadala. Í Ísr-
ael hins vegar jókst fjárfesting úr 18
milljörðum dala upp í 26 milljarða.
Bein erlend fjárfesting í heiminum
dróst saman um 42% árið 2020
Erlend fjárfesting
» Óvissa með fjárfestingu á
þessu ári vegna veirunnar.
» Talið að Kína taki fram úr
Bandaríkjunum árið 2028.
» Fjárfesting í Svíþjóð jókst úr
12 milljörðum Bandaríkjadala
upp í 29 milljarða dala.
Kína í fyrsta skipti fram úr Bandaríkjunum Ísland eftirbátur nágrannaríkjanna Upp á Spáni
Erlend fjárfesting eftir svæðum 2019 og 2020
Milljarðar Bandaríkjadala
2019 2020
Breyting
2019-2020
Heimurinn allur 1.489 869 -42%
Þróuð lönd 730 229 -69%
Evrópa 344 -4 -101%
Norður-Ameríka 309 166 -46%
Þróunarlönd 702 616 -12%
Afríka 46 38 -18%
Suður-Ameríka
og lönd í Karíbahafinu 160 101 -37%
Þróunarlönd í Asíu 495 476 -4%
Hagkerfi í umbreytingu 58 13 -77%
Kína 140 163 +4%
Bandaríkin 251 134 -47%
Bandaríkin
-47%
Þróuð lönd
-69%
Heimurinn allur
-42%
Mið- og S-Ameríka
-37%
Afríka
-18%
Evrópa
-101% Kína
+4%
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 2021
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
● Endanlegt frumvarp að nauðsamn-
ingi VHE liggur nú fyrir. Líkt og Morg-
unblaðið greindi frá í lok síðasta árs
er það tillaga umsjónarmanns félags-
ins að kröfuhafar gangi að samningi
um að fella niður 50% krafna sinna. Í
kjölfarið fái þeir greidd 10% eftir-
stöðvanna með peningum, eigi síðar
en tveimur mánuðum eftir að nauða-
samningur kemst á og 40% í formi
skuldabréfs sem afhent verði að jafn
löngum fresti liðnum. Um sé að ræða
óverðtryggð skuldabréf til sjö ára með
60 mánaðarlegum afborgunum sem
verði með fyrsta gjalddaga tveimur ár-
um eftir útgáfu þeirra. Samkvæmt
samningnum munu þeir kröfuhafar
sem eiga lægri kröfu en 100 þúsund
krónur á VHE fá þær greiddar að
fullu. Landsbankinn er viðskiptabanki
VHE og hefur haft mest um nið-
urstöðu málsins að segja. Þá hefur
bankinn beitt sér fyrir eignasölu út úr
VHE og þannig hafa m.a. dótturfélögin
Varmi og Vélaverk, Landvélar og Fálk-
inn verið seld til nýrra eigenda.
Morgunblaðið/Eggert
Potturinn og pannan Unnar Steinn
Hjaltason er stærsti eigandi VHE.
Kröfuhafar fái 50% frá VHE gangi allt að óskum
STUTT
26. janúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.14
Sterlingspund 176.28
Kanadadalur 101.58
Dönsk króna 21.102
Norsk króna 15.195
Sænsk króna 15.572
Svissn. franki 145.74
Japanskt jen 1.2442
SDR 186.17
Evra 157.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.3501
Hrávöruverð
Gull 1853.6 ($/únsa)
Ál 1975.5 ($/tonn) LME
Hráolía 56.0 ($/fatið) Brent
● Heildarvelta með hlutabréf á aðal-
lista Kauphallarinnar nam 1.669 millj-
ónum króna í gær. Mest var veltan með
bréf Arion banka sem lækkaði um
4,15% í 287 milljóna króna viðskiptum.
Þá lækkuðu bréf Icelandair Group um
4,38% í 255 milljóna króna viðskiptum.
Eik fasteignafélag lækkaði um 1,09% í
238 milljóna króna viðskiptum og þá
lækkaði Marel um 1,53% í 157 milljóna
viðskiptum. Aðeins eitt félag hækkaði í
viðskiptum gærdagsins, Origo. Bréf fé-
lagsins þokuðust upp um 0,13% í litlum
sem engum viðskiptum. Þá stóðu bréf
Brims í stað. Lækkun varð á öllum öðr-
um félögum, auk þeirra sem að ofan
voru nefnd.
Talsverðar lækkanir