Morgunblaðið - 26.01.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.01.2021, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Bein erlend fjárfesting í heiminum öllum dróst saman um 42% á síðasta ári, samkvæmt Ráðstefnu Samein- uðu þjóðanna um viðskipti og þróun, UNCTAD. Bein erlend fjárfesting í heiminum var 1,5 trilljónir Banda- ríkjadala árið 2019, en var 859 millj- arðar dala á síðasta ári. Segir UNCTAD í nýrri skýrslu að óvissa vegna framvindu kórónu- veirufaraldursins valdi áframhald- andi neikvæðum áhrifum á erlenda fjárfestingu í heiminum árið 2021. Sögulega lágar tölur Í frétt um málið sem birt er á vef UNCTAD segir að jafn lágar tölur hafi ekki sést síðan á tíunda áratug síðustu aldar, og fjárfestingin sé 30% undir fjárfestingu í kjölfar fjármála- hrunsins 2008 – 2009. Í frétt BBC af málinu er bent á að Kína hafi nú í fyrsta skipti tekið fram úr Bandaríkjunum sem það land sem fær mestu beinu erlendu fjárfest- inguna. Kína, sem var með 140 millj- arða dala fjárfestingu árið 2019, óx um fjögur prósent á síðasta ári upp í 163 milljarða dala. Á sama tíma dróst fjárfesting í Bandaríkjunum saman um 47% og fór úr 251 millj- arði dala niður í 134 milljarða. Í frétt BBC er bent á að þó að Kína sé nú í forystu hvað nýja beina erlenda fjárfestingu varðar, tróni Bandaríkin enn á toppnum þegar kemur að beinni erlendri fjárfest- ingu samtals. Það endurspegli þá staðreynd að landið hafi í áratugi verið mest aðlaðandi staðurinn í heiminum fyrir erlend fyrirtæki sem vilja færa út kvíarnar í nýju landi. Sérfræðingar í frétt BBC segja að tölurnar núna undirstriki sókn Kína inn að miðju heimshagkerfisins, þar sem Bandaríkin, stærsta hagkerfi í heimi, hafa verið leiðandi aðili um langt skeið. BBC segir einnig með vísan í spá rannsóknarstofnunarinnar Centre for Economics and Business Rese- arch, að Kína muni taka fram úr Bandaríkjunum árið 2028 hvað varð- ar beina erlenda fjárfestingu sam- tals. Mjög lítil fjárfesting hér á landi Á Íslandi hefur einnig dregið verulega úr erlendri fjárfestingu á síðustu árum og hefur fjárfesting al- mennt leitað frá landinu, eins og seg- ir í tillögum sem Viðskiptaráð Ís- lands sendi frá sér í byrjun desember sl. og fjallað var um í Morgunblaðinu. Konráð S. Guðjóns- son aðstoðarframkvæmdastjóri Við- skiptaráðs sagði þá við Morgunblað- ið að ráðið teldi mögulegt að draga úr óbeinum hindrunum sem standi í vegi fyrir erlendri fjárfestingu hér á landi. Það sjáist á t.d. á gögnum OECD að óvíða séu meiri hömlur á beina erlenda fjárfestingu meðal að- ildarríkja samtakanna. Konráð segir í samtali við Morgunblaðið að bein erlend fjár- festing hafi síðustu misseri verið mjög lítil sem hlutfall af landsfram- leiðslu og Ísland standi nágranna- löndunum langt að baki. „Erlend fjárfesting skiptir mjög miklu máli er kemur að því að byggja upp nýjar og gamlar atvinnugreinar, og getur stutt við flestan atvinnu- rekstur. Í þeirri stöðu sem við erum í núna vantar sárlega fjárfestingu, enda mikið atvinnuleysi. Það er til mikils að vinna að laða erlent fjár- magn til landsins,“ segir Konráð. Hann segir að þegar rofi til í far- aldrinum og fé byrji aftur að flæða á milli landa, hljóti að myndast tæki- færi í þessum efnum. Aukning á þessu ári Spurður um mat á því hvort gera megi ráð fyrir aukningu á þessu ári segir Konráð að vel gæti farið svo. Margt lítið geri eitt stórt. „Vísisfjár- festing var til dæmis óvenjukröftug í fyrra, og það er ekki óvarlegt að hafa væntingar um að það haldi áfram og geti birst í beinni erlendri fjárfest- ingu á næstu misserum, sem færi þá í að byggja upp nýja tækni, fyrirtæki og fjölbreytta starfsemi. Sérstak- lega ef við sjáum óvissuna vegna veirunnar minnka, þá má hafa fulla trú á að við sjáum aukningu aftur á þessu ári.“ Þróuð lönd misstu mest Eins og fram kemur í skýrslu UNCTAD og sjá má á meðfylgjandi mynd urðu þróuð lönd fyrir mestum samdrætti á árinu í Bandaríkjadöl- um talið, en bein erlend fjárfesting dróst saman um 69%, eða úr 730 milljörðum dala niður í 229 milljarða dala. Í einstaka Evrópulöndum má þó sjá ljós í myrkrinu. Fjárfesting í Sví- þjóð jókst til að mynda úr 12 millj- örðum dala upp í 29 milljarða dala, og á Spáni varð 52% vöxtur, sem einkum er rakið til nokkurra við- skipta, eins og fjárfestingu banda- rísku fyrirtækjanna KKR og Provi- dence sem keyptu 86% í fjarskiptafyrirtækinu Masmovil. Þegar litið er til annarra þróaðra hagkerfa dróst erlend fjárfesting í Ástralíu saman um 46%, og féll niður í 22 milljarða Bandaríkjadala. Í Ísr- ael hins vegar jókst fjárfesting úr 18 milljörðum dala upp í 26 milljarða. Bein erlend fjárfesting í heiminum dróst saman um 42% árið 2020 Erlend fjárfesting » Óvissa með fjárfestingu á þessu ári vegna veirunnar. » Talið að Kína taki fram úr Bandaríkjunum árið 2028. » Fjárfesting í Svíþjóð jókst úr 12 milljörðum Bandaríkjadala upp í 29 milljarða dala.  Kína í fyrsta skipti fram úr Bandaríkjunum  Ísland eftirbátur nágrannaríkjanna  Upp á Spáni Erlend fjárfesting eftir svæðum 2019 og 2020 Milljarðar Bandaríkjadala 2019 2020 Breyting 2019-2020 Heimurinn allur 1.489 869 -42% Þróuð lönd 730 229 -69% Evrópa 344 -4 -101% Norður-Ameríka 309 166 -46% Þróunarlönd 702 616 -12% Afríka 46 38 -18% Suður-Ameríka og lönd í Karíbahafinu 160 101 -37% Þróunarlönd í Asíu 495 476 -4% Hagkerfi í umbreytingu 58 13 -77% Kína 140 163 +4% Bandaríkin 251 134 -47% Bandaríkin -47% Þróuð lönd -69% Heimurinn allur -42% Mið- og S-Ameríka -37% Afríka -18% Evrópa -101% Kína +4% 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 2021 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 ● Endanlegt frumvarp að nauðsamn- ingi VHE liggur nú fyrir. Líkt og Morg- unblaðið greindi frá í lok síðasta árs er það tillaga umsjónarmanns félags- ins að kröfuhafar gangi að samningi um að fella niður 50% krafna sinna. Í kjölfarið fái þeir greidd 10% eftir- stöðvanna með peningum, eigi síðar en tveimur mánuðum eftir að nauða- samningur kemst á og 40% í formi skuldabréfs sem afhent verði að jafn löngum fresti liðnum. Um sé að ræða óverðtryggð skuldabréf til sjö ára með 60 mánaðarlegum afborgunum sem verði með fyrsta gjalddaga tveimur ár- um eftir útgáfu þeirra. Samkvæmt samningnum munu þeir kröfuhafar sem eiga lægri kröfu en 100 þúsund krónur á VHE fá þær greiddar að fullu. Landsbankinn er viðskiptabanki VHE og hefur haft mest um nið- urstöðu málsins að segja. Þá hefur bankinn beitt sér fyrir eignasölu út úr VHE og þannig hafa m.a. dótturfélögin Varmi og Vélaverk, Landvélar og Fálk- inn verið seld til nýrra eigenda. Morgunblaðið/Eggert Potturinn og pannan Unnar Steinn Hjaltason er stærsti eigandi VHE. Kröfuhafar fái 50% frá VHE gangi allt að óskum STUTT 26. janúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.14 Sterlingspund 176.28 Kanadadalur 101.58 Dönsk króna 21.102 Norsk króna 15.195 Sænsk króna 15.572 Svissn. franki 145.74 Japanskt jen 1.2442 SDR 186.17 Evra 157.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.3501 Hrávöruverð Gull 1853.6 ($/únsa) Ál 1975.5 ($/tonn) LME Hráolía 56.0 ($/fatið) Brent ● Heildarvelta með hlutabréf á aðal- lista Kauphallarinnar nam 1.669 millj- ónum króna í gær. Mest var veltan með bréf Arion banka sem lækkaði um 4,15% í 287 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkuðu bréf Icelandair Group um 4,38% í 255 milljóna króna viðskiptum. Eik fasteignafélag lækkaði um 1,09% í 238 milljóna króna viðskiptum og þá lækkaði Marel um 1,53% í 157 milljóna viðskiptum. Aðeins eitt félag hækkaði í viðskiptum gærdagsins, Origo. Bréf fé- lagsins þokuðust upp um 0,13% í litlum sem engum viðskiptum. Þá stóðu bréf Brims í stað. Lækkun varð á öllum öðr- um félögum, auk þeirra sem að ofan voru nefnd. Talsverðar lækkanir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.