Morgunblaðið - 26.01.2021, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 2021
Atvinnuauglýsingar
Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Tilkynningar
Sveitarfélagið Mýrdalshreppur ákvað á fundi sínum 22.
janúar 2021 að heimila ekki frekari breytingar á Aðalskipulagi
Mýrdalshrepps 2012 – 2028 frá og með 1. mars 2021.
Ástæða fyrir því er að vinna við endurskoðun aðalskipulags
sveitarfélagsins er hafin og fyrirhugaðar breytingar á
aðalskipulagi yrðu þá teknar til skoðunar inn í þeirri vinnu.
George Frumuselu
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Mýrdalshrepps
Auglýsing um skipulagsmál
í Mýrdalshreppi
Skipulags og byggingarfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnu-
stofa kl. 9-12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.30-
12.50. Dansleikfimi með Auði kl. 13.45. Kaffisala kl. 14.15-15.30. Heitt á
könnunni, allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í við-
burði eða hópa, sími 411-2600.
Boðinn Stafganga kl. 10, farið frá anddyri Boðans, allir velkomnir.
Fuglatálgun kl. 13. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Grímuskylda er
í Boðanum og tveggja metra reglan viðhöfð.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi í kaffi-
horninu kl. 10-10.30. Saumastofan, saumað með Björgu (og Bryndísi
aðstoðarmanni) kl. 10.30. Leikfimi með Silju kl. 13-13.40. Qi-gong kl.
17. Opið kaffihús kl. 14.30. Vegna sóttvarnaregla biðjum við ykkur að
skrá ykkur fyrirfram í alla viðburði hjá okkur í síma 535-2760.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið frá kl. 8.10-16. Kaffi og
spjall kl. 8.10-11. Prjónum til góðs kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Kríur Myndlistarhópur kl. 13-16. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Þátttökuskráning í síma 411-2790 og á skrifstofu. Grímuskylda. Virðum
allar sóttvarnir. Gerum þetta saman, þannig náum við bestum
árangri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni. Hægt er að panta
hádegismat með dags fyrirvara. Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Göngu-
hópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11 í sal í kjallara Vídalíns-
kirkju. Botsía Ásgarður kl. 12.55. Smíði; Smiðja Kirkjuhvoli kl. 9 og 13.
Áfram skal gæta að handþvotti og smitvörnum og virða 2 metra,
athugið grímuskylda í Jónshúsi og Smiðju Kirkjuhvoli.
Gullsmári Myndlist kl. 9. Tréútskurður kl. 13. Grímuskylda og tveggja
metra reglan viðhöfð.
Hraunsel Dansleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8.30 og
9.30. Bingó á miðvikudögum kl. 13. Handverk á miðvikudögum kl. 13.
Píla á fimmtudögum kl. 13. Línudans á föstudögum kl. 10 og 11.
Grímuskylda og 2ja metra reglan eru í gildi og nauðsynlegt að skrá
sig í allt starf fyrirfram í síma 5550142.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Gönguferð kl. 13.30, styttri ganga ef veður leyfir.
Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum og botsía kl. 10 í Borg-
um. Helgistund kl. 10.30 í Borgum, spjallhópur í listasmiðu í Borgum
kl. 13 og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 14 í dag. Virðum allar
sóttvarnir og grímuskyldu í Borgum. Heitt á könnunni og allir
hjartanlega velkomnir.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Hreinsa þakrennur
og tek að mér ýmisskonar húsaviðhald.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Húsviðhald
Smá- og raðauglýsingar
Við kveðjum
Fjólu föðursystur
okkar með þakk-
læti fyrir áralanga samfylgd
sem nú vekja ljúfar minningar.
Hún var glaðlynd, stutt í dill-
andi hlátur og vildi allt fyrir
okkur gera. Henni féll aldrei
verk úr hendi. Það var alltaf
heimabakað með kaffinu og
saumavélin var alltaf uppi á
borði – í stöðugri notkun.
Heimilið var fjörugt, Anna elst
og svo þrír líflegir bræður,
Sverrir, Guðni Rúnar og Hilm-
ar. Systkinin voru öll á kafi í
músík og öllu sem því fylgdi.
Foreldarnir Fjóla og Agnar
voru gestrisin og vinmörg. Þau
höfðu unun af söng og dansi og
það var upplifun að horfa á
þau svífa um dansgólfið.
Þrátt fyrir stórt heimili tóku
þau Fjóla og Agnar oft að sér
unglinga sem bjuggu hjá þeim
um lengri eða skemmri tíma.
Síðan komu barnabörnin í
stríðum straumum og áttu öll
öruggt skjól hjá ömmu og afa.
Fjóla H.
Guðjónsdóttir
✝ Fjóla H. Guð-jónsdóttir
fæddist 7. sept-
ember 1926. Hún
lést 12. janúar
2021.
Útför Fjólu fór
fram 22. janúar
2021.
Þeir eru ófáir
unglingarnir sem
Fjóla kom til
manns. Þegar við
komum í heim-
sókn var alltaf
spennandi að sjá
hverjir sætu við
eldhúsborðið og
umræðurnar sem
þar spunnust
voru jafnan
skemmtilegar.
Við erum sérlega þakklát fyr-
ir hvað Fjóla og bróðir henn-
ar, faðir okkar Guðbjörn,
studdu hvort annað alla tíð.
Systkinabandið var sterkt og
samgangur þeirra á milli mik-
ill.
Ofan á allt þetta vann Fjóla
sem handavinnukennari og í
mörg ár sem fararstjóri með
Agnari á ferðaskrifstofu
þeirra, Bændaferðum. Stíg-
andi aldur og sjúkdómar öftr-
uðu ekki Fjólu að njóta lífs-
ins. Hún var fljót að skipta
um umræðuefni ef kvillar
komu til tals og oftast endaði
samtalið í eftirminnilegum
hlátri.
Okkar innilegustu samúð-
arkveðjur til Agnars og allrar
stórfjölskyldunnar. Óteljandi
minningar og hughrif munu
fylgja okkur um ókomin ár.
Hrafnhildur Soffía og
Björn.
Yndislega systir
mín, mikið á ég eftir
að sakna þín, stóra
systir mín sem ég leit
svo upp til. Það var
alltaf svo stutt í brosið þitt og húm-
orinn. Það var ómetanlegt hvað við
náðum að halda góðum tengslum
þrátt fyrir að þú hafir verið alin upp
í Vestmannaeyjum hjá ömmu en ég
í Reykjavík hjá mömmu.
Það eru margar góðar minningar
sem við áttum og koma upp í hug-
ann núna. Það gleymist seint þegar
ég kom til Eyja fjórtán ára og við
unnum í frystihúsinu. Þá brölluðum
við mikið saman og amma dekraði
við okkur eins og prinsessur. Það
kom fljótt í ljós hvað þú varst hand-
lagin og snögg að vinna enda
fékkstu alltaf háan bónus í frysti-
húsinu og ekki nokkur leið að halda í
við þig í þeim efnum. Ég dáðist allt-
af að því að þú gast prjónað og
saumað allt sem þér datt í hug á þig
og þína, þig munaði heldur ekki um
að sauma á mínar stelpur líka. Svo
sendirðu mér hannyrðauppskriftir á
milli landshluta, hvattir mig áfram
og sagðir mér til í gegnum síma þar
til flíkurnar voru fullkláraðar. Þetta
Ásdís Erna
Guðmundsdóttir
✝ Ásdís ErnaGuðmunds-
dóttir fæddist 17.
febrúar 1954. Hún
lést 9. janúar 2021.
Útför Ásdísar
fór fram í kyrrþey.
mat ég mikils. Seinna
komstu til Grundar-
fjarðar með fjöl-
skylduna og við fór-
um í útilegur,
veiðitúra og reiðtúra
saman með krakk-
ana. Þegar við svo
heimsóttum ykkur til
Eyja voru ævintýrin
nú ekki minni.
Þú varst heppin
með börnin þín og
barnabörnin sem þú varst svo stolt
af. Þú varst svo mikil móðir og
amma í þér, ljómaðir alltaf þegar
þú talaðir um þau.
Ásdís mín, mér þykir svo vænt
um þig og það er búið að vera erfitt
að fylgjast með þér í erfiðu veikind-
unum þínum síðustu árin. En eins
og þér var lagið barstu þig alltaf
svo vel. Nú ert þú frjáls frá veik-
indum og amma og afi taka vel á
móti þér.
Hvíl í friði systir mín.
Megi algóður guð þína sálu nú geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár,
þó komin sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
( Höf. óþekktur)
Elsku Aldís, Ólöf, Pálmi Ernir
og fjölskyldur, missir ykkar er
mikill.
Megi góður guð styrkja ykkur í
sorginni.
Kolbrún Linda.
Jóna
Kristjánsdóttir
✝ Jóna Krist-jánsdóttir
fæddist 17. sept-
ember 1926. Hún
lést 11. janúar
2021.
Útförin fór fram
22. janúar 2021.
Nú þegar komið
er að kveðjustund
rifjast gamlar minn-
ingar um Jónu
frænku upp fyrir okkur systkin-
um. Hún og móðir okkar Þórunn
voru systradætur og miklar vin-
konur. Jóna sagði oft að þær
væru eins og systur.
Í huga okkar birtist mynd af
mömmu og Jónu.
Þær sitja í eldhúsinu hennar
mömmu með kaffibolla og rifja
upp gamla tíma. Þær hlæja svo
innilega að það er ekki hægt ann-
að en að hlæja með. Það var oft
mikið fjör þegar sá
gállinn var á
frænku, talað hátt
og hlegið dátt.
Önnur minning
sem við eigum um
Jónu er talsvert ólík
þeirri fyrri en hún
er þegar þær
frænkur sitja hvor í
sínum stólnum inni í
stofu, kveikt á sjón-
varpinu og dagskrá-
in rúllar áfram en þær sofa báðar,
önnur með höfuðið ofan í bringu
en hin hallaði út á hlið.
Margar fleiri góðar minningar
eigum við um frænku okkar frá
því við bjuggum í foreldrahúsum
en þær geymum við með okkur
og brosum yfir þeim.
Ástvinum Jónu sendum við
samúðarkveðju.
Freyja, Sveinn,
Elísa og Rúna.
Þann 22. desem-
ber síðastliðinn
lagði ég af stað frá
Reykjavík og
áleiðis til Grundarfjarðar. Í för
með mér var faðir minn, sem
ætlaði sér að halda jól í íbúð-
inni sinni í síðasta skiptið áður
en hún yrði seld í janúar. Jóla-
skatan var á sínum stað 23.
desember, og daginn eftir kom
jólamatur á borð á þeim tíma
sem vant var, og pakkar opn-
aðir. Jólahátíðin ætlaði að
blessast nokkuð vel þetta árið
Halldór
Guðmundsson
✝ Halldór Guð-mundsson
fæddist 4. ágúst
1935. Hann lést 27.
desember 2020.
Útför hans fór
fram 5. janúar
2021.
þrátt fyrir engar
heimsóknir. En
þann 27. desember
kvaddi faðir minn
þennan heim
skyndilega, er
hann var að leggj-
ast til svefns.
Margir sem
heimsóttu pabba
og mömmu á
Grundargötuna,
muna eftir skreyt-
ingum sem pabbi gerði úr
skeljum sem hann fann
skammt frá heimilinu við skel-
vinnslu staðarins. Barnabörnin
gleyma líka seint heimsóknum
til afa síns á Grundargötuna,
því íbúðin hafði að geyma
nokkuð sem flesta krakka
dreymir um, en það var háa-
loftið með alls konar dóti og
forvitnilegum hlutum úr fortíð-
inni. Þarna léku barnabörnin
sér án afskipta eða athuga-
semda þrátt fyrir hávaða og
önnur hljóð. En oft komu þau
þó við hjá afa sínum til að fá
leyfi fyrir ýmsu sem var oftast
samþykkt. Pabbi var yfirleitt
góð fyrirmynd og var sjaldan
að hamra á neinum hlutum eða
gera athugasemdir. Hann var
aldrei að draga það að fram-
kvæma eitthvað sem þurfti að
gera, og var alla tíð vinnu-
samur og fór stundum til sjós á
trillunni þótt allir aðrir væru í
landi vegna veðurs.
Margar ljúfar minningar á
ég til um föður minn þó að við
feðgarnir höfum ekki verið að
hugsa það sama og haft ólíkar
skoðanir á ýmsu, en það sem
fyrst kemur upp í hugann eru
heimsóknir til bræðra hans er
ég var krakki, en þeir voru
stórskemmtilegir og pabbi hló
mikið með þeim og ég líka.
Þeir voru margir bræðurnir,
en þeir eftirminnilegustu voru
Jóhannes og Hjörtur. Jóhann-
es fyrir stórskemmtilegan frá-
sagnarstíl en Hjörtur fyrir
hrós og falleg orð í garð barna.
Ég átti þess kost að vinna með
pabba í nokkur ár á trillu, og
þarna sá ég starf sem virtist
gefa honum mikið. En þar sem
ýmis óhöpp urðu á vegi okkar
á sjónum, lauk trillustandinu
sumarið 1991 og ekkert komið
upp síðan sem bendi til þess að
ég muni klæða mig upp í sjó-
galla aftur, en ef svo skyldi nú
vera að pabbi sé kominn á nýj-
an stað eða heim, kæmi ekki á
óvart að hann væri nú að skoða
nýjan bát með öllum tækjum
og tilheyrandi tólum, og velt-
andi því fyrir sér hvort
mamma hafi eitthvað við litinn
að athuga.
Takk fyrir allt sem við átt-
um saman pabbi minn, og von-
andi er veröldin þannig úr
garði gerð, að okkur sé gert
kleift að vakna upp á nýjum
stað og hitta aftur megnið af
þeim góðu félögum og ættingj-
um sem voru með okkur, og
vera svo með þeim í gleði og
friði um alla eilífð.
Kveðja, þinn sonur
Gunnar Karl Halldórsson.
Það er dýrmætt
að hafa átt afa og
ömmur á sínum
uppvaxtarárum og
fyrir það erum við ólýsanlega
þakklát.
Afi nafni var mikill vinur.
Hann gaf sér alltaf tíma hvort
sem var fyrir spjall, fræðslu eða
bara samveru í þögn.
Við kunnum til að mynda
skringilega mörg örnefni og
blómaheiti, þökk sé afa.
Afi var þolinmóður og mjög
hlýr. Ferðir með honum og
ömmu í sumarbústaði, skoðunar-
Þórarinn
Guðmundsson
✝ Þórarinn Guð-mundsson
fæddist 7. mars
1927. Hann lést 27.
desember 2020.
Útför fór fram í
kyrrþey að ósk hins
látna.
ferðir eða heim-
sóknir fram í sveit
voru skemmtilegar
og stundirnar voru
ófáar þar sem við
sátum og skoðuðum
steinasafnið hans,
lásum ljóð eða kíkt-
um í hesthúsin.
Minningarnar
eru margar og þær
koma fram í hlýju
ljósi, sátt og gleði.
Við erum þakklát og rík fyrir
tímann okkar saman elsku afi
okkar.
Það er gott að hugsa til þess
að þið amma hafið aftur samein-
ast og hvílið nú í nýrri vídd. Við
munum sakna ykkar alla daga
en gleðjumst yfir því að hafa átt
ykkur að.
Þín
Þórarinn, Íris Helga og
Elfur Sunna.