Morgunblaðið - 26.01.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 2021
TUDOR rafgeymar
TUDOR TUDOR
Er snjósleðinn tilbúinn
fyrir vetrarkuldann?
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start með
TUDOR
50 ára Jón Matti er frá
Ísabakka í Hruna-
mannahreppi en býr í
Kópavogi. Hann er
stúdent frá Mennta-
skólanum á Laugar-
vatni og er sölu- og
skoðunarmaður hjá Ís-
felli.
Maki: Anna Elín Hjálmarsdóttir, f. 1975,
heimavinnandi.
Börn: Margrét, f. 2005, Hjálmar, f. 2006,
og Oddný, f. 2014.
Foreldrar: Helgi Jónsson, f. 1937, d.
1988, og Anna Soffía Sigurðardóttir, f.
1944, d. 2011, bændur á Ísabakka.
Jón Matthías
Helgason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ekki hika við að segja fjölskyldu-
meðlimum að þú elskir þá. Reyndu að finna
tíma til að vera með börnunum, þau eru
besti félagsskapurinn.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að taka á honum stóra þínum
til þess að komast fram úr öllu því sem gera
þarf. Að horfa á raunveruleikann í gegnum
töfrandi bleika þoku er ekki svo slæmt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að vera í einrúmi í dag. En
gættu þess að þú hefur aðrar skuldbind-
ingar sem líka þarf að sinna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Af einhverjum ástæðum ert þú mið-
punktur athyglinnar. Fólk lítur lífið mis-
jöfnum augum og þér er frjálst að velja þá
sýn sem hentar þér best.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Samstarfsmaður, sem þú hefur svo
sem ekki veitt neina athygli, leitar til þín með
vandasamt mál. Nú er bara að sýna dirfsku
og staðfestu og sigla málunum í örugga
höfn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur lengi velt fyrir þér hvernig
hægt sé að bæta andrúmsloftið á vinnustað.
Sýndu göfuglyndi, þú munt ekki iðrast þess
síðar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert forvitin/n og hefur gaman af að
spjalla við aðra og skiptast á skoðunum. Þér
verður boðið á stefnumót sem á eftir að
breyta lífi þínu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einhver þér nákominn á bágt
með að skilja framkomu þína og stefnu í líf-
inu. Ekki láta slá þig út af laginu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það eru einhver ónot í þér þessa
dagana. Farðu þér hægt og brjóttu málin til
mergjar áður en þú ákveður nokkuð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Mundu að allt sem þú gerir hefur
sínar afleiðingar bæði fyrir sjálfa/n þig og
aðra. Þér hættir til að hafa áhyggjur af hlut-
um sem skipta í raun engu máli.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Kappkostaðu að reyna á þig lík-
amlega nokkrum sinnum í viku. Þér verður
hrósað fyrir skemmtilega sýn á verkefni sem
þú sinnir í vinnunni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki örvænta þótt þér finnist þú ekki
eiga næga peninga. Láttu sem þú eigir
meira en nóg og sjáðu hvað gerist. Mundu
að það er gott að þakka fyrir hlutina.
vorum til dæmis í heildsölu fyrir
úrsmiði í Reykjavík.“ Á tímabili
störfuðu sjö manns við fyrirtækið.
Árið 1975 flutti Jón verslunina í
þessi leyfi fyrir innflutningi. En
þetta var samstarf okkar feðganna
og við fluttum mikið inn af vörum,
það var stór hluti af rekstrinum og
J
ón Bjarnason fæddist 26.
janúar 1936 í Reykjavík
en fluttist til Akureyrar
1939, fyrst í Hafnar-
stræti en bjó lengst af í
Brekkugötu 31. Árið 1955 flyst
fjölskyldan síðan í Byggðaveg 111.
Árið 1943 byggði fjölskyldan sum-
arhús á Svalbarðseyri, úr landi
Svalbarðs þar sem þeir bræður
undu sér vel öll sumur. Jón hjálp-
aði líka við sveitastörf hjá ömmu-
bróður sínum, Stefáni Stefánssyni
bónda á Svalbarði.
„Ég var strax innan við tíu ára
farinn að keyra rakstrarvélar og
múgavélar. Ég var mikið hjá
frænda mínum, en þetta var mjög
sérstakt heimili hjá okkur. Báðir
bræður mínir eru mjög veikir frá
fæðingu og síðar fæðast einnig tví-
burar sem eru með sömu veiki, og
ég er líka mikið að hjálpa mömmu
minni með þá og er með þeim í
sveitinni. Svo kemur Akureyrar-
veikin 1949 og þá er allt lokað og
ég hef ekkert að gera, svo ég fór
alltaf inn á smíðaverkstæði og var
að dunda mér við að smíða.“
Jón stundaði nám í Barnaskóla
Akureyrar, Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar, tók landspróf 1952 og gagn-
fræða- og iðnskólapróf 1953. Árið
1956 lauk hann prófi í úrsmíði. Jón
stundaði einnig nám í öldungadeild
MA. „Ég fór fyrst í máladeild til
að undirbúa mig fyrir að fara út í
nám og síðan í náttúrufræðideild
til að læra undirstöðurnar í efna-
fræði.“ Árið 1957 fór Jón til
Bienne í Sviss í framhaldsnám í
úrsmíði og fór árlega á námskeið
og vörusýningar í tengslum við
starfið. „Ég var duglegur að fara á
Hannover-messuna sem var mikil
sýning og Basel-sýninguna strax á
eftir.“
Jón byrjaði að vinna um ferm-
ingaraldur á úrsmíðaverkstæði föð-
ur síns, Bjarna Jónssonar frá Gröf.
Hefur hann unnið við úrsmíði alla
tíð síðan. Jón opnaði eigið úr-
smíðaverkstæði og verslun í Ham-
borgarhúsinu Hafnarstræti 94 árið
1961. „Það var út af leyfisveseni,
við þurftum að vera með tvö verk-
stæði til að geta verið með öll
Kaupvangsstræti 4 þar sem hún er
enn starfandi. Þar ræður nú ríkj-
um Bjarni sonur hans. „Við færð-
um okkur meira í skartgripina
seinni árin, enda eru breyttir
tímar. Ég er að mestu leyti hættur
og er orðinn heimavinnandi hús-
móðir, en ég er þó með klukku
hérna sem ég er að dytta að.“
Jón hefur verið viðloðandi
íþróttir alla tíð. Hann starfaði mik-
ið við íþróttir, t.d. við tímatökur á
mótum, skíðum og frjálsum íþrótt-
um. Hann stundaði m.a. skíði,
handbolta, fótbolta, badminton og
blak fram á seinni ár og á Íslands-
meistaratitla að baki í öldunga-
deildinni í blaki auk innanfélags-
titla í öðrum greinum.
Jón var gjaldkeri í stjórn Þórs
og hefur starfað mikið innan Odd-
fellow-reglunnar, frá 1961 og er
enn að. „Það eru ekki margir sem
hafa náð að starfa fyrir hreyf-
inguna í 60 ár.“
Áhugamál voru veiði og útivist
framan af ævinni. „Ég á stórkost-
Jón Bjarnason úrsmiður – 85 ára
Á Svalbarðseyri Jón og Sigrún ásamt Ólöfu, dóttur sinni, rétt við sumarbústað sinn.
Er enn að dytta að klukkum
Hjónin Jón og Sigrún í heimsókn hjá dóttur sinni, Ólöfu, í Milwaukee.
30 ára Berglind er
Kópavogsbúi og
vinnur á leikskól-
anum Vinaminni.
Maki: Hlynur Þór
Agnarsson, f. 1988,
aðgengis- og upplýs-
ingafulltrúi hjá
Blindrafélaginu.
Börn: Jökull Orri, f. 2015, og Sóldís
María, f. 2020.
Foreldrar: Kristín Rósinbergsdóttir, f.
1955, vinnur hjá Kópavogsbæ, búsett
þar, og Jón Hansson, f. 1953, sjálf-
stætt starfandi smiður, búsettur í
Njarðvík.
Berglind
Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
Kópavogur Sóldís María Hlyns-
dóttir fæddist 20. apríl 2020. Hún
var 4.116 g að þyngd og 52 cm að
lengd. Foreldrar hennar eru Berg-
lind Jónsdóttir og Hlynur Þór Agn-
arsson.
Nýr borgari