Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2021, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2021, Page 14
H ljóð sem þú finnur fyrir,“ segir í kynningarmyndbandi al- þjóðlega hljóðfyrirtækisins Dolby á stóru tjaldinu. Orð að sönnu. Mér finnst hljóðið vera í eyrunum á mér, í höfðinu, maganum, hjartanu og svei mér ef ég finn ekki fyrir því í tánum líka. Ég er allur löðrandi í hljóði! Hljóðið er líka allt í kringum mig og mér líður eins og ég sé þess umkominn að grípa það á lofti og þreifa á því. Við erum fjórir inni í hljóðverinu hans Gunnars Árnasonar í Upptekið í Melahvarfi í Kópavogi. Eigandinn, ég, Árni Sæberg ljós- myndari og hvolpurinn Pjakkur, þriggja mán- aða tápmikill írskur setter í eigu Gunnars. Á þessu andartaki gleymir hann því að lífið sé leikur; situr bara stilltur á strák sínum og hlustar. Eins og við hinir. „Hvaðan kom hljóð- ið? Hvert er það að fara? Hvað er það? Hvern- ig var þetta hægt?“ eins og Adolf Ingi myndi vísast spyrja, væri hann þarna með okkur. 32 „surround“-hátalarar af gerðinni JBL eru í hljóðverinu. Til samanburðar má nefna að 20 slíkir hátalarar eru í stóra salnum í Háskóla- bíói, sem tekur um þúsund manns í sæti. Við er- um að tala um 13 þúsund wött í hátölurunum sjálfum og helmingi fleiri wött í mögnurum. Hver og einn hátalari er á sérmagnara, þannig að hljóðið ferðast mjög auðveldlega á milli þeirra, svo sem glöggt má heyra. Þarna eru líka sex bassahátalarar í 55 fermetra rými, með um fimm metra lofthæð frá lægsta punkti. Sitjandi þarna inni skilur maður hvað þeir hjá Dolby eru að fara þegar þeir fullyrða að hljóðið sé hjartað í bíóinu. Dolby Atmos, kallast þetta. Maður lif- andi, Dolby Atmos. Fljótandi gólf Að sögn Gunnars er um 35-40% meiri búnað að ræða en í Dolby Atmos-bíói enda meiri kröfur gerðar til hljóðvers af þessu tagi. Mixerinn er sá eini sinnar tegundar á landinu sem og vél- búnaðurinn sem er notaður í hljóðverinu. Gólfið í hljóðverinu er fljótandi, fimm senti- metra rauf er á milli plötunnar og næstu plötu í húsinu og gúmmí sett á milli. Þannig er hvert herbergi í húsinu byggt á sérstakri gólfplötu. Gluggi er á hljóðverinu enda segir Gunnar dagsbirtuna skipta sköpum í löngum vinnu- törnum. Glerið er áttfalt, sexfalt í hljóðverinu og tvöfalt í húsinu sjálfu utan um það. Þannig að stríð gæti hæglega geisað inni án þess að vegfarendur yrðu þess varir. Við hlið hljóðversins hefur verið tekinn grunnur og þar ætla Gunnar og Stefanía Björk Sigfúsdóttir, kærasta hans, að reisa sér íbúð- arhús og gestahús og er fyrirhugað að fram- kvæmdir hefjist á þessu ári. Það er gott að búa í Kópavogi, segja þeir. Hvað þá þegar vinnan manns er í næsta húsi. Hann tók hljóðverið fyrst í notkun fyrir tveimur árum með venjulegu bíókerfi en fjór- tán mánuði tók að uppfæra það í Dolby Atmos. „Ætli ég sé ekki búinn að skrúfa hátalarana upp og stilla þá átta sinnum. Maður fær litlar leiðbeiningar frá Dolby, þeir eru meira eins og byggingarfulltrúi sem tekur verkið út. Þeir teikna stúdíóið ekki upp fyrir mann en eru samt mjög hjálplegir. Þess utan leitaði ég til margra kollega sem ég þekki erlendis. Ég vissi ekki neitt þegar ég byrjaði en hélt helling. Ég áttaði mig til dæmis ekki á því að ég þyrfti svona svakalega marga hátalara og magnara. Þetta ferli var mjög lærdómsríkt,“ segir Gunn- ar sem sendi fyrstu fyrirspurnina út til Dolby í nóvember 2016 en þá var hljóðverið enn þá á teikniborðinu. Sér til halds og trausts hafði Gunnar vin sinn Einar Gíslason, sem er sprenglærður raf- eindavirki og rafmagnsiðnfræðingur. „Hann var með mér í eitt og hálft ár að gera og græja,“ segir Gunnar en þess má geta að aðeins tveir bíósalir á landinu eru með sama kerfi, stóru sal- irnir í Laugarás- og Smárabíói. Sjálfur reynir Gunnar að sjá helstu myndir í þeim sölum, til dæmis tónlistarmyndina Bohemian Rhapsody. „Ég naut þess í botn. Alveg geggjað hljóð.“ Náði gegnum nálaraugað Nú í desember kom sérfræðingur frá Dolby til landsins til að taka hljóðverið út með vottun í huga. Hann var settur í vinnusóttkví á staðn- um og skoðaði hljóðverið í hólf og gólf. Fór til dæmis með vindsæng um allan sal til að finna bergmál. Á endanum náði hljóðverið gegnum nálaraugað og hlaut vottun. „Hann var mjög hrifinn,“ segir Gunnar Hljóðver Gunnars er það fyrsta á Íslandi sem hlýtur Dolby Atmos-vottun og aðeins það sjöunda á Norðurlöndunum; Svíar eiga til dæmis ekki neitt slíkt hljóðver. „Ég held að ég geti líka fullyrt að þetta sé eina vottaða stúd- íóið í einkaeigu í heiminum. Ætli það sé ekki bara gamla góða íslenska brjálæðið,“ segir hann. Yrði rosaleg vitleysa Að sögn Gunnars skiptir vottunin öllu máli þeg- ar kemur að því að kynna og auglýsa hljóðverið til leigu. „Þegar maður er kominn með vott- unina fær maður ekki lengur faglegar fyr- irspurnir um tæki og tól frá útlendingum, held- ur bara hvort líkamsrækt sé í grenndinni eða góðir veitingastaðir.“ Þrír staðlar eru af Dolby Atmos-hljóð- verum. Í fyrsta lagi lítil hljóðver sem Dolby tekur ekki sérstaklega út. Þar má hljóðblanda fyrir sjónvarp og Blu Ray-diska. Í öðru lagi hljóðver eins og Gunnars, sem eru að lágmarki 45 fermetrar og 150 rúmmetrar. Í þeim má hljóðblanda kvikmyndir. Í þriðja lagi hljóðver sem eru að lágmarki 75 fermetrar og og 300 rúmmetrar með mjög stórt tjald. Að sögn Gunnars eru mjög fá slík hljóðver í heiminum, varla fleiri en þrjátíu til fjörutíu. – Er það næsta skref hjá þér? „Sko,“ svarar hann sposkur. „Núna er þetta komið. Ég get þó viðurkennt að ég er búinn að fylla út Excel-skjalið frá Dolby fyrir stóra stúdíóið. Það yrði samt rosaleg vitleysa.“ Gunnar segir að hljóðverið sé mikil bylting fyrir hljóðvinnslu á Íslandi en fyrsta kvik- myndin sem var hljóðblönduð þar var Agnes Joy eftir Silju Hauksdóttur. Hann veit ekki hvenær fyrsta myndin verður hljóðblönduð í Dolby Atmos en helst þyrfti það að vera brjál- uð hasarmynd. „Það yrðu að vera sprengingar, eltingarleikur og læti til að fá sem mest út úr græjunum.“ Latibær græjaði veisluna Nú hringir síminn hjá Gunnari og hann biður okkur að hafa sig afsakaðan sem snöggvast. Kemur aftur að vörmu spori. „Þetta var Maggi Scheving. Maður svarar honum alltaf – veit aldrei hvaða ævintýri maður gæti misst af ef maður svarar ekki,“ segir hann. „Maggi er eini maðurinn sem gæti dregið mig í burtu frá öllu þessu. Það er eitthvað brjálæði í honum sem ég fíla.“ Gunnar vann í nokkur ár í Latabæ og segir það hafa verið gríðarlegt ævintýri. „Eftir þá reynslu er aldrei vesen í vinnunni hjá mér. Maggi er rosalegur. Unnið var alla daga og hann með puttana í öllu, að breyta og bæta fram á síðustu stundu. Einu sinni sagði ég við hann, þegar allt var á suðupunkti og við á síð- ustu stundu að ganga frá þætti og hann byrj- aði enn og aftur að breyta klippinu: Maggi, Róm brennur og þú hleypur milli herbergja og biður um eld.“ Einu sinni þurfti Gunnar að fá frí á laug- ardegi, til að halda afmælisveislu. „Hvenær er veislan?“ spurði Magnús. „Milli 3 og 5,“ svar- aði Gunnar. „Þú getur fengið frí milli 2 og 6 og við sjáum um veisluna,“ sagði Magnús. Það stóð heima. „Á slaginu kl. 2 Fyllti Freysi kokk- ur í Latabæ bílinn minn af veitingum, borð- búnaði og öllu tilheyrandi. Sá um allt, upp- vaskið líka.“ En Gunnar þurfti að vera mættur aftur á vaktina klukkan 6. „Það var mikið unnið en alltaf gaman í vinnunni enda Maggi ótrúlegur karakter. „Strákar, strákar,“ var hann vanur að segja þegar eitthvað vesen kom upp. „Haldið þið að ég hafi verið að velta mér upp úr blautu gras- inu í gervi Íþróttaálfsins á Blönduósi fyrir tuttugu árum til að fá nei frá einhverjum hljóð- mönnum í dag?“ Það er engin tilviljun að þess- um manni tókst að selja hugmyndina sína út um alla heim.“ Byrjaði á Hótel Sögu Gunnar er lærði rafeindavirkjun og steig sín fyrstu skref sem hljóðmaður rétt rúmlega tví- tugur með Magnúsi Kjartanssyni og hljóm- sveit á Hótel Sögu á níunda áratugnum. Hann fann sig í starfinu og smám saman fór hann að koma sér upp sínu eigin hljóðkerfi. Frá 1994 til 2006 sá hann um hljóðið í einhverjum tíu söng- leikjum á sviði, frá og með Hárinu. „Það voru rosalega skemmtileg verkefni en spennan mik- il og á endanum hafði ég ekki taugar í það lengur. Það er svo margt sem getur klikkað fyrir fullum sal af fólki.“ – Og klikkaði eitthvað? „Já, blessaður vertu. Það klikkar alltaf eitt- Þreifað á hljóðinu Í Melahvarfi í Kópavogi er risið fyrsta hljóðverið á Íslandi sem er með Dolby Atmos-vottun. Eigandi þess, Gunnar Árnason, segir ófá handtökin að baki en um sé að ræða byltingu á sviði hljóðvinnslu hér á landi. Hljóðið smýgur þarna inn að beini. Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Rúmt er ujm gesti í nýja hljóðverinu hans Gunnars. HLJÓÐLIST 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.