Morgunblaðið - 04.02.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.02.2021, Qupperneq 2
Sigurður Ingi Jóhannsson sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra telur að ný skýrsla um Sundabraut setji punktinn í umræðu um legu brautarinnar: Sundabrú sé sá kostur sem unnið verði með héðan í frá. All- ir aðilar sem komu að málinu hafi verið sammála um ágæti Sundabrú- ar, en í hópnum voru fulltrúar frá Vegagerðinni, Reykjavíkurborg, Faxaflóahöfnum og Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hann vill að vinna við undirbúning hefjist þegar í stað. Brúin 30 m há „Já, ég hef trú á að brúin trompi allt,“ sagði Sigurður þegar mbl.is spurði hann um niðurstöður um- ræddrar skýrslu, sem kynntar voru í gær. Fyrirhuguð brú er um 30 metra há og á hún að liggja frá Sæbraut við Holtaveg og yfir Kleppsvíkina í Grafarvog þar sem tenging verður um Hallsveg og svo áfram á Geld- inganes og Kjalarnes. Áætlanir gera ráð fyrir að brúin verði tvær akrein- ar í hvora átt ásamt göngu- og hjóla- stígum. Fyrir höfðu legið hugmyndir um að grafin yrðu göng í stað lagningar brúar. Það var þó talið að sú fram- kvæmd yrði kostnaðarfrekari og því talið líklegra að brú yrði lögð í stað ganga. „Í mínum huga eru göngin aðeins valkostur í umhverfismati til að bera saman við brúna,“ sagði ráð- herra. Áratugagamalt þrætuepli Saga Sundabrautar er orðin ára- tugalöng. Eftir aldamót var stefna Reykjavíkurborgar að fara ganga- leið en Vegagerðin horfði til lágbrú- ar. Með aðalskipulagi Reykjavíkur- borgar fyrir 2010-2030 var í raun lokað fyrir flesta möguleika nema göng og var málið þá komið í vissa pattstöðu. Sigurður Ingi skipaði síðar starfs- hóp um Sundabraut þar sem áttu sæti fulltrúar ríkisins og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Lá niðurstaða þess hóps fyrir árið 2019 og var á þá leið að fýsilegast væri að skoða jarðgöng yfir í Gufu- nes og lágbrú sem þveraði hafnar- svæðið við Kleppsvík. Skipaði Sig- urður Ingi í kjölfarið starfshóp til að endurmeta og skoða þessa tvo kosti um legu Sundabrautar og gera til- lögu að framtíðarlausn sem festa átti í skipulagi. Skýrslan sem kynnt var í gær var niðurstaða þess hóps. Sammála um ágæti Sundabrúar  Áratugalöng deila um Sunda- braut senn á enda Tillaga að legu Sundabrautar með hábrú yfi r Kleppsvík H i ild Kleppsvík Hallsvegur Sæ braut Kleppsspítali SUNDAHÖFN H A M R A R H O LTA G A R Ð A R G R A F A R V O G U R GU F U N ES Holtavegur Hábrú yfi r Kleppsvík Fjórar akreinar Lengd: 1.172 m Mesta hæð: 35 m 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi ÁRSALIR FASTEIGNAMIÐLUN 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun, s. 533 4200, Engjateigi 5, 105 Rvk. Til sölu mikið endurnýjuð og glæsileg 4ra herbergja íbúð á 2. hæð, ásamt bílskúr. Búið er að endurnýja eldhús með vandaðri innrétting og tækjum. Baðherbergið er allt endurnýjað og með hita í gólfi. Parket er á allri íbúðinni og þremur svefnherbergjum en baðherbergið er flísalagt. Góðir skápar eru í íbúðinni. Tvennar yfirbyggðar svalir á mót suðri, sem hægt er að opna vel á góðviðrisdögum. Sér rúmgóð geymsla á jarðhæð og bílskúr fylgir. Álftahólar 8, 111 Reykjavík OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 17-18 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ragnhildur Þrastardóttir Oddur Þórðarson Liðlega fimmtugur danskur karl- maður frá Árósum hefur játað á sig morð á Freyju Egilsdóttur Mogen- sen, íslenskri konu sem búsett var á Austur-Jótlandi. Frá þessu greindi danska lögreglan eftir hádegi í gær. Freyja var 43 ára og skilur eftir sig tvö ung börn. Maðurinn er fyrrverandi sam- býlismaður Freyju og var það hann sem til- kynnti hvarf hennar í fyrradag. Lík Freyju fannst svo á heimili hennar í gær, illa leikið, og var það í kjölfar þess sem mað- urinn játaði verknaðinn. Hröð atburðarás Maðurinn verður ákærður fyrir manndráp og ósæmilega meðferð á líki, að sögn Michaels Kjeldgaards, yfirlögregluþjóns á Austur-Jótlandi. Þegar mbl.is ræddi við Kjeldgaard í gærmorgun hafði maðurinn þegar verið handtekinn, en hvorki lá fyrir játning né ákæra og má segja að at- burðarás málsins hafi verið ansi hröð. Farið var fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir manninum og verður að þeim tíma loknum skoðað hvort framlengja þurfi varðhaldið. Lögregluyfirvöld í Danmörku rann- saka nú hvort maðurinn hafi verið einn að verki og hafa íslensk lög- regluyfirvöld boðið fram aðstoð sína. Karl Steinar Valsson, yfir- lögregluþjónn alþjóðasviðs ríkis- lögreglustjóra, sagði við mbl.is í gær að hann gæti ekki tjáð sig frekar um hvernig aðstoð íslensku lögreglunnar yrði háttað, það væri í höndum danskra lögregluyfirvalda að ákveða það enda rannsókn málsins í þeirra höndum. Spurður um viðbrögð Dana við hjálp frá Íslandi vildi hann ekki tjá sig, boð um aðstoð væri fyrst og fremst formlegt. Samstarfsfólk í áfalli Samstarfsfólk Freyju í þjónustu- íbúðakjarnanum Stenslundcentret í Odder í Danmörku var sagt í áfalli í fréttum Ríkisútvarpsins. Samstarfs- fólk og íbúar lýstu Freyju sem harð- duglegri og vel liðinni og þáðu marg- ir þeirra áfallahjálp í gær. „Við erum í áfalli yfir atburðunum. Freyja var sérlega dugleg og klár og vissi hvað hún vildi,“ sagði Anni And- ersen forstöðukona Stenslund- centret í samtali við Ríkisútvarpið. „Sá sem heldur utan um vakta- skýrslurnar hjá okkur fékk sms frá Freyju á laugardagsmorguninn þar sem sagði að hún gæti ekki komið til vinnu vegna þess að hún væri veik. Það er ekki venjan að tilkynna veik- indi með þeim hætti.“ Ljósmynd/Øxenholt foto/Ritzau Lögregla á vettvangi Töluverður viðbúnaður lögreglu var fyrir utan hús Freyju í Malling í Danmörku í gær. Myrti Freyju á heimili hennar og játaði í gær  Fyrrverandi sambýlismaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Álaborg Malling D A N M Ö R K SVÍÞJÓ Ð ÞÝSKALAND Árósar Kaupmannahöfn Óðinsvé Kattegat Freyja Egilsdóttir Mogensen Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa, segir að Sundabrú muni hafa mikil áhrif á starfsemi fyrir- tækisins. „Þetta hefur veruleg áhrif á okkar starfsemi og er mikið rask,“ segir hann við Morgunblaðið. Fram kom í tilkynningu starfshóps- ins í gær að engar stórvægilegar athugasemdir hefðu borist frá hagsmunaaðilum. „Það er bara ekki rétt,“ segir Birkir. „Við hittum verkefnahópinn tvisvar og komum okkar áhyggjum á framfæri við þá.“ Mörgum spurn- ingum hagsmunaaðila sé því ósvar- að. „Það er ekki búið að ræða neitt við okkur hversu mikið þetta mun hafa áhrif á okkar starfsemi eða fasteignir og hvernig það verður leyst eða bætt,“ segir hann. Lítið sem ekkert samráð Lítið samráð hafi verið haft við hagsmunaaðila. „Í rauninni voru fyrstu drög að skýrslunni kynnt fyrir okkur í desember, og þá var niðurstaða hópsins þessir tveir möguleikar,“ segir Birkir, en þeir möguleikar voru undirgöng eða brú. „Við komum því á framfæri að við værum miklu hrifnari af göng- unum því þau hefðu minni áhrif á starfsemi okk- ar,“ segir Birkir. Þá hafi hags- munaaðilar stungið upp á því að hafa brúna opnanlega. „En það kom ekki til út af vindi og kostnaði,“ bendir hann á. Eiga fund í næstu viku „Við höfum ekki fengið svör við því hvaða áhrif þetta mun hafa á okkur og hvernig okkur verður bætt þetta upp. Ég held að þetta sé það snemma í ferlinu að það á eftir að móta allt,“ segir hann. „Við eig- um fyrsta fund af væntanlega mörgum í næstu viku þegar við hittum Vegagerðina. Vonandi skýr- ist eitthvað þá.“ Veruleg áhrif á starfsemina  Segir lítið sem ekkert samráð haft Birkir Guðnason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.