Morgunblaðið - 04.02.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni
Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, hófst með
formlegri athöfn í Rimaskóla í gærmorgun. Lilja
Alfreðsdóttir menntamálaráðherra og Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri hófu hlaupið í íþrótta-
sal skólans ásamt nokkrum sprækum nemendum
og lukkudýri Lífshlaupsins. Þetta er í 14. sinn
sem hlaupið fer fram og stendur yfir allan þenn-
an mánuð. Markmiðið er að hvetja landsmenn til
að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu. Til
þess að taka þátt í keppninni þarf að skrá sig til
leiks á vefsíðunni www.lifshlaupid.is.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lífshlaupið ræst í Rimaskóla með látum
Um fimm milljarðar króna hafa ver-
ið greiddir í tekjufallsstyrki undan-
farnar þrjár vikur til 822 rekstrar-
aðila. Þeir leggjast við tugmilljarða
stuðning í gegnum fjölþætt úrræði
ríkisstjórnarinnar árið 2021, sam-
kvæmt frétt fjármála- og efnahags-
ráðuneytisins.
Markmiðið með tekjufalls-
styrkjum er að styðja fyrirtæki og
einyrkja sem hafa orðið fyrir meira
en 40% tekjufalli vegna faraldurs-
ins.
„Skatturinn hefur alls afgreitt um
4.000 umsóknir vegna styrkja sem
stofnunin hefur á sinni könnu, sem
eru tekjufalls- og lokunarstyrkir og
stuðningur við fyrirtæki við greiðslu
launa á uppsagnarfresti. Skatturinn
hefur lokið við að greiða út styrki
fyrir 73% umsókna um tekjufalls-
styrki en alls hafa um 94% fullbú-
inna umsókna sem borist hafa
skattinum verið afgreiddar.“
Alþingi hefur samþykkt lög um
viðspyrnustyrki til að koma til móts
við vanda rekstraraðila og búa sam-
félagið undir það þegar heimurinn
opnast að nýju. Stefnt er að því að
hefja móttöku umsókna um við-
spyrnustyrki í lok mánaðarins.
Fimm
milljarðar
í styrki
822 aðilar fá
tekjufallsstyrk
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Matvælastofnun og Umhverfisstofn-
un hafa auglýst tillögu að uppfærslu á
rekstrar- og starfsleyfi fyrir eldi
Fiskeldis Austfjarða í Berufirði og
Fáskrúðsfirði. Fær fyrirtækið heim-
ild til að auka eldi á frjóum laxi um
6.500 tonn en heimildir til eldis á
ófrjóum laxi minnka samsvarandi.
Breytingarnar eru gerðar í fram-
haldi af því að Hafrannsóknastofnun
endurskoðaði á síðasta ári áhættumat
vegna erfðablöndunar fyrir þetta
svæði. Það gerir ráð fyrir að heimilt
sé að vera með allt að 12 þúsund tonn
af frjóum laxi í Fáskrúðsfirði. Fyrra
leyfi Fiskeldis Austfjarða hljóðaði
upp á 6 þúsund tonn af frjóum laxi og
5 þúsund tonn af ófrjóum laxi. Nú
breytast heimildirnar þannig að allt
leyfið, 11 þúsund tonn, verður notað
til eldis á frjóum laxi.
Í Berufirði gerir nýtt áhættumat
Hafró ráð fyrir 7.500 tonnum af frjó-
um laxi. Fiskeldi Austfjarða hefur
leyfi til að ala 6 þúsund tonn af frjóum
laxi í þeim firði og 3.800 tonn af ófrjó-
um laxi. Leyfið breytist þannig að alin
verða 7.500 tonn af frjóum laxi og
2.300 tonn af ófrjóum.
„Við viljum vera ábyrgir í þessu.
Fylgjum leiðsögn Hafrannsókna-
stofnunar,“ segir Guðmundur Gísla-
son, stjórnarformaður Fiskeldis
Austfjarða. Fyrirtækið hefur nú leyfi
til að ala 18.500 tonn í þessum tveimur
fjörðum auk 2.300 tonna af ófrjóum
laxi, alls 20.800 tonn.
Spjara sig í köldum sjó
Fiskeldi Austfjarða er að ala ófrjó
seiði í seiðastöð sinni í Rifósi í Keldu-
hverfi og þau fara til áframeldis í
nýrri stöð á Kópaskeri. Fyrstu ófrjóu
laxaseiðin verða sett út í kvíar í Beru-
firði í vor, ef allt gengur samkvæmt
áætlun. Guðmundur segir að það
verði um hálf milljón seiða sem gefi
um 2.000 tonn af laxi eftir eitt og hálft
ár í sjó. Hann tekur fram að menn séu
að fóta sig í framleiðslu á þessum
seiðum og síðan eldi á þeim í sjó.
Reynslan verði að skera úr um það
hvernig það gengur. Reynslan frá
Noregi bendi til að ófrjó seiði spjari
sig betur í köldum sjó en heitum.
Uppfæra leyfi til laxeldis
Fiskeldi Austfjarða fær auknar heimildir til eldis á frjóum laxi í stað eldis á
ófrjóum laxi Fyrstu ófrjóu laxaseiðin frá eldisfyrirtækinu fara í sjó í vor
Morgunblaðið/Eggert
Berufjörður Ófrjór lax verður settur í kvíar Fiskeldis Austfjarða í vor.
Rúður voru brotnar á heimili Ólafs
Guðmundssonar, varaborgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, í fyrri-
nótt. Svo virðist sem garðkanna
hafi verið notuð til verksins en rúð-
ur voru einnig brotnar í þremur
húsum í sama botnlanga og heimili
Ólafs í Grafarvogi. Lögregla var
kölluð til og hafði hendur í hári
karlmanns, sem grunaður er um
verknaðinn. Elín Agnes Kristínar-
dóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn
sagði þó við mbl.is í gær að enginn
væri í haldi lögreglu, sem nú skoð-
ar málið að hennar sögn.
Ólafur sagðist í viðtali sleginn og
harmaði það að borgarbúar mættu
eiga von á að lenda í atburðum sem
þessum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skemmdarverk Garðkanna var notuð.
Rúður brotnar hjá
varaborgarfulltrúa