Morgunblaðið - 04.02.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Casa býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa/Euro) í allt að 6 mánuði.
LÝSTU UPP
skammdegið
Taccia lampi
Hönnun: Achille & Pier Giacomo
Castiglioni (1962)
Small H: 48,5 cm
Litir: chrome, black, bronze
Verð 169.000,-
Davíð Ólafsson,
löggiltur fasteignasali,
leigumiðlari og
viðskiptafræðingur
BERG Fasteignasala | Háholt 14 | Mosfellsbæ
Sími 588 5530 | berg@berg.is | berg.is
ATVINNUHÚSNÆÐI
SKRIFSTOFUR – IÐNAÐARBIL
Hafðu samband við okkur og við aðstoðum og finnum
rétta aðilann fyrir þig eða réttu eignina.
Þarftu að selja, kaupa, leigja út
eða taka á leigu?
TIL LEIGU Suðurlandsbraut 10
260-870 fm
Sími 766 6633
TIL LEIGU Guðríðarstígur 2-4
300 fm
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég lifði þetta af í kröppum dansi
og fékk fótinn í bónus,“ segir Björg-
vin Hreinsson, 57 ára trillusjómaður
á Vopnafirði.
Miðvikudagurinn 18. mars í fyrra
reyndist örlagaríkur í lífi Björgvins.
Þann dag var hann í hlutverki hafn-
sögumanns þegar flutningaskipið
Samskip Hoffell sigldi frá Vopna-
firði. Þegar skipið var komið á lóðs-
stöð úti á firðinum bjóst Björgvin til
að fara um borð í björgunarskipið
Sveinbjörn Sveinsson, eins og tíðk-
ast þar um slóðir.
Þegar Björgvin var um það bil að
koma sér um borð í Sveinbjörn
Sveinsson „kom óvænt kvika við
það“, eins og það er orðað í skýrslu
rannsóknarnefndar samgönguslysa.
„Skipið féll hratt niður og seig að-
eins frá SH en skall síðan utan í
það. Við þetta varð hægri fótur
hafnsögumannsins á milli skipanna
með þeim afleiðingum að hann fót-
brotnaði mjög illa,“ segir í skýrsl-
unni. „Skipverjar á björgunarskip-
inu settu snarvöndul fyrir ofan
áverkana á lærinu sem skipti sköp-
um til að lágmarka afleiðingar
slyssins,“ segir þar ennfremur.
Löng bið á sjúkrahúsinu
Björgvin lýsir atvikinu svo í sam-
tali við Morgunblaðið: „Það virtist
allt vera eðlilegt en svo þegar ég er
að stíga um borð í björgunarskipið
kemur eitthvert ólag á það og ég
bara náði ekki að forða mér. Þegar
skipið kom til baka náði það í vinstri
fótinn á mér. Með einhverju harð-
fylgi tókst mér að henda mér úr
stiganum og yfir á björgunarskipið.
Ég hékk svo utan á því þangað til
ég heyrði að skipstjórinn gargaði á
strákana að þeir yrðu að ná mér. Ég
hélt að skipið væri að koma á mig
aftur og varð hræddur en með hjálp
skipverjanna tókst mér að sveifla
mér aftur inn fyrir.“
Björgvin segir að hann hafi ekki
haft hugmynd um hversu illa slas-
aður hann væri fyrr en komið var á
sjúkrahúsið á Akureyri. Hann hélt
meðvitund allan tímann. „Ég gerði
mér alla vega grein fyrir því að ég
væri lærbrotinn en í raun fór lærið
á mér alveg í mask. Allar æðar fóru
og kjötið fór í marning. Sperrilegg-
urinn fyrir neðan hné brotnaði líka,
Síðar sögðu læknarnir mér að ég
hefði átt einhverjar 20 mínútur eftir
ólifaðar, ég var orðinn svo blóð-
laus.“
Hann gekkst undir langa aðgerð
á Sjúkrahúsinu á Akureyri sam-
dægurs. Eftir það tók við löng bið
þar sem staðan var metin. „Það var
ekki tekin ákvörðun um að ég héldi
fætinum fyrr en 4. apríl. Fram að
því var bara reynt að tengja hann
inn í blóðrásina til að sjá hvort hann
myndi lifa. En þeim tókst þetta.“
Þarf að notast við hækjur
Björgvin dvaldi á sjúkrahúsinu
fram á haust og kom ekki heim til
Vopnafjarðar fyrr en 8. september,
tæpu hálfu ári eftir slysið. Hann var
svo allan janúar á Kristnesi og er á
leiðinni til Reykjavíkur í æðaþræð-
ingu. Ekki sér til lands í endurhæf-
ingu en Björgvin kveðst ánægður
með hvernig gengið hefur.
„Læknarnir stóðu sig eins og
hetjur. Sömuleiðis allt starfsfólkið á
sjúkrahúsinu og á Kristnesi. Því-
líkar hetjur! Þetta hefur kostað
bæði blóð, svita og tár. Bæði fyrir
mig og þau. Á þessum tíma hef ég
farið úr rúminu í hjólastól, þaðan í
göngugrind og svo á hækjur. Ég er
með eina eða tvær hækjur sem ég
nota úti við eftir því hvernig mér
líður hverju sinni.“
Og hvernig líður þér?
„Ég er alltaf með verki í fætinum
en við vonumst til að það minnki
þegar ég verð meira á róli og fót-
urinn styrkist. Ég hef reyndar enga
tilfinningu í fætinum fyrir neðan
hné. Kálfinn bólgnaði svo mikið og
þeir þurftu að rista á hann svo hann
myndi ekki rifna. Ég fékk svo drep í
kálfann í kjölfarið og var að slást við
það í heilan mánuð.“
Hefur fengið mikinn stuðning
Hann kveðst vera þakklátur fyrir
það að vera á lífi. „Ég á fólkinu á
björgunarskipinu og læknateyminu
hér heima og á Sjúkrahúsinu á
Akureyri líf að launa. Ég neita því
ekki að það hafa verið hæðir og
lægðir en það er ekkert annað í boði
en að horfa fram á veginn þótt mis-
jafnlega gangi. Ég hef líka fengið
óendanlega mikinn stuðning frá fjöl-
skyldunni, börnum og vinum. Þau
vilja allt fyrir mig gera. Vopnafjörð-
ur er bara alveg dásamlegt sam-
félag.“
Björgvin hefur sett sér það mark-
mið að snúa aftur til starfa eins
fljótt og auðið er. „Það hlæja nú all-
ir að mér en ég ætla að reyna að
fara á grásleppu í vor. Ég er með
tvo öfluga menn með mér og þarf
því lítið annað að gera en að sitja á
rassgatinu.“
„Ég átti 20 mínútur eftir ólifaðar“
Björgvin Hreinsson fótbrotnaði illa þegar hann lóðsaði flutningaskip frá Vopnafirði í mars í fyrra
Hann missti mikið blóð og óttast var að taka yrði af honum fótinn Þakkar fyrir að hafa lifað af
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Bjartsýnn Björgvin Hreinsson lenti í alvarlegu slysi í mars í fyrra og ótt-
aðist að hann myndi missa vinstri löppina. Endurhæfing hefur gengið vel.
Í skýrslu rannsóknarnefndar
samgönguslysa er atburða-
rásin rakin. Þar segir jafn-
framt að áhöfnin á björg-
unarskipinu Sveinbirni
Sveinssyni hafi áralanga
reynslu við að þjónusta hafn-
söguna og Björgvin hafi verið
vanur leiðsögn skipa á svæð-
inu. Það hafði hann gert í um
það bil aldarfjórðung.
„Allir aðilar voru sammála
um að óvænt kvika hefði vald-
ið þessari óvæntu hreyfingu
björgunarskipsins,“ segir í
skýrslunni.
„Hafnsögumaðurinn kvaðst
hafa af gömlum vana verið
kominn niður í leiðarann en
reynt að forða sér upp aftur
þegar björgunarskipið SS
lenti í kvikunni. Fram kom hjá
honum að það hefði verið
töluverð kvika en ekkert
óvenjuleg,“ segir þar enn-
fremur.
Álit nefndarinnar er að or-
sök slyssins hafi verið óvænt
hreyfing sem kom á björg-
unarskipið „sem gerði stað-
setningu hafnsögumanns í
leiðaranum óæskilega og
hættulega“.
Óvænt
hreyfing
kom á skipið
MEÐ 25 ÁRA REYNSLU