Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 10
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gjaldskrá Íslandspósts grefur
undan samkeppni vegna undirverð-
lagningar póstsendinga út á land.
Þetta segir Andrés Magnússon,
framkvæmdastjóri Samtaka versl-
unar og þjón-
ustu, en þau
gæta m.a. hags-
muna flutninga-
fyrirtækja.
Máli sínu til
stuðnings bendir
Andrés á að
þrátt fyrir met-
fjölda pantana
hjá netverslunum
í nóvember sl.
hafi einkafyrirtækjum á flutninga-
markaði gengið illa að fá viðskipti
úti á landi.
Hefur áhrif um allt land
Þetta hafi komið skýrt fram í
samtölum SVÞ við fulltrúa flutn-
ingafyrirtækja. Þar með talið í Vík í
Mýrdal, á Hvolsvelli, á Hellu, á Sel-
fossi, í Keflavík, á Akranesi, í
Borgarnesi, í Grundarfirði, í Stykk-
ishólmi, á Hólmavík og á Sauðár-
króki.
„Nóvember var metmánuður í
netverslun á Íslandi og voru þá 17%
af veltu smásölu í formi net-
verslunar. Stórverslanir á höfuð-
borgarsvæðinu fengu eðlilega fjölda
pantana út á land. Smærri flutn-
ingafyrirtæki á markaðnum reyndu
hvað þau gátu til að ná þessum við-
skiptum en þau áttu ekki mögu-
leika. Pósturinn bauð pakkasend-
ingar upp að 10 kílóum á miklu
lægra verði. Dæmi er um að það
kostaði aðeins 800 krónur að senda
helluborð frá Reykjavík til Víkur í
Mýrdal enda var það undir 10 kíló-
um. Hér á höfuðborgarsvæðinu er
hins vegar algengt að það kosti
a.m.k. fimm þúsund krónur að fá
raftæki send heim,“ segir Andrés.
Að auki styrki niðurgreiðslurnar
samkeppnisstöðu verslana á höfuð-
borgarsvæðinu á kostnað verslana
úti á landi, sem veiki rekstrar-
forsendur þeirra síðarnefndu.
Dræm viðbrögð þingmanna
Andrés segir SVÞ hafa komið
þessum sjónarmiðum á framfæri á
fundi með fulltrúum umhverfis- og
samgöngunefndar í lok janúar en
fengið dræm viðbrögð. „Við skýrð-
um fyrir þeim hvernig landið liggur
en það kom okkur á óvart hvað
landsbyggðarþingmenn höfðu lítinn
áhuga á málinu,“ segir Andrés.
Hafa verði í huga að flutninga-
þjónusta með pakkasendingar úti á
landi muni skerðast ef einkafyrir-
tæki þurfa að óbreyttu að rifa segl-
in vegna undirverðlagningar Pósts-
ins. Sá tekjubrestur kunni aftur að
neyða einkafyrirtækin til að hækka
gjöld vegna flutninga á stærri
sendingum.
Velja eðlilega ódýrari kostinn
„Það er auðvelt að setja sig í spor
seljenda. Þegar þeim býðst að flytja
vöru á svo lágu verði taka þeir því
boði. Það eru augljósir viðskipta-
hagsmunir sem liggja þar að baki,“
segir Andrés.
Samtök verslunar og þjónustu
hafa jafnframt ritað samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytinu bréf þar
sem málið er reifað en póstmál
heyra undir ráðuneytið. Með fylgdi
minnisblað hæstaréttarlögmanns
um meint lögbrot sem fjallað er um
í grein hér neðar á síðunni.
„Við höldum því fram að gjald-
skrá Póstsins hafi falið í sér undir-
verðlagningu á undanförnum árum.
Það er skýrt kveðið á um það í lög-
um að gjaldskrá alþjónustu skuli
taka mið af raunkostnaði að við-
bættum hóflegum hagnaði. Sé horft
til þess hversu mikil meðgjöf rík-
isins hefur verið af alþjónustu á
undanförnum árum stefnir í veru-
lega meðgjöf árið 2020,“ segir
Andrés. Það stefni með öðrum orð-
um í verulegan halla af rekstri
Póstsins af pakkasendingum sem
aftur kalli á meiri meðgjöf frá eig-
andanum sem er ríkið. Án slíkrar
meðgjafar, sem kunni að hlaupa á
hundruðum milljóna, leiki vafi á
rekstrarhæfi Póstsins.
Standi öllum til boða
Til upprifjunar segir í lögum um
póstþjónustu að alþjónusta sé sú
lágmarkspóstþjónusta sem notend-
um póstþjónustu skuli standa til
boða á jafnræðisgrundvelli og er
hún útlistuð í 9. grein laganna: Allir
notendur póstþjónustu á Íslandi
eigi rétt á alþjónustu sem uppfylli
gæðakröfur og sé á viðráðanlegu
verði.
Andrés rifjar upp að samkvæmt
lagafrumvarpi hafi ákvæði um sama
verð alþjónustu á landinu öllu átt að
ná til bréfsendinga upp að fimmtíu
grömmum en í meðförum þingsins
hafi verið ákveðið að ákvæðið næði
til pakkasendinga að tíu kílóum.
Það hafi komið verulega á óvart.
Undirverðlagningin ólögleg
Samkvæmt lögum ber Póst- og
fjarskiptastofnun (PFS) að viðhafa
eftirlit á póstmarkaði.
Spurður um þetta hlutverk stofn-
unarinnar segir Andrés að skilin
milli hlutverks PFS og Samkeppn-
iseftirlitsins hafi valdið vanda.
„Póst- og fjarskiptastofnun hefur
það lögbundna hlutverk að hafa
eftirlit með póstrekendum en við
teljum að Samkeppniseftirlitið hefði
átt að grípa inn í varðandi undir-
verðlagninguna sem er ólögleg
samkvæmt samkeppnislögum,“ seg-
ir Andrés.
Tilgangurinn með þessum mála-
rekstri sé að fá stjórnmálamenn til
að bregðast við vandanum. Óbreytt
staða muni enda kippa stoðunum
undan rekstri fyrirtækja sem eru í
samkeppni við Íslandspóst, hvort
heldur úti á landi eða á höfuðborg-
arsvæðinu.
Grafa undan samkeppninni
Framkvæmdastjóri SVÞ segir lögbrot Íslandspósts grafa undan einkafyrirtækjum á póstmarkaði
Pósturinn greiði með pakkasendingum út á land Undirverðlagningin sé brot á samkeppnislögum
Morgunblaðið/Ómar
Annríki Netverslun sló met í haust
sem leið. Pósturinn fann fyrir því.
Andrés
Magnússon
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Þinn dagur,
þín áskorun
Þegar frost
er á fróni
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
run@run.is | www.runehf.is
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
Verslunin Bjarg, Akranesi • Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og
Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga,
Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík
Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði • Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi
Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is
OLYMPIA
100% Merino
ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Hörður Felix Harðarson, hæsta-
réttarlögmaður hjá Mörkinni lög-
mannsstofu, vann minnisblað fyrir
Samtök verslunar og þjónustu
(SVÞ) um lögfræðileg álitaefni
vegna pakkasendinga Póstsins.
Rifjað er upp að hinn 1. janúar
2020 hafi einkaréttur hins opinbera
á sviði póstþjón-
ustu endanlega
verið afnuminn
til samræmis við
tilskipun
Evrópuþingsins
og -ráðsins.
Samhliða hafi
verið gerðar
breytingar á
póstlögum m.t.t.
alþjónustu og
Póstinum falið
með bráðabirgðaákvörðun að ann-
ast tímabundið alþjónustu sam-
kvæmt lögum.
Gildir til ársins 2030
Með ákvörðun 13/2020 hafi Póst-
og fjarskiptastofnun útnefnt Póst-
inn sem alþjónustuveitanda á sviði
póstþjónustu um allt land til 31.
desember 2030. Undir hana falli
meðal annars pakkasendingar inn-
anlands upp að tíu kílóum.
Hörður Felix rifjar svo upp að
samhliða afnámi á einkaréttinum í
ársbyrjun 2020 hafi Pósturinn
breytt verðskrá vegna pakkasend-
inga innanlands upp að 10 kg. Áður
hafi gjaldskráin verið svæðisbundin
og skipst í þrjú svæði. Gjaldið á
svæði 1, höfuðborgarsvæðinu, hafi
verið lægra og í sumum tilfellum
hafi munað tugum prósenta. Með
breytingunni hafi gjaldskrá innan
alþjónustu upp að 10 kg miðast við
svæði 1.
Lækkaði á svæðum 2 og 3
„Var það gert með vísan til ný-
mælis í 2. mgr. 17. gr. laga nr. 98/
2019 þar sem kveðið er á um að
gjaldskrá fyrir alþjónustu skuli
vera sú sama um land allt. Með
þessari breytingu lækkaði gjald-
skrá fyrir pakkasendingar á svæði
2 og 3 umtalsvert,“ skrifar hann.
Veki áleitnar spurningar
Spurningar hafi vaknað um lög-
mæti þessarar ákvörðunar og málið
vakið „áleitnar spurningar um eftir-
litshlutverk PFS og hvort stofnunin
hafi sinnt því hlutverki með full-
nægjandi hætti“.
Samkvæmt bókhaldi Póstsins
hafi verið tap af innlendum pakka-
sendingum árin 2018 og 2019.
Svo rifjar Hörður upp að sam-
kvæmt lögum skuli gjaldskrá fyrir
alþjónustu taka mið af raunkostn-
aði við að veita þjónustuna, að við-
bættum hæfilegum hagnaði.
Telur Hörður Felix ljóst að því
fari fjarri að verðlagning Póstsins á
þessari þjónustu hafi verið í sam-
ræmi við lög um póstþjónustu.
Hann fer yfir samkeppni Póst-
og fjarskiptastofnunar og Póstsins
sem hann telur gefa „skýrt til
kynna að PFS hafi gert sér grein
fyrir því að allar líkur væru á því
að gjaldskráin væri hvorki í sam-
ræmi við ákvæði laga um póstþjón-
ustu né ákvæði samkeppnislaga“.
Stofnunin hafi hins vegar beðið
með aðgerðir með vísan til óvissu
um afkomu árið 2020.
Ekki í samræmi við skyldur
Hörður Felix rökstyður svo það
mat Markar lögmannsstofu að
eftirlit PFS með starfsemi Póstsins
sé ekki í samræmi við þær skyldur
sem hvíla á stofnuninni. Ætla megi
að niðurgreiðslur íslenska ríkisins á
starfsemi Póstsins séu hvorki í
samræmi við ákvæði samkeppnis-
laga né sáttar sem Pósturinn undir-
gekkst við Samkeppniseftirlitið,
sbr. ákvörðun nr. 8/2017. Að auki
vakni spurningar um hvort niður-
greiðslan teljist ólögmæt ríkis-
aðstoð í skilningi 61. gr. EES-
samningsins. Fjárveitingar frá rík-
inu séu til þess fallnar að raska
samkeppni og með því sé tilteknu
fyrirtæki ívilnað á kostnað annarra
fyrirtækja.
Breyting á gjaldskrá ekki
í samræmi við póstlögin
Hæstaréttarlögmaður telur Póstinn hafa brotið lög
Morgunblaðið/Hari
Við höfuðstöðvarnar Deilt er um breytingar á gjaldskrá Póstsins í fyrra.
Hörður Felix
Harðarson