Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég sendi þetta frá mér tilað fólk lesi, og það vekurkannski einhverjar hug-renningar eða tengsl.
Þetta er tekið saman á síðustu sex ár-
um og nær því yfir nokkuð langan
tíma. Ég er líka að taka til atriði frá
því ég var ungur maður, jafnvel lítill
drengur á sumum stöðum. Ég horfi
aftur til bernskunnar, enda sækir
slíkt endurlit á þegar árum fjölgar.
Ég velti oft fyrir mér hvað ég hef
verið að gera og hvernig stöðu ég hef
verið í. Út frá því verða þessar hug-
leiðingar til,“ segir Pétur Önundur
Andrésson sem nýlega sendi frá sér
bókina Niðurinn frá ánni, en hún
geymir ljóð og hugleiðingar hans um
lífið og tilveruna, náttúruna, hvers-
daginn og fólkið í kringum hann.
Þegar Pétur er spurður að því
hvort hann sakni æskudaganna, seg-
ist hann vissulega eiga ágætar æsku-
minningar.
„Ég sakna að vissu leyti félag-
anna sem ég átti að vinum hér áður,
skólafélaga og annarra sem ég er bú-
inn að týna.“
Þuríður skáldkona í uppáhaldi
Pétur er enginn byrjandi í skáld-
skapnum, þetta er áttunda ljóðabók-
in sem hann sendir frá sér. Hann
segist í gegnum tíðina hafa lesið
mjög mikið af ljóðum og skáldskap
eftir aðra og að það komi fram í því
sem hann skrifi, sérstaklega í fyrsta
kafla nýju bókarinnar.
„Ég kalla þann kafla Skáldin, því
mér finnst ég vera undir áhrifum frá
hinum og þessum skáldum. Ef menn
þekkja til þessara skálda, þá geta
þeir hinir sömu jafnvel séð hver er á
ferðinni í hvaða ljóði.“
Þegar Pétur er spurður að því
hvort einhver skáld séu í meira uppá-
haldi hjá honum en önnur, segist
hann hafa í gegnum tíðina verið hrif-
inn af Þuríði Guðmundsdóttur skáld-
konu.
„Ljóðin hennar höfða mikið til mín,
en svo eru það líka þessir gömlu, Ein-
ar Bragi og Stefán Hörður til dæmis.
Mér finnst mög gefandi að lesa ljóð,
en mér finnst ljóð ekki alveg njóta
sannmælis í seinni tíð. Kannski
vegna þess að það getur verið erfitt
að lesa ljóð ef maður kann það ekki,
það getur reynt á hugsunina og mað-
ur þarf að venjast því og helst alast
upp við það. Á mínu æskuheimili var
mikið lesið af ljóðum og ákveðin
skáld voru í miklu uppáhaldi hjá
pabba og mömmu. Til dæmis Davíð
Stefánsson, en pabbi var líka mjög
hrifinn af Stephani G. Stephanssyni
og hélt honum mikið að mér. Mörg af
hans ljóðum finnst mér vera mögn-
uð.“
Sterkar taugar norður í land
Pétur er fæddur og uppalinn í
Reykjavík en foreldrar hans voru
Skagfirðingar, þau fæddust fyrir
norðan og ólust þar upp.
„Fyrir vikið var ég þó nokkuð mik-
ið fyrir norðan á yngri árum á bæn-
um Varmalandi í Sæmundarhlíð og
ég var einnig mikið á Króknum. Ég
hef því sterkar taugar norður. Í
nokkrum ljóða minna í bókinni horfi
ég til þeirra slóða og forfeðra minna,
til dæmis er ljóð um mömmu mína og
líka um ömmu, Steinunni Stefáns-
dóttur, en hana þekkti ég ekki nema
af því sem foreldrar mínir sögðu mér.
Mér finnst mjög forvitnilegt að kom-
ast yfir eitthvað sem segir frá for-
feðrum mínum. Ég verð mjög glaður
ef ég rekst á bókarkafla eða annað
þar sem sagt er frá þeim. Til dæmis
hef ég rekist á frásagnir af föðurafa
mínum, Pétri Andréssyni, sem átti
heima í Stokkhólmi í Skagafirði. Mér
finnst það virkilega gaman og mig
langar að vita miklu meira, því maður
er náttúrulega settur saman úr svo
mörgum sem á undan komu.“
Hefur áhyggjur af börnunum
Pétur kemur í ljóðum sínum einnig
inn á ýmislegt í samfélaginu sem
honum finnst að betur mætti fara.
„Það er ekki hægt annað, skáld eru
alltaf aðeins að reyna að benda á eitt
og annað í tilverunni sem mætti
kannski vera öðruvísi. Ég hef
áhyggjur af börnunum, mér finnst
þau hverfa of mikið að tækjum. Þó
ævintýri sem þar er að finna geti
vissulega verið góð, þá er hættulega
þægilegt að afgreiða börn með því að
opna fyrir sjónvarp eða síma og láta
þau horfa á einhverja mynd eða spila
tölvuleik. Það má vel vera að það sé
allt í lagi, en ég held að hitt væri
betra, ef samskiptin væru meiri, það
mundi hjálpa þeim betur af stað út í
lífið. Ég hef líka áhyggjur af þessum
skelfilegu eiturlyfjum og öðru sem
haldið er að börnum. Ég hef á tilfinn-
ingunni að ýmislegt fari fram í okkar
samfélagi sem ætti alls ekki að ger-
ast.“
Heit og sönn trú öfundsverð
Pétur segir að þó við mannfólkið
skiptumst í ólíkar pólitískar fylk-
ingar, þá finnist honum að það þurfi
að vera meira umburðarlyndi á milli
fylkinga og andstæðra sjónarmiða.
„Fólk þarf að gera sér grein fyrir
að það eru ekki allir á sömu skoðun
og til að þetta gangi svona nokkurn
veginn hjá okkur í mannlegu sam-
félagi, þá þurfum við að komast að
einhverju samkomulagi,“ segir Pétur
sem kemur í ljóðum sínum inn á mis-
skiptingu og fátækt í íslensku sam-
félagi. „Því miður hefur þetta alltaf
verið og við erum vissulega að reyna
að gera eitthvað í því og það hefur
tekist að hluta til, en það er langt í
land. Við erum ekki á réttum stað
þegar allt þetta fólk þarf að sækja
sér mat á hinum og þessum stöðvum.
Það er lítillækkandi að þurfa að
standa í röð til að fá eitthvað að borða
handa sjálfum sér og börnum sínum.
Þetta ætti miklu frekar að fara fram
með einhverjum hætti í gegnum
sameiginlegu sjóðina okkar.“
Þegar Pétur er spurður að því
hvort efinn sæki á hann með hækk-
andi aldri, með vísan í eitt af ljóðum
hans þar sem ævilangur efi kemur
fyrir, segist hann vissulega velta fyr-
ir sér eilífðarmálunum.
„Sumir eigi til trúarvissu sem
hjálpar þeim í gegnum svo margt, því
þeir trúa staðfastlega. Auðvitað vill
maður eiga einhverja góða trú, en ég
hef á tilfinningunni að maður búi þá
mynd til sjálfur og reyni að láta hana
ganga upp, sem gerist ekki alltaf.
Það koma tímabil þar sem manni
finnst alveg öruggt mál að ekkert sé
æðra. Eflaust er sammannlegt að
efast um eilífðarmálin, prestarnir
segjast meira að segja margir eiga í
eilífri baráttu við sjálfa sig. Ég öf-
unda fólk sem á heita og sanna trú í
hjarta, ekki öfgar. Í því felst mjög
mikill styrkur.“
Þyrfti að vera meira umburðarlyndi
„Maður er náttúrulega
settur saman úr svo
mörgum sem á undan
komu,“ segir Pétur Ön-
undur sem þyrstir í að
vita meira um forfeður
sína. Hann yrkir ljóð um
lífið og tilveruna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pétur „Á mínu æskuheimili var mikið lesið af ljóðum og ákveðin skáld í miklu uppáhaldi hjá pabba og mömmu.“
Anna Lára Davíðsdóttir handknatt-
leikskona úr Gróttu og Pálmi Rafn
Pálmason knattspyrnumaður úr KR
hafa verið kjörin íþróttakona og
íþróttamaður Seltjarnarness fyrir árið
2020. Íþrótta- og tómstundanefnd
bæjarins sér um kjörið sem fór fram
nú í 28. skipti. Tilgangurinn er að vekja
athygli á gildi íþrótta og öflugu
íþróttastarfi á Nesinu.
Fimm tilnefningar um íþróttafólk
ársins bárust nefndinni þetta árið.
Jafnframt voru veitt verðlaun til lands-
liðsfólks, ungs og efnilegs íþróttafólks
auk þess sem bikarmeistarar voru sér-
staklega verðlaunaðir. Einnig voru
veitt verðlaun fyrir félagsstörf.
Anna Lára Davíðsdóttir er fædd árið
2000 og uppalin Gróttukona. Hún hef-
ur gegnt lykilhlutverki í meistara-
flokki kvenna síðustu tvö ár þar sem
þær hafa spilað í næstefstu deild Ís-
landsmótsins. Hún þykir vera sér-
staklega öflugur leikmaður, hvort
heldur er í vörn eða sókn. Hún er nú
fyrirliði og hefur sinnt því hlutverki af
kostgæfni.
Pálmi Rafn Pálmason er 36 ára
gamall og hóf meistaraflokksferil sinn
í knattspyrnu með Völsungi 15 ára
gamall. Hann hefur leikið víða og á sl.
ári sitt sjötta tímabil með sigursælu
liði KR-inga og er einn af mikilvæg-
ustu leikmönnum liðsins. Hann hefur
leikið rúmlega 400 deildaleiki á ferli
sínum og skorað feiri en 100 mörk.
Pálmi þykir sterkur leiðtogi bæði inn-
an vallar sem utan. sbs@mbl.is
Anna og Pálmi íþróttafólk Seltjarnarness
Leiðtogi og öflugur leikmaður
Seltirningar Pálmi Rafn Pálmason, til vinstri, og Anna Lára Davíðsdóttir með
Guðmundi Helga Þorsteinssyni, formanni íþrótta- og tómstundanefndar.
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
Lítill verð frá 21.900,-
Stór verð 43.900,-
Margir litir
Fegrum heimilið
Kartell Battery
þráðlausir lampar