Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég sendi þetta frá mér tilað fólk lesi, og það vekurkannski einhverjar hug-renningar eða tengsl. Þetta er tekið saman á síðustu sex ár- um og nær því yfir nokkuð langan tíma. Ég er líka að taka til atriði frá því ég var ungur maður, jafnvel lítill drengur á sumum stöðum. Ég horfi aftur til bernskunnar, enda sækir slíkt endurlit á þegar árum fjölgar. Ég velti oft fyrir mér hvað ég hef verið að gera og hvernig stöðu ég hef verið í. Út frá því verða þessar hug- leiðingar til,“ segir Pétur Önundur Andrésson sem nýlega sendi frá sér bókina Niðurinn frá ánni, en hún geymir ljóð og hugleiðingar hans um lífið og tilveruna, náttúruna, hvers- daginn og fólkið í kringum hann. Þegar Pétur er spurður að því hvort hann sakni æskudaganna, seg- ist hann vissulega eiga ágætar æsku- minningar. „Ég sakna að vissu leyti félag- anna sem ég átti að vinum hér áður, skólafélaga og annarra sem ég er bú- inn að týna.“ Þuríður skáldkona í uppáhaldi Pétur er enginn byrjandi í skáld- skapnum, þetta er áttunda ljóðabók- in sem hann sendir frá sér. Hann segist í gegnum tíðina hafa lesið mjög mikið af ljóðum og skáldskap eftir aðra og að það komi fram í því sem hann skrifi, sérstaklega í fyrsta kafla nýju bókarinnar. „Ég kalla þann kafla Skáldin, því mér finnst ég vera undir áhrifum frá hinum og þessum skáldum. Ef menn þekkja til þessara skálda, þá geta þeir hinir sömu jafnvel séð hver er á ferðinni í hvaða ljóði.“ Þegar Pétur er spurður að því hvort einhver skáld séu í meira uppá- haldi hjá honum en önnur, segist hann hafa í gegnum tíðina verið hrif- inn af Þuríði Guðmundsdóttur skáld- konu. „Ljóðin hennar höfða mikið til mín, en svo eru það líka þessir gömlu, Ein- ar Bragi og Stefán Hörður til dæmis. Mér finnst mög gefandi að lesa ljóð, en mér finnst ljóð ekki alveg njóta sannmælis í seinni tíð. Kannski vegna þess að það getur verið erfitt að lesa ljóð ef maður kann það ekki, það getur reynt á hugsunina og mað- ur þarf að venjast því og helst alast upp við það. Á mínu æskuheimili var mikið lesið af ljóðum og ákveðin skáld voru í miklu uppáhaldi hjá pabba og mömmu. Til dæmis Davíð Stefánsson, en pabbi var líka mjög hrifinn af Stephani G. Stephanssyni og hélt honum mikið að mér. Mörg af hans ljóðum finnst mér vera mögn- uð.“ Sterkar taugar norður í land Pétur er fæddur og uppalinn í Reykjavík en foreldrar hans voru Skagfirðingar, þau fæddust fyrir norðan og ólust þar upp. „Fyrir vikið var ég þó nokkuð mik- ið fyrir norðan á yngri árum á bæn- um Varmalandi í Sæmundarhlíð og ég var einnig mikið á Króknum. Ég hef því sterkar taugar norður. Í nokkrum ljóða minna í bókinni horfi ég til þeirra slóða og forfeðra minna, til dæmis er ljóð um mömmu mína og líka um ömmu, Steinunni Stefáns- dóttur, en hana þekkti ég ekki nema af því sem foreldrar mínir sögðu mér. Mér finnst mjög forvitnilegt að kom- ast yfir eitthvað sem segir frá for- feðrum mínum. Ég verð mjög glaður ef ég rekst á bókarkafla eða annað þar sem sagt er frá þeim. Til dæmis hef ég rekist á frásagnir af föðurafa mínum, Pétri Andréssyni, sem átti heima í Stokkhólmi í Skagafirði. Mér finnst það virkilega gaman og mig langar að vita miklu meira, því maður er náttúrulega settur saman úr svo mörgum sem á undan komu.“ Hefur áhyggjur af börnunum Pétur kemur í ljóðum sínum einnig inn á ýmislegt í samfélaginu sem honum finnst að betur mætti fara. „Það er ekki hægt annað, skáld eru alltaf aðeins að reyna að benda á eitt og annað í tilverunni sem mætti kannski vera öðruvísi. Ég hef áhyggjur af börnunum, mér finnst þau hverfa of mikið að tækjum. Þó ævintýri sem þar er að finna geti vissulega verið góð, þá er hættulega þægilegt að afgreiða börn með því að opna fyrir sjónvarp eða síma og láta þau horfa á einhverja mynd eða spila tölvuleik. Það má vel vera að það sé allt í lagi, en ég held að hitt væri betra, ef samskiptin væru meiri, það mundi hjálpa þeim betur af stað út í lífið. Ég hef líka áhyggjur af þessum skelfilegu eiturlyfjum og öðru sem haldið er að börnum. Ég hef á tilfinn- ingunni að ýmislegt fari fram í okkar samfélagi sem ætti alls ekki að ger- ast.“ Heit og sönn trú öfundsverð Pétur segir að þó við mannfólkið skiptumst í ólíkar pólitískar fylk- ingar, þá finnist honum að það þurfi að vera meira umburðarlyndi á milli fylkinga og andstæðra sjónarmiða. „Fólk þarf að gera sér grein fyrir að það eru ekki allir á sömu skoðun og til að þetta gangi svona nokkurn veginn hjá okkur í mannlegu sam- félagi, þá þurfum við að komast að einhverju samkomulagi,“ segir Pétur sem kemur í ljóðum sínum inn á mis- skiptingu og fátækt í íslensku sam- félagi. „Því miður hefur þetta alltaf verið og við erum vissulega að reyna að gera eitthvað í því og það hefur tekist að hluta til, en það er langt í land. Við erum ekki á réttum stað þegar allt þetta fólk þarf að sækja sér mat á hinum og þessum stöðvum. Það er lítillækkandi að þurfa að standa í röð til að fá eitthvað að borða handa sjálfum sér og börnum sínum. Þetta ætti miklu frekar að fara fram með einhverjum hætti í gegnum sameiginlegu sjóðina okkar.“ Þegar Pétur er spurður að því hvort efinn sæki á hann með hækk- andi aldri, með vísan í eitt af ljóðum hans þar sem ævilangur efi kemur fyrir, segist hann vissulega velta fyr- ir sér eilífðarmálunum. „Sumir eigi til trúarvissu sem hjálpar þeim í gegnum svo margt, því þeir trúa staðfastlega. Auðvitað vill maður eiga einhverja góða trú, en ég hef á tilfinningunni að maður búi þá mynd til sjálfur og reyni að láta hana ganga upp, sem gerist ekki alltaf. Það koma tímabil þar sem manni finnst alveg öruggt mál að ekkert sé æðra. Eflaust er sammannlegt að efast um eilífðarmálin, prestarnir segjast meira að segja margir eiga í eilífri baráttu við sjálfa sig. Ég öf- unda fólk sem á heita og sanna trú í hjarta, ekki öfgar. Í því felst mjög mikill styrkur.“ Þyrfti að vera meira umburðarlyndi „Maður er náttúrulega settur saman úr svo mörgum sem á undan komu,“ segir Pétur Ön- undur sem þyrstir í að vita meira um forfeður sína. Hann yrkir ljóð um lífið og tilveruna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Pétur „Á mínu æskuheimili var mikið lesið af ljóðum og ákveðin skáld í miklu uppáhaldi hjá pabba og mömmu.“ Anna Lára Davíðsdóttir handknatt- leikskona úr Gróttu og Pálmi Rafn Pálmason knattspyrnumaður úr KR hafa verið kjörin íþróttakona og íþróttamaður Seltjarnarness fyrir árið 2020. Íþrótta- og tómstundanefnd bæjarins sér um kjörið sem fór fram nú í 28. skipti. Tilgangurinn er að vekja athygli á gildi íþrótta og öflugu íþróttastarfi á Nesinu. Fimm tilnefningar um íþróttafólk ársins bárust nefndinni þetta árið. Jafnframt voru veitt verðlaun til lands- liðsfólks, ungs og efnilegs íþróttafólks auk þess sem bikarmeistarar voru sér- staklega verðlaunaðir. Einnig voru veitt verðlaun fyrir félagsstörf. Anna Lára Davíðsdóttir er fædd árið 2000 og uppalin Gróttukona. Hún hef- ur gegnt lykilhlutverki í meistara- flokki kvenna síðustu tvö ár þar sem þær hafa spilað í næstefstu deild Ís- landsmótsins. Hún þykir vera sér- staklega öflugur leikmaður, hvort heldur er í vörn eða sókn. Hún er nú fyrirliði og hefur sinnt því hlutverki af kostgæfni. Pálmi Rafn Pálmason er 36 ára gamall og hóf meistaraflokksferil sinn í knattspyrnu með Völsungi 15 ára gamall. Hann hefur leikið víða og á sl. ári sitt sjötta tímabil með sigursælu liði KR-inga og er einn af mikilvæg- ustu leikmönnum liðsins. Hann hefur leikið rúmlega 400 deildaleiki á ferli sínum og skorað feiri en 100 mörk. Pálmi þykir sterkur leiðtogi bæði inn- an vallar sem utan. sbs@mbl.is Anna og Pálmi íþróttafólk Seltjarnarness Leiðtogi og öflugur leikmaður Seltirningar Pálmi Rafn Pálmason, til vinstri, og Anna Lára Davíðsdóttir með Guðmundi Helga Þorsteinssyni, formanni íþrótta- og tómstundanefndar. KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS Lítill verð frá 21.900,- Stór verð 43.900,- Margir litir Fegrum heimilið Kartell Battery þráðlausir lampar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.