Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
ECCO SOFT 7
NÝ SENDING AF DÖMU- OG HERRASKÓM
S K Ó V E R S L U N
STEINAR WAAGE
KRINGLAN - SMÁRALIND
Hámarks stuðningur og
hreyfifrelsi með E+motion
stuðningshlífum
Góðar þrýstings- og hitahlífar geta:
• Minnkað verki
• Veitt góðan stuðning
• Aukið hreyfigetu
• Haldið hita
Stoð Bíldshöfða, Stoð Hafnarfirði, stod.is
Gönguskíðabrautirnar í Bláfjöllum eru vinsælar þessa dagana, ekki síður
en brekkurnar. Sannkallað æði hefur runnið á landsmenn og gönguskíði
ásamt viðeigandi búnaði seljast sem aldrei fyrr. Fátt er fallegra en að
stunda hressandi útivist í vetrarsólinni, ekki síst við sólsetur.
Skíðað mót kvöldsólinni í Bláfjöllum
Morgunblaðið/Gunnlaugur Snær
Gönguskíðaæði runnið á
landsmenn í faraldrinum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þegar harðnar á dalnum verður
fólki erfiðara að sækja rétt sinn.
Þetta er stór og mikilvægur lær-
dómur sem við getum dregið af þeim
aðstæðum sem heimsfaraldur kór-
ónuveirunnar hefur skapað,“ segir
Breki Karlsson,
formaður Neyt-
endasamtakanna.
„Þegar harðnar á
dalnum skapast
sú tilhneiging í
viðskiptalífinu að
fyrirtækin vilji
slá lán hjá við-
skiptavinum, ef
svo mætti segja.
Lagabókstaf-
urinn er þó alveg
skýr, það er að ef þjónusta er ekki
veitt eiga neytendur rétt á endur-
greiðslu. Framan af síðasta ári feng-
um við til úrlausnar mörg mál af
þessum toga, það er einkum varð-
andi utanlandsferðir og þá sér-
staklega pakkaferðirnar svonefndu.
Sem betur fer hefur fundist lausn
sem flestir geta sætt sig við.“
Stór hluti þeirra aðstoðarbeiðna
sem Neytendasamtökunum bárust á
síðasta ári eru mál sem urðu til í
þeim fordæmalausu aðstæðum sem
kórónuveiran skapaði. Alls voru
kvörtunar- og úrlausnarefni sem
samtökin fengu í fyrra um 6.600.
Ábyrgðarsjóður leysti vanda
Fram á mitt árið voru þar áber-
andi vandamál og umkvörtunarefni
vegna viðskipta fólks við ferðaskrif-
stofur og urðu slík mál alls 741. Alls
bárust samtökunum um 1.100 mál
sem tengja má við Covid-19. „Strax í
byrjun febrúar í fyrra, þegar Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, lýsti yfir að heimsfaraldur
væri skollinn á skapaðist óvissa um
þegar keyptar utanlandsferðir. Slíkt
kom á óvart, enda alveg skýrt í lög-
um að þegar ferð er aflýst vegna
heimsfaraldurs skal hana end-
urgreiða,“ segir Breki.
Með stofnun ferðaábyrgðasjóðs
gafst ferðaskrifstofum kostur á að
sækja um lán sem ætlað var að
standa undir endurgreiðslum til
neytenda vegna pakkaferða sem
annaðhvort var aflýst eða voru af-
bókaðar. Alls bárust 32 umsóknir
um endurgreiðslur að fjárhæð tæpir
2,4 milljarðar kr. Sjóðurinn, sem
Ferðamálastofa heldur utan um, er
starfandi enn, en er nú fyrst og
fremst eigandi krafna sem stofnaðar
hafa verið.
Margir leituðu sömuleiðis til
Neytendasamtakanna í fyrra vegna
viðskipta sinna við líkamsræktar-
stöðvar, sem var lokað vegna sótt-
varnareglna. Margir viðskiptavinir
voru með fyrirframgreidda tíma og
kort og vildu fá þjónustu samkvæmt
því. Yfirleitt hafa þessi mál verið
leyst, að sögn Breka, á þá lund að
stöðvarnar hafa lengt gildistíma
korta sem nemur tímanum sem lok-
að er. Í stöku tilvikum hefur með að-
stoð Neytendasamtakanna komið til
endurgreiðslna. Önnur umkvört-
unarmál sem Neytendasamtökin
fengu tengdust til dæmis bílaleigum,
beinum útsendingum Símans á
enska fótboltanum og bílaleigum.
Verði aðfararhæfir
Í byrjun síðasta árs tóku gildi
lög um stofnun úrskurðarnefndar
neytendamála, þar sem fólk getur
leitað úrlausnar í margvíslegum um-
kvörtunarmálum. Kærunefnd vöru-
og þjónustukaupa er vistuð hjá
Neytendastofu, og í gegnum vefgátt
getur fólk sent inn erindi og fengið
úrskurð í sínum málum. Stofnun
þessarar nefndar er framfararskref,
að mati Breka. Réttur neytenda
verður skýrari og mál auðveldari úr-
lausnar. Þó sé sá hængur á, að úr-
skurðirnir eru ekki í öllum tilvikum
aðfararhæfir, það er ekki verkfæri
til þess að sækja gegn fyrirtækjum.
„Okkar vilji er hins vegar sá að
úrskurðirnir gefi heimild til aðfarar
að lögum, það er verði verkfæri til
þess að sækja að fyrirtækjum sem
neita að bregðast við eins og bók-
stafurinn segir. Neytendasamtökin
munu þrýsta á löggjafann um að
þessu verði breytt,“ segir Breki
Karlsson að endingu.
Oft kvartað vegna
niðurfelldra ferða
Veira breytir viðskiptum Ný mál hjá
Neytendasamtökum Úrskurðir skýra rétt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Túristar Ferðum var aflýst og
Neytendasamtökin skárust í leikinn.
Breki
Karlsson
„Það verða ekki gefin út nein tilmæli
um að fólk eigi ekki að ferðast. Við
þurfum hins vegar að hugsa þetta
öðruvísi en áður,“ segir Víðir Reyn-
isson yfirlögregluþjónn.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær verður vetrarfrí í öll-
um skólum á
höfuðborgar-
svæðinu í kring-
um helgina 19.-
21. febrúar næst-
komandi. Búast
má við því að
margir verði á
faraldsfæti á
þessum tíma.
Skíðasvæðin á
Akureyri, Dalvík
og Ísafirði hafa til
að mynda notið mikilla vinsælda á
þessum árstíma síðustu ár.
„Við höfum áhyggjur af því að fólk
skipuleggi sig ekki nógu vel,“ segir
Víðir sem bendir á að vegna sam-
komutakmarkana þurfi fólk að huga
að afþreyingu fram í tímann, ætli
það sér að njóta hennar. „Það er tak-
markað hvað geta farið margir í
sund, á skíði og hvað veitingastaðir
geta tekið inn af fólki. Við hvetjum
því fólk til að vera tímanlega í skipu-
lagningu og panta sér afþreyingu
svo ekki myndist kraðak og vand-
ræðagangur.“
Í haust var fólk hvatt til að ferðast
ekki á milli landshluta en Víðir segir
að þess gerist ekki þörf núna. „Stað-
an er ágæt og hún er eins um allt
land,“ segir hann.
Víðir segir jafnframt að hjá al-
mannavörnum sé nú unnið að leið-
beiningum til fólks fyrir öskudaginn
sem er 17. febrúar. „Öskudagur er
stór dagur víða, til að mynda á Akur-
eyri, og við erum að setja saman
leiðbeiningar um það hvernig hægt
er að halda hann hátíðlegan. Ösku-
dagurinn verður ekki eins og venju-
lega en við ætlum að reyna að hafa
gaman.“ hdm@mbl.is
Vetrarfrí
með öðru
sniði í ár
Skipulagningar er
þörf, segir Víðir
Víðir
Reynisson