Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það er mikill snjór en gömlu karl-
arnir segja að við höfum ekki séð
neinn snjó enn sem komið er,“ sagði
Þorsteinn Guðmundsson, starfs-
maður Eleven Experience sem rek-
ur Deplar Farm-hótelið í Fljótunum.
Hann segir að miðað við síðasta ára-
tug, að undanskildu árinu í fyrra, sé
þetta mikill snjór.
Þorsteinn þurfti að ryðja snjó frá
húsum og tækjum í fyrradag. Fyrir-
tækið á m.a. jörðina Stóru-Brekku
þar sem er geymsla fyrir snjósleða,
fjórhjól, buggy-bíla og fleira á neðri
hæð hússins. Þar var gríðardjúpur
snjór eins og alls staðar þar sem
eitthvað hafði skafið að ráði.
Inni á Deplum er miklu meiri
snjór en á Stóru-Brekku. Vegurinn
upp að Deplum og Þrasastöðum
liggur framhjá Knappsstöðum við
Stífluvatnið. Vegurinn var mokaður
á föstudaginn var en þá hafði hann
verið lokaður í ellefu daga. Snjórinn
á veginum var 1-2 metra djúpur.
Einu tækin sem komust að Deplum
meðan svo var voru vélsleðar. Þegar
mokað er myndast geilar í snjóinn
og það skefur í þær um leið og vind
hreyfir.
Spenntir að fá aftur gesti
Engir gestir hafa verið á Hótel
Deplum síðan í haust er leið. Þor-
steinn sagði beðið eftir því að gest-
irnir geti komið til landsins án mik-
illa ferðatakmarkana.
Venjulega hefur skíðatímabilið
byrjað 20. mars og hefur m.a. verið
boðið upp á fjallaskíðaferðir með
þyrlum. „Hótelið er fullbókað í vor
og sumar. Flytja þurfti fólk frá því í
fyrra yfir á þetta ár og svo hafa kom-
ið nýjar bókanir. Við bíðum bara
spenntir,“ sagði Þorsteinn.
Hann stjórnar allri stangaveiði
hjá Eleven Experience á Íslandi.
Veitt er í Fljótaá og Húseyjarkvísl.
Eins eru þeir með Hölkná og veiði-
hús í Þistilfirði. Vanalega koma
fyrstu laxveiðimennirnir strax á vor-
in og svo allt sumarið. Óvissa er um
það nú eins og annað í ferðaþjón-
ustu.
Kafsnjór er nú í víða í Fljótunum
Sjórinn er með því mesta undanfarin ár Bílana fennti í kaf Mikil snjósöfnun þar sem skefur
Stóra-Brekka Það dró í gríðarmikinn skafl framan við vélageymsluna.
Moka þurfti miklum snjó í burtu áður en komið var að dyrunum.
Ljósmyndir/Þorsteinn Guðmundsson
Deplar Mikill snjór er við hótelið og þar í kring. Þar hafa engir gestir verið
síðan í haust en margir hafa bókað gistingu þegar opnast fyrir ferðir.
Á leið í Haganesvík Snjórinn var
bæði þéttur og þungur.
Vetur Þorsteinn Guðmundsson
starfar hjá Deplar Farm í Fljótum.
Vinnu við dýpkun í höfninni á Þórs-
höfn er að ljúka. Verið er að bæta
aðstöðu til að stór uppsjávarveiði-
skip geti landað í vinnsluna þar.
Hafnarstjórn Langanesbyggðar
samdi við Björgun ehf. um dýpkun í
höfninni á Þórshöfn sl. vor, eftir út-
boð. Felst verkið í að fjarlægja um
20 þúsund rúmmetra af efni og
flytja út fyrir höfnina. Með því var
verið að ljúka dýpkun sem byrjað
var á fyrir sex árum þannig að inn-
siglingarrenna og snúningssvæði
uppsjávarskipa yrði 9 metrar á
dýpt. Sveitarstjórn ákvað að bæta
við verkið, dýpka í 9,5 metra, og
kostar verkið í heild um 250 millj-
ónir.
Jónas Egilsson sveitarstjóri segir
mikilvægt fyrir sveitarfélagið að
hafa höfnina samkeppnisfæra. Ís-
félag Vestmannaeyja er með upp-
sjávarvinnslu á Þórshöfn og stærstu
skip þess eru með yfir níu metra
djúpristu. Þau hafa þurft að sæta
lagi til að komast til hafnar og
stundum tekið niðri. Þá séu skip
Norðmanna stór og nú sé loks
grundvöllur að bjóða þeim að landa.
helgi@mbl.is
Dýpkun að ljúka í
höfninni á Þórshöfn
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Þórshöfn Pramminn Pétur mikli er notaður til að flytja efnið sem grafið er
upp við dýpkun snúningsrýmis og innsiglingar út fyrir hafnarmynnið.