Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur
tekið jákvætt í fyrirspurn ASK
Arkitekta ehf. um breytingu á deili-
skipulagi Einholts/Þverholts. Hún
felur í sér að fjarlægja byggingu á
lóðinni Þverholt 13 og reisa íbúðar-
hús í staðinn, með að hámarki 38
íbúðum.
Fyrirspurnin var send til borgar-
innar fyrir hönd lóðareiganda, Sér-
verks ehf. Í gildandi deiliskipulagi
er gert ráð fyrir stækkun atvinnu-
húsnæðis, en breytingartillagan
fjallar um að fjarlægja byggingu á
lóð og byggja íbúðarhús í staðinn.
Fram á þennan dag hefur verið rek-
in prentsmiðja í húsinu (GuðjónÓ),
en hún hefur verið sameinuð öðrum
prentsmiðjum á öðrum stað í borg-
inni.
Í næsta húsi norðan við Þverholt
13 er Listaháskólinn með starfsemi.
Það hús var upphaflega reist fyrir
dagblaðastarfsemi DV og jafnan
kallað DV-húsið.
Í tillögu að breyttu deiliskipulagi
er gert ráð fyrir 3.500 fermetra
byggingarmagni ofanjarðar og að
heildar-nýtingarhlutfall með kjall-
ara verði 3,78, en nýtingarhlutfall í
gildandi deiliskipulagi er 1,27. Gert
er ráð fyrir fjölbreyttum íbúðagerð-
um í byggingunni.
Forsvarsmenn Búseta, sem eiga
og reka íbúðir á næstu lóð, hafa ver-
ið upplýstir og lýst sig jákvæða
gagnvart þessum áformum, segir í
erindi Ask Arkitekta. Búseti stóð að
byggingu 204 íbúða við Einholt og
Þverholt fyrir nokkrum árum.
Skipulagstillaga undirbúin
Hér fyrir ofan má sjá þrívíddar-
mynd sem gerð var vegna deili-
skipulags fyrir Búsetareitinn á sín-
um tíma. Hún sýnir mögulegt útlit
hússins Þverholt 13 en útlitið kann
að breytast við endanlega hönnun.
ASK Arkitektar eru að undirbúa
deiliskipulagstillögu sem verður
auglýst eins og lög gera ráð fyrir.
Í umsögn verkefnisstjóra hjá
skipulagsfulltrúa kemur fram að
gildandi deiliskipulag, sem sam-
þykkt var árið 2013, náði til reits
sem markaðist af Einholti, Þver-
holti, Stórholti og Háteigsvegi.
Markmið deiliskipulagsins var að
breyta eldri iðnaðarbyggð í reit fyr-
ir íbúðarhúsnæði að mestu leyti.
Meðal bygginga sem urðu að víkja
voru hús Vinnufatagerðar Íslands
og framleiðslufyrirtækisins Sólar.
Nyrsta hornið, sem nær frá Þver-
holti 13 til Einholts 4, hélt þó upp-
runalegri notkun sem prentstofa,
listaháskóli og skrifstofuhúsnæði.
Heimilaðar voru tvær hæðir ofan á
núverandi prentstofu fyrir íbúðir.
Yrði byggingin þrjár hæðir við
breytinguna. Næstu nágrannar til
beggja handa eru fimm og sex hæða
með inndregnar efstu hæðir.
Gert er ráð fyrir 38 íbúðum í til-
lögunni og 25 bílastæðum í bíla-
geymslu. Meðalstærð íbúða, þegar
búið er að draga frá sameign, yrði
þá um og undir 80 m².
„Embætti skipulagsfulltrúa tekur
jákvætt í breytingartillöguna.
Mikilvægt er að fella nýja íbúð-
arbyggingu vel að aðliggjandi bygg-
ingum með skilgreindri hámarks-
vegghæð og inndregnum efstu
hæðum. Æskilegt er að setja skil-
mála um uppbrot útlits, gluggagerð
og fyrirkomulag svala í deili-
skipulagsbreytinguna. Svalagangar
eru ekki æskilegir,“ segir í umsögn
verkefnisstjóra, sem skipulags-
fulltrúi hefur samþykkt.
GuðjónÓ var stofnað 1955
Frá árinu 1955 hefur nafnið Guð-
jónÓ verið samtvinnað íslenskri
prentsögu, segir á heimasíðu prent-
smiðjunnar. „Upprunalegt nafn
fyrirtækisins var Prentstofa Guð-
jónsÓ, sem var afar vel við hæfi því
að prentvélin (og allt sem henni
fylgdi) var staðsett í einu horni stof-
unnar á heimili Guðjóns Ó. Guðjóns-
sonar á Hallveigarstíg.“
Á næstu árum óx prentsmiðjunni
fiskur um hrygg og Guðjón þurfti að
flytja úr húsi sínu á Hallveigarstíg
til að standa ekki í vegi fyrir þeirri
framþróun sem blasti við. Á síðustu
áratugum hefur prentsmiðjan verið
í eigin húsnæði í Þverholti 13.
Prentsmiðjan Hjá GuðjónÓ var síð-
an stofnuð í maí árið 1992. Um síð-
ustu áramót var GuðjónÓ sameinað
Litrófi og Prenttækni með aðsetur í
Vatnagörðum 14.
Sérverk ehf. í Kópavogi var stofn-
að árið 1991 og er alhliða bygging-
arfyrirtæki sem sérhæfir sig í upp-
steypu og fullnaðarfrágangi
mannvirkja.
Meðal verkefna sem unnin hafa
verið eru: uppsteypa á skólum, fjöl-
býlishúsum, rað- og parhúsum
ásamt fleiru. Sérverk hefur byggt
um 400 íbúðir fyrir almennan mark-
að, einnig þúsundir fermetra af at-
vinnuhúsnæði.
Morgunblaðið/sisi
Þverholt 13 Prentsmiðjan GuðjónÓ hefur verið þarna til húsa um áratugaskeið. Vinstra megin
sést gafl DV-hússins, þar sem Listaháskólinn hefur verið með starfsemi síðan DV flutti annað.
Tölvuteikning/Ask Arkitektar
Þverholt/Einholt Hér er tilgátumynd af mögulegu útliti hins nýja fjölbýlishúss í Þverholti 13
en væntanlega mun útlitið taka breytingum. Næst sunnan við eru fjölbýlishús sem Búseti reisti.
Prentsmiðja víki fyrir fjölbýlishúsi
Borgin tekur jákvætt í ósk um að reisa fjölbýlishús með allt að 38 íbúðum á lóðinni Þverholt 13
Hjónin Guðbjörg Kristín Ingv-
arsdóttir skartgripahönnuður í
Aurum og Karl Jóhann Jóhannsson,
framkvæmdastjóri AURUM, af-
hentu í vikunni ágóða af sölu á
sparislaufum Bleiku slaufunnar.
Ágóðinn nam um 3,6 milljónum
króna og seldust bæði gull- og silf-
urslaufurnar upp, segir í tilkynn-
ingu frá Krabbameinsfélaginu en
allur ágóði rennur til krabbameins-
rannsókna á Íslandi.
Laufey Tryggvadóttir, for-
stöðumaður Rannsókna- og skrán-
ingarseturs Krabbameinsfélagsins,
veitti gjöfinni viðtöku. „Við hjá
Krabbameinsfélaginu höfum stund-
að rannsóknir í næstum 70 ár og
vitum að rannsóknir eru forsenda
þess að framfarir verði. Rann-
sóknir kosta mikið og því erum við
afar þakklát fyrir þennan góða
stuðning frá Aurum annað árið í
röð,“ sagði Laufey, en auk hennar
tók Birna Þórisdóttir, sérfræðingur
í fræðslu og forvörnum og starfs-
maður Vísindasjóðs Krabbameins-
félagsins, á móti gjöfinni.
3,6 milljónir frá Aurum
til Bleiku slaufunnar
Ljósmynd/Krabbameinsfélagið
Styrkur Aurum afhendir styrk í krabbameinsrannsóknir.