Morgunblaðið - 04.02.2021, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Afurðaverð á markaði
2. febrúar 2021, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 295,70
Þorskur, slægður 355,45
Ýsa, óslægð 271,39
Ýsa, slægð 261,93
Ufsi, óslægður 143,60
Ufsi, slægður 182,92
Gullkarfi 202,79
Blálanga, slægð 186,89
Langa, óslægð 211,79
Langa, slægð 164,92
Keila, óslægð 28,39
Keila, slægð 75,31
Steinbítur, óslægður 154,54
Steinbítur, slægður 205,23
Skötuselur, óslægður 110,00
Skötuselur, slægður 750,25
Grálúða, slægð 312,86
Skarkoli, slægður 352,23
Þykkvalúra, slægð 712,15
Sandkoli, óslægður 83,96
Bleikja, flök 1.420,50
Regnbogasilungur, flök 3.176,00
Gellur 833,39
Hlýri, óslægður 54,00
Hlýri, slægður 198,98
Hrogn/ýsa 200,00
Hrogn/þorskur 478,61
Hvítaskata, slægð 10,00
Lúða, slægð 448,30
Lýr, óslægður 29,00
Lýsa, óslægð 22,09
Lýsa, slægð 103,18
Náskata, slægð 25,69
Rauðmagi, óslægður 96,26
Skata, óslægð 64,00
Skata, slægð 95,52
Undirmálsýsa, óslægð 122,61
Undirmálsýsa, slægð 52,00
Undirmálsþorskur, óslægður 177,61
Undirmálsþorskur, slægður 180,13Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
2012
2020
HJÁ OKKUR FÁST
VARAHLUTIR
Í AMERÍSKA BÍLA
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
gekk nýverið frá samningi um kaup á
52% hlut í útgerðarfélaginu Hugin, en
fyrir átti Vinnslustöðin 48% í félaginu.
Kaupunum fylgja töluverð afla-
hlutdeild og nýlegt skip, Huginn VE,
sem smíðað var 2001.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson
eða Binni, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar, segir félögin
hafa átt í samstarfi um nokkurt skeið,
sérstaklega í sambandi við löndun og
vinnslu á makríl, en Huginn hefur
einnig verið í sam-
starfi við Eskju á
Eskifirði.
„Planið er auð-
vitað bara að
halda áfram og
gera gott betra,“
segir Binni og
bendir á að Hug-
inn verður áfram
rekinn undir eigin
merkjum fyrst um
sinn. Þá verða
fyrirtækin samrekin til að ná fram
þeirri hagkvæmni sem því fylgir.
Spurður hvernig á reksturinn er litið
til lengri tíma svarar hann að það sé
ljóst að þegar fram líða stundir verða
félögin sameinuð. „Kaupin eru gerð
með fyrirvara um samþykki Sam-
keppniseftirlitsins. Um leið og það
liggur fyrir förum við strax í sam-
reksturinn, en á endanum munum við
sameina þau.“
Miklar aflaheimildir
„Já, þetta er umtalsverð viðbót,“
svarar Binni spurður hvort aflaheim-
ildirnar sem fylgja kaupunum skipti
sköpum fyrir Vinnslustöðina.
„Vinnslustöðin er með einhver níu
prósent í makríl og þeir eru með tæp-
lega 6,6%, það er heilmikil viðbót í því.
Þeir eru með stærri kolmunnakvóta
en við þannig að hann mun meira en
tvöfaldast. Við erum með um 10% í ís-
lenskri síld og þeir með um 2% og svo
erum við með rétt innan við 7% í
norsk-íslenskri síld en þeir með 4,6%.
Svo er það auðvitað loðnan sem allt
snýst um núna, þar er Vinnslustöðin
með tæp 11% og Huginn 1,4%. En við
vitum ekki hvort við verðum með
12,3% af núlli eða 12,3% af einhverju.
Vonandi fáum við svör við því á morg-
un [í dag].“ Búist er við að Hafrann-
sóknastofnun kynni í dag niðurstöður
úr umfangsmesta loðnuleitarleiðangri
Íslandssögunnar, en átta skip voru
ýmist við leit og/eða mælingar í þeirri
von að meiri loðnu væri að finna. Að-
eins hefur verið heimilt að veiða 61
þúsund tonn á þessari vertíð, en Ís-
lendingar fá þriðjung þeirra aflaheim-
ilda sökum skuldbindinga í gegnum
alþjóðlega fiskveiðisamninga.
Sighvatur Bjarnason seldur
Það liggur fyrir að með auknum
aflaheimildum getur Vinnslustöðin
tryggt betur framboð hráefnis fyrir
vinnsluna, að sögn Binna. „En við
munum skoða það með opnum huga
hvernig við gerum þetta allt saman.
Skipið [Huginn VE] er útbúið til fryst-
ingar úti á sjó og við munum halda
þeim möguleika opnum. Það er
áhugaverður kostur sem við viljum
skoða vel og vandlega.
Þá er jafnframt ekki ljóst hvernig
samstarfi Hugins við Eskju verður
háttað. „Við þurfum að velta fyrir okk-
ur hvort og hvernig við eigum samleið
með Eskju og sjá hvort við finnum
einhverja skemmtilega samstarfsfleti
með þeim. Það eru ýmis tækifæri.“
Eins og fyrr segir er Huginn nýlegt
skip og því eðlilegt að velta fyrir sér
hvort kaupin hafi í för með sér að
Vinnslustöðin leggi einhverju af sín-
um skipum. „Hérna í höfninni hefur
Sighvatur Bjarnason gamli legið sem
varaskip ef við þyrftum á að halda
sem þriðja skip Vinnslustöðvarinnar.
Það blasir nú við að við munum ekki
þurfa á honum að halda í framhaldinu
og hann verður bara seldur. Þá fækk-
um við um eitt skip, þó að því hafi ekki
verið róið í nokkur ár,“ útskýrir Binni
og bætir við að Sighvatur Bjarnason
sé „barn síns tíma“, en nóta- og
togveiðiskipið var smíðað í Noregi
1975 og því á miðjum fimmtugsaldri.
Bíða niðurstöðu matsmanna
Vinnslustöðin og Huginn eru þau
tvö útgerðarfyrirtæki sem ekki féllu
frá skaðabótakröfu sinni á hendur
íslenska ríkinu í fyrra, eins og fimm
önnur gerðu. Félögin tvö telja ríkið
skulda sér samtals um tvo milljarða
í skaðabætur vegna dóms Hæsta-
réttar sem féll í desember 2018 um
að ríkið hafi ekki staðið rétt að út-
hlutun veiðiheimilda árin 2011 til
2014.
Binni segir stöðuna í málinu vera
þá að beðið sé eftir niðurstöðu
dómskvaddra matsmanna, en þeir
meta hvert fjárhagslegt tjón félag-
anna kann að hafa verið vegna lög-
brots ríkisins. „Það er engum blöð-
um um það að fletta að ríkið hefur
verið dæmt skaðabótaskylt, það fór
ekki að lögum. Við gætum alveg
snúið þessu við og hugsað okkur
hvernig þetta hefði farið ef Vinnslu-
stöðin hefði ekki farið að lögum og
væri skaðabótaskyld gagnvart rík-
inu, það þarf ekkert að velta því fyr-
ir sér hvernig staðan væri.“
Hann segir ekkert liggja fyrir um
hvenær megi búast við niðurstöðu
matsmannanna. „Þetta er heilmikið
mál sem þeir auðvitað vilja vanda
sig við að setja sig inn í. Það er ekki
hrist fram úr erminni á korteri.“
Stefnt að fullri sameiningu félaga
Hagkvæmni í samrekstri Hugins og Vinnslustöðvarinnar Ætla að selja Sighvat Bjarnason VE
Fara samanlagt með miklar aflaheimildir Matsmenn meta enn tjón í makrílmáli í kjölfar dóms
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skipakostur Sighvatur Bjarnason VE verður seldur enda fylgdi nýlegur Huginn VE kaupunum.
Tegund VSV Huginn Samtals
Makríll 9,19% 6,56% 15,75%
Norsk-íslensk síld 6,82% 4,65% 11,47%
Síld 9,98% 2,22% 12,20%
Loðna 10,93% 1,40% 12,33%
Kolmunni 3,69% 4,21% 7,90%
Aflahlutdeild Vinnslustöðvarinnar og Hugins
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson