Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 Afurðaverð á markaði 2. febrúar 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 295,70 Þorskur, slægður 355,45 Ýsa, óslægð 271,39 Ýsa, slægð 261,93 Ufsi, óslægður 143,60 Ufsi, slægður 182,92 Gullkarfi 202,79 Blálanga, slægð 186,89 Langa, óslægð 211,79 Langa, slægð 164,92 Keila, óslægð 28,39 Keila, slægð 75,31 Steinbítur, óslægður 154,54 Steinbítur, slægður 205,23 Skötuselur, óslægður 110,00 Skötuselur, slægður 750,25 Grálúða, slægð 312,86 Skarkoli, slægður 352,23 Þykkvalúra, slægð 712,15 Sandkoli, óslægður 83,96 Bleikja, flök 1.420,50 Regnbogasilungur, flök 3.176,00 Gellur 833,39 Hlýri, óslægður 54,00 Hlýri, slægður 198,98 Hrogn/ýsa 200,00 Hrogn/þorskur 478,61 Hvítaskata, slægð 10,00 Lúða, slægð 448,30 Lýr, óslægður 29,00 Lýsa, óslægð 22,09 Lýsa, slægð 103,18 Náskata, slægð 25,69 Rauðmagi, óslægður 96,26 Skata, óslægð 64,00 Skata, slægð 95,52 Undirmálsýsa, óslægð 122,61 Undirmálsýsa, slægð 52,00 Undirmálsþorskur, óslægður 177,61 Undirmálsþorskur, slægður 180,13Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is 2012 2020 HJÁ OKKUR FÁST VARAHLUTIR Í AMERÍSKA BÍLA Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum gekk nýverið frá samningi um kaup á 52% hlut í útgerðarfélaginu Hugin, en fyrir átti Vinnslustöðin 48% í félaginu. Kaupunum fylgja töluverð afla- hlutdeild og nýlegt skip, Huginn VE, sem smíðað var 2001. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson eða Binni, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir félögin hafa átt í samstarfi um nokkurt skeið, sérstaklega í sambandi við löndun og vinnslu á makríl, en Huginn hefur einnig verið í sam- starfi við Eskju á Eskifirði. „Planið er auð- vitað bara að halda áfram og gera gott betra,“ segir Binni og bendir á að Hug- inn verður áfram rekinn undir eigin merkjum fyrst um sinn. Þá verða fyrirtækin samrekin til að ná fram þeirri hagkvæmni sem því fylgir. Spurður hvernig á reksturinn er litið til lengri tíma svarar hann að það sé ljóst að þegar fram líða stundir verða félögin sameinuð. „Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Sam- keppniseftirlitsins. Um leið og það liggur fyrir förum við strax í sam- reksturinn, en á endanum munum við sameina þau.“ Miklar aflaheimildir „Já, þetta er umtalsverð viðbót,“ svarar Binni spurður hvort aflaheim- ildirnar sem fylgja kaupunum skipti sköpum fyrir Vinnslustöðina. „Vinnslustöðin er með einhver níu prósent í makríl og þeir eru með tæp- lega 6,6%, það er heilmikil viðbót í því. Þeir eru með stærri kolmunnakvóta en við þannig að hann mun meira en tvöfaldast. Við erum með um 10% í ís- lenskri síld og þeir með um 2% og svo erum við með rétt innan við 7% í norsk-íslenskri síld en þeir með 4,6%. Svo er það auðvitað loðnan sem allt snýst um núna, þar er Vinnslustöðin með tæp 11% og Huginn 1,4%. En við vitum ekki hvort við verðum með 12,3% af núlli eða 12,3% af einhverju. Vonandi fáum við svör við því á morg- un [í dag].“ Búist er við að Hafrann- sóknastofnun kynni í dag niðurstöður úr umfangsmesta loðnuleitarleiðangri Íslandssögunnar, en átta skip voru ýmist við leit og/eða mælingar í þeirri von að meiri loðnu væri að finna. Að- eins hefur verið heimilt að veiða 61 þúsund tonn á þessari vertíð, en Ís- lendingar fá þriðjung þeirra aflaheim- ilda sökum skuldbindinga í gegnum alþjóðlega fiskveiðisamninga. Sighvatur Bjarnason seldur Það liggur fyrir að með auknum aflaheimildum getur Vinnslustöðin tryggt betur framboð hráefnis fyrir vinnsluna, að sögn Binna. „En við munum skoða það með opnum huga hvernig við gerum þetta allt saman. Skipið [Huginn VE] er útbúið til fryst- ingar úti á sjó og við munum halda þeim möguleika opnum. Það er áhugaverður kostur sem við viljum skoða vel og vandlega. Þá er jafnframt ekki ljóst hvernig samstarfi Hugins við Eskju verður háttað. „Við þurfum að velta fyrir okk- ur hvort og hvernig við eigum samleið með Eskju og sjá hvort við finnum einhverja skemmtilega samstarfsfleti með þeim. Það eru ýmis tækifæri.“ Eins og fyrr segir er Huginn nýlegt skip og því eðlilegt að velta fyrir sér hvort kaupin hafi í för með sér að Vinnslustöðin leggi einhverju af sín- um skipum. „Hérna í höfninni hefur Sighvatur Bjarnason gamli legið sem varaskip ef við þyrftum á að halda sem þriðja skip Vinnslustöðvarinnar. Það blasir nú við að við munum ekki þurfa á honum að halda í framhaldinu og hann verður bara seldur. Þá fækk- um við um eitt skip, þó að því hafi ekki verið róið í nokkur ár,“ útskýrir Binni og bætir við að Sighvatur Bjarnason sé „barn síns tíma“, en nóta- og togveiðiskipið var smíðað í Noregi 1975 og því á miðjum fimmtugsaldri. Bíða niðurstöðu matsmanna Vinnslustöðin og Huginn eru þau tvö útgerðarfyrirtæki sem ekki féllu frá skaðabótakröfu sinni á hendur íslenska ríkinu í fyrra, eins og fimm önnur gerðu. Félögin tvö telja ríkið skulda sér samtals um tvo milljarða í skaðabætur vegna dóms Hæsta- réttar sem féll í desember 2018 um að ríkið hafi ekki staðið rétt að út- hlutun veiðiheimilda árin 2011 til 2014. Binni segir stöðuna í málinu vera þá að beðið sé eftir niðurstöðu dómskvaddra matsmanna, en þeir meta hvert fjárhagslegt tjón félag- anna kann að hafa verið vegna lög- brots ríkisins. „Það er engum blöð- um um það að fletta að ríkið hefur verið dæmt skaðabótaskylt, það fór ekki að lögum. Við gætum alveg snúið þessu við og hugsað okkur hvernig þetta hefði farið ef Vinnslu- stöðin hefði ekki farið að lögum og væri skaðabótaskyld gagnvart rík- inu, það þarf ekkert að velta því fyr- ir sér hvernig staðan væri.“ Hann segir ekkert liggja fyrir um hvenær megi búast við niðurstöðu matsmannanna. „Þetta er heilmikið mál sem þeir auðvitað vilja vanda sig við að setja sig inn í. Það er ekki hrist fram úr erminni á korteri.“ Stefnt að fullri sameiningu félaga  Hagkvæmni í samrekstri Hugins og Vinnslustöðvarinnar  Ætla að selja Sighvat Bjarnason VE  Fara samanlagt með miklar aflaheimildir  Matsmenn meta enn tjón í makrílmáli í kjölfar dóms Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skipakostur Sighvatur Bjarnason VE verður seldur enda fylgdi nýlegur Huginn VE kaupunum. Tegund VSV Huginn Samtals Makríll 9,19% 6,56% 15,75% Norsk-íslensk síld 6,82% 4,65% 11,47% Síld 9,98% 2,22% 12,20% Loðna 10,93% 1,40% 12,33% Kolmunni 3,69% 4,21% 7,90% Aflahlutdeild Vinnslustöðvarinnar og Hugins Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.