Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 38
FORSALA er byrjuð hjá söludeild okkar og á vefverslun www.danco.is www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Næsta sending 16. febrúar
Figet-Bubble Pops
Hexagon, 6 litir
13x13 cm
Nýjasta æðið hjá krökkum í dag er nýji
„Fidget“ Pop Up leikurinn
sem slegið hefur í gegn
á TikTok og Youtube
Þetta er
eitthvað sem
allir verða
eiga
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Í dag, 4. febrúar, er Alþjóðlegi
krabbameinsdagurinn (e. World Can-
cer Day). Honum er ætlað að vekja
athygli á og fræða um málefni
krabbameinsgreindra. Í ár er áhersl-
an á samtakamáttinn í baráttunni við
krabbamein. Íslendingar hafa einmitt
verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hér
ríkir sátt um að krabbamein er ekki
einkamál þess sem greinist, heldur
mál samfélagsins alls. Sam-
takamáttur þjóðarinnar hefur leitt af
sér að hér er þjónusta við krabba-
meinsgreinda í fremstu röð í heim-
inum. Við höfum fylgt þeirri hröðu
þróun sem er í krabbameinslækn-
ingum og er að skila sífellt bættum
árangri. Í sameiningu hefur okkur
líka tekist að byggja upp öflugan og
vel menntaðan mannauð sem sinnir
krabbameinsgreindum. Þetta hefur
leitt til þess að meðferðarárangur
hérlendis er með því besta sem þekk-
ist í heiminum.
Um 1.700 Íslendingar greinast nú
árlega með krabbamein og mun
þriðjungur okkar fá krabbamein ein-
hvern tímann á lífsleiðinni. Krabba-
meinstíðni eykst með aldri og hefur
hækkandi meðalaldur þjóðarinnar
valdið því að sífellt fleiri greinast með
krabbamein. Krabbameinsrann-
sóknir og tækniframfarir hafa leitt af
sér ný krabbameinslyf, framþróun í
geislameðferð og enn öflugri stuðn-
ingsmeðferð. Viðlíka þróun er í öllum
greinum sem koma að greiningu og
meðferð krabbameina. Sem afleiðing
hafa lífsgæði og lífslíkur krabba-
meinsgreindra aukist talsvert á und-
anförnum áratugum. Samanlagt mun
þetta leiða til þess að Íslendingum,
sem lifa með krabbameini, mun fjölga
hratt á næstu áratugum. Í árslok
2019 voru þeir tæplega 16 þúsund
sem höfðu greinst með krabbamein
og munu á næstu áratugum fara að
teljast í tugum þúsunda. Margir
þeirra munu geta haldið áfram að lifa
sínu venjubundna lífi jafnvel samfara
krabbameinsmeðferð. Í flestum til-
vikum valda þó krabbameinsgreining
og meðferð töluverðu raski á lífi fólks
og því er mikilvægt að við stöndum
saman að myndarlegri uppbyggingu
endurhæfingar krabbameinsgreindra
á Íslandi.
Íslendingar hafa notið framþróun-
ar í krabbameinsmeðferð og endur-
hæfingu sem hefur birst í bættum
lífslíkum og auknum lífsgæðum
krabbameinsgreindra. Þetta hefur
tekist með samtakamætti þjóðar-
innar. Ljóst er að við þurfum áfram
að standa saman gagnvart þeim
framtíðaráskorunum sem blasa við
okkur. Þessari samstöðu ber að fagna
og er hún í anda Alþjóðlega krabba-
meinsdagsins sem við höldum upp á í
dag.
Fögnum saman
framförum í krabba-
meinslækningum
Eftir Gunnar Bjarna
Ragnarsson, Vöku Ýri
Sævarsdóttur og Ólöfu
Kristjönu Bjarnadóttur
Vaka Ýr
Sævarsdóttir
» Íslendingar hafa náð
frábærum árangri í
meðferð krabbameina.
Þeim fjölgar sem hafa
læknast eða lifa með því.
Nú skal huga að endur-
hæfingu þessa hóps.
Gunnar Bjarni er formaður Félags
íslenskra krabbameinslækna, Vaka
Ýr er gjaldkeri og Ólöf Kristjana rit-
ari félagsins.
Gunnar Bjarni
Ragnarsson
Ólöf Kristjana
Bjarnadóttir
„Þetta er langbesta
sjoppan sem ég hef
komið í … sósa og sal-
at?“ Ég rak upp stór
augu 12 ára þegar
Stuðmenn völsuðu inn
á Sjómannsstofuna
Vör í Grindavík í kvik-
myndinni Með allt á
hreinu og borðuðu
hamborgara og
franskar með hellingi
af sósu, vá, langbesta sjoppan og
hún í Grindavík. Lengi vel var Sjó-
mannsstofan Vör eini staðurinn í
Grindavík þar sem hægt var að setj-
ast niður og kaupa sér mat. Nú er
tíminn allt annar og hefur mikið vatn
runnið til sjávar síðan.
Í Grindavík hefur á síðustu árum
orðið til þó nokkuð af veitingastöð-
um sem bjóða fínt úrval af góðum
mat. Allir geta fundið sér gott að
borða í Grindavík, hvort sem menn
vilja grænmetisrétti, hamborgara,
steikur, pizzur eða ljúf-
fengan fisk. Viðbrögð
heimamanna og annarra
gesta sem koma hvað-
anæva úr heiminum
hafa verið mjög jákvæð.
Þær fjölskyldur sem
standa á bak við þennan
fjölbreytta rekstur
leggja mikið á sig með
metnað og ástríðu að
vopni við það að bjóða
upp á góðan mat í harðri
samkeppni. Samkeppni
er af hinu góða, svo
lengi sem jafnt sé gefið.
Nú eru komnir nýir rekstraraðilar
á Sjómannsstofunni Vör við Hafn-
argötu. Er það ekki bara gott mál?
Húsið hefur fengið töluverða yf-
irhalningu enda framkvæmdir löngu
tímabærar að sögn Einars Hannesar
Harðarsonar, formanns Sjómanna-
og vélstjórafélags Grindavíkur, á vef
Grindavíkur, en félagið á húsið og
leigir út reksturinn.
Það sem vekur athygli og jafnvel
furðu er að það er besti vinur for-
Er verið að misnota
fé félagsmanna til að
skekkja samkeppnina?
Eftir Kára
Guðmundsson
Kári Guðmundsson
Í byrjun árs voru
gerðar breytingar á
skimunum fyrir krabba-
meinum í brjóstum og
leghálsi í kjölfar þess að
heilbrigðisráðherra
ákvað að breyta skipu-
lagi, stjórn og fram-
kvæmd skimunar.
Fréttirnar komu illa við
marga og komu flestum
í opna skjöldu enda
hafði lítil kynning farið
fram á forsendum, ástæðum og af-
leiðingum þessara breytinga. Þetta
samfélagslega mikilvæga verkefni
flyst nú alfarið yfir til hins op-
inbera með aukinni miðstýringu.
Valfrelsi kvenna skert
Eftir hörð viðbrögð við því að
ætla að hefja skimun fyrir brjósta-
krabbameini fyrst við 50 ára aldur
í stað 40 ára tilkynnti heilbrigð-
isráðherra að fresta ætti gildistök-
unni hvað varðar aldursviðmið
brjóstaskimunar. Ákvörðun stjórn-
valda um skimun legháls-
krabbameins stendur. Almenn-
ingur hefur enn litlar röksemdir
heyrt um ástæður þess að nú eigi
að skima fyrir leghálskrabbameini
á fimm ára fresti í stað þriggja ára
eða hvers vegna það er betra að
heilsugæslan sinni þessu verkefni
nú alfarið.
Að lokum var rannsóknarstofa í
Danmörku fengin til að rannsaka
sýnin en svo hefur komið í ljós að
hópur kvenna mun þurfa að fara
aftur í sýnatöku. Á sama tíma
liggja 2.000 sýni óhreyfð í pappa-
kössum og hafa gert um nokkurra
vikna skeið. Alveg hefur vantað að
útskýra hvers vegna Landspítalinn
má ekki greina þessi
sýni eða hvort
stjórnvöld leituðu
yfirleitt til Landspít-
alans um að sinna
þessu verkefni.
Hvers vegna er
betra fyrir almenn-
ing að þetta verk-
efni flytjist til Dan-
merkur?
Margt bendir til
þess að undirbún-
ingur þessa flutn-
ings hafi verið illa
unninn. Samfella í
þjónustu er ekki tryggð þegar kon-
ur þurfa að fara aftur í sýnatöku
og standa uppi með takmörkuð
svör um hvenær sýni verða greind
og af hverjum. Nú síðast heyrist
svo í umræðunni að konur sem eru
vanar að fara til kvensjúkdóma-
læknis í skimun fyrir legháls-
krabbameini og vilja gera það
áfram muni greiða fyrir það fullt
gjald en þær sem leita til heilsu-
gæslunnar greiða lægra gjald. Af-
leiðingin er tvöfalt kerfi.
Stefnan virðist vera að allar kon-
ur eigi að fara á heilsugæsluna.
Raunverulegt valfrelsi verður því
ekki til staðar, nema fyrir þær
konur sem geta og vilja greiða
hærra gjald fyrir grundvallarheil-
brigðisþjónustu. Konur sem eiga
erfiða eða sára reynslu af með-
göngu og fæðingu, vegna kyn-
ferðisofbeldis eða af öðrum ástæð-
um þekkja vel hversu miklu skiptir
að skoðunin fari fram af lækni sem
hefur innsýn í þær aðstæður. Þær
aðstæður eru fyrir hendi hjá kven-
sjúkdómalækninum sem þekkir
sögu konunnar. Sú breyting að
vilja ýta þessari skoðun nánast al-
farið til heilsugæslunnar er í mín-
um huga afturför.
Miðstýring ofar öllu
Stefna ríkisstjórnar Vinstri
grænna, Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks hefur verið að
auka miðstýringu í heilbrigðiskerf-
inu. Við þekkjum nú þegar til
dæmis þá absúrd framkvæmd rík-
isstjórnarflokkanna sem bjóða
skattgreiðendum upp á að sjúk-
lingar séu t.d. sendir í lið-
skiptaaðgerðir til Svíþjóðar fyrir
næstum þrisvar sinnum hærri
kostnað frekar en að bjóða fólki
mun þægilegri valkost sem er að
fara í aðgerð hér heima.
Þessi kostnaðarauki, sem mjög
auðveldlega mætti komast hjá,
veitir sjúklingum auk þess það
óhagræði að þurfa að fljúga til
annarra landa að sækja heilbrigð-
isþjónustu sem auðveldlega má
veita hér heima. Þarna fer því
saman hærri kostnaður og verri
þjónusta.
Miðstýringin virðist ofar öllu hjá
ríkisstjórnarflokkunum. Þögn þing-
manna Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokksins er áberandi í þess-
ari umræðu, flokka sem tala
stundum fyrir annarri stefnu en
þeir styðja svo í verki í þingsal.
Ellefta boðorðið
Ein afleiðing þessarar stefnu
stjórnvalda er að traust kvenna til
kerfisins er laskað. Það mun þurfa
átak til að efla traust kvenna til
þessa kerfis eftir vinnubrögð
stjórnvalda. Allt frá óvæntum
fréttum um að skimun fyrir
brjóstakrabbameini ætti ekki að
hefjast fyrr en við 50 ára aldurinn,
yfir í að 2.000 sýni liggja í pappa-
kössum og nú að beina eigi konum
frá því að sækja sér þjónustu kven-
sjúkdómalækna, með því að heilsu-
gæslan sé komin með þetta verk-
efni. Allt í þágu 11. boðorðsins um
að heiðra skuli miðstýringu ofar
öllu.
Eftir Þorbjörgu S.
Gunnlaugsdóttur
Þorbjörg S.
Gunnlaugsdóttir
» Það mun þurfa átak
til að efla traust
kvenna til þessa kerfis
eftir vinnubrögð stjórn-
valda.
Hvers virði er traust kvenna?
Höfundur er þingmaður Viðreisnar.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?