Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 39

Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 Valin undirföt, náttföt, náttkjólar, sloppar og sundföt á 50% afslætti og hluti af úrvalinu einnig aðgengilegt í vefverslun www.selena.is Síðustu dagar ÚTSÖLU Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is 50% afsláttur af öllum útsölu- vörum SKILTAGERÐ Ljósakassar Ljósaskilti 3D stafir Hönnun Ráðgjöf Uppsetning Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is mannsins sem fékk að leigja staðinn án þess að aðrir fengju tækifæri á að leggja inn tilboð. Engin leið er betri en opið útboð til að tryggja hags- muni Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur til að fá sem mest fyrir sína eign. Þess í stað er staðurinn leigður út langt undir markaðsvirði og með 15 til 20 milljóna króna með- gjöf frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur til leigutaka, í formi yf- irhalningar á löngu tímabærum framkvæmdum að sögn formanns- ins. Vert er að athuga það að fram- kvæmdir felast ekki í endurbótum á þaki eða veggjum fasteignarinnar heldur uppfærslu á búnaði og tækj- um fyrir veitingarekstur á sam- keppnismarkaði. Í því felst gríðarleg skekkja fyrir rekstraraðila veitingahúsa að nýr rekstraraðili leigir húsnæði og tækjabúnað fyrir algjöra lágmarks fjárhæð. Áréttað skal að leigan gríp- ur ekki einungis húsakostinn heldur líka allt sem þarf til að reka veitinga- hús; diska, potta, rándýr tæki og tól alls konar. Fær Sjómanna- og vél- stjórafélagið þessa fjárfestingu til baka? Nei, við blasir að það eru eng- ar líkur á því vegna þess að samið hefur verið til langtíma undir mark- aðsvirði. Staðurinn er nú stórglæsilegur og opnaður aftur eftir endurbæturnar með því að bjóða upp á hádegisverð- arhlaðborð og fleira í samkeppni við aðra veitingamenn í Grindavík sem þurfa að standa skil á öllu sínu upp á tíu og fjármagna sínar framkvæmdir sjálfir. Er eðlilegt að ný og end- urbætt samkeppni í veitingarekstri sé fjármögnuð af Sjómanna- og vél- stjórafélagi Grindavíkur? Vita fé- lagsmenn af ráðahagnum? Vita fé- lagsmenn að ráðabrugg sem þetta er í engu samræmi við tilgang félagsins í 2. gr. laga þess? Gera félagsmenn sér grein fyrir því að það hefði örugglega fengist hærra verð fyrir fjárfestinguna með því að bjóða fleirum en besta vini formannsins einum að kjötkötlunum? Mann setur hljóðan þegar fréttir berast af því að Ísland fær verstu spillingareinkunn af Norðurlöndum. „Hvar er þessi spilling?“ spyr mað- ur. Er hún kannski miklu nær, bara akkúrat hérna heima í Grindavík? » Það sem vekur at- hygli og jafnvel furðu er að það er besti vinur formannsins sem fékk að leigja staðinn án þess að aðrir fengju tækifæri á að leggja inn tilboð. Höfundur er veitingamaður í Grinda- vík og félagsmaður í Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur. Sýrueyðing/glerungs- eyðing (erosion) er þeg- ar sýra þynnir og eyðir tönnum. Sýrueyðing hefur ekkert með sykur eða hefðbundnar tann- skemmdir að gera og er oftast flóknari við- ureignar. Eyðingin ger- ist yfirleitt á löngum tíma og meðhöndlun verður ansi flókin ef mikill tannvefur tapast. Ysta lag tanna heitir glerungur, sterkur skjöldur sem tekur langan tíma að eyða. Fyrir innan hann er tannbein, mýkra og viðkvæmara. Það tekur styttri tíma að eyða 1 mm tann- beins heldur en 1 mm glerungs. Algengt útlit Efri góms framtennur þynnast inn- an frá og verða loks gegnsæjar á bit- köntunum. Síðan kvarnast neðan af þeim svo þær styttast. Á bitflötum jaxla sjást fyrst litlir „gígar“/bollar þar sem glerungurinn þynnist. Þeir dýpka síðan hraðar þeg- ar eyðingin er komin inn í tannbein. Bithæð tapast. pH-skalinn (frá 0-14) lýsir súrleika. Skalinn er veldisskali; pH5 er 100 stigum súrara en pH7 (vatn, hlut- laust). Allt undir pH7 er súrt og því lægra pH því súrara. Allt undir pH 5,5 er skaðlegt glerungi tanna, því súrara því verra. Tannbein þolir hins vegar ekki nema pH 6,7. Sýrustig pH eitt og sér nægir ekki til að meta skaðleg áhrif á tennur, títranlegt sýr- umagn skiptir einnig máli. Hvaðan kemur sýran? Algengast er að sýran komi úr drykkjum. Þar er sítrónusýra stærsti óvinurinn. Sítrónusýra er í flestu sem okkur þykir gott, t.d. gosdrykkjum, ávaxtasöfum/svölum, orku-/ koffíndrykkjum, íþróttadrykkjum, duftblöndum og frostpinnum. Hrein sítrónusýra hefur pH2,2 (100.000 x súrari en vatn). Kóladrykk- ir eru svipaðir (um pH2,5), syk- urlausir sem sykraðir. Þeir valda því mikilli sýrueyðingu. Flestir vinsælir íþrótta- og orkudrykkir eru á svip- uðum slóðum (pH2-3). Ávaxtasafar, svalar og vín eru oft um pH3+. Allt mjög sýrueyðandi. Vatn (pH7) og mjólk (pH6,5) valda hins vegar engri eyðingu. Hreint sóda-/kolsýrt vatn er í lagi (pH5,9). En bragðbætta sódavatnið flækir málið. Bragðtegundir sem inni- halda ekki sítrónusýru valda sjaldnast sýru- eyðingu á meðan drykk- ir sem innihalda sí- trónusýru valda eyðingu, allir með tölu. Það skiptir því miklu máli að kynna sér inni- haldsefnin. Dæmi eru um að innan sömu vöru- línu framleiðanda séu sumar bragðtegundir með sítrónusýru en aðr- ar ekki. Það gerir valið enn flóknara. Framleiðendur virð- ast oft fara í feluleik með að upplýsa neytendur um hvað er í vörunum. Margir drykkir eru að auki markaðs- settir sem „heilsudrykkir“ þrátt fyrir að hafa lítið/ekkert með hollustu að gera. Hér eru nokkur dæmi um hvað framleiðendur nota í stað „sítrónu- sýra“ (citric acid) í innihaldslýsingum: „Sýrustillir“, „náttúruleg bragð- efni“, „E330“, og „inniheldur hreinan ávaxtasafa“. Það eru ekki bara drykkir sem valda sýrueyðingu. Súrir ávextir geta leikið stórt hlutverk. Jafnvel sítrónu- sneið út í vatnið er sýrueyðandi. Ég ætla ekki að leggja mat á hollustu sítrusávaxta en þeir eru a.m.k. ekki tannvænir í miklu magni. Neyslumynstur og lífsstíll Tíðni og magn skipta máli: Súr drykkur daglega er verri en vikulega og lítil flaska er skárri en stór. En það skiptir líka máli hvernig drukkið er. Mun betra að klára drykkinn hratt heldur en að láta hann endast tím- unum saman með sífelldu sötri (í skóla/vinnunni eða á æfingum). Drykkir í endurlokanlegum umbúð- um bjóða frekar upp á langtíma sötur. Sogrör hlífa framtönnum að einhverju leyti en eru engin töfralausn. Magasýrur (pH1,5-3,5) stuðla að sýrueyðingu, oftast tengdar bakflæði og brjóstsviða en líka uppköstum/ átröskun. Bakflæði getur verið dulið, verið til staðar án þess að viðkomandi átti sig á því. Ef grunur er um bak- flæði skal ráðfæra sig við meltingar- sérfræðing. Munnvatnsframleiðsla og stuðpúða- virkni skiptir líka máli. Skert munn- vatnsflæði og munnþurrkur (algeng aukaverkun ýmissa lyfja) ýta undir sýrueyðingu. Einkum ef fólk notar súrar vörur gegn munnþurrkinum. Einnig eru ýmis lyf súr og geta ýtt undir sýrueyðingu, t.d. astmapúst. Hvað er til ráða? Forvarnir eru mikilvægasti þátt- urinn, að sporna gegn því að sýrueyð- ing byrji:  Lágmarka neyslu súrra drykkja (og matar). Engin boð og bönn, daglega rútínan skiptir öllu.  Drekka/borða hratt og klára. Ekki sífellt sötur/nart.  Ekki bursta tennurnar strax eftir neyslu súrrar vöru!  Skola munninn með vatni eftir súra neyslu.  Nota flúortannkrem. Stundum þarf háskammta flúor.  Meðhöndla bakflæði og munn- þurrk.  Óheppilegt bit og gnístran gera illt verra. Ef eyðingin er hins vegar byrjuð skaltu ráðfæra þig við þinn tannlækni. Það er brýnt að greina eyðinguna snemma og finna út hvað veldur. Einnig er gott að meta hvort eyðingin sé virk eða ummerki frá fyrri tíð. Í báðum tilvikum þarf viðkomandi þó að gæta sín um ókomin ár. Tannlæknar geta þurft að grípa inn í með plast- uppbyggingum og í svæsnustu eyðing- unum þarf að krýna tennur svo þeim verði bjargað. Meðhöndlunin getur verið flókin, tímafrek og kostn- aðarsöm, að ekki sé talað um lífs- gæðaskerðinguna og viðhaldsvesen á viðgerðunum. Heilbrigðar tennur eru margfalt betri en viðgerðar. Sýrueyðing, dulinn óvinur Eftir Sverri Örn Hlöðversson »Á meðan tann- skemmdatíðni barna hefur aldrei verið jafn lág fjölgar einstaklingum með sýrueyðingu ört. Sverrir Örn Hlöðversson Höfundur er tannlæknir endajaxl@gmail.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.