Morgunblaðið - 04.02.2021, Qupperneq 42
Ljósmynd/Hermann Þór Snorrason
Páll Guðmundsson
palli@fi.is
Fjölmargir ganga á hæstu tinda
Öræfajökuls á vordögum. Algeng-
ast er að ganga á jökulinn í maí
þegar dagarnir eru langir og bjart-
ir, veðrið orðið betra og oft snjór í
sprungum. Jöklagöngur á hæstu
tinda Öræfajökuls geta tekið 12-15
klst. og því er mikilvægt að vera í
góðu líkamlegu formi og með allan
réttan búnað til ferðarinnar. Yf-
irleitt gengur fólk á jökulinn í fylgd
með fararstjórum í ferðafélögum
eða ferðaþjónustufyrirtækjum.
Hvannadalshnúkur, Sveinstindur,
Rótarfjallshnúkur og Dyrhamar
hafa í gegnum tíðina verið vinsælir
tindar að ganga á. Norðar á jökl-
inum eru Hrútsfjallstindar og Mið-
fellstindur sem einnig hafa verið
vinsælir tindar að ganga á.
Helsti búnaður
Helsti útbúnaður sem þarf til
jöklagöngu eru skór með góðum
sóla, mannbroddar, klifurbelti,
ísöxi, sólgleraugu, sólaráburður,
skjólgóður fatnaður og nesti.
Ferðafélag Íslands hefur lengi
staðið fyrir göngum á Hvannadals-
hnúk um hvítasunnu og leiðangrar
þessir hafa notið mikilla vinsælda
og hvert ár skipta þeir hundruðum
sem sigrast á landsins hæsta fjalli
og sjálfum sér um leið. Fleiri ferða-
félög og ferðaþjónustuaðilar bjóða
einnig upp á jöklagöngur.
Ferðatilhögun
Ferðatilhögun er yfirleitt með
þeim hætti að þátttakendur koma á
eigin bílum í Skaftafell eða Öræfa-
sveit en gangan hefst við bílastæðið
við Sandfell snemma að morgni
göngudags. Þaðan fetar hópurinn
sig upp Sandfellsheiði. Við jökul-
rönd í um 1.100 metra hæð er
hópnum skipt í minni hópa sem
ganga eftir það bundnir saman í
línu í klifurbeltum. Fremstur í
hverri línu fer fararstjóri/
fjallaleiðsögumaður. Langabrekka
er andlega krefjandi en um leið til-
valin til að fara í innri íhugun og
hugleiða. Þegar komið er upp á
öskjubrún liggur leiðin þvert yfir
öskjuna til norðurs eftir sléttri
snjóbreiðu fyrir austan sprungu-
sveim Virkisjökuls sem fellur fram
úr öskjunni. Á síðari árum hafa
fleiri og fleiri haldið lengra inn á
sléttuna áður en leiðin er þveruð
yfir á Hnúkinn. Á þessum slóðum
mun jökullinn vera um 500 metra
þykkur niður á öskjubotn. Í norð-
urbarmi öskjunnar rís svo Hvanna-
dalshnúkur og er nokkuð bratt upp
á hnúkinn sjálfan og þar reynir oft-
ast á notkun brodda og axar og því
þurfa þátttakendur að kunna notk-
un þessa mikilvæga öryggisbún-
aðar.
Öræfajökull á vordögum
Fjölmargir ganga á
hæstu tinda Öræfajök-
uls á vordögum. Algeng-
ast er að ganga á jökul-
inn í maí þegar dagarnir
eru langir og bjartir,
veðrið orðið betra og oft
snjór í sprungum.
Ljósmynd/FÍ myndabanki
Horft yfir til Hvannadalshnúks. Sveinstindur
Ljósmynd/Hermann Þór Snorrason
Hrútsfjallstindar
með FÍ vorið 2020.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Glæsileg borðstofuhúsgögnum frá CASÖ
í Danmörku
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Laserlyfting
Náttúruleg andlitslyfting
Byltingarkennd tækni ímeðferð á línum,
hrukkumog slappri húð!
Þéttir
slappa húð
á andliti og
hálsi!
Styrkir húðina og losar þig
við hrukkur og slappa húð á
andliti, hálsi, svæði undir höku,
bringu og handarbökum.
Spornar einnig við öldrun
húðarinnar ásamt því
að lífga upp á útlit þitt.
Ferðalög á
Hvíla skal í viku fyrir gönguna, borða og sofa vel. Best er að reyna að
halda streitu í lágmarki, sofa vel og vera eins vel upplagður og hægt er.
Mikilvægt er að drekka vel af vatni áður en lagt er af stað í gönguna.
Einnig er mikilvægt að borða og drekka í öllum stoppum til að viðhalda
orkubúskapnum. Þá er mikilvægt að bera á sig sólaráburð reglulega
allan daginn og nota sólgleraugu. Gott er að setja íþróttaplástur á hæla
fyrir gönguna til að forðast hælsæri. Mikilvægt er að vera ekki of mikið
klæddur, einkum í upphafi göngu, og frekar klæða sig í föt ef á þarf að
halda frekar en að svitna mikið í upphafi. Mikilvægt er að taka ein-
göngu það sem maður þarf að nota þegar pakkað er í bakpokann. Góðir
fararstjórar ganga á mjög jöfnum og rólegum hraða en það skilar best-
um árangri. Eins er gott að stoppa sjaldan og stutt en nýta stoppin vel
til að gera allt sem þarf að gera, borða, drekka, pissa, setja á sig plástur
og bera á sig sólaráburð. Algeng mistök fyrir jöklagöngur eru t.d. of
mikið stress fyrir ferð og í upphafi ferðar, ekkert sofið og of lítið borðað
og drukkið fyrir ferð. Bakpokinn þungur, of mikið klædd/klæddur,
mikill sviti, hár hjartsláttur og hröð öndun, gengið of hratt í byrjun. Við
þessar aðstæður getur öll ánægja horfið og í miðri ferð er komin upp
mikil vanlíðan. Þetta er allt hægt að forðast með góðum undirbúningi.
Besta þjálfunin fyrir jöklagöngur er að stunda fjallgöngur. Fjallgöngur
einu sinni til tvisvar í viku 2-3 mánuði fyrir jöklaferð er almennt nægur
undirbúningur samhliða almennri líkamsrækt
Góð ráð fyrir krefjandi jöklagöngu