Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 44

Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 44
Ljósmynd/Hanna Þóra Hvar eru kolvetn- in? Hvern hefði grunað að hér væri um kolvetnalausa máltíð að ræða? Hrein snilld Barenaked-vörurnar þykja frábær staðgengill fyrir kol- vetnaríkar vörur á borð við pasta og hrísgrjón. Barenaked-pasta og -hrísgrjón eru fullkominn valkostur fyrir alla sem vilja minnka hlutfall kol- vetna í mataræði sínu og þá sem eiga við sykursýki eða glútenóþol að stríða. Barenaked-lágkolvetna- vörurnar eru fitusnauðar og inni- halda einungis 15-22 kaloríur í hverjum skammti. Fyrirtækið Barenaked var stofnað árið 2011 af Ross Mend- ham. Ross hafði árum saman bar- ist við að ná stjórn á þyngd sinni og farið í alls konar megrunar- kúra en alltaf fallið fyrir pasta sem var hans eftirlætisfæða. Hann leitaði um allt að lágkol- vetnaútgáfu af pasta, á netinu, í matvöruverslunum og heilsuvöru- búðum, en án árangurs. Í kjölfar- ið fékk Ross þá frábæru hug- mynd að leita leiða til að gera uppáhaldsmatinn sinn aðgengi- legan fyrir alla, líka þá sem eru á sérstöku mataræði annaðhvort að eigin vali eða af heilsufarsástæð- um. Nú framleiðir Barenaked hollar, bragðgóðar lágkolvetna- vörur sem hægt er að nota í stað- inn fyrir hefðbundið pasta, núðl- ur eða hrísgrjón. Lykilhráefni í Barenaked- vörunum er konjac-rótin sem er ræktuð víða í Asíu og er nánast kaloríu- og kolvetnasnauð. Kon- jac-rótin er mjög trefjarík en inniheldur hvorki fitu, sykur né sterkju. Hún er því frábær kostur fyrir þá sem aðhyllast kolvetna- minna mataræði, ketó, LKL eða eru vegan. Í Barenaked-vörunum er blanda af konjac-rót, soja- baunamjöli og haframjöli en þannig fæst áferð sem líkist hefð- bundnum rísnúðlum. Núðlurnar og hrísgrjónin eru fljótelduð og drekka í sig bragð af hvers kyns sósum, súpum og kryddum. Þróaði full- kominn stað- gengil fyrir pasta og hrísgrjón MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 Aðalstræti 2 | s. 558 0000 SUNNUDAGSSTEIK Við eldum, þú sækir, tilbúið beint á borðið hjá þér! Heilt lambalæri á gamla mátann • Koníaksbætt sveppa-piparsósa, kartöflugratín, rauðkál og salat • Marengsbomba Fyrir 4-6 manns Verð 12.990 kr. Pantaðu fyrir kl.18 laugardaginn 6. febrúar á info@matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000. Afhent milli 17.30 og 19.00 sunnudaginn 7. febrúar Takmarkað magn í boði Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is „Ég er að hefja minn níuhundraðasta dag á ketó núna um helgina sem er skemmtileg staðreynd. Tvö og hálft ár sem hefur verið ótrúlega lærdóms- ríkur tími en umfram allt afar skemmtilegur, segir Hanna Þóra sem segir að munurinn sem hún finni sé mikill. „Ég finn gífurlegan mun á orkunni sem ég hef í daglegu amstri. Áður var ég sífellt þreytt, sótti í skyndiorku og var farin að þyngjast mjög mikið. Ég er mun léttari á mér bæði líkamlega, andlega og meltingin er mun betri eftir að ég breytti mataræðinu. Þau kolvetni sem ég borða eru þau kol- vetni sem mér líður vel með að borða. Ég finn fyrir ákveðnum létti að vera búin að ákveða að borða ekki kolvetni sem henta mér illa eins og hveiti og sykur, það er því enginn dans á lín- unni lengur sem einfaldar mér lífið. Ég er mikill sælkeri en upplifi engan skort því ég finn ávallt ketóvænan staðgengil fyrir allt sem mig langar að borða. Ég myndi segja að síðustu 900 dagar hafi verið þeir allra bestu í lífi mínu hvað varðar gómsætan mat. Helstu mistökin sem fólk gerir Það er gömul vísa og ný að fólk byrjar oft með miklu offorsi og gefst fljótt upp. Á það bæði við um líkams- rækt og mataræði en Hanna segir það afar mikilvægt að vera þolin- móður. „Algengustu mistökin sem fólk gerir er að gefa sjálfu sér ekki tíma til að venjast nýju mataræði. Þolinmæði þrautir vinnur allar og það besta sem þú getur gefið sjálfum þér er tími til að hugsa um heilsuna og leyfa ferlinu að vinna með þér, segir hún en Hanna gaf í fyrra út bókina KETÓ sem hefur fengið frábærar viðtökur enda góður leiðarvísir að mataræðinu auk þess að vera sneisa- full af gómsætum uppskriftum. „Ketó er þess eðlis að það þarf að kynna sér vel allar tegundir af mat- vælum og átta sig á því hvernig nær- ingargildin eru. Þeim mun fleiri vörur sem þú skoðar innihaldslýsingar og næringargildi á – þeim mun fróðari verður þú um val þitt á þinni nær- ingu,“ segir Hanna og deilir hér upp- skrift með lesendum þar sem hún notar spaghettí sem margur hefði haldið að væri á bannlista. Hér er hins vegar um að ræða nánast kol- vetnalaust spaghettí sem Hanna Þóra segir að sé mjög mikilvægt; að finna staðgengla fyrir þær kolvetna- ríku vörur sem voru í uppáhaldi og hún hélt að hún þyrfti að kveðja. Sér í lagi segist Hanna Þóra sakna hrís- grjóna en sá söknuður heyri nú sög- unni til eftir að hún uppgötvaði hrís- grjón frá breska fyrirtækinu Bare- naked sem unnin eru úr konjac-rót. 900 dagar á ketó Það eru fáir sem hafa tileinkað sér ketó-lífsstílinn jafn vel og Hanna Þóra sem hefur verið á mataræð- inu í tvö og hálft ár og segir að það sé nákvæmlega engin skerðing á lífsgæðum að segja skilið við kol- vetnin. Þvert á móti hafi hún sjaldan borðað jafn gómsætan mat. Ekkert mál Hanna Þóra segir að þolinmæði sé lykilatriði. Fádæma vinsældir Bók Hönnu Þóru er uppseld en ný sending er væntanleg á næstu dögum. 1 pakki Konjac-spaghettí frá Barenaked 2 msk. smjör 1 hvítlauksgeiri 4 stk. sveppir 4 sneiðar beikon parmesan 1 dl rjómi Setjið smjör á pönnu og steikið nið- urskorna sveppi og beikon ásamt hvít- lauksgeira. Fjarlægið hvítlaukinn og bætið rjóma og parmesan-osti saman við. Skolið Barenaked-spaghettíið í sigti með köldu vatni. Hristið vatnið vel af og bætið út í sósuna. Leyfið því að malla í örfáar mínútur og berið svo fram. Spaghettíið kemur tilbúið beint úr pakkanum, við erum einungis að leyfa réttinum að hitna og blandast. Konjac-spaghettí með parmesan/ beikonsósu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.