Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 46

Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 NÝ SENDING AF FLOTTUM DÖMUSKÓM Cali Breeze 2.0 Verð: 6.995.- St. 36 - 41 / 2 litir Zinger 2.0 Verð: 13.995.- St. 36-41 Go Walk Arch Fit Verð: 14.995.- St. 36-41 Split - Mark Nason Verð: 16.995.- Stærðir 36 - 41 th e y m th uxeL Foam Skech Air Verð: 13.995.- St. 37-41 / 2 litir ith u e Foam tith r SKECHERS SMÁRALIND - KRINGLAN LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Aníta Estiva Harðardóttir anita@k100.is Þessa vikuna er svokölluð Tann- verndarvika og í ár er sérstök áhersla lögð á drykki og þá sér- staklega orkudrykki. Íris Þórsdóttir tannlæknir á Hlýju tannlæknastofu mætti í viðtal til þeirra Loga Berg- mann og Sigga Gunnars í Síðdeg- isþáttinn og ræddi við þá um allt sem við kemur góðri tannhirðu ásamt því að segja þeim frá því hvernig orkudrykkir eyðileggja tennurnar. „Þar er þessi glerungseyðing sem kannski ekkert allir skilja. Gler- ungseyðing virkar kannski flókið en er í raun mjög einfalt þar sem gler- ungurinn er að eyðast af völdum sýru og það er sýra í gosdrykkj- unum okkar og koffíndrykkjunum. Þessum sem eru markaðssettir sem íþróttadrykkir og heilsudrykkir. Vítamínbættir og með amínósýrum og hvað eina, en þetta er gríðarlega slæmt fyrir tennurnar. Það er syk- ur í einhverjum þeirra en það er sjaldnast sykur samt. Við erum að horfa á þessa sýru sem er í inni- haldslýsingunni. Þá er það oftast sí- trónusýra, það getur verið ediksýra, vínsýra sem er aðallega í vínum, eplasýra og ýmislegt en allar þessar sýrur eyða glerungnum. Eyða hon- um ekkert mjög hratt en yfir lang- an tíma getur þetta haft gríðarlega mikil áhrif og ef við erum að þynna glerunginn erum við að missa þenn- an ofboðslega góða varnarhjúp á tönninni og það er takmörkuð auð- lind. Þetta er að mínu mati gullið í munninum, þetta er bara það sem við viljum alls ekki tapa og ef við erum búin að missa hluta af gler- ung eða bara jafnvel allan glerung- inn á einhverjum hluta erum við kominn með mjög mikið tannkul, sem er ekkert mjög þægilegt. Það er auðvitað mjög vont þegar við er- um að drekka heitt eða kalt eða för- um út í kuldann. En svo erum við líka að sjá gulari tennur og nú kannski fara fleiri að hlusta vegna þess að tannbeinið undir gler- ungnum er gríðarlega gult og ef við förum að þynna glerunginn þá fer hann að skína betur í gegn. Við get- um ekki framkvæmt tannlýsingu eða hvíttunarmeðferð á þessu vegna þess að þegar við erum að hvítta er- um við að hvítta glerunginn og ef hann er horfinn er ekkert hægt að gera,“ segir Íris. Mikil aukning á neyslu koffíndrykkja og sykurlausra gosdrykkja Þá segir Íris orkudrykkina einnig mynda tannslit í tönnunum sem gerir það að verkum að bitkant- urinn þynnist og tennurnar stytt- ast. Það skilar sér í styttri tönnum og gulari ásamt tannskemmdum. Undanfarin ár hefur verið mikil aukning á drykkju koffíndrykkja og sykurlausra gosdrykkja sem fólk neytir í miklu magni. Spurð að því hvort þessi þróun sé að fara að koma niður á fólki eftir nokkur ár svarar Íris því játandi. „Það held ég. Ég held að það sé bara engin spurning að við séum að fara að sjá gríðarleg áhrif og vandamál eftir einmitt tíu til fimmtán ár hjá unga fólkinu. Vegna þess að við erum að sjá æ yngra fólk vera að drekka þessa drykki og miklu meira kannski heldur en gosdrykkja- neysla var fyrir tíu til fimmtán ár- um. Við erum að sjá fólk drekka kannski nokkra drykki á dag og það í fimm til tíu ár getur eytt gler- ungnum ansi hratt,“ segir hún. Slæmt að bursta tennurnar eftir neyslu drykkjanna Spurð út í það hvort ekki sé nóg að bursta tennurnar vel eftir neyslu drykkjanna svarar Íris því af og frá. „Það er ekki gott, við verðum fyrst að skola munninn með vatni og bursta svo tennurnar eftir þrjá- tíu mínútur. Málið er að við erum með munnvatn og það er ákveðinn „buffer“ sem er að hlutleysa sýruna og þetta er í rauninni okkar nátt- úrulegi varnar-„mekanismi.“ Það gerir sitt gagn, en það tekur bara tíma. Þannig að segjum að við séum að súpa á svona glerungseyðandi drykk á fimm mínútna fresti, þá náum við aldrei að hlutleysa sýruna og þess vegna er gott að skola munninn með vatni til þess að hreinsa það mesta. Munnvatnið sér svo um sitt og eftir hálftíma er gler- ungurinn ekki eins viðkvæmur og hann er beint eftir sopann,“ segir hún. Þá segir Íris kolsýru ekki gler- ungseyðandi og að í lagi sé að drekka kolsýrt vatn með bragðefni. Slík efni séu ekki slæm fyrir tenn- urnar. Eini koffíndrykkurinn sem hún sjálf hafi rekist á sem sé ekki með glerungseyðandi efni sé orku- drykkurinn 105 koffínvatn. „En svo verðum við að taka það fram að sama hvort þetta er gler- ungseyðandi eða ekki þá eiga krakkar undir 18 ára aldri ekki að vera að drekka þessa drykki. Það ætti finnst mér að vera bannað og ég held að foreldrar eigi að reyna að upplýsa börnin sín. Ég er að reyna að upplýsa alla vegna þess að við þurfum ekki koffín undir 18 ára,“ segir hún. Íris hvetur áhrifavalda landsins til þess að passa sig á því hvað þeir séu að „prómótera“ vegna þess að í heildina sé ekki æskilegt að hvetja til koffínneyslu heldur á að reyna að minnka hana. Þá minnir hún á þá gullnu reglu að tannbursta eigi tvisvar sinnum á dag, nota tannþráð einu sinni á dag og ekki skola tann- kremið af tönnunum á kvöldin. Við- talið við Írisi má hlusta á í heild sinni á K100.is. Gular og stuttar tennur eftir neyslu á orku- drykkjum Íris Þórsdóttir tannlæknir segir orkudrykki eyði- leggja tannheilsu fólks. Sýran í drykkjunum fari illa með glerunginn og eftir nokkurra ára neyslu á þeim verði tennurnar gular og stuttar ásamt því að tann- skemmdir fari að gera vart við sig. Skjáskot/Hlýja tannlæknastofa Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Tannheilsa Tennurnar verða fljótt gular eftir mikla neyslu orkudrykkja. Íris Þórsdóttir tannlæknir Hvetur fólk til þess að láta orkudrykkina í friði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.