Morgunblaðið - 04.02.2021, Page 47

Morgunblaðið - 04.02.2021, Page 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 ✝ Elín Ingólfs-dóttir fæddist 17. mars 1941 á Patreksfirði. Hún lést þann 24. jan- úar 2021 á heimili dóttur sinnar, Sig- nýjar, í Reykja- nesbæ. Hún var dóttir Ingólfs Þórarins- sonar og Signýjar Ólafsdóttur. Systk- in hennar eru: Ingibjörg Signý Frímannsdóttir sammæðra, lát- in. Þórólfur Ingólfsson, látinn. Örn Ingólfsson, látinn. Bjarni Ingólfsson, Reykjavík. Daníel Rúnar Ingólfsson, Reykjavík. Þórólfur Ingólfsson yngri, lát- inn. Elín giftist Guðmundi Þór Jónssyni vélvirkja, f. 8. október 1935, d. 10. október 1992, þann 31. desember 1962 í Hafnarfirði en þau bjuggu alla sína hjú- skapartíð í Keflavík. fyrr en börnin voru komin nokkuð á legg. Þá starfaði hún við fiskvinnslu, tók svo skrif- stofunám, seinna lauk hún sjúkraliðanámi og vann upp frá því sem sjúkraliði, lengst af í Víðihlíð í Grindavík. Elín vann mikið með átt- hagafélagi Vestfirðinga hér á Suðurnesjum, sá um og hafði umsjón með sólarkaffi félagsins til fjölda ára, vann trúnaðar- störf innan Verka- kvennafélagsins, síðar Verka- lýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur. Elín ferðaðist mikið utan- lands, fyrst með Guðmundi og svo seinna með Þórði. Hús- bílaferðir þeirra Þórðar voru í miklu uppáhaldi hjá henni en áður hafði hún átt stundir í sælureit hennar og Guðmundar á Þingvöllum. Útför hennar verður frá Keflavíkurkirkju 4. febrúar 2021 kl. 13, en vegna aðstæðna í samfélaginu verða aðeins nán- ustu ættingjar og vinir sem fylgja henni síðasta spölinn. Jarðsett verður í Hafnarfirði. Börn þeirra eru; Signý, f. 1957. Stef- án Holm, f. 1960. Stúlka, f. 1963, d. 1963. Ragnhildur Lovísa, f. 1964. Guðný, f. 1966. Þóra Ólöf, f. 1968. Barnabörnin eru 16, langömmubörn- in eru 29 og langa- langömmubörnin þrjú. Lífsförunaut- ur Elínar til 13 ára var Þórður Jónsson, f. 13. febrúar 1941, d. 1. nóvember 2015. Æskuárin fyrstu voru á Pat- reksfirði þar sem Ingólfur faðir hennar rak verslun. Hún gekk þar fyrstu árin í skóla og lék sér í fjöruborðinu. Hún fluttist að Hliði á Álftanesi 9 ára gömul og síðar til Reykjavíkur. Lauk grunnskólanámi og vann fyrstu árin í verslun og bakaríi. Elín starfaði ekki utan heim- ilis fyrstu árin í Keflavík, ekki Elsku mamma mín, þá ertu farin til fundar við fólkið þitt í sumarlandinu sem var þér svo kært og þú hafðir saknað svo mikið. Þið pabbi takið nú sporið í blómahafi sumarlandsins en hann hefur svo sannarlega beðið þín. Þið voruð bestu foreldrar sem nokkur gat fengið, þið voruð samhent, báruð virðingu fyrir hvort öðru, voruð til staðar fyrir fólkið ykkar á erfiðustu stundum lífs þess, en tókuð svo mikinn þátt í gleðilegum atburðum lífs- ins. Ég minnist þeirra gilda sem við vorum alin upp við, vinnu- semi, virðingu, réttlæti og kær- leika. Söngstundirnar, mamma, er eitthvað sem ég ber í hjarta mér áfram og söngurinn og gleðin sem fylgdi ykkur báðum á vinafundum. Þið voruð gestrisin og úrræðagóð, allir gátu leitað til ykkar og fengið ráð við hverjum þeim vanda sem upp kom. Þegar pabbi hringdi með nokkurra mínútna fyrirvara með þau boð, að hann myndi taka með sér heim í mat gesti sem voru um borð í þeim bátum sem hann var að laga þá stundina þá varst þú úrræðagóð og þegar svo hópur- inn mætti í mat þá var nóg til fyrir svanga munna. Heimilið var eins og umferðarmiðstöð, alltaf líf og fjör alla daga, reyndar er æskuheimilið mitt í dag, og ber nafn með rentu, umferðarmið- stöð. Við fimm systkinin með marga vini á öllum aldri gátum komið með þá heim og oftar en ekki vorum við mjög dugleg við að næra vinina svo mamma þurfti mikið að hafa fyrir því að alltaf væri nóg til. Minningarnar um sjónvarpslausu fimmtudags- kvöldin þegar mamma bakaði brauð og kruðerí fyrir næstu vik- una eru mér ljóslifandi. Sunnu- dagarnir þegar ég vaknaði við út- varpsmessuna og anganin af sparimatnum fannst um allt hús, enda skilyrðing þar fyrir mig, verð alltaf svöng í messum. Söknuður fyllir hjarta mitt en á sama tíma gleðst ég yfir því að þú sért laus við þjáningar og get- ir verið með fólkinu sem á undan er farið. Á erfiðri stundu lífs míns, þegar ég sem unglingur lenti í vinnuslysi, voruð þið pabbi klettarnir sem vildu allt fyrir mig gera sem létt gat lífið en það var nú ekki auðvelt fyrir ykkur að eiga við þvermóðskuna í mér en takk fyrir að gefast ekki upp á unglingnum mér. Mamma mín, að leiðarlokum á ég þér svo margt að þakka og barnabörnin þín sem nú sakna þín svo mikið og hefðu viljað hafa þig lengur í lífi sínu sakna þín mikið, lífið er eins og túskildingur, öðrum meg- in er lífið en hinum megin dauð- inn. Ég veit að þegar minn tími kemur þá mun ég hitta ykkur öll í sumarlandinu og þar verður að- eins söngur og gleði. Að leiðar- lokum langar mig til þess að kveðja þig, mamma, með bæn afa þíns en þú og fólkið þitt áttuð svo auðvelt með kveðskap. Þú Guð, sem vekur á vori rós og veittir mér lífsins þrána. Þú verður í kvöld mitt leiðarljós og lýsir mér yfir ána. (Ólafur Dýrmundsson) Takk fyrir lífið sem þú gafst mér og knúsaðu hann pabba fyr- ir mig, hjarta mitt syrgir og fagnar í senn. Þín dóttir, Ragnhildur Lovísa og fjölskylda. Elsku besta amma mín og langamma. Nú skilur leiðir okkar í lifanda lífi og við þau tímamót er það huggun okkar sem eftir erum hversu margar góðar minningar og stundir við áttum með þér. Þú varst besta amma sem ég gat hugsað mér og eru mér sérstaklega minnisstæðar stundirnar á Melteignum þegar við bjuggum þar saman. Morgn- arnir sem við sátum saman í eld- húsinu, hlustuðum á útvarpið og borðuðum hafrakodda sem hafa eftir það alltaf verið uppáhalds- morgunmaturinn minn. Öll sam- tölin, hlátrasköllin og samveran sem er í dag dýrmæt minning. Þegar ég varð ung mamma varstu alltaf þarna til að veita stuðning og voru margar stund- irnar sem þú passaðir Maríu Mist meðan ég var í skólanum. Þið María áttuð svo fallegt sam- band, stundirnar þegar María, þá í 7. bekk, kom við hjá þér eftir skóla til að spjalla um forseta- kosningarnar. Þú varst alltaf til staðar fyrir fólkið þitt og allir elskuðu Ellý ömmu. Ég er svo þakklát fyrir þessar stundir sem við fengum saman seinustu vikurnar þínar, samtöl- in okkar þegar þú sagðir mér að þú hefðir aldrei haft áhuga á íþróttum, þegar þú sagðir mér að þú værir stolt af börnunum þín- um eða þegar við töluðum um afa. Þá sagðir þú „ég hitti hann bráðum“ og nú eruð þið saman aftur. Elsku amma mín, takk fyrir þessi 34 ár sem ég fékk með þig mér við hlið. Ég trúi því að þið afi dansið í sumarlandinu og fylgist stolt með öllum ykkar afkomend- um. Við sjáumst aftur síðar. Fljúgðu hátt elsku fallega amma. Við elskum þig alltaf. Þín ömmustelpa og lang- ömmubörn, Eyrún Sif, María Mist, Eyþór Dagur, Jenný Líf og Ástrós Lillý. Í dag kveðjum við móður, ömmu, langömmu, langalang- ömmu og systur. Minningarnar hrannast upp. Ellý, eins og hún var kölluð, sýndi snemma áræði og einstakt æðruleysi sem lýsti sér m.a. í þeim leik sem hún tók þátt í sem barn með nokkrum öðrum börnum, en þau tróðu sér ofan í svefnpoka og var Ellý sú eina sem hafði kjark til að fara fyrst ofan í. Snemma var henni úthlutað verkum sem útlit var fyrir að þyrfti útsjónarsemi og þrjósku til. Minnist ég ferðar til hárskera, en það óttaðist ég meir en nokkuð annað og vildi ekki fara. Ellý fékk það verkefni að klára þetta mál. Ég fór í klipp- ingu þennan dag. Aðeins 15 ára gömul kynnti hún fjölskyldunni mann, sem varð hennar lífsförunautur, Guð- mund Jónsson. Honum fylgdi alls konar nýbreytni, m.a. mót- orhjól, sem var þeirra fararskjóti um nokkurt skeið. Það var topp- urinn á tilverunni að fá að sitja aftan á og þeysa um götur bæj- arins. Þá komu þau með gælu- dýr, hvítar mýs, eitt par. Fljót- lega varð sú fjölskylda þeim ofviða. Sneru þau sér því að sinni eigin, leigðu hús í Hafnarfirði og áttu börn og buru. Á meðan ég var í móðurhúsum voru ferðir til Ellýjar og Guð- mundar í Hafnarfjörð og síðar í Keflavík nokkuð sem var efst á vinsældalistanum. Þar var líf og fjör og gaman að vera, sofið á dýnum í stofu og vaknað með 100 ára gamla skjaldböku sér við hlið! Minningin um fyrstu ferð okk- ar hjóna til Köben er okkur ljós- lifandi. Í þessari skemmtilegu ferð nutum við góðs af leiðsögn Ellýjar og Guðmundar, en þar voru þau öllum hnútum kunnug. Það þurfti ötular hendur og vinnusamar til að koma upp fimm börnum. Var komið víða við í þeirri viðleitni. Rekstur á bát- um, á tímabili rekið bílaverk- stæði o.fl. Ellý fór í skrifstofu- nám og lauk því með hæstu einkunn. Á þessum tíma var draumurinn um að reyna fyrir sér erlendis að raungerast, þau fluttu til Svíþjóðar. Þar fór Guð- mundur að vinna við nýsmíði á lestartönkum, en Ellý sinnti ræstingum og undu þau hag sín- um vel. Það kom því sem reið- arslag þegar Guðmundur greind- ist með krabbamein sem talið er að hafi stafað af atvinnu hans, hann lést árið 1992. Upp úr þessu fór Ellý m.a. í sjúkralið- anám og lauk sínum starfsferli við það fag hjá hjúkrunarheim- ilinu Víðihlíð í Grindavík. Um þetta leyti kynnist hún Þórði Jónssyni og bjuggu þau saman á Faxabrautinni, og nut- um við gestrisni þeirra oft og tíð- um. Þórður dó árið 2015. Eftir það bjó Ellý ein en með dyggum stuðningi fjölskyldunnar. Ekki verður skilið við þessa fátæklegu umfjöllun án þess að geta hlutar Signýjar, dóttur hennar. Eftir að hafa hjúkrað eiginmanninum, Hólmari Tryggvasyni, og kvatt hann í nóvember 2019 tók hún mömmu sína inn á heimili sitt og hlúði að henni. Var það að ósk Ellýjar að fá að ljúka ævinni þar og átti hún hæglátt andlát í faðmi fjölskyld- unnar. Hennar verður sárt sakn- að. Að lokum vil ég votta systk- inunum, Signýju, Stefáni, Ragn- hildi, Guðnýju og Þóru, mökum, börnum og barnabörnum okkar dýpstu samúð. Bjarni og Erna. Elín Ingólfsdóttir ✝ Laura Freder-ikke Claessen fæddist á Reynistað í Skerjafirði 24. jan- úar 1925. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 13. janúar 2021. Foreldrar hennar voru Jean Eggert Claessen hæstaréttarlög- maður, f. 16. ágúst 1877, d. 21. október 1950, og kona hans Soffía Jónsdóttir Claessen hús- mæðrakennari, f. 22. júlí 1885, d. 20. janúar 1966. Systir hennar er Kristín Anna Claessen, f. 1. októ- ber 1926. Laura Frederikke stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík og var ein af lýðveld- isstúdentunum 17. júní árið 1944. Laura Frederikke giftist 15. júní 1945 Hirti Pjeturssyni lög- giltum endurskoðanda, f. 21. febrúar 1922, d. 29. desember 1993, börn þeirra eru 1) Soffía börn þeirra eru Aron Orri, Axel Orri og Oliver Orri. Hildur Arna, f. 14. apríl 1983, eig- inmaður hennar er Sigurður Jens Sæmundsson, f. 26. júní 1981, börn þeirra eru Margrét Mist, Atli Snær, Bjarki Snær og Sara Mist. 3) Halla Hjartardóttir, f. 24. júlí 1955, gift Kristni Val- týssyni, f. 30. janúar 1954, dætur þeirra eru Edda Hrönn, f. 5. maí 1979, sambýlismaður hennar er Jesper Harding Sörensen, f. 23. apríl 1978, börn þeirra eru Emil Eldar, Sófus Snær og Katla Kar- itas. Eva Hrund, f. 9. júní 1983, sambýlismaður hennar er Guð- mundur Ingi Þorsteinsson, f. 21. október 1981, sonur hans er Haf- steinn Þór. Ellen Harpa, f. 15. júlí 1985, sambýlismaður hennar er Hrafnkell Sigríðarson, börn þeirra eru Flóki og Dýri. 4) Jean Eggert Hjartarson Claessen, f. 15. júní 1961, kvæntur Grímu Huld Blængsdóttur, f. 29. júní 1960, börn þeirra eru Lára Ósk, f. 18. október 1990, sambýlis- maður hennar er Magnús J. Magnússon, f. 20. mars 1990, barn þeirra er Auður Huld. Gunnar Smári, f. 23. janúar 1993. Jean Eggert átti fyrir Arent Pjetur, f. 28. febrúar 1987, d. 15. júní 2005, barnsmóðir hans er Berglind Sveinsdóttir. 5) Laura Hjartardóttir, f. 2. apríl 1963, gift Walter Ragnari Krist- jánssyni, f. 16. september 1962, synir þeirra eru Kristján Óli, f. 25. janúar 1986, eiginkona hans er Eveline Ragnarsson, börn þeirra eru Mia, Emelian, Jesper og Rocco. Kári Björn, f. 1. júlí 1990, sambýliskona hans er Julía Erdinghausen, f. 9. mars 1991. Kjartan Orri, f. 17. september 1992, sambýliskona hans er Mel- ine Angelides, f. 25. september 1991. Síðar á lífsleiðinni stundaði Laura Frederikke nám í bóka- safnsfræði við Háskóla Íslands og vann um tíma í versluninni Lesprjón í Hafnarstræti. Lengst af vann hún við skjalavörslu og móttöku á Borgarspítalanum í Fossvogi auk yfirsetu í Háskóla Íslands 1994 – 2005. Laura Frederikke gekk ung í Oddfellow-regluna og var elsti Oddfellowi á Íslandi. Hún var sæmd 75 ára fornliðamerki regl- unnar árið 2018. Hún gegndi öll- um helstu embættum innan Re- bekkustúkunnar Bergþóru. Auk þess var hún félagi í Rauða krossinum og sinnti sjálfboða- starfi í Rauðakrossbúðum spít- alanna. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristín, f. 9. maí 1946, d. 2. nóv- ember 2007, gift Herði Barðdal, f. 22. maí 1946, d. 4. ágúst 2009, áður var Soffía Kristín gift Oddi Þórð- arsyni og sonur þeirra er Þórður Vilberg, f. 20. febr- úar 1966, eiginkona hans er Marta Elísabet Guð- mundsdóttir, f. 13. apríl 1967, börn þeirra eru Anna Katrín og Oddur. 2) Hjörtur Hannes Reyn- ir Hjartarson, f. 14. mars 1949. Hann er í sambúð með Signýju Höllu Helgadóttur, f. 23. ágúst 1951, hún á tvo syni frá fyrra hjónabandi, þá Helga Má, f. 14. janúar 1973, og Árna Val, f. 4. mars 1982. Áður var Hjörtur kvæntur Köru Margréti Svaf- arsdóttur og eru dætur þeirra Halla Sigrún, f. 17. ágúst 1976, eiginmaður hennar er Fannar B. Jónsson, f. 13. október 1971, Tvö hús, tvær magnaðar systur, þeirra menn og fullt af börnum. Þetta er fyrsta heims- myndin sem ég man eftir. Í Reynisnesi stýrði Laura frænka hernum og á Reynistað var Kristín móðir mín við stjórnvöl- inn. Þær systur voru alla tíð mjög nánar og heimilin tvö runnu stundum nánast saman í eitt. Á báðum stöðum gengu börnin inn og út eins þeim sýndist. Og innanhússsíminn góði tengdi húsin saman bein- línusambandi. Í bakgrunni var Skerjafjörðurinn, einn risastór leikvöllur. Laura frænka var eldklár, snjall húmoristi og með stál- minni alveg fram á síðustu ár. Þess vegna var alltaf gaman að spjalla við hana, ekki síst hin seinni ár. Þá gat hún rifjað upp sögur úr sinni æsku og frá ólík- um tímum. Mjög áhugavert var að hlusta á hana segja frá for- eldrum sínum, einkum pabba sínum og afa mínum, enda greinilega mikil pabbastelpa. Það var verðmætt að heyra hvað þessi mikli athafnamaður síns tíma hefur verið mikill fjöl- skyldumaður og pabbi. Mamma var alltaf litla systir, þótt komin væri á tíræðisaldur. Síðustu mánuðina töluðu syst- urnar enn í síma nánast dag- lega. Mamma bar mikla virð- ingu fyrir stóru systur og hlustaði á hennar skoðanir. Vissulega þurftu þær stundum að tuða svolítið hvor í annarri, en þær voru jú systur. Í vikunni ræddum við mæðginin lítið at- riði sem þarfnaðist ákvörðunar og þá datt okkur báðum í hug að rétt væri að hringja í Lauru. En nú er það of seint og nú er hún komin í góðan félagsskap þeirra sem á undan eru gengn- ir. Eftir lifir minningin um ein- staklega góða, gáfaða og skemmtilega frænku, sem svo dýrmætt var að fá að þekkja. Eggert Benedikt Guð- mundsson. Mig langar til að minnast ömmu Lauru með nokkrum orð- um. Þegar ég settist niður að skrifa og byrjaði að rifja upp minningar komst ég að því, að flestar þeirra tengjast Skerja- firði og Reynisnesi þar sem amma og afi bjuggu. Oft á tíðum var Reynisnes eins og mitt annað heimili þar sem ég dvaldi ásamt móður- systkinum mínum sem voru leikfélagar og aðeins nokkrum árum eldri. Amma var sérstök að því leyti að maður þurfti aldrei að vanda sig í samskiptum við hana eða setja sig í stellingar. Hún var ekki amma sem settist niður og spilaði, púslaði eða las fyrir mann í rólegheitum. Frek- ar var farið í garðinn við Reyn- isnes, sem er risastór. Hún fór kannski á fjóra fætur við blóma- eða trjábeð og setti mig í garðslátt sem tók tíma fyrir ungan mann eftir langan dag í Melaskólanum. Nú eða sendi mig í rabarbaragarðinn niður við fjöru til að taka upp nokkur kíló. Fyrir vikið læddi hún að manni launum fyrir sláttinn og keyrði mig með rabarbarann í Blómaval þar sem ég fékk greitt fyrir. Líklega holl kennsla í því hvernig peningar verða til. Þegar ég lít til baka man ég bara ekki eftir ömmu aðgerða- lausri og þannig var hún á með- an fæturnir gátu borið hana. Ég heyrði hana aldrei kvarta, ekki einu sinni síðustu dagana þegar hún lá á spítalanum. Ég var stoltur af ömmu og sagði oft um hana að hún væri alger töffari og veit að margir geta tekið undir það. Amma hringdi alltaf í mig á afmælisdögum allra í fjölskyldunni og lagði mikla áherslu á að rækja það sem hún taldi skyldu sína. Var af gamla skólanum og notaði símann frekar en fésbókina eins og margir láta nægja í dag. Það verður skrítið þegar þessi sím- töl hætta sem manni þótti eig- inlega sjálfsögð, en hún tók eig- inlega við þessu af mömmu þegar hún féll frá árið 2007. Það hefur án efa verið mikið áfall fyrir hana, en þegar mömmu bar á góma í samtölum okkar var hún ekkert að kryfja það nánar. Frekar að það væri gangur lífsins þó ekki væri eðli- legt að lifa dóttur sína. Amma lagði mikla áherslu á ættfræði og taldi mikilvægt að ég vissi sem mest um forfeður, frændur og frænkur. Seinna hef ég haft meira gaman af þessu og skilið gildi þess að kunna skil á ættinni. Það er kannski þess vegna sem ég hef mikinn áhuga á sögu og jafnvel veraldlegum hlutum sem hafa mikla sögu, en það kom oft fram í samtölum okkar ömmu. Reynisnes, Reyni- staður og umhverfið þar allt í kring hefur mikla sögu að geyma þó ég hafi ekki gert mér fulla grein fyrir því sem strák- ur. Þegar ég varð eldri ræddum við amma iðulega saman um allt á milli himins og jarðar og gát- um óhikað sagt álit okkar á mál- efnum og mönnum. Þegar ég lít til baka núna finnst mér það frekar hafa verið spjall á milli vina, sem við vorum auðvitað, en hefðbundnar samræður við ömmu sem fór oft með bænir með mér fyrir svefninn þegar ég gisti í Reynisnesi. En svona var amma, félagsvera með ákveðnar skoðanir, mikill fróð- leiksbrunnur og hlekkur við löngu liðna og breytta tíma. Ég mun sakna hennar og okkar samtala, en búa að minn- ingu um ömmu Lauru til ævi- loka. Þórður Vilberg Oddsson (Doddi). Laura Frederikke Claessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.