Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 ✝ María ÁslaugGuðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 27. febr- úar 1930. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Skjóli 22. jan- úar 2021. Foreldr- ar hennar voru Guðmundur Óskar Guðmundsson, f. 14. júlí 1901, og Ás- laug Jónsdóttir, f. 31. ágúst 1906. María var ein þriggja systkina, hin eru Jón, f. 15. nóvember 1928, og Sigrún, f. 22. september 1933, sem er lát- in. María Áslaug ólst upp í Reykjavík og varð stúdent frá stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík árið 1949. Stóran hluta starfsferils síns starfaði hún sem ritari samtals 12 ráð- þeirra er Jónas, f. 6. febrúar 1987, maki Colette Feghali, börn þeirra eru Emmalyn Eliza- beth, f. 24. október 2013, og Et- han Ambrose, f. 22. maí 2015. Þriðji maki Áslaugar er Matt- hew Berge og eiga þau engin börn saman. 2) Stefán, f. 26. september 1958, býr nú með Oddnýju Maríu Gunnarsdóttur. Fyrrverandi maki Guðrún Indr- iðadóttir, dætur Stefáns og Guð- rúnar eru: Valkyrja Helga Stef- áns, f. 14. júlí 1980, fyrrverandi maki hennar er Björn Rúnar Bjartmarz og synir þeirra eru Fenrir Dagur, f. 8. mars 2014, og Ægir Máni, f. 17. febrúar 2015, María Mey, f. 3. desember 1991, fyrrverandi maki hennar er Sigmar Þór Hávarðsson og dóttir þeirra er Indíana Sól, f. 20. júní 2013. Annar maki Maríu er James Oliver Hopkins og eiga þau engin börn saman. Streymt verður frá útför í Dómkirkjunni kl. 15: https://youtu.be/zPtJPE1tObI Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat herra í félagsmála- ráðuneytinu og deildarstjóri. Hún lét af störfum þar 69 ára gömul á gamlársdag 1999 eftir meira en 33 ára farsælt starf á þeim vettvangi. Hún giftist Har- aldi Þórðarsyni bif- reiðasmið hinn 5. janúar 1957. Börn þeirra eru: 1) Áslaug, f. 21. októ- ber 1956, maki Matthew Berge; fyrsti maki Yngvi Pétursson, dóttir Áslaugar og Yngva er Bára, f. 23. október 1975, maki Jón Margeir Þórisson, börn þeirra eru Yngvi, f. 17. febrúar 2001, Móeiður Anna, f. 21. maí 2008, og Hrafnhildur Ýrr, f. 30. júní 2010. Annar maki Áslaugar var Alireza Behboud, sonur Elsku mamma, minningarnar flæða fram og hugurinn fyllist af þakklæti fyrir yndislega lífið sem þú gafst mér og fjölskyld- unni okkar. Þegar ég fæddist vorum við hjá ömmu Áslaugu í Verkó á Hringbrautinni, á með- an pabbi og Stefán afabróðir byggðu risíbúðina á Flókagöt- unni. Svo bakaðir þú kökur og kanilsnúða í litla eldhúsinu á laugardögum og þá streymdi fjölskyldan í kaffi. Þegar þið bættuð við hæðinni fyrir neðan stækkaði eldhúsið og stofurnar og þar með allar veislurnar. Í áratugi var farið snemma í sund um helgar og svo var opið hús í morgunkaffi fyrir gesti og gang- andi. Margar uppskriftirnar þín- ar eru enn í notkun því þú varst snillingur í eldhúsinu. Þú varst mikil námskona, hafðir ekki efni á háskólanámi en nýttir alla þína hæfileika og orku í verkefni lífsins. Þú kenndir mér að lesa og hjálpaðir mér með ritgerðir um hverja helgi. Ég fann stúdentshúfuna þína og þú talaðir um mennta- skóla og háskóla og þá vissi ég hvert mín leið stefndi. Þú komst mér í betri skóla þegar ég gafst upp á kennaranum í fjórða bekk. Í saumaklúbbnum voru bekkj- arsysturnar úr MR og þær voru mín fyrirmynd um menntaðar, duglegar og skemmtilegar kon- ur. Þú varst með mér í Michigan að taka á móti doktorsgráðunni í vélaverkfræði og við áttum hana saman því þú varst grundvöll- urinn fyrir allri skólagöngunni. Þið pabbi kynntust í Far- fuglaferð og útivistin var alltaf ykkar stærsta áhugamál. Þið fóruð með okkur Stebba í úti- legur þegar enginn kunni á það og búnaðurinn var frumstæður. Við elskuðum ævintýrin með ykkur því að þið voruð svo glöð og við áttum yndislegar peysur, sokka, vettlinga og húfur sem þú prjónaðir og það var allt gott sem þú eldaðir á einum prímus úti í náttúrunni. Þú smurðir og grillaðir samlokur í skíðaferðir og varst með kakó á hitabrúsa. Þú, Nonni bróðir þinn og Dúna systir þín fóruð í fjölskylduútil- egu á hverju sumri, amma Ás- laug og Kobbi voru líka með og alltaf var farið á nýjan og spenn- andi stað, í gönguferðir og leiki. Þið pabbi voruð leiðtogar í gróð- ursetningu í Valabóli, Heiðmörk og Baldurshaga og þú varst allt- af með Flóru Íslands við hönd- ina að kenna okkur nöfnin á jurtunum. Og mikið var gaman að fara með þér í berjamó, þú ljómaðir eins og sól og kræki- berin hrúguðust upp. Þú gerðir ljúffenga krækiberjasaft sem var ómissandi í alls konar grauta og súpur. Þú varst á Hof- felli í Hornafirði í lok stríðsins og þið Fríða voruð bestu vinkon- ur. Þú fórst oft með okkur til Fríðu og Þrúðmars í Miðfelli til að hjálpa í heyskap og það voru dýrmætir dagar. Þú komst oft til mín í Am- eríku og varst alltaf tilbúin að hafa Báru og Jónas hjá þér og með í ferðalögin. Við fórum öll saman að skoða Tetons-fjöllin og Yellowstone-garðinn, með tjöld- in og allan útbúnað og gengum víða í sól og hita. Ólympíuskag- inn, Glacier, Grand Canyon og Alaska voru stóru ferðirnar og margt annað gátum við skoðað saman af mikilli gleði. Þú varst besta amma og langamma í heimi fyrir börnin okkar og þau áttu fallegasta brosið þitt fram á síðasta dag. Hvíldu í Guðs friði, elsku mamma mín. Áslaug. Elsku amma. Að minnast þín er gefandi og gleðjandi í bland við sára sorg og mikinn söknuð. Þú varst einstök. Þú og afi bæði voruð bjargvættir í mínu lífi. Þú hvattir mig áfram í öllu sem ég gerði og þú sýndir mér statt og stöðugt að konur geta það sem þær ætla sér. Takk fyrir stað- festuna, styrkinn og stuðning- inn. Takk fyrir ferðalögin, takk fyrir sundferðirnar, takk fyrir kanilsnúðana. Takk fyrir þolin- mæðina og takk fyrir öll spilin og takk fyrir að leyfa mér stund- um að vinna og sérstaklega takk fyrir að leyfa mér ekki alltaf að vinna, því annars hefði ég ekk- ert lært! Takk fyrir að færa mér kyrrð og ró í barnæsku, kyrrð sem mun fylgja mér alla tíð. Kyrrð sem ég get núna gefið okkar kæru Indíönu Sól. Læt ég fylgja með lítið ljóð sem lokaorð mín hér. Loksins ertu lögð af stað í þitt lengsta ferðalag. Lengi hafði þig langað að hitta bóndann þinn. Bar svo upp á bóndadag sú sæta sameining. Lengi mun ég minnast þín og umhyggju þinnar. Heiðarleikans ákveðninnar. Elsku nafna mín aldrei mun ég gleyma okkar dýrmætu stundum. Þér til heiðurs legg ég kapal og leysi krossgátur. Leita uppi ævintýr við nið af háum fossum. Þangað til við sjáumst næst býð ég þér góða nótt með vaseline kossum. María Mey Stefánsdóttir. Amma, hvar ertu? Ég sakna þín og mig langar svo að vita hvar þú ert og hvern þú ert búin að hitta. Þú átt marga horfna ástvini sem fagna komu þinni á nýjar slóðir. Við hin sem eftir sitjum eigum hafsjó af hlýjum minningum en þurfum jafnframt einhvern veginn að finna okkur nýjan takt án þín, í bili að minnsta kosti. Ég veit að þú veist að það verður erfitt því þú hefur staðið mér þétt við hlið svo óskaplega lengi, en vissulega bý ég svo vel að hafa marga mér til stuðnings þó þín njóti ekki við lengur. Ó, hvað ég sakna þín, elsku besta amma. Ég elska þig og dái svo undur heitt. Minningu þína geymi ég djúpt í hjarta mér og efst í huga mér það sem eftir lifir og ég er svo innilega þakk- lát fyrir umhyggjuna þína alla mína ævi. Styrkur þinn, góð- mennska og samkennd voru engu lík. Traustari manneskju er erfitt að finna sem og gjaf- mildari. Þú máttir aldrei sjá að nokkur ætti bágt án þess að rétta fram hjálparhönd og betri fyrirmynd gæti ég vart óskað mér. Í hinsta sinn ætla ég að þakka þér fyrir allt sem þú hef- ur verið mér. Takk fyrir að vera alltaf til staðar, takk fyrir ótelj- andi yndislegar samverustundir. Takk fyrir að gefa þér alltaf tíma til að spjalla, leiðbeina, hugga, hvetja, skemmta, hlæja, sefa skapofsann og gefa mér gott í gogginn hvenær sem ég kallaði eftir því. Ástarþakkir fyrir öll ferðalögin innanlands, allar sundferðirnar og öll ferða- lögin til Ameríku. Öðru fremur þakka ég þér umhyggjuna sem þú sýndir börnunum mínum. Þú varst alltaf svo glöð að hitta þau og hreinlega ljómaðir í hvert sinn og hvenær sem talið barst að börnum. Yngvi, Móa og Hrafnhildur Ýrr nutu þess sann- arlega að hafa þig í sínu lífi og fundu svo vel hversu innilega vænt þér þótti um þau. Það eru mikil forréttindi að finna svona skilyrðislausa ást. Það sem þú varst stolt af þeim þegar þau færðu þér fréttir af góðum ár- angri í skóla eða íþróttum og við munum sakna þess mikið að hafa þig með á sýningar þeirra, skemmtanir, kappleiki og við yf- irferð á skólavitnisburðum. Ég geymi í hjarta mér mikinn fjölda góðra minninga um samveru- stundir okkar. Skemmtilegasta minningin er af einni ferðinni okkar saman til Ameríku. Við tvær eyddum þá mörgum klukkustundum í mollinu. Þú færðist á milli kaffistaða hægt og rólega og gættir að ört stækkandi pokasafninu mínu með vökulum augum á meðan ég hentist í búðirnar. Allnokkrum sinnum tróðumst við saman inn í mátunarklefana svo þú gætir samþykkt eða hafnað mögu- legum fatakaupum mínum. Þar sast þú og við hlógum þessi lif- andis ósköp að afgerandi skoð- unum þínum á fatasmekk mín- um og þú sýndir framúrskarandi hæfileika í hugarreikningi því klár varstu og þú bjóst svo sann- arlega yfir náðargáfu í stærð- fræði. Hlýjustu minningarnar á ég um góðar stundir við spila- mennsku með þér á kvöldin á Flókagötunni áður en ég flýtti mér að sofna á undan þér. Við höfum margt brallað undanfarin rúm 45 árin og mikið höfum við getað hlegið saman. Takk fyrir samveruna, elsku amma, og takk fyrir að leyfa mér að halda í hönd þína þar til yfir lauk. Ég elska þig ætíð. Bára Yngvadóttir. Minningin um ömmu Maddí verður alltaf einstaklega ljúf meðal allra afkomenda hennar. Sem eitt af barnabörnunum hennar upplifði ég æskuárin með ömmu full af ljúffengum mat og fallegum gjöfum. Hlaðið borð með jólasteik og sósu, og morgunkaffið fullt af kræsingum eftir sundið um helgar, amma notaði hvert tækifæri til að taka á móti fjölskyldunni með opnum örmum. Hún var alltaf tilbúin að smyrja flatkökur með hangikjöti handa mér, því hún vissi að það var mitt uppáhald. Amma og afi nutu þess að fara með okkur krakkana í útilegur og þær ferð- ir kenndu mér að njóta náttúr- unnar og útivistar bæði á Íslandi og í Ameríku. Jafnvel einföldu göngutúrarn- ir í sundlaugina í hverfinu okkar í Reykjavík munu lifa í minning- unni alla mína ævi. Það er mín von að ég geti alið upp börnin mín með sömu ást og umhyggju og amma sýndi öllum sínum börnum. Jónas. Hæ langamma, mig langar að skrifa falleg orð í kveðju til þín. Ég er ekki sorgmædd því ég veit að þú ert í saumaklúbbnum þínum og ert búin að hitta lang- afa Halla sem þú saknaðir svo mikið. Ég fékk góðan tíma með þér og nú máttu vera hjá lang- afa og fara í saumaklúbb. Ég sakna þín samt mjög mjög mikið því mér finnst leiðinlegt að fá ekki að hitta þig og ég græt þeg- ar ég hugsa um þig. Hafðu ekki áhyggjur, ég geymi og passa myndina sem ég saumaði handa þér af Hoffelli og stafnum M því þú heitir langamma Maddí og elskaðir sveitina þína. Mér þótti vænt um það hvað þér þótti vænt um þá gjöf. Þú varst alltaf svo glöð með allt sem ég gerði og þér þótti svo vænt um mig. Ég elska þig og mamma er döp- ur því hún saknar þín. Ég var glöð að hitta þig svona oft um jólin og það var gaman því þú varst alltaf að segja að ég væri svo falleg og með svo fallegar hendur og tennur og hár. Ég þurfti oft að standa upp og snúa mér í hring svo þú gætir séð hvað ég væri með fallegt hár. Við borðuðum líka nammi og kex saman, það var gaman. En það var líka erfitt að sjá hvað þú varst þreytt. Ég veit að þú ert ekki þreytt lengur. Það var líka erfitt hvað það var langt síðan þú hittir Nonna bróður þinn. Þið voruð svo góðir vinir sem fóruð í langa bíltúra og fenguð ykkur kaffi saman og ég vona að ég og Yngvi bróðir minn og Móa systir mín verðum svona góðir vinir líka þegar við verðum gömul. Elsku amma, takk fyrir að vera langamma mín og vera svona góð og skemmtileg. Ég veit að þú fylgist með mér og ég ætla að standa mig áfram svona vel svo þú verðir alltaf stolt af mér. Sofðu rótt í alla nótt og dreymi þig vel í alla nótt. Ég elska þig. Hrafnhildur Ýrr Margeirsdóttir. Mér þykir endalaust vænt um langömmu mína. Einstaklega góð og klár manneskja og ég er svo þakklátur fyrir að hafa feng- ið að kalla hana ömmu mína. Það var alltaf gaman að fara í heim- sókn til ömmu vegna þess að hún gaf mér alltaf eitthvað gott að borða og það besta voru súkkulaðisnúðarnir hennar ömmu. Ömmu þykir svo vænt um okkur öll, sérstaklega ömmubörnin. Amma var svo áhugasöm um okkur börnin og ljómaði í hvert einasta skipti sem við komum í heimsókn, spurði okkur út í allt sem var í gangi í lífinu okkar. Ég veit að ömmu þótti einstaklega skemmtilegt að ég skyldi fara í sama menntaskóla og hún. Ég hafði jafn gaman af því í fyrsta skipti sem hún sagði mér frá því í hvaða stofum hún var í MR og öll hin skiptin sem hún sagði mér frá því og þau skipti voru ófá. Hún mundi eftir öllum stof- unum og hvernig var að vera í hverri þeirra. Sagði mér frá út- sýninu í hverri stofu, hvar hún sat, hjá hverjum og hvaða kenn- ara hún hafði í hverju fagi. Henni þótti svo gaman að rifja upp menntaskólaárin og allt tengt þeim. Þegar ég útskrifað- ist síðasta vor var það fyrsta sem ég gerði eftir athöfnina að fara til ömmu á Skjóli til þess að sýna henni hvíta kollinn minn. Vegna aðstæðna í samfélaginu mátti ég ekki fara inn til hennar og knúsa hana en ég veifaði henni frá bílastæðinu og mamma var með henni við gluggann uppi. Ég talaði við hana í símann á meðan og það var frábær stund því henni þótti mikið til þess koma og var held ég jafn glöð og ég sjálfur. Þegar ég hugsa um jólin þá hugsa ég um ömmu. Það var svo gaman að hafa ömmu hjá okkur um jól- in, hún kom með svona auka- jólagleði heim til okkar og það var svo gaman að sjá hana skæl- brosandi í stólnum sínum þegar við krakkarnir opnuðum pakk- ana. Elsku amma, ég ætla að nota gönguskóna sem þú gafst mér í jólagjöf til að þramma um landið okkar í þína minningu. Þú hafðir svo mikinn áhuga á ferða- lögum og ferðasögurnar þínar eru svo skemmtilegar. Nú ætla ég að feta í þín fótspor í skónum frá þér. Ég hlakka mikið til þess og mun sakna þín amma mín, hvíldu í friði. Yngvi. Hæ elsku besta langamma mín, ég ætla að skrifa nokkur orð til þín. Ég elska þig svo mik- ið og ég er svo þakklát fyrir all- ar góðu stundirnar sem ég er búin að eiga með þér. Síðustu þrjú árin eru búin að vera svakalega erfið fyrir þig. Ég man ennþá eftir kvöldinu þegar mamma kom að sækja mig á fimleikaæfingu í rosalegu óveðri og hún fór með mig út að borða en svo var hringt í hana og sagt að þú hefðir dottið aftur fyrir þig og værir á spítalanum. Við héldum öll að þú værir að fara að deyja þá en það gerðir þú ekki. Þú varst lengi uppi á spít- ala en varst sterk eins og of- urhetja og við fengum lengri tíma með þér. Það var alltaf gaman að heimsækja þig og þú varst alltaf glöð að hitta okkur. Ég hlakkaði alltaf til að hitta þig og segja þér frá því hvernig mér gengi í skólanum og fótboltanum því þú varst alltaf svo montin af mér og sagðir mér hvað ég stæði mig vel. Ég veit að þú fylgist áfram með okkur og það er notalegt að vita það. Ég treysti því að þú komir áfram á djass- ballettsýningarnar mínar og fylgir mér í gegnum mennta- skólann þó að ég sjái þig ekki. Ég á margar góðar minningar um þig og ég ætla að passa vel upp á þær og uppskriftina að jólaísnum þínum geymi ég á al- veg sérstökum stað í hjartanu og án hans eru alls ekki jól. Það María Áslaug Guðmundsdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sálm. 86.11 biblian.is Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát elskulegs föður, tengdaföður, bróður, mágs og frænda, SIGURGEIRS BJARNA GUÐMANNSSONAR, fyrrv. frkv.stj. Íþróttabandalags Reykjavíkur, sem lést á Vífilsstöðum 30. desember. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A4 á Landspítala í Fossvogi, þar sem hann dvaldi lengst og einnig starfsfólks Vífilsstaða. Rannveig Sigurgeirsdóttir Sverrir Jónsson Elín Guðmannsdóttir Bára Guðmannsdóttir Alda Guðmannsdóttir Anna S. Guðmundsdóttir Guðmann Sigurgeir, Bára og Bára Vilborg systkinabörn og aðrir aðstandendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.