Morgunblaðið - 04.02.2021, Page 56
56 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
40 ára Heiðar er
Sauðkrækingur og býr
á Sauðárkróki. Hann er
með BS-gráðu í við-
skiptafræði frá Bifröst
og BS-gráðu í tölvunar-
fræði frá HR. Heiðar er
hugbúnaðarsérfræð-
ingur hjá Advania.
Maki: Gunnhildur Ása Sigurðardóttir, f.
1981, bókari hjá Versluninni Eyri.
Synir: Reynir Logi, f. 2003, Birkir Ívar, f.
2008, og Eyþór Ingi, f. 2013.
Foreldrar: Stefán Logi Haraldsson, f.
1962, framkvæmdastjóri Steinullar, og
Inga Sesselja Baldursdóttir, 1960, vinnur
á skrifstofunni hjá kjötvinnslu Kaup-
félags Skagfirðinga. Þau eru búsett á
Sauðárkróki.
Heiðar Örn
Stefánsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vinnudagurinn í dag verður ekki
venjubundinn. Glæsilegir lúxusmunir freista
þín verulega, kauptu samt ekkert í dag,
bíddu þangað til á morgun.
20. apríl - 20. maí
Naut Notaðu daginn í dag til þess að læra
eitthvað nýtt. Tillaga sem þú lagðir fram fær
góðan hljómgrunn og þú svífur út af fundi al-
sæl/l.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ferð varlega í peningamálum
núna eftir mikið brölt síðustu ár. Einhver
kemur með hlut til þín sem þú hélst að væri
löngu glataður.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Tækifærin bíða þeirra sem leita.
Gefðu þér góðan tíma til íhugunar. Fólk
hættir seint að öfundast út í aðra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú nærð engum tökum á starfinu með-
an þú forgangsraðar ekki verkefnunum.
Leyfðu þér að taka frídag fljótlega og hvíla
þig vel og rækilega.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það gætu komið upp erfiðleikar í
sambandi sem reyna á krafta þína. Mundu
hvað það getur verið auðvelt að brjóta aðra
niður.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þykist vita hvers vegna viss aðili ger-
ir það sem hann gerir. Allt í einu langar þig til
þess að bæta skipulagið í skápunum heima.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú reynir að sjá það jákvæða í
því sem ungt fólk er að gera og nýtur góðs
af. Ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Farðu
varlega í umferðinni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Farðu varlega í því að deila ár-
angri þínum með öðrum, nema þú teljir þig
geta treyst viðkomandi. Þú færð tilboð sem
þú getur ekki hafnað.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur áhuga á að víkka sjón-
deildarhring þinn með frekara námi. Allir
hafa sinn djöful að draga, þú ert ekki undan-
skilin/n.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt bágt með að einbeita þér
að starfinu þar sem áhyggjur af einkamálum
dreifa athyglinni. Gamall vinur mun koma
þér til hjálpar með ferskum hugmyndum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þrautseigja er það sem þarf til. Upp-
skrift að hamingju er að losa sig við tíu hluti
sem þú þarft ekki á að halda (og manst jafn-
vel ekki að þú eigir) áður en sólin er sest.
hann hóf störf á skrifstofu Alþingis
haustið 2005. „Alþingi, elsta og mikil-
vægasta stofnun landsins, er afar sér-
stakur vinnustaður. Í þinginu er jafn-
an mikið um að vera og vinnudagar
geta oft verið langir. Þingið er nær
alltaf í umræðunni og þar geta stund-
um verið mikil átök þó oftast sé þar
unnið að málum í góðri sátt. Allt þetta
gerir vinnustaðinn áhugaverðan og
skíði í Tindastól eða inn í Skarðsdal.
Það voru svo sannarlega mikil forrétt-
indi að hafa alla þessa afþreyingar-
kosti alveg við bæjardyrnar.“
Starfið á Alþingi
Eftir árin fyrir norðan starfaði
Ingvar í nokkur ár fyrst í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu og síðar hjá
Héraðsdómi Reykjaness áður en
I
ngvar Þór Sigurðsson fæddist
4. febrúar 1971 á Sólvangi í
Hafnarfirði og ólst upp í
suðurbænum, nánar tiltekið
á Hvaleyrarholtinu. „Ég hef
búið í Hafnarfirði nær alla mína tíð.
Það var virkilega gaman að alast upp
á holtinu sem þá var að byggjast upp.
Þarna var líka íþróttasvæði Hauka,
Sædýrasafnið rétt sunnan við holtið
og einnig stutt á golfvöllinn út á Hval-
eyri. Ástjarnarsvæðið, Óla Run.-túnið
ásamt hafnarsvæðinu höfðu einnig
mikið aðdráttarafl.
Ég gekk í Öldutúnsskóla og var þar
í einstaklega samheldnum og
skemmtilegum árgangi. Eftir grunn-
skólagönguna gerði árgangurinn sér
lítið fyrir og hélt upp á tímamótin með
ógleymanlegu ferðalagi til Kemper-
vennen í Hollandi þar sem vináttu-
böndin voru treyst enn frekar.
Ég byrjaði snemma að vinna en
fyrsta alvöru vinnan fyrir utan blaða-
útburð og annað slíkt var hjá Geir
Sigurjónssyni og fjölskyldu hans í
Sjávarfiski. Síðar kynntist ég mörg-
um öðrum störfum en einna eftir-
minnilegast voru sumarstörf hjá Vita-
og hafnamálastofnun en þá ferð-
uðumst við um landið og fórum m.a.
út í eyjar, hólma og sker og sinntum
viðhaldi vita.“ Síðar starfaði Ingvar
m.a. við sumarafleysingar hjá Toll-
gæslunni á Keflavíkurflugvelli og
ennþá síðar hjá lögreglunni í Hafnar-
firði.
Eftir stúdentspróf úr Flensborg ár-
ið 1992 og embættispróf í lögfræði frá
Háskóla Íslands árið 1998 lá leiðin
norður yfir heiðar nánar tiltekið í
Skagafjörð. Þar hóf Ingvar störf við
sýslumannsembættið á Sauðárkróki.
„Eftir góðan tíma á Króknum bauðst
mér síðan að leysa af sem sýslumaður
og lögreglustjóri á Siglufirði. Þar vor-
um við í u.þ.b. ár áður en við fluttum
suður aftur.
Tíminn fyrir norðan er okkur alveg
ógleymanlegur. Þar öðlaðist ég mikla
reynslu á góðum vinnustöðum með
skemmtilegum vinnufélögum. Svæðið
er líka gríðarlega fallegt og margt
hægt að gera. Það var t.d. gaman að
geta farið að veiða út á Skagaheiði eða
í Fljótunum, spilað golf á Hlíðarenda-
velli eða inni á Hólsvelli eða þá farið á
spennandi fyrir lögfræðing sem einn-
ig hefur mikinn áhuga á þjóðmálum.
Síðustu ár hafa verið mjög við-
burðarík á Alþingi. Þingið hefur allt
frá hruni þurft að takast á við mörg
stór verkefni. Óvenju margar alþing-
iskosningar hafa verið á þessum tíma
og fjöldi ríkisstjórna hefur setið. Ég
hef t.d. unnið með sjö forsetum og
fjöldi nýrra alþingismanna hefur
sennilega aldrei verið meiri.“
Á Alþingi starfaði Ingvar fyrst sem
lögfræðingur á nefndasviði en tók
fljótlega við starfi forstöðumanns
þingfundasviðs. „Á sviðinu starfar
einvala lið starfsfólks, aðallega lög-
fræðingar og íslenskufræðingar. Á
þingfundasviði er m.a. unnið að und-
irbúningi og skipulagi þinghaldsins
bæði starfsáætlun, vikuáætlunum og
dagskrá hvers þingfundar. Slíkir hlut-
ir eru unnir með forseta Alþingis og í
samráði við formenn þingflokka. Þá
heldur starfsfólk sviðsins líka utan um
framkvæmd þingfundanna og undir-
býr atkvæðagreiðslur sem fram fara á
fundunum.
Starfsfólkið er í miklum sam-
skiptum við Stjórnarráðið og þing-
menn varðandi framlagningu þing-
mála. Þá starfar starfsfólk þingfunda-
sviðs einnig við lagatæknilegan
yfirlestur og uppsetningu þingskjala
ásamt því að ganga frá ræðum þing-
manna til birtingar á vef þingsins. Þá
er á sviðinu einnig haldið utan um Al-
þingistíðindi.is, lagasafnið á vefnum
og útsendingar frá þingfundum ásamt
opnum nefndafundum svo fátt eitt sé
nefnt. Þá hef ég á undanförnum árum
starfað með þingskapanefnd en það
er nefnd þingmanna sem unnið hefur
að margvíslegum breytingum á lög-
um um þingsköp Alþingis en þing-
störfin taka mið af þingsköpunum og
þingmenn þurfa að fara eftir þeim í
störfum sínum.“
Helstu áhugamál Ingvars eru sam-
vera með fjölskyldunni og einnig að
fylgja börnunum eftir í þeirra áhuga-
málum. „Eva Dís er í 10. bekk og æfir
fótbolta með Haukum og Flosi Freyr
er í 4. bekk og æfir körfubolta og fót-
bolta með Haukum. Ég var sjálfur
mikið í íþróttum á yngri árum og æfði
á tímabili fótbolta, körfubolta og
handbolta með Haukum. Lengst var
Ingvar Þór Sigurðsson, lögfræðingur og forstöðumaður þingfundasviðs Alþingis – 50 ára
Fjölskyldan Eva Dís, Ingvar, Flosi Freyr og Rósa Dögg á Tenerife 2019.
Óvissuferð í stað afmælisveislu
Á Setbergsvelli Ingvar fer holu í höggi í fyrsta sinn, í júlí 2020.
30 ára Rósamunda
ólst upp í Álasundi í
Noregi en býr í
Garðabæ. Hún er
læknir frá Háskóla
Íslands, er í barn-
eignaleyfi, en stefnir
á að fara í heimilis-
lækningar.
Maki: Vilhjálmur Pálmason, f. 1991,
læknir og er í fjarnámi í heimilislækn-
ingum.
Börn: Theódóra,. f. 2016, Pálmi Rafn,
f. 2018, og Elma Sjöfn, f. 2020.
Foreldrar: Þórarinn Ingólfsson, f.
1963, heimilislæknir, búsettur í Garða-
bæ, og Anna Vilbergsdóttir, f. 1958,
hjúkrunarfræðingur á gjörgæslunni í
Fossvogi, búsett í Garðabæ.
Rósamunda
Þórarinsdóttir
Til hamingju með daginn
Garðabær Elma Sjöfn fæddist 5. júlí
2020 kl. 13.00. Hún var 16 merkur og
52 cm. Foreldrar hennar eru
Rósamunda Þórarinsdóttir og
Vilhjálmur Pálmason.
Nýr borgari
Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími8.00-16.30
Hakk,
gúllas,
bjúgu,
kótilettur
og bara
nefndu það
Kjötbúð Kjötsmiðjunnar – Ekki bara steikur