Morgunblaðið - 04.02.2021, Side 68

Morgunblaðið - 04.02.2021, Side 68
go crazy Fimmtudag - mánudags útsölulok 8. febrúar 4. - 8. febrúar aföllumvörum* 25% Sparadu- *20% afsláttur af sérpöntunum. Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 Sýning á nýjum málverkum eftir sænska stjörnulista- manninn Andreas Eriksson verður opin í i8 galleríi við Tryggvagötu frá deginum í dag. Eriksson, sem hefur verið fulltrúi Svía á Feneyjatvíæringnum, vinnur í ýmsa miðla myndlistar en í málverkum leggur hann mikið upp úr áferð. Árið 2014 setti Eriksson upp rómaða sýn- ingu á Kjarvalsstöðum, þar sem hann stillti eigin verk- um upp með völdum verkum eftir Jóhannes Kjarval en hann hefur í fyrri sýningum unnið bæði út frá verkum Kjarvals og hins norska Edvards Munchs. Ný málverk eftir sænska listamann- inn Andreas Eriksson sýnd í i8 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 35. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Þetta er fyrst og fremst mikið fagnaðarefni fyrir alla í frjálsíþróttahreyfingunni,“ segir Freyr Ólafsson, for- maður Frjálsíþróttasambands Íslands, en skipaður hef- ur verið nýr starfshópur sem á að koma með tillögur að fyrirkomulagi nýs þjóðarleikvangs fyrir frjálsíþrótta- fólk. »59 Mikið fagnaðarefni fyrir alla í frjálsíþróttahreyfingunni ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is María Einarsdóttir, alltaf nefnd Maja, hefur staðið vaktina í Bæjar- ins beztu pylsum í Tryggvagötu í Reykjavík síðan í byrjun mars 1976, en kórónuveirufaraldurinn hefur haldið henni fjarri frá fyrstu sam- komutakmörkunum í fyrra. „Ég verð áttræð á næstunni og veit ekki hvort ég á eftir að selja fleiri pylsur, en við sjáum til,“ segir frægasta pylsusölukona heims eftir að hún gaf Bill Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, eina með miklu sinnepi í ágúst 2004. Þegar Maju var boðið að vinna virka daga í pylsuvagninum sló hún strax til. „Ég sé ekki eftir því, vegna þess að þetta er besti vinnustaður sem ég þekki, bestu vinnuveitend- urnir og besta samstarfsfólkið.“ Auk þess hafi vinnan gefið henni tækifæri til þess að hitta og kynnast mörgum Íslendingum og eins út- lendingum frá öllum heimsálfum. „Ég er mikil félagsvera og hef gam- an af því að spjalla við fólk.“ Kristmundur Jónsson var pylsu- kóngurinn í bænum og athygli vakti hvað hann var snöggur að afgreiða eina með öllu. „Hann kenndi mér handbragðið og ég var fljót að læra og ná hraðanum,“ segir Maja. „Þar kom hárgreiðslunámið og -vinnan sér vel, því í hárgreiðslunni þurfti að hafa snör handtök.“ Fljóðatríóið og Abba Fljóðatríóið var fyrsta kvennatríó landsins. Maja og Guðný Soffía Val- entínusdóttir stofnuðu það ásamt Benediktu Benediktsdóttur að áeggjan Ragga Bjarna 1968 og skemmti það víða um land til 1976. Eftir að Guðný féll frá tók Sig- urborg eða Sísí, systir Maju, stöðu hennar og þegar Stefán Þorleifsson kom í stað Benediktu nefndist það SMS-tríóið. „Við spiluðum og sung- um á böllum, þá var stuð og stemn- ing og mjög gaman,“ rifjar Maja upp og segist hafa furðað sig á því löngu síðar hvers vegna þær systur hafi ekki sótt um einkaleyfi á SMS! „Við smullum mjög vel saman og höfðum nóg að gera í bransanum um helgar.“ Fjörið náði sennilega hámarki helgina eftir að Abba söng lagið „Waterloo“ og sigraði í Evróvisjón 1974. „Við heyrðum lagið á mánu- degi og ákváðum að taka það í brúð- kaupi laugardaginn eftir. Ég man ekki hvað við Sísí þurftum að endur- taka það oft, en síðan var þetta vin- sælasta lagið okkar lengi á eftir.“ Maja og Valgarð Hólm Sigmars- son, seinni maður hennar, sem féll frá fyrir tveimur árum, skemmtu líka fólki síðar, ýmist tvö eða líka með Sísí. Hann spilaði á harmoniku og Maja söng. Söngurinn hefur fylgt Maju frá barnsaldri. Hún syngur nú með Gaflarakórnum í Hafnarfirði, en kom fyrst fram opinberlega með hljómsveit Guðjóns Matthíassonar þegar hún var 16 ára. Bæjarins beztu pylsur hafa svo verið sem hennar annað heimili í nær hálfa öld. Hún segist alltaf hafa lagt áherslu á að veita öllum sömu þjón- ustu og aðeins einu sinni lent í vand- ræðum, þegar útigangsmaður hafi áreitt hana. „Clinton er sennilega sá frægasti sem ég hef afgreitt en ung- ur strákur var á öðru máli. Hann spurði mig hvort hann mætti taka í hönd mína. „Hvers vegna?“ spurði ég. „Þú varst að afgreiða strákana í Metallicu.“ „Þetta eru bara hljómsveitargæjar sem koma hérna daglega,“ svaraði ég. „Ekki bara hljómsveit heldur heimsfræg hljóm- sveit,“ sagði hann þá og við tókumst í hendur.“ Bæjarins beztu og Abba Ljósmynd/Gunnar V. Andrésson Ein með miklu sinnepi Maja gaf Bill Clinton pylsu og hann var hæstánægður.  Maja frægasti pylsusalinn og í fyrsta kvennatríói landsins Söngvarar Systurnar Sísí og Maja voru í fyrsta kvennatríói landsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.