Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 16

Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 16
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Umræður hafa verið innansamtaka bænda frá alda-mótum, að minnsta kosti,um að selja Hótel Sögu. Tillögum um það var hafnað árin 2000, 2006 og 2015, oft í ágreiningi. Þær tilraunir sem nú fara fram eru með allt öðrum formerkjum. Rekst- urinn er kominn í þrot vegna erfið- leika ferðaþjónustunnar þannig að sala virðist eini kosturinn. Fyrst þegar rætt var um að byggja nýtt hús fyrir skrifstofur sam- taka bænda í Reykjavík var talað um að bæta við gistihúsi fyrir bændur. Það þróaðist í að byggt var mynd- arlegt hús á Melunum sem einnig yrði nýtt sem hótel. Samkomulag tókst við Þorvald Guðmundsson í Síld og fiski um að stjórna rekstrinum og lagði hann til nafnið, Hótel Sögu. Hótelið var opnað um mitt ár 1962. Til að fjármagna bygginguna var lagt aukagjald í búnaðarmálasjóð, svokallað Bændahallargjald, og það dregið af innleggi fyrir allar afurðir bænda. Gjaldið var lagt á í tólf ár og var hálft prósent megnið af þeim tíma. Bændur greiddu því sannan- lega drjúgan hluta byggingarkostn- aðar og í staðinn stóð þeim til boða að kaupa hótelgistingu á hálfvirði yfir vetrarmánuðina. Hótelið var stækkað með við- byggingu sem tekin var í notkun síðla árs 1985. Síðar færði Hótel Saga út kvíarnar með yfirtöku á Hótel Ís- landi. Betra að eiga en selja Bændur eru ekki sérfræðingar í hótelrekstri en hafa löngum verið með gott fagfólk fyrir rekstrinum. Eigi að síður var eignamyndun í rekstrinum hæg. Margir bændur hafa lengi haft efasemdir um að rétt væri að Bænda- samtökin stæðu í áhætturekstri sem þessum. Málið var til umræðu á Bún- aðarþingi árið 2000 en ákveðið að selja ekki að sinni. Þá var talið að reksturinn hefði batnað í kjölfar sam- starfs við Radisson SAS. Sala hlutabréfum í Hótel Sögu og Hótel Íslandi var rædd á Bún- aðarþingi 2006 og boðað til sérstaks aukabúnaðarþings í kjölfarið um það mál sérstaklega. Það var haldið fyrir luktum dyrum og fyrir lá að taka af- stöðu til tilboðs sem fjárfestar höfðu gert og stjórn Bændasamtakanna leist svo vel að hún tók tilboðinu með fyrirvara um samþykki búnaðarþings. Var sú tillaga kolfelld af fulltrúum á þinginu. Reksturinn var erfiður eftir hrun, vegna mikilla skulda. Við fjárhagslega endurskipulagningu á árinu 2013 leysti Arion banki Hótel Ísland til sín og Bændasamtökin lögðu aukið hlutafé inn í hótelfélagið. Seint á árinu 2014 fengu Bænda- samtökin fyrirspurnir um möguleika á kaupum á Hótel Sögu. Í söluferli sem þá fór fram bárust fjögur skuldbind- andi tilboð. Stjórn Bændasamtakanna lokaði söluferlinu í byrjun árs 2015 með því að hafna öllum tilboðum á þeim forsendum að þau væru ekki nógu góð. Mat forystan stöðuna þann- ig að hagstæðara væri að halda áfram rekstri hótelsins. Á búnaðarþingi rúmum mánuði síðar ákvað meirihluti fulltrúa, eftir miklar umræður þar sem skoðanir voru skiptar, að veita stjórninni ekki heimild til að hefja nýtt söluferli. Niðurstaðan var að Bænda- samtökin ættu hótelið áfram og rækju það í að minnsta kosti þrjú ár. Ráðist var í kostnaðarsamar breytingar sem reyndust þungur baggi á rekstrinum þegar verr áraði. Samdráttur í ferðaþjónustunni eftir fall Wow air í byrjun árs 2019 og síðan nánast algert frost í kórónu- veirufaraldrinum á árinu 2020 urðu síðan til þess að enginn grundvöllur var fyrir rekstrinum og hótelinu lokað. Bændur vildu ekki selja Hótel Sögu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bændahöllin Hótel Saga hefur verið rekin við Hagatorg í sex tugi ára. Það var lengi fínasta hótel landsins og þar gistu oftast tignir gestir landsins. 16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ívikunni bárustþær fréttir aðGeorge Shultz, áður utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, væri látinn. Hann varð 100 ára. Charles Moore sem nýlega varð frægastur fyr- ir að skrifa glæsilega ævisögu Margaret Thatcher segir að andlát hins aldna höfðingja hefði mátt fá meiri umgjörð í fréttum og fjölmiðlum. Moore bendir á að enginn hefði gegnt hinu mikla embætti lengur en Shultz síðustu hálfa öld og eng- inn náð öðrum eins árangri og hann. Hann hafi tilheyrt hæsta klassa 5 til 6 vestrænna leið- toga, sem leiddir voru af Ro- nald Reagan, Margaret Thatc- her og Helmut Kohl. Sá hópur hafi ráðið mestu um að kalda stríðið var leitt í jörð, í senn með friðsömum og sigursælum hætti. Moore var þar eðlilega og réttilega að kalla áhrifamestu vestrænu leiðtogana til sög- unnar af lokum kalda stríðsins. En þótt hann komi annars stað- ar frá hefði mátt minnast Gor- basjeffs í leiðinni, síðasta leið- toga Sovétríkjanna, sem einn lifir úr hópnum, sem skipti mestu. Stundum er helst horft til Jeltsíns, sem stýrði endur- bornu Rússlandi fyrstur leið- toga, vegna galla hans. Hóf- leysis í áfengisnotkun og óvarfærni í gæslu ríkiseigna og því, hverjir kæmust yfir þær í því mikla umróti sem varð. En Jeltsín var einbeittur og hug- rakkur maður hvað sem fyrr- nefndum göllum leið.Hann lagði alræði kommúnismans af með einu penna- striki og tók svo ógleymanlega sveiflu og stökk með tákrænum hætti upp á skrið- dreka í miðborg Moskvu þegar við lá að umbylt- ing hans yrði gagnbyltingu dánarbús kommúnismans að bráð. Íslendingum er Shultz minn- isstæður vegna funda leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna í Höfða í október 1986. Hann var lykilmaður í undir- búningi þess fundar og þeirra sem luku verkinu í kjölfarið. Svo önnum kafinn sem utanrík- isráðherrann var á Reykjavík- urfundinum þá gaf hann sér tíma til að festa sér nokkur vel valin málverk gömlu íslensku meistaranna. Seinast sáu margir hann á tí- ræðisaldri þegar hann mætti sem gestur utanríkismála- nefndar öldungadeildar banda- ríkjaþings ásamt Henry Kiss- inger, en sá hafði komið hingað, eins og Shultz síðar, með for- seta sínum, Richard Nixon, sem átti fund á Kjarvalsstöðum með forseta Frakklands. Þar sem þeir sátu þarna tveir gömlu ráðherrarnir, sem gestir, rudd- ust vinstrisinnaðir æsingamenn inn í salinn með öskrum. Þeir lömdu með handjárnum í átt til Kissingers. Enginn vörður hreyfði legg eða lið. Það var ekki fyrr en Shultz á tíræðis- aldri stökk á fætur og stuggaði við óaldarlýðnum, sem formað- ur nefndarinnar, John McCain, sagði á þessa leið: Komið ykkur burt „you scumbags“ eða ég læt henda ykkur öfugum út. George Shultz verð- ur öllum þeim sem kynntust honum eft- irminnilegur} George Shultz Atvinnuleysimælist hátt í landinu um þessar mundir. Í janúar var atvinnuleysi á landinu öllu 11,6% og á Suðurnesjum, þar sem hrun í samgöngum og ferða- þjónustu hefur haft hvað mest áhrif, er það komið í 26%. Á Íslandi hefur ávallt verið lögð áhersla á að halda atvinnu- leysi í lágmarki og hafa Íslend- ingar skorið sig úr bæði hvað varðar lítið og jafnvel hverfandi atvinnuleysi og mikla atvinnu- þátttöku. Kórónuveiran hefur haft þungbærar afleiðingar fyrir marga og sú von sem kviknaði um að samstarf við lyfjafyr- irtækið Pfizer um að bólusetja þorra landsmanna í rannsókn- arskyni varð að engu í vikunni. Meginástæðan fyrir því að ekkert varð af samstarfinu er sú að innanlands eru nánast engin smit. Undanfarna viku hafa að- eins greinst þrjú smit í landinu og enginn liggur á sjúkrahúsi. Þessa góðu stöðu verður að virkja til þess að koma at- vinnulífinu af stað eins og hægt er. Ef áfram á að framfylgja ströngu eftirliti á landamærunum hlýtur að vera óhætt að aflétta takmörkunum að mestu leyti innanlands. At- vinnulífið vantar tilfinnanlega súrefni. Sum fyrirtæki eru kom- in að þolmörkum svo við blasa uppsagnir og jafnvel þrot. Þau mega ekki við því að vera mikið lengur í hægagangi eða lama- sessi. Atvinnuleysi er mikill vágest- ur og það væri háskaleg þróun ef það yrði hér viðvarandi. Allt kapp verður að leggja á að minnka atvinnuleysi á ný og þar er lykilatriði að liðka fyrir at- vinnulífinu eins og hægt er á þessum pestartímum. Frábær árangur hefur náðst í að kveða niður kórónuveiruna á Íslandi og nú þarf að nýta hann. Kórónuveiran er nánast horfin og það ber að nýta} Uggvænlegt atvinnuleysi A fstaða stjórnmálamanna til fjár- mála ríkisins ætti að vera kjós- endum umhugsunarefni. Mín upplifun er að þeir skiptist í gróf- um dráttum í þrennt: Skattalækkarinn talar sífellt um að lækka skatta (kallar þá stundum álögur, sem er ágætt út frá áróðursgildi). Ég finn vissa sam- kennd með honum, því að ég er þeirrar skoð- unar að samneyslu eigi að stilla í hóf. En það vantar alltaf seinni hlutann í jöfnuna: Hvaða útgjöld á að minnka á móti? Skattalækkanir eru til vinsælda fallnar, en aðhald er orð sem vekur ótta stórs hluta stjórnmálamanna. Spreðarinn hefur eina lausn á öllum vanda: Setjum meiri peninga í málaflokkinn. Ég hef ekki tölu á öllum þeim ræðum þar sem stjórn- málamenn hafa barið sér á brjóst og hneyksl- ast á stjórnvöldum fyrir að setja ekki meiri peninga til: a) Menntamála. b) Almannatrygginga. c) Samgöngumála. d) Einhverra annarra mála sem eru þeim hugleikin núna. Stundum þarf auðvitað meiri peninga til einhvers, en spreðarinn talar ekki um verkefnin heldur málaflokkinn. Rökrétt væri að skilgreina vandann, hvernig mætti leysa hann, hvað lausnin kostaði og hvernig afla ætti fjár til verksins. En það er miklu einfaldara að segjast vilja meiri peninga, þá þarf ekki að setja sig neitt inn í málin. Farþeginn hefur svo engan sérstakan áhuga á fjár- málum og lætur aðra um þau. Þegar ég var fjármálaráðherra lagði ég fram fjár- málastefnu þar sem yfirlýst markmið var að draga úr út- gjöldum hins opinbera um tæplega 100 milljarða á fimm árum. Slík stefna hafði aldrei verið lögð fram áður og vinstri stjórnin sem tók við felldi hana úr gildi. Ýmsum stjórnmálamönnum fannst ég ráð- ast á uppáhaldsbáknið sitt, en sérfræðingar OECD töldu að ég væri gáleysislegur. Þeir sögðu að útgjöldin ættu að vaxa í hlutfalli við fólksfjölda, ekki landsframleiðslu. Ég sagði þeim að Viðreisn stæði fyrir held- ur óspennandi pólitík, m.a. stöðugleika og niðurgreiðslu skulda. Það yrði örugglega hvorki skrifuð bók né gerð kvikmynd um stöðugleika. Með honum öfluðu stjórn- málamenn sér ekki vinsælda. Þeir spurðu þá hvort ég myndi ekki eftir Andrési Velasco Brañes, fjármálaráðherra í Síle. Ekki gerði ég það, en Andrés þessi hafði ákveðið að byggja upp varúðarsjóð þegar koparverð hækkaði árið 2006. Hann neitaði að eyða skjótfengnum gróða í skyndiumbætur og varð óvinsæl- asti stjórnmálamaður landsins. En þegar flóðbylgja skall á og jarðskjálfti skók landið, kom Andrés með sinn sjóð sem var orðinn 30% af VLF. Hann varð þegar í stað hvers manns hugljúfi og atkvæðasegull. Ég sagðist þá bara verða að bíða rólegur og vonast eft- ir náttúruhamförum árið 2020, á síðasta ári stjórn- arinnar. Svo fór að ríkisstjórnin entist ekki svo lengi og ég hvarf af sviðinu. Svo kom heimsfaraldur 2020 og þá var gott að skulda lítið. Benedikt Jóhannesson Pistill Meiri útgjöld, minni skatta Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Staðan í söluferli Hótels Sögu er óbreytt. Í haust bárust tilboð frá tveimur innlendum fjár- festum en Bændasamtökin töldu þau ekki nógu hagstæð. Umræður eru enn í gangi. Er- lendar hótelkeðjur hafa einnig sýnt áhuga sem og tvö fyrir- tæki á heilbrigðissviði, Heilsu- vernd og Eir, og Háskóli Ís- lands. Gunnar Þorgeirsson, formað- ur Bændasamtakanna, segir að Háskóli Íslands og fyrirtækin sem sýnt hafi áhuga á rekstri hjúkrunarheimilis hafi ekki gert tilboð og því sé ekki vitað hvað liggi að baki áhuga þeirra. Hótel Saga er í jaðri háskóla- svæðisins, rétt við Háskólabíó. Þar eru ágæt bílastæði og heimild fyrir viðbyggingu. Myndi það vafalaust henta Há- skóla Íslands að eignast húsið. Á það hefur verið bent, til dæmis í greinum sem Björn Þ. Guðmundsson lögfræði- prófessor birti fyrir allmörgum árum. Taldi hann nauðsynlegt fyrir HÍ að eignast húsið til eðlilegs vaxtar háskólahverfis. Háskóli ekki gert tilboð STAÐAN Á SÖLUNNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.