Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 21

Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 ✝ Anna Lilja Þor-valdsdóttir fæddist í Héðins- firði 3. september 1931. Hún andaðist á Heilbrigðisstofn- un Suðurnesja 3. febrúar 2021. For- eldar hennar voru Ólína Einarsdóttir, f. 18.12. 1904, d. 22.11. 1976, og Þor- valdur Sigurðsson, f. 27.04. 1899, d. 17.06. 1981. Systkini Önnu Lilju voru Einar Ásgrímur, f. 29.06. 1924, d. 11.05. 1952, Halldóra María, f. 20.10. 1925, d. 23.07. 1982, Sigurður, f. 21.03. 1927, d. 12.05. 1927, Sig- urður, f. 14.07. 1928, d. 08.06. 2001, Elín Fanney, f. 10.11. 1929, d. 26.12. 2017, Kristinn Ásgrím- ur, f. 17.03. 1933, d. 15.09. 1955, Haraldur Freyr, f. 15.02. 1936, d. 01.08. 1999, og eftirlifandi systir Helga Ingibjörg, f. 11.02. 1941. Anna Lilja giftist Jakobi Jóni Kristjáni Snælaugssyni, f. 03.07. 1928, d. 27.04. 2003, frá Árbakka á Árskógsströnd 29.12. 1960. Foreldrar Jakobs voru Snælaug- ur Baldvin Stefánsson, f. 18.12. 2009, 2) Snjólaug Kristín Jak- obsdóttir, f. 15.8. 1964, kjör- dóttir, foreldrar: Alma Birg- isdóttir, f. 26.05. 1939, d. 28.12 2018, og Eðvarð Vilmundarson, f. 02.10. 1932, d. 30.11. 2019. Maki Valdimar Örn Valsson, f. 20.07. 1961, börn a) Snædís Anna, f. 23.07. 1991, maki Styrm- ir Másson, f. 20.02. 1992, b) Val- dís Lind, f. 24.11. 1999, maki Ísak Rúnar Ólafsson, f. 07.11. 1999, c) Margrét Birna, f. 09.04. 1985, maki Páll Axel Vilbergsson, f. 04.01. 1978, börn cc) Gísli Matt- hías, f. 25.10. 2007, Ásdís Vala, f. 19.12. 2012, Páll Valdimar, f. 04.12. 2014, og Valur Ingi, f. 01.12. 2020. Anna Lilja starfaði við fisk- vinnslu hjá Brynjólfi frá 1952 til 1992 með smáhléi þegar dæt- urnar voru ungar. Árið 1992 hóf hún störf í matvöruversluninni Miðbæ sem systurnar ráku ásamt mökum sínum. Þar starfaði hún þar til hún hætti störfum árið 1999. Anna Lilja var einn af stofnendum Systrafélags Innri- Njarðvíkur, sem meðal annars byggði Safnaðarheimili Innri- Njarðvíkurkirkju og leikskólann Holt. Útför Önnu Lilju fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju 12. febr- úar 2021 og hefst athöfnin kl. 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera við- staddir athöfnina. 1881, d. 18.02. 1960, og Kristín Ragn- heiður Ágústs- dóttir, f. 18.01. 1892, d. 17.12. 1935. Dætur þeirra eru 1) Ólína Margrét Har- aldsdóttir fóst- urdóttir, f. 03.10. 1958, foreldrar: Alma Birgisdóttir, f. 26.05. 1939, d. 28.12. 2018, og Har- aldur Freyr Þorvaldsson, f. 15.2. 1936, d. 01.08. 1999. Maki Her- mann Borgar Guðjónsson, f. 03.08. 1958. Börn a) Jakob Haf- steinn, f. 10.03. 1976, maki Brynja Huld Hannesdóttir, f. 05.03. 1978. Börn og stjúpbörn aa) Ólína Erna, f. 22.06. 1998, Hermann Borgar, f. 14.02. 2006, María Bára, f. 05.04. 1994, Krist- ján Þórarinn, f. 26.04. 1999, Brynjar Þór, f. 03.11. 2003, Sal- var Gauti, f. 20.02. 2006, og Snorri Freyr, f. 17.09. 2010, b) Anna Lilja, f. 21.11. 1979, maki Vilhjálmur Sigurðsson, f. 28.05. 1977, börn bb) Emilía Rún, f. 28.2. 1997, Aníta Sigga, f. 22.06. 2005, og Margrét Rós, f. 25.02. Elsku fallega amma. Það er sárt að kveðja þig elsku amma mín. Dásamleg kona með hjarta úr gulli sem alltaf gafst þér tíma í að gleðja og elska þá sem í kring- um þig voru. Við vorum svo hepp- in að hafa þig alltaf í nágrenninu, annaðhvort á Kirkjubraut 13 eða Stekkjargötu 13. Það var alltaf svo gott að koma til þín. Alltaf hreint, allt í röð og reglu, nóg að borða og heimilislyktin var alltaf svo fersk og góð. Ég á margar minningar frá Kirkjubrautinni, sem var mitt annað heimili. Öll laugardagskvöldin í bláa sófan- um þar sem við horfðum á Spaug- stofuna saman og fengum okkur ís með jarðarberjum og bláberj- um. Við barnabörnin og lang- ömmubörnin fengum alltaf að gera allt hjá ykkur. Ég fékk að færa allt til í stofunni og setti upp stórar sýningar þar sem ég bjó til dans og söng hástöfum. Alltaf voruð þið afi tilbúin til að vera áhorfendur, sama hversu slæmar sýningarnar voru. Ég minnist þess líka þegar við tókum að okk- ur hvíta köttinn og nú þegar ég skrifa þetta sé ég þig fyrir mér hlæja að þessu með mér. Ég kom með kött heim til ykkar sem vantaði heimili og auðvitað var hann velkominn með mér. Ég gæti talið upp margar góðar minningar frá Kirkjubrautinni sem eru mér svo kærar. Stekkjargatan er mér líka kær. Þú lést mig reglulega vita að það skipti ekki máli á hvaða tíma ég kæmi, ég væri alltaf velkomin. Þegar ég var orðin unglingur og þótti ýmis vandamál óyfirstígan- leg, þó svo þau væru nú frekar ómerkileg, gat ég alltaf komið til þín. Ég vissi að um leið og ég væri mætt til þín yrði allt í lagi. Mér þótti svo vænt um að vera hjá þér og svo gott að spjalla við þig. Allar sögurnar sem þú sagðir mér frá því þú varst ung og hvernig tímarnir voru þá. Allt um Siglufjörð og Héðinsfjörð. Hvernig hinir og þessi væru skyldir okkur og hvað væri að frétta af fólkinu okkar. Við spáð- um mikið í drauma og hvað og hver væri í kringum okkur. Einn- ig töluðum við reglulega um þeg- ar þú skautaðir við tjörnina í Innri-Njarðvík og skautaferðina okkar saman í Skautahöllina þar sem við svifum yfir svellið. Þú varst alltaf svo lausnamið- uð. Ég veit ekki hversu oft ég kom til þín á síðustu stundu með dansbúninga sem ég þurfti að sauma. Ég vissi varla hvað nál og tvinni var en aldrei var það neitt vandamál hjá þér. Hvort sem það var einn búningur eða fjörutíu. Þú sagðir alltaf bara: „Snædís mín, við reddum þessu og við hjálpumst að.“ Bláu pilsin voru þó okkar uppháhalds, nú sé ég þig aftur fyrir mér hlæja. Þú varst klár saumakona og ég veit ekki hversu margar buxur þú hefur stytt fyrir alla fjölskyld- una, aldrei neitt vandamál. Eftir að ég flutti til Danmerkur var erfitt að geta ekki heimsótt þig eins oft en yndislegt að geta spjallað við í síma. Ég mun sakna þess að geta hringt í þig og heyrt í þér hljóðið. Þína ást, hlýju og kærleika sem þú gafst frá þér verð ég æv- inlega þakklát fyrir. Þú kenndir mér svo margt. Mér þykir endalaust vænt um þig, elsku amma mín, ég mun ávallt sakna þín. Snædís Anna Valdimarsdóttir. Elsku amma mín, hvar á ég eiginlega að byrja? Þú varst ynd- isleg kona og þótti vænt um alla. Þegar ég kom í heimsókn var allt- af tekið svo vel á móti mér að ég vildi ekki fara aftur heim. Þú kenndir mér að prjóna á bangs- ana mína svo þeim yrði nú ekki kalt. Þú passaðir vel upp á dótið mitt og að enginn kæmist í það. Sérstaklega skvísubílinn minn. Engar áhyggjur, ég mun setja hann upp á hillu eins og þú baðst mig að gera. Ég verð þér ævin- lega þakklát fyrir allt sem þú hef- ur kennt mér. Ég elska þig amma mín og mun ávallt sakna þín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Þín litla Lind. Elsku amma. Alltaf er jafn erf- itt að kveðja þá sem maður elskar og hafa snert líf manns á jafn margvíslegan hátt og þú gerðir. Við erum svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Það var svo gott að koma í heimsókn til þín í spjall og hlusta á allar sögurnar sem þú hafðir að segja okkur. Þú varst kona með hjarta úr gulli og veit ég að þú snertir ekki bara okkar líf á margan hátt, heldur allra þeirra sem fengu að kynnast þér á einn eða annan hátt. Elsku amma, takk fyrir allan tímann sem þú hafðir fyrir okkur, fyrir allan sannleikan sem þú sýndir okkur, fyrir allt traustið sem þú gafst okkur, fyrir alla gleðina sem þú færðir okkur, fyr- ir allan styrkinn sem þú sýndir okkur, fyrir öll hrósin sem þú gafst okkur, fyrir alla samúðina sem þú sýndir okkur, fyrir alla umhyggjuna sem þú gafst okkur, fyrir alla ástina sem þú gafst okk- ur. Takk fyrir okkur. Guð geymi þig amma. Þín, María Bára, Ólína Erna, Hermann Borgar, Emilía Rún, Aníta Sigga, Margrét Rós. Elsku amma. Það fyrsta sem kemur upp í hugann er ég hugsa um hana ömmu mína er þakklæti. Mikið er ég þakklát fyrir að hafa haft hana með mér og mínum í öll þessi ár þó svo að við hefðum al- veg þegið nokkur ár í viðbót. Amma var kjarnakona sem kvartaði sjaldan, hún sagðist nú alltaf ætla að ná 100 árunum en var nú farin að draga það til baka síðustu mánuðina þegar heilsan fór aðeins að gefa sig. Amma var mikil fjölskyldumanneskja og fannst fátt skemmtilegra en að fá börn og barnabörn í heimsókn og að sjálfsögðu var oftast hafist handa við að baka lummur, pönnukökur eða vöfflur fyrir mannskapinn. Amma passaði líka ávallt upp á að alltaf væri til nóg af dóti, spilum og púsli fyrir börn- in svo engum ætti nú að leiðast og eyddi hún óteljandi klukkutímum í að kenna stelpunum mínum að púsla ásamt því spila Olsen Olsen og Veiðimann með þeim. Elsku amma mín þín verður sárt saknað takk fyrir allar samverustundirn- ar, vinskapinn, þolinmæðina, saumaskapinn, ástina og hlýjuna sem þú gafst okkur öllum. Þín nafna, Anna Lilja Hermannsdóttir og fjölskylda. Elsku amma, nú er komið að kveðjustund, stund sem maður er búinn að undirbúa sig lengi undir en vonaðist samt til að kæmi aldr- ei að. Þegar maður hugsar til baka fyllist maður þakklæti fyrir allan tímann sem við áttum saman. Að hafa alist upp nánast í næsta húsi við ykkur afa, fyrir rúntana og ferðirnar með ykkur og Önnu systur, hafa starfað með þér, allra samverustundanna á 13 og hafa alltaf getað leitað til þín þrátt fyrir að hafa tekið eitt til tvö feilspor á leiðinni. Alltaf voru dyrnar opnar og ást og umhyggja allsráðandi þeg- ar kom að börnum, barnabörnum og mökum og var engum mis- munað þar. Aldrei skorti að amma gæti boðið upp á eitthvað gott með kaffinu það skyldi eng- inn fara svangur frá henni og ekki var verra ef ein til tvær sög- ur af Héðinsfirði, Siglufirði og Brynjólfi fylgdu með. Þú varst alltaf mjög hjátrúar- full og næm og fylgdu tölurnar 13 og 3 þér alla tíð ásamt því að eng- inn mátti kaupa neitt stórt á mánudögum. Mun alltaf minnast þess að fyrir sirka fimm árum var mér tilkynnt að ég þyrfti að fara í aðgerð á annarri ef ekki báðum öxlum en þú tilkynntir mér að ég skyldi hinkra með það af því þú varst búin að hringja nokkur sím- töl sem myndu bjarga þessu. Ég þorði ekki annað en að hlýða og enn eru axlinar betri af einhverri ástæðu og án aðgerða, meiri skýringar hef ég ekki. Án þess að halla á neinn hef ég alltaf sagt að stór hluti þess góða sem býr í okkar fjölskyldu sé kominn frá ykkur afa Kobba þar sem ykkar gildi byggðust á ást, manngæsku, ósérhlífni og dugn- aði sem smitaði út frá sér til okk- ar allra. Þín verður sárt saknað, það stóra skarð sem þú skilur eftir í okkar litlu fjölskyldu og hjarta okkar verður aldrei fyllt nema með hugsunum og þakklæti um allt það góða sem við áttum með þér og ykkur. Veit að afi bíður þín með opna arma og þið munuð passa upp á okkur öll um ókomna tíð og vísa okkur réttan veg. Þinn Jakob (Kobbi). Nú er hún Anna Lilja, eða eins og við sögðum svo oft Anna hans Kobba, lögð af stað í sína hinstu för. Það var alltaf gott, gefandi og skemmtilegt að heimsækja þau hjón á Kirkjubrautina. Það var einnig notalegt að koma í heim- sókn á Stekkjargötu 13 og sjá hvað Anna hafði búið sér fallegt og notalegt heimili þar. Á báðum heimilunum var hlýleiki og gest- risni í fyrirrúmi. Síðast þegar ég heimsótti Önnu vorum við búnar að ákveða daginn sem við Daði kæmum. Svo illa vildi til að hún fékk slæma magapest um nóttina fyrir komu okkar en ekki datt henni í hug að hringja og biðja okkur að koma seinna, það var búið að ákveða þetta og það átti að standa. Hún lét magapest ekki stoppa sig, gestrisin skyldi hún vera og við fá okkar næringu. Hún lét sig ekki muna um að baka vöfflur, þeyta rjóma, leggja á borð, laga kaffi og senda tengdasoninn út í búð að kaupa brauð og álegg. Mér finnst þetta lýsa henni vel eins og ég kynntist henni, „aldrei gefast upp“. Þegar ég var krakki var mikil tilhlökkun á sumrin þegar von var á Kobba frænda og Önnu. Einhver ævintýraljómi yfir þessu og alltaf líf og fjör. Þau vildu ekki láta hafa fyrir sér heldur reistu tjald fyrir sunnan Árbakka, æskuheimili Kobba. Í tjaldinu eldaði Anna mat handa þeim á prímusi. Við krakkarnir fylgdumst með full aðdáunar yfir þessu apparati. Það sem Anna var kát með að ætti að gera göng frá Siglufirði yfir í Héðinsfjörð, vonaði bara að það yrði drifið í því svo hún gæti nú alla vega komist einu sinni í Héðinsfjörðinn sinn og séð heim að Vatnsenda og það tókst og oft- ar en einu sinni. Á seinni árum töluðum við Anna stundum saman í síma, nú verða þau símtöl ekki fleiri, en þau gátu orðið býsna löng stund- um, því það var um svo margt að spjalla og hlæja í leiðinni. Anna mín, takk fyrir öll símtölin og öll okkar kynni. Kæru systur, Ólína, Snjólaug og ykkar fjölskyldur, við Daði sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ráðhildur. Anna Lilja Þorvaldsdóttir ✝ Skæringur Eyj-ólfsson fæddist á Hrútafelli, Aust- ur-Eyjafjöllum 26. janúar 1939. Hann lést á MND-deild Droplaugarstaða 1. febrúar 2021. Hann var sonur Eyjólfs Þorsteinssonar, f. 25.7 1892, d. 17.9 1973, bónda á Hrútafelli og konu hans Helgu Ólafsdóttur, f. 11.3. 1901, d. 8.11. 1977. Systkini hans eru: Trausti, samfeðra, lát- inn; Sigríður, látin; Guðbjörg Jónína; Rútur, látinn; Ólafur; Anna Sigríður; Valgerður; Guðný Jóhanna, látin; Þorsteinn og Magnús Borgar. Skæringur giftist 6. mars 1966 eftirlifandi eiginkonu sinni, Ósk Sólveigu Jóhanns- dóttur, f. 30. október 1946. Börn þeirra eru: 1) Arnheiður, f. 1966, maki Ómar Stefánsson. Börn þeirra eru: Ósk Hind, f. 1998, Ásta Hind, f. 2001, og Óm- ar Bessi, f. 2004. 2) Ásta, sam- býlismaður Gunnar Guðmunds- son, dóttir þeirra er Arnheiður Birgitta, f. 2016. Skæringur ólst upp á Hrútafelli. Hann flutti til Reykjavíkur þar sem hann fór í Iðn- skólann og lauk námi sem bifvéla- virki árið 1964. Hann starfaði sem bifvélavirki, lengst af hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum. Síðustu starfsárin starfaði hann í vara- hlutaverslun þeirra. Skæringur hafði sterk tengsl við sveitina sína, og fór ár hvert til að vinna við viðhald Selja- vallalaugar þegar hann hafði heilsu til. Skæringur ferðaðist mikið innanlands og utan bæði með Ósk, börnum og barnabörn- um. Kanaríeyjar voru í miklu uppáhaldi hjá honum og ferðað- ist hann gjarnan þangað mörg- um sinnum á ári. Útför Skærings fer fram frá Hjallakirkju í dag, 12. febrúar 2021, klukkan 13. Auð né heilsu ræður engi maður, þótt honum gangi greitt; margan það sækir, er minnst um varir, engi ræður sættum sjálfur. (Úr Sólarljóðum) Tengdapabbi er fallinn frá. Satt best að segja hélt ég að hann yrði eilífur eða að minnsta kosti hundrað ára, því hann var heilsuhraustur og hélt sér vel. En allt í einu læðist þessi erfiði sjúkdómur að og tekur yfir. Það tók á að sjá hann lokast inni með tal, en fámáll var hann fyrir. Engu að síður gat hann fylgst með og hélt áfram að horfa á knattspyrnu í sjónvarpi sem hann hafði alla tíð dálæti á. Hann var maður sem ekki bar tilfinningar sínar á torg, en þegar það kom að börnum okk- ar Öddu þá kom ástin upp á yf- irborðið og var sýnd í verki. Eljan og dugnaðurinn við að sinna barnabörnunum var slík að stundum öfundaði ég hann af þessum krafti. Sérstaklega var hann duglegur og natinn við börnin í árlegum ferðum fjölskyldunnar í 20 ár til Kanaríeyja sem voru hans sælustaður. Þar voru endalaus- ar gönguferðir sem hann var tilbúinn að fara í og ekki síður var allt látið eftir börnunum og stoppað á leiksvæðum þar sem ýtt var á eftir rólum endalaust, fylgst með þeim og passað upp á þau. Skæringur var sveitamaður í húð og hár og þó að ég reyndi að segja honum að Skagafjörð- urinn væri fegurst sveita þá varð engu tauti við hann komið þar sem undir Eyjaföllum var allt best og fegurst. Eins og sönnum sveitamanni sæmir fylgdist hann með fréttum úr sveitinni sinni. Þegar við dvöldum á Kan- aríeyjum vissi hann alltaf ef einhver undan Eyjafjöllum var staddur á eyjunni og jafnframt gat hann upplýst mig um alla þá framsóknarmenn sem á eyj- unni voru í það og það skiptið. En það voru ekki bara barnabörnin sem voru dekruð. Hann dekraði dætur sínar og vissulega draup þetta á mig og var það ósjaldan sem hann var tilbúinn til að bjarga þeim bíl- druslum sem ég átti í upphafi sambands okkar Öddu. Þegar ég færði mig af göml- um Skóda yfir á eldri Lödu Sport þá loksins var ég kominn á hans heimavöll. Þegar við eignuðumst svo nýrri bíla og fórum í heimsókn til þeirra Óskar þá tók hann sig til og þreif bílinn hátt og lágt. Sér- staklega var hann duglegur að hjálpa okkur þegar við eign- uðumst okkar fyrsta húsnæði. Þá var hann boðinn og búinn að hjálpa okkur við að lagfæra það sem þurfti að laga og taka allt í gegn og fyrir það verð ég að ei- lífu þakklátur. Síðast en ekki síst hafði hann gaman af stjórnmálum og var óhræddur við að standa á sín- um skoðunum og við vorum stundum ekki alveg sammála þar. Magnað eintak af manni, gamli skólinn eins og hann ger- ist bestur. Fámáll, duglegur og yfirvegaður og fátt sem raskaði ró hans. Virðing mín fyrir hon- um er endalaus. Skæringur er vissulega fallinn frá en minn- ingin lifir um ókomna tíð. Ómar Stefánsson. Skæringur mágur minn er látinn eftir þriggja ára barráttu við andstyggilegan sjúkdóm, MND. Þessi hrausti maður sem aldrei var misdægurt og lifði eins hollu lífi og hægt var. Skæringur var góður maður og söknuðurinn við andlát hans er mikill. Hann var alltaf til staðar til að rétta hjálparhönd og sú að- stoð var mikil og góð. Hann var hljóðlátur með fallegt bros sem náði til augnanna. Skæringur elskaði lífið og vildi lifa. Hann bar sig eins og hetja í vonlausri baráttu við sjúkdóminn og það er þyngra en tárum taki að hugsa til þess hvað hann mátti þola. Hann elskaði fótbolta sem stytti hon- um stundir nánast til síðasta dags. Við hlið hans sat Ósk systir og barðist með honum til hins síðasta. Hennar missir og dætranna er mikill. Við hjónin kveðjum Skæring með þessu fallega kvæði: Þeir segja mig látinn, ég lifi samt og í ljósinu fæ ég að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá hjarta mínu berst falleg rós, því lífið ég þurfti að kveðja. Í sorg og í gleði ég senda mun ljós, sem ykkur er ætlað að gleðja. (Höf. ókunnur) Elsku Ósk, Adda og Ásta, megið þið finna styrk og leita huggunar í hugrekki og æðru- leysi Skærings. Minning hans mun lifa um ókomna tíð. Ásta og Bjarni. Skæringur Eyjólfsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.