Morgunblaðið - 12.02.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 12.02.2021, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 Jens Andrésson kvæmdastjóra og hófst þar með aftur samstarf okkar Jens sem náði óslitið til ársins 2006 eða í 16 ár. Ein af þeim breytingum sem stjórn SFR gerði, sem var kosin 1990, var að leiða í lög breytingar á kjörgengi formanna og stjórn- armanna. Því tók Jens við sem formaður SFR af Sigríði árið 1996 og gegndi því starfi til 2006 þegar ég tók við sem formaður. Tími Jens var því liðinn á vett- vangi félagsins og hélt hann til annarra starfa. Þau sextán ár sem við Jens Andrésson störfuðum saman, ekki síst eftir 1996 þegar hann gegndi formannsembættinu, voru tími framþróunar. Miklar breytingar urðu í starfi félagsins í takt við þjóðfélagið almennt. Ein af stóru breytingunum sem félagið var í forsvari fyrir var að semja um að taka upp stofnana- samninga hjá ríkisstarfsmönn- um, sem var algjör bylting í launamyndunarkerfi ríkisstarfs- manna. Þessi vinna var ekki síst á herðum Jens og var hann einn af hugmyndasmiðunum hvað varðaði þetta fyrirkomulag. Eins og gengur voru ekki allir sam- mála um að fara þessa leið, en Jens, eins og svo oft áður, var fylginn sér og lét engan slá sig út af laginu. Aðalsmerki Jens Andréssonar var hversu þolgóður samninga- maður hann var. Hægt og rólega, eins og dropinn holar steininn, náði Jens oftar en ekki sínum markmiðum fram. Við hjá Sameyki stéttarfélagi í almannaþjónustu viljum þakka samfylgdina og vottum fjöl- skyldu Jens okkar dýpstu samúð um leið og við kveðjum góðan samstarfsmann. Árni St. Jónsson, formaður Sameykis. Kynni okkar Jens hófust í Vinnueftirlitinu þar sem við störfuðum saman um átta ára skeið. Við sinntum þar eftirliti og ýmsu öðru sem gera þurfti, s.s. sprenginámskeiðum, rannsókn- um á vinnuslysum o.fl. Á þessum árum voru fyrstu tölvurnar teknar í notkun og þótt þær væru frumstæðar var vél- fræðingurinn Jens ótrúlega lunk- inn við að tileinka sér tæknina og nýta möguleika hennar til hins ýtrasta. Jens var góður félagi og sam- skiptin sem við áttum á vinnu- stað leiddu til þess að með tím- anum myndaðist góð vinátta með okkur og okkar fjölskyldum. Það er margs að minnast og ýmislegt skemmtilegt höfum við aðhafst. Þar má nefna samveru af mörgu tagi, s.s. ferðir, veiði- túra og heimsóknir af ýmsu til- efni. Þá má ekki gleyma glæsi- legum matarboðum sem meistarakokkurinn Kristín átti veg og vanda af. Eftir slíkar veislur kom fyrir að við Jens fengjum okkur koníakstár og leystum heimsgátuna fljótt og auðveldlega. Við vorum sammála í meginatriðum en körpuðum um það sem út af stóð. Þegar færi gáfust gerðum við líka grín hvor að öðrum og höfðum lúmskt gaman af. Mér er minnisstætt þegar við hjónin og tveir synir okkar dvöldumst með þeim Kristínu og dóttur þeirra í nokkra daga í Vík. Einn daginn ákváðum við Jens að fara með krakkana upp á Reynisfjall. Við vorum bjartsýnir þótt dumbungsveður væri og töldum að brátt myndi rofa til. Okkar biði stórbrotið útsýni af fjallinu til allra átta. Það var heilmikið basl að kom- ast upp. Anna var sett í barna- kerru og síðan lögðumst við á eitt við að drösla kerrunni áfram og að endingu náðum við upp fyrir brúnina. Þá var skollin á þoka og skyggnið eftir því. Við ákváðum samt að ganga eftir vegarslóðanum í átt að lór- anstöðinni og skoða hana. Við vorum sumarlega til fara og alls ekki búnir til fjallaferða. Að vanda var Jens var sallarólegur og kveikti sér í vindli sem var þó ekki venja hans. Er við höfðum gengið nokkurn spöl mættum við hópi franskra ferðamanna. Ég hef oft velt því fyrir mér hvað þeir hugsuðu þegar þeir mættu Jens prúðbúnum í blank- skóm, spókandi sig í svartaþoku uppi á Reynisfjalli. Hann púandi smávindil og með lítið barn í kerru en þeir klæddir eins og þeir væru að ganga á Everest. En hugsanir þeirra voru ekki okkar höfuðverkur. Við héldum ótrauðir áfram fjallið á enda, skoðuðum stöðv- arhúsið og sáum grilla í Reyn- isdrangana. Ferðin fékk farsæl- an endi og allir voru glaðir. Mér tókst að lokka Jens í Akó- ges og leiddi það til þess að sam- vera okkar varð meiri en ella. Hann naut sín vel í félaginu, var virtur og vinsæll og leysti öll þau verk sem honum voru falin með miklum sóma. Við lentum oft saman í nefndum og einu sinni í stjórn. Það var gaman að vinna með honum í félagsmálunum því hann var rólegur og yfirvegaður en jafnframt ákveðinn og tillögu- góður. Það verður því skarð fyrir skildi þegar fundir hefjast á ný að loknu kófinu og Jens horfinn á braut. Allt hefur sinn tíma og nú er komið að kveðjustund, miklu fyrr en vænta mátti. Við Sólrún þökk- um góðum vini samfylgdina og vottum Kristínu og öllum þeirra nánustu innilega samúð okkar. Gylfi Már Guðjónsson. Kveðja frá AKÓGES Kær félagi og vinur, Jens Andrésson, er látinn. Hann lést 27. janúar síðastliðinn. Hann hafði verið félagi í Akóges í Reykjavík í um tvo áratugi. Jens var félagslyndur, traust- ur og góður félagi, ávallt reiðubú- inn og lagði sig fram í öllu sem hann tók að sér fyrir félagið, enda gegnt mörgum trúnaðar- störfum bæði í nefndum og stjórn. Við félagar söknum góðs drengs sem nú er horfinn frá okkur og þökkum fyrir ánægju- leg kynni. Skarð hans verður vandfyllt. Hans góðu eiginkonu og að- standendum öllum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Fyrir hönd Akóges í Reykja- vík, Einar Pálmi Jóhannsson. Það er mikil eftirsjá að Jens Andréssyni; óraunverulegt að hann sé horfinn á braut. Að vísu verður hann seint horfinn úr minningu okkar, þar mun hann alltaf eiga vísan stað. En í huga okkar, vina Jens Andréssonar, þá var hann þeirrar gerðar að hann hlyti alltaf að verða til stað- ar. Líkt og klettur sem ekki verð- ur auðveldlega færður úr stað. Í endurminningu minni kemur Jens fyrst til sögunnar sem einn af forystumönnum Iðnnemasam- bandsins. Það var löngum rót- tækt mjög, tók af mikilli einurð málstað þeirra sem hallaði á heima og heiman. Sjóndeildarhringur íslenskra iðnnema var nefnilega lengi víður og létu þeir sig ekki einvörðungu varða hlutskipti landa sinna held- ur einnig afskipti heimsvalda- sinna af fátækum þjóðum í Mið- Ameríku og aðþrengdum fórnar- lömbum kynþáttastefnunnar í Suður-Afríku. Þessa samstöðuhugsun suður á bóginn yfirgaf Jens aldrei og til marks um það var dvöl hans á Grænhöfðaeyjum undan Afríku- ströndum um árabil á níunda áratugnum þar sem vélstjórinn íslenski kenndi innfæddum tökin í vélarrúmi fiskveiðiskipa. Það var líka í karakternum að gerast starfsmaður Vinnueftir- litsins og síðar öryggismálastjóri Elkem járnblendiverksmiðjunn- ar í Hvalfirði. Að búa starfsfólki öryggi á vinnustað var honum alla tíð mikið hjartans mál. Árið 1990 var Jens kjörinn í stjórn Starfsmannafélags ríkis- stofnana, SFR, og árið 1996 varð hann formaður félagsins en for- mennsku í SFR gegndi hann til ársins 2006. Eftir að Jens varð varafor- maður BSRB á árabilinu 1997 til 2006 varð samstarf okkar mjög náið. Aldrei nokkurn tímann bar þar skugga á. Reyndi ég oft hve ráðagóður og traustur maður Jens var. Alltaf var hægt á hann að stóla, haggaðist ekki þótt öldugangur yrði eða gustaði um menn. Á vettvangi SFR og einnig hjá BSRB lét Jens til sín taka á ýms- um málasviðum, ekki síst var hann áhugasamur um aðgang launafólks að endurmenntun og vildi hann nýta alla þá möguleika sem tæknin bauð upp á til fræðslu og menntunar. Jens sinnti auk þess fjölda trúnaðar- starfa fyrir BSRB og verkalýðs- hreyfinguna almennt. Jens stóð alltaf fast á sínu en það gerði hann fyrst og fremst af staðfestu og ætíð án bægsla- gangs og það sem meira var um vert, án þess að meiða nokkurn mann. Fyrir vikið var fólki hlýtt til hans. Þessar minningar eru mér nú mikils virði og þá einnig þær sem snúa að skemmtilegum ferða- félaga og vini. Nokkrum sinnum bar það við að við legðum saman land undir fót og er margs að minnast úr slíkum ferðum. Ólafsvakan í Færeyjum verður þar sennilega efst í minni. Færeyskir vinir okk- ar sendu saknaðarkveðjur til Ís- lands þegar þeir fréttu af fráfalli Jens Andréssonar og þannig er það eflaust um ótal aðra sem hugsa til þessa góða drengs, nú þegar hann kveður, jafnframt því sem við öll sendum Kristínu og fjölskyldu þeirra Jens allri hug- heilar samúðarkveðjur. Ögmundur Jónasson. Hann Jens, félagi okkar og vinur, hefur nú kvatt þennan heim og farið á vit nýrra heim- kynna, en hann féll frá þann 27. janúar sl. Jens var einn af þeim sem störfuðu í meira en áratug í Veitustjórn Seltjarnarnesbæjar. Hann tók virkan þátt í að móta stefnu hitaveitunnar og reynsla hans og menntun kom bæjar- félaginu til góða. Jens var hress og skemmtileg- ur maður og var jafnan hnyttinn í tilsvörum og hafði ótrúlega góða nærveru. Ég kynntist honum fyrst í hinu pólitíska starfi hjá Neslistanum. Hann gegndi trún- aðarstörfum fyrir Neslistann og sat í Veitustjórn til ársins 2018. Þegar ég settist í stól bæjar- stjóra fann ég alltaf fyrir miklum velvilja og hvatningu frá honum. Jens reyndist mér góður félagi og lét sig málefni Seltjarnarnes- bæjar varða. Oft leitaði ég til hans varðandi veiturnar og eins og ávallt var hann lausnamiðaður og bóngóður - persónueinkenni hans voru góðmennska og ekki síst umhyggja. Jens var mikið góðmenni og lífsglaður maður og kynni mín af honum voru ein- staklega góð. Dóttir þeirra hjóna Anna Kristín, sundkona hjá ÍFR, var valin íþróttakona Seltjarnar- ness vegna áranna 2007 og 2008. Ég sendi eiginkonu hans og fjölskyldunni allri mínar innileg- ustu samúðarkveðjur á sorgar- stundu. Megi hann nú njóta þess að vera mættur á grænar grund- ir eilífðarinnar. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri. ✝ Sigurður Th.Ingvarsson fæddist á Ísafirði 9. október 1931. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni 1. febrúar 2021. Foreldrar hans voru Ingvar Jóns- son vélvirki, f. 28. október 1911, d. 23. mars 1979, og Sigríður Sigurðardóttir hús- móðir, f. 22. júlí 1906, d. 12. nóvember 1971. Systir Sigurðar er Sigrún Stella, f. 13. janúar 1935. Sigurður kvæntist Arndísi Ólafsdóttur, f. 7. júní 1933, hinn 9. október 1954. Þau bjuggu lengst af á Ísafirði en síðustu tíu ár í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Sigríður Brynja, f. 7. febrúar 1954. Maki Hilmar Guðmunds- maki Finnur Jónasson, sonur þeirra er Daníel Stefán, og c) Sigurður Davíð, maki Helga Hauksdóttir, sonur þeirra er Stefán Haukur. 4) Björk, f. 1. febrúar 1962. Börn hennar eru: a) Kristín og b) Guðmundur Al- exander. Sigurður lauk gagnfræða- prófi og námi í rennismíði við Iðnskólann á Ísafirði. Starfaði hann við þá iðn í Vélsmiðjunni Þór og Skipasmíðastöð Mars- elíusar Bernharðssonar á Ísa- firði í um þrjá áratugi. Að því loknu vann Sigurður við ýmis störf á Ísafirði. Sigurður var alla tíð mikill íþróttamaður og æfði á unga aldri knattspyrnu, badminton og skíði. Hin síðari ár stundaði hann golfíþróttina af miklu kappi og var meðal stofnenda Golfklúbbs Ísafjarð- ar. Hann var meðlimur í Karla- kór Ísafjarðar og Sunnukórnum á Ísafirði um árabil. Þá var Sig- urður félagi í Oddfellowstúk- unni Gesti á meðan hann bjó þar. Sigurður verður jarðsettur frá Grensáskirkju í dag, 12. febrúar 2021, klukkan 15. son, f. 20. ágúst 1952. Börn þeirra eru: a) Árný Hlín, maki Þorvarður Jó- hann Jónsson. Börn þeirra eru Hlín, Kolbrún Harpa og Hilmar. b) Arndís Anna, maki Már Wardum. Börn þeirra eru Viktor, Arnar Már og Brynja Margrét. 2) Ólafur, f. 19. maí 1957. Maki Svala Guðmundsdóttir, f. 25. maí 1969. Börn þeirra eru: a) Davíð, maki Christine Guldborg Auchenberg, b) Sara Sebastian, maki Vífill Atlason, c) Snæfríð- ur Anna og d) Eva Sólveig. 3) Anna Ólafía, f. 7. febrúar 1959. Maki Stefán Hrafnkelsson, f. 10. júlí 1958. Börn þeirra eru: a) Hrafnkell, maki Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir, b) Arndís Rós, Leiksvið birtist og lífið fer á stjá. Ég er ekki til, en Sigurður Th. Ingvarsson er að hefja sína lífsgöngu á níunda degi október- mánaðar, árið er 1931. Við erum stödd á Ísafirði, í fyrsta þætti, fjarri heimsstyrjöld sem vomir handan við hornið. Foreldrarnir, Sigríður Sigurðar- dóttir og Ingvar Jónsson, hlúa að hvítvoðungnum af alúð og um- hyggju. Árin líða á leiksviði lífsins og færa Sidda litla hana Sigrúnu Stellu í formi lítillar systur. Drengurinn í hamingju bernsku sinnar kemst klakklaust frá öll- um boðaföllum, nema hvað hálf- ur fingur fimm ára drengs lendir milli skips og bryggju. Hann sleppur við að vera píndur í pí- anónám, um alla framtíð. Í næstu andrá þessarar fögru sviðsmyndar með trégólfi og leiktjöldum er drengurinn orð- inn sautján ára og getur sig hvergi hreyft. Hann er lamaður frá hvirfli til ilja vegna faraldurs sem kennir sig við Akureyri. Veikin sú fór út fyrir sín hreppamörk – ef hún á þá nokk- urs staðar heima – og hafði búið um sig vestur á fjörðum. Flug- báturinn Catalina lenti ekki á ís- firska Pollinum daginn sem Siddi var borinn burt frá dívan sínum og fjölskyldu, heldur leit- aði skjóls bak við almættið í fjör- unni við Salem. Unglingurinn var kominn með vængi úr stáli flugbáts og kveið framtíð sinni á danskri grund. Í öðrum þætti svífur ungi maðurinn frjáls í fáguðum dansi á sjúkrahússballi sem guð og lukkan hafði boðið nokkrum karlmönnum á, til að jafna kynjahlutfallið. Í höndum hans á dansgólfinu er feimin starfs- stúlka og hann leggur útlit henn- ar á minnið. Í langri biðröð, langt út fyrir Ísafjarðarbíó einhverj- um dægrum síðar, eru systurnar Adda og Lóló of aftarlega til að lánast að fá bíómiða á kvikmynd- ina sem allir eru að tala um: Þar sem sorgirnar gleymast. En dansarinn flinki, af leiksviðinu fagra, kemur auga á svarthærðu stúlkuna sem hann getur ekki gleymt. Hann leyfði sér að gleyma að vinurinn, Rögnvaldur, átti að fá annan bíómiðann sem velktist um í höndum hans. Hann sá bara svarthærðu stúlkuna af dansgólfinu og tók bestu ákvörð- un sem lífið og feimnisleysið gat fært honum. Bíómiðann skyldi hún fá. Hvort það var tenórinn Sigurður Th. Ingvarsson ✝ Jenný AnnaBaldursdóttir fæddist í Reykjavík 20. janúar árið 1952. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 28. janúar 2021. For- eldrar hennar voru Baldur Guðmunds- son f. 11. apríl 1929, d. 21. mars 2016, og Anna Björg Ósk Jónsdóttir, f. 3. des- ember 1928, d. 27. mars 2012. Alsystkini Jennýjar eru Greta Baldursdóttir, f. 1954, eiginmaður hennar er Halldór Grönvold, f. 1954, d. 2020; Ingi- björg Jóna Baldursdóttir, f. 1955, eiginmaður hennar er Hannes Bergur Andrésson, f. 1958; Guðlaug Björk Bald- ursdóttir, f. 1957; Ingunn Bald- ursdóttir, f. 1958, eiginmaður hennar er Óskar Ómar Ström, f. 1952; Hilma Ösp Baldursdóttir, f. 1961; eiginmaður hennar er Alfreð Karl Alfreðsson, f. 1964; Guðmundur Baldursson, f. 1968; Steinunn Baldursdóttir, f. 1970, eiginmaður hennar er Jón Al- 1997, d. 1997, og Oliver Einar Nordquist, f. 2005; börn Söru Hrundar eru Jenný Una Eriks- dóttir, f. 2004, og Hrafn Óli Er- iksson, f. 2007. Jenný Anna ólst upp í gamla verkó við Hringbraut hjá lang- ömmu sinni og ömmubróður. Hún gekk í Verslunarskóla Ís- lands, lauk stúdentsprófi í Sví- þjóð og nam síðar við Háskól- ann í Gautaborg (Göteborgs Universitet) þar sem hún lauk námi í félags- og heilsufræðum með áherslu á umönnun ung- menna sem orðið höfðu fyrir heimilisofbeldi. Hún var löggilt- ur læknaritari og starfaði lengi á heila- og taugadeild Landspít- alans við Hringbraut eftir að hún flutti heim frá Gautaborg árið 1982. Hún hóf störf hjá Samtökum um kvennaathvarf árið 1988 þar sem hún tók þátt í mótun og uppbyggingu þeirra, auk þess sem hún var fjölmiðla- fulltrúi samtakanna um skeið. Hún starfaði einnig lengi sem fyrirlesari, þýðandi, próf- arkalesari og sænskukennari. Jenný byrjaði að blogga árið 2007 og náði miklum vinsældum fyrir hreinskilin skrif sín um alkóhólisma í sambland við um- fjöllun um stjórnmál og önnur þjóðfélagsmál á Moggablogginu og seinna meir á Eyjunni. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. var Sævarsson, f. 1969. Hálfbróðir Jennýjar er Böðvar Guðmundur Bald- ursson, f. 1948, d. 2006, eiginkona hans er Gerður Jensdóttir, f. 1948. Eftirlifandi eig- inmaður Jennýjar er Einar Vilberg Hjartarson, f. 1950. Jenný eignaðist þrjár dætur, Helgu Björk Lax- dal, f. 1970, með fyrrum eig- inmanni sínum Bjarka Laxdal, f. 1953, eiginmaður Helgu Bjark- ar er Björn Axelsson, f. 1967, og sonur hennar er Jökull Bjarki Laxdal, f. 1994; Maríu Gretu Einarsdóttur, f. 1978, og Söru Hrund Einarsdóttur, f. 1980, með fyrrum eiginmanni sínum, Einari Lárusi Ragnarssyni, f. 1956; sambýlismaður Maríu Gretu er Ari Benóný Malm- quist, f. 1978, börn þeirra eru Styrkár Malmquist Arason, f. 2015, og Stormur Benóný Malmquist Arason, f. 2017, syn- ir Maríu úr fyrri samböndum eru Aron Örn Jóhannsson, f. Elsku mammslan mín. Hvar á ég að byrja? Mamma mín, ofurkona, húm- oristi, húmanisti, prakkari, kven- skörungur, skoðanaglöð með ein- dæmum, uppreisnarseggur, hippi, dugnaðarforkur, pólitísk, baráttukona, bókaormur og ég gæti haldið endalaust áfram. Minningarnar sem ég á um þig og með þér eru endalausar og þær mun ég varðveita um alla tíð. Þú varst mín allra helsta fyrir- mynd, fallegust allra og ég ólst upp með stjörnur í augunum yfir þér. Öll árin sem þú vannst hjá Samtökum um kvennaathvarf, allar vaktirnar sem þú stóðst þar og sem fjölmiðlafulltrúi um skeið. Ég var svo stolt af þér fyrir þetta göfuga starf sem þú vannst. Þú varst alla tíð ötull talsmaður minni máttar og minnihlutahópa. Þú varst með sterka réttlætis- kennd og ávallt með hjartað á réttum stað. Tilhugsunin er óbærileg að þú munir aldrei aftur hringja í mig eftir heimsóknirnar hans Styrk- árs til ykkar Einars til að segja mér allt sem Styrkár sagði og gerði þessar klukkustundir sem hann varði hjá ykkur í Hafnar- firðinum hvern einasta laugar- dag. Þú munt aldrei hringja í mig aftur til að skamma mig fyrir að ég hringi of sjaldan. Þú varðst bara fyrri til að hringja og þegar ég benti þér á það þá hlóstu og sagðir: „Ég veit, ég er uppá- þrengjandi,“ með prakkaratón. Jenný Anna Baldursdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.