Morgunblaðið - 12.02.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 12.02.2021, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 70 ára Valgerður ólst upp í Reykjavík og Hafnarfirði og býr í Kópavogi. Hún er kenn- ari og kenndi í 38 ár í Snælandsskóla í Kópa- vogi. Hún útskrifaðist frá grafíkdeild MHÍ 1999 og hefur starfað sem myndlistar- kona síðan. Valgerður opnar sýningu í dag í Gallerí Göngum við Háteigskirkju. Maki: Ágúst Þorgeirsson, f. 1947, verk- fræðingur. Börn: Kristbjörg, f. 1971, Björn, f. 1974, og Guðrún Þorgerður, f. 1977, Ágústs- börn. Barnabörnin eru 6. Foreldrar: Björn Þorsteinsson, f. 1918, d. 1986, sagnfræðingur, og Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 1915, d. 1997, þýðandi. Valgerður Björnsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Samstarfsfólk þitt kemur þér í opna skjöldu varðandi eitthvað í dag. Væntingar annarra eru ekki þitt vandamál. 20. apríl - 20. maí  Naut Hafðu það í huga að gæta þess að halda einkalífinu og vinnunni aðskildu. Þér verður lofað gulli og grænum skógum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Haltu fast um pyngjuna, það þarf ekki stórkaup til að aurarnir fljúgi. Kannski þarftu að ræða eitthvað sem hvílir á þér og tengist systkinum eða ættingjum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt enginn sjái framtíðina fyrir er hægt að búa sig undir hana með marg- víslegum hætti í smáu sem stóru. Vegna hugsjóna þinna langar þig að leggja ákveðnum málstað lið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það hefur ekkert upp á sig að bregðast við hlutunum með upphlaupum og reiðiköst- um. Hættu að sitja með hendur í skauti og bíða eftir því að aðrir leysi vanda þinn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Tækni tengir þig fólki sem þú myndir venjulega ekki þekkja. Loksins losnarðu und- an byrði sem hefur lengi hvílt á þér og fram- tíðin virðist bjartari fyrir vikið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekki afskrifa neina hugmynd, nema þú sért fullviss um tilgangsleysi hennar. Vertu hvergi smeyk/ur því áætlanir þínar ganga í augun á yfirboðurunum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur kraftinn til að laga það sem einhver annar eyðilagði. Einhverjum lík- ar það sem hann les eftir þig og hvetur þig til dáða. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þessi dagur skiptir miklu máli varðandi stórt verkefni sem þú ert með á prjónunum. Best væri ef þú létir aðra um sín vandamál. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér líður eins og þú hafir orðið undir valtara en átt nú samt erfitt með að sjá hvað olli því. Haltu áfram að gera góðverk. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Mundu að þú þarft á hvíld og af- slöppun að halda um þessar mundir. Farðu aftur yfir málin og breyttu því sem breyta þarf. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það væri ekki ónýtt að geta tekið sér smáfrí til þess að hlaða batteríið yfir svart- asta skammdegið. Þú færð boð í brúðkaup í sumar. „Við höfðum verið með litla síld, komið var haust og flestir farnir að taka saman eftir sumarið en þá kom skeyti um að risafarmur væri á leið- inni. Hann var 2.020 tunnur og við vorum á annan sólarhring að salta þetta. Ég held að þetta sé stærsti farmur sem hefur verið saltaður úr einu skipi,“ segir Skúli. Í átta ár, frá 1974 til 1982, sat Skúli í bæjarstjórn Siglufjarðar, sem fulltrúi Framsóknarflokksins, en áður hafði hann verið varabæjar- fulltrúi. Á þessum árum var ráðist í mörg stór verkefni svo sem lagningu hitaveitu til bæjarins og malbikun gatna. Hann sat í mörgum nefndum S kúli Jónasson fæddist 12. febrúar 1926 á Eiðs- stöðum í Blöndudal í Austur-Húnavatnssýslu. Hann var aðeins sjö ára gamall þegar faðir hans féll frá. Þá var hann fyrst með móður sinni en fór síðan að Ytri-Löngumýri til Björns Pálssonar bónda og síðar alþingismanns. Árið 1941, fimmtán ára gamall, flutti Skúli til Siglufjarðar þar sem tvö eldri systkini hans áttu heima. Þar gekk hann í Gagnfræðaskólann og síðan Iðnskólann og hóf jafnframt nám í húsasmíði hjá bygginga- fyrirtækinu Sveini og Gísla og lauk sveinsprófi í febrúar 1950. Að námi loknu var Skúli í eitt ár við nám og störf í Herning í Danmörku en vann síðan við byggingu virkjunar við Sog og við bryggjusmíði á Raufarhöfn. Þegar Héraðshælið á Blönduósi var byggt, á árunum frá 1952 til 1955, vann Skúli við það verk ásamt bygg- ingameistaranum, Sveini Ásmunds- syni, og hlutu þeir mikið lof fyrir. Í lok sjötta áratugarins stofnaði Skúli Byggingafélagið sf. á Siglufirði, upphaflega ásamt Magnúsi Blöndal. Skúli hafði marga menn í vinnu og tók að sér ýmis stór verkefni svo sem byggingu pósthúss, mjólkursamsölu og sjúkrahúss og síðar fyrsta hluta af frystihúsi Þormóðs ramma. Hann var einnig einn af stofnendum Hús- eininga og sat þar í stjórn. Árið 1965 tók Skúli, ásamt Bjarna M. Þorsteinssyni, við rekstri sölt- unarstöðvar sem nefndist Hafglit en hafði áður heitið Pólstjarnan. Þetta var á síðustu árum síldarævintýris- ins. Um svipað leyti hóf hann þátt- töku í útgerð og var Tjaldur fyrsta skipið af nokkrum. Hann var í stjórn- um útgerðarfélaganna Hafnar og Siglfirðings. Skúli og félagar hans ráku hraðfrystihúsið Ísafold frá 1969 og í rúman áratug. Skúli minnist þess sérstaklega þegar einn skipsfarmur breytti öllu fyrir afkomu ársins á söltunarstöð þeirra Bjarna árið 1967. og var formaður skólanefndar og fræðsluráðs. Um tíma kenndi hann við Iðnskólann á Siglufirði. Óhætt er að segja að Skúli hafi verið virkur í félagsmálum á Siglu- firði. Hann var lengi í sóknarnefnd Siglufjarðarkirkju, var formaður Slysavarnafélagsins og beitti sér fyr- ir byggingu björgunarskýlis í Héð- insfirði og var formaður Iðnaðar- mannafélags Siglufjarðar, en Iðnþing Íslendinga var haldið á Siglufirði sumarið 1970, að hans frumkvæði. Þá var hann lengi í Rotaryklúbbi Siglufjarðar, í Frímúr- arastúkunni Rún, Norræna félaginu og í Húnvetningafélaginu. „Ég átti góða daga á Siglufirði, en það voru miklar umbreytingar á atvinnu- ástandinu þar. Stundum var mikið að gera og stundum lítið og stundum ekki neitt.“ Skúli og Guðrún, kona hans, fluttu til Reykjavíkur árið 1982, en þá voru börnin sex komin í skóla eða vinnu þar syðra. Fram undir sjötugt vann Skúli í Búnaðarbanka Íslands. Lengst af hafa þau hjónin búið við Háaleitisbraut, þar sem þau búa enn. „Við förum í Múlabæ alla virka daga, klukkan átta og komum heim klukk- an fjögur. Við erum þar hjá frábæru starfsfólki og þar er alltaf eitthvað boðstólunum til að halda okkur gang- andi.“ Þau hjónin hafa verið bólusett við kórónuveirunni og Skúli segir það bestu afmælisgjöfina að geta hitt af- komendur sína aftur. En hann nefnir líka oft hvað þau hjónin eru heppin með allan barnahópinn, en afkom- endurnir eru alls 33. Fjölskylda Eiginkona Skúla er Guðrún Jóns- dóttir húsmóðir, f. 6.6. 1930. Þau voru gefin saman 9.1. 1954 á Ísafirði. For- eldrar hennar voru hjónin Jón Eiríksson, sjómaður og verkamaður í Hnífsdal, f. 9.12. 1880, d. 10.5. 1972, 91 árs, og Arnfríður Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 10.7. 1894, d. 6.9. 1972, 78 ára. Skúli Jónasson byggingameistari – 95 ára Ljósmynd/Ása Magnea Vigfúsdóttir Fjölskyldan Barnabörn og barnabarnabörn Skúla og Guðrúnar eru 27. Var virkur í atvinnumálum og félagsmálum á Siglufirði Hress Skúli býr enn heima ásamt Guðrúnu, konu sinni, sem er 90 ára. Sveitapiltur Skúli átta ára gamall við æskuheimilið að Eiðsstöðum í Blöndudal. 60 ára Margrét er Hafnfirðingur en býr í Reykjavík. Hún er fóta- aðgerðafræðingur og rekur eigin stofu sem heitir Fótaaðgerða- stofan Hafperla. Mar- grét er formaður Fé- lags íslenskra fótaaðgerðafræðinga. Maki: Guðmundur Sveinn Guðmundsson, f. 1960, bifreiðasmiður hjá bílaverkstæð- inu Glitur. Börn: Berglind Bjarný, f. 1979, Sveinn Hjalti, f. 1983, og Ingvar Haukur, f. 1988, Guðmundsbörn. Barnabörn eru orðin tvö. Foreldrar: Sigurður Ágúst Magnússon, f. 1934, d. 2009, slökkviliðsmaður, og Guð- munda Bjarný Ólafsdóttir, f. 1938, d. 2009, innheimtumaður hjá RÚV. Margrét Sigurðardóttir Til hamingju með daginn 22 Ræktum og verndum geðheilsu okkar Nýir skammtar daglega á gvitamin.is Prófaðu eitthvað nýtt Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.