Morgunblaðið - 12.02.2021, Síða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
VA R I E T Y C H I C AG O S U N
T I M E S
I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H
Hörkuspennandi og
Hrollvekjandi
Spennumynd.
M OV I E F R E A K . C O M
»Kvintett trompetleikarans Ara Braga Kárasonar
kom fram á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í
Flóa í Hörpu á miðvikudagskvöldið var. Kvintett
blásarans sprettharða var skipaður auk Ara Braga
sjálfs þeim Ingimar Andersen, sem lék á saxófón, Ey-
þóri Gunnarssyni á píanó, Valdimar Kolbeini Sigur-
jónssyni á bassa og trommuleikaranum Einar Schev-
ing. Á dagskrá kvintettsins voru lög úr ýmsum áttum
djassheimsins og þar á meðal lög eftir hljómsveitar-
stjórann sjálfan. Þrátt fyrir veirufaraldur hefur tek-
ist að halda blómlegri starfsemi í Múlanum, að við-
höfðum tilskildum sóttvörnum.
Kvintett Ara Braga Kárasonar lék í Múlanum
Í sveiflu Kvintett trompetleikarans á sviðinu: Eyþór Gunnarsson, Ari Bragi, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, Ingimar Andersen og Einar Scheving.
Á staðnum Steinunn Svavarsdóttir og Steinar Sveinsson.
Íhugul Grímuklæddir gestir hlýddu ánægðir á kvintettinn leika í Flóa. Tónleikagestir Björk Ágústsdóttir og Kári Húnfjörð Einarsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sýningin Óreiðukenningin með
verkum eftir Ingunni Fjólu Ing-
þórsdóttur var opnuð í gær í
Norr11 á Hverfisgötu 18a.
Í verkunum á sýningunni veltir
Ingunn fyrir sér kerfum og mynstr-
um og hvernig heimurinn stjórnast
í sífellt meiri mæli af kerfum, algó-
riþmum og kóðum. Titill sýning-
arinnar, Óreiðukenningin, vísar í
kenningu innan stærðfræði um
kerfi sem virðast hegða sér tilvilj-
anakennt og án nokkurra lögmála.
Sýningarstjóri er Elísabet Alma
Svendsen.
Ingunn Fjóla útskrifaðist með
MA-gráðu í myndlist frá Listahá-
skóla Íslands vorið 2017 og hafa
verk hennar verið sýnd víða, í gall-
eríum og söfnum.
Morgunblaðið/Hari
Listakonan Verk Ingunnar Fjólu hafa verið
sýnd víða á undanförnum árum.
Óreiðukenning
Ingunnar Fjólu
Náttúrustemmur
er heiti sýningar
sem Valgerður
Björnsdóttir opn-
ar í dag, föstu-
dag, kl. 15 í Gall-
erí Göngum við
safnaðarheimili
Háteigskirkju.
Hún útskrifaðist
frá grafíkdeild
MHÍ árið 1999,
er í stjórn félagsins Íslensk grafík
og tekur þátt í að reka Gallerí
Korpúlfsstaði. Á sýningunni eru
verk frá síðasta ári, unnin með sol-
arprint-aðferð sem er eiturefnalaus
og notaðar ljósnæmar plötur sem
lýstar eru með sólarljósinu, fram-
kallaðar með vatni og þrykktar
eins og ætingarplötur.
Valgerður sýnir
Náttúrustemmur
Valgerður
Björnsdóttir