Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 1
Geri allt til aðlengja líf mitt„Þegar kallið kemur og ég þarf að fara að sinnaveislum annars staðar, þá get ég með góðri sam-visku sagt: Ég gerði mitt besta!“ segir ÓskarFinnsson matreiðslumeistari sem greindist meðólæknandi krabbamein í höfði fyrir rúmu ári.Hann hefur lofað sínum nánustu að gera allt semí hans valdi stendur til að lengja líf sitt. 12
14. FEBRÚAR 2021SUNNUDAGUR
Reddast ekkiaf sjálfu sér
Frystingandar-taksins
Sýningin Myndirársins stendur yfir íLjósmyndasafniReykjavíkur. 18 Snúa þarf bökum saman til að
gera gott skólakerfi enn betra. 8
Nýjar
bollur!
Spreyttu þig ánýstárlegumbolluupp-skriftum umhelgina. 22
13 | 02 | 2021
L A U G A R D A G U R 1 3. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 37. tölublað 109. árgangur
Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/volkswagensalur
Sérkjör á fjórhjóladrifnum!
Uppáhalds vinnufélagarnir
Sendibílar, pallbílar, smáir
vinnubílar og stórir
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.hekla.is
HUGVEKJANDI OG
UPPLÍFGANDI
SKÁLDSKAPUR
LOÐNUVERTÍÐ
OG BJARTARA
FRAM UNDAN
200 MÍLUR 24 SÍÐURÞÝDDI LJÓÐ RUMIS 42
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Fiskistofa hefur notað dróna eða flyg-
ildi við eftirlit með fiskveiðum frá
miðjum janúar og hefur með þeim
hætti komist upp um þó nokkur brot
gegn lögum um stjórn fiskveiða á þess-
um stutta tíma. Stofnunin gerir ráð
fyrir að þessi eftirlitsaðferð verði hluti
af reglulegu eftirliti sínu.
Sjö mál eru nú til rannsóknar sem
má rekja til eftirlits með þessum ný-
stárlega hætti. „Væntanlega mun
flestum þeirra ljúka með leiðbeininga-
bréfi. Við reynum að gæta meðalhófs.
Þetta er nú nýtt eftirlit og við reynum
að benda mönnum á að þetta eftirlit er
í gangi og ljúka einhverjum málum
með leiðbeiningabréfi sem síðan er
fylgt eftir með áminningu,“ segir Elín
B. Ragnarsdóttir, sviðsstjóri veiði-
eftirlits Fiskistofu. „Ef um ítrekuð
brot er að ræða gæti niðurstaðan orðið
veiðileyfasvipting.“
Eftirlitið veikburða og óskilvirkt
Öll leyfi sem þetta eftirlit krefst
liggja fyrir og hafa eftirlitsmenn stofn-
unarinnar fengið kennslu og tilsögn í
meðferð tækjanna auk þess sem þeir
hafa hlotið fræðslu í persónuvernd.
Elín segir þessa tegund eftirlits frá-
brugðna hefðbundnu myndavélaeftir-
liti þar sem slíkt fer fram með því að
stöðug upptaka er í gangi, en mynda-
vélarnar á drónunum taka ekki upp
nokkurn hlut fyrr en eftirlitsmaður
verður vitni að broti og setur upptöku
af stað. Þá sé geymsla allra gagna háð
ströngum reglum.
Eftirlit Fiskistofu með veiðum var
sagt í skýrslu Rikisendurskoðunar árið
2019 „veikburða og óskilvirkt“, auk
þess sem eftirlit með vigtun afla var
sagt „takmarkað“. Notkun nýrrar
tækni er ein þeirra leiða sem Fiski-
stofa hefur ákveðið að fara til að upp-
fylla lögbundið hlutverk sitt.
Sjö brot til rannsóknar
Fiskistofa notar dróna til að fylgjast með veiðum Stýrt úr 10-15 km fjarlægð
Ítrekuð brot gætu leitt til sviptingar veiðileyfa Fundið að eftirlitinu árið 2019
Drónaeftirlit
» Hægt er að stýra drónunum
úr 10 til 15 kílómetra fjarlægð.
» Drónarnir sagðir hafa mikið
flugþol.
» Flygildin kosta frá um 300
þúsund að þremur milljónum
króna.
» Hefur verið stýrt frá landi.
» Stefnt að því að nýta dróna
á hafi úti.
MMeira um brot » … 200 mílur
Hrein skuld ríkissjóðs jókst um
240 milljarða – 240 þúsund millj-
ónir króna – frá lokum janúar 2020
til loka janúar 2021. Aukningin
samsvarar því að skuldirnar hafi
aukist um 660 milljónir á dag, eða
um tæpa hálfa milljón á mínútu.
Við þetta bætist lántaka á 750
milljónum evra og svo frekari lán-
taka ríkissjóðs síðar á árinu.
Fjallað er um aukningu ríkis-
skulda í blaðinu í dag. »22
Morgunblaðið/Golli
Skuldasöfnun Kórónuveirukreppan bítur.
Jókst um hálfa
milljón á mínútu
„Á síðustu árum hefur komið ítrekað
fram að íslenskum börnum líður
ekki nógu vel og margt bendir til að
ástandið á síðustu mánuðum hafi
aukið vanlíðan þeirra enn meira. Ná-
kvæmlega hvernig við eigum að
bregðast við er úrlausnarefnið á
næstunni en það er ljóst að mörg
börn geta átt erfiða tíma fram und-
an,“ segir Salvör Nordal, umboðs-
maður barna, í Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins um helgina.
Mörg hundruð börn tjáðu sig í
máli og myndum um líðan sína í vet-
ur og sendu til umboðsmanns barna.
Þær upplýsingar gefa til kynna að
kórónuveirufaraldurinn sé farinn að
taka toll af íslenskum börnum sem
mörg hver upplifa nú kvíða, þung-
lyndi, leiða og einmanaleika.
Veiran Sum börn teiknuðu myndir.
Börn finna
fyrir kvíða
og einsemd
Með hækkandi sól og lækkandi smittölum skyldi
engan undra að ljósið við enda ganganna sé fólki
ofarlega í huga. En á meðan farið er um göngin
er um að gera að reyna sitt besta til að njóta þess
sem fyrir augu ber. Í göngunum undir Miklu-
braut í Reykjavík gefur að líta hin litríkustu
verk ýmissa vonarstjarna listaheimsins. Þær
skáka þar í skjóli nætur enda varla ráð að bera
verk sín á torg í fyrsta kasti.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljósið við enda ganganna