Morgunblaðið - 13.02.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.02.2021, Qupperneq 2
Hjúkrunarheimilið Sóltún selt Snorri Másson snorrim@mbl.is Í byrjun árs gekk eitt stærsta fast- eignafélag landsins, Reginn hf., frá kaupum á 90% hlut í hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni við samnefnda götu í Reykjavík. Þetta kemur fram í til- kynningu sem fylgdi ársreikningi Regins í fyrradag. Nánar tiltekið keypti Reginn 90% hlut í félaginu Sóltúni ehf. af félaginu Öldungi hf. en Sóltún ehf. er eignar- haldsfélag utan um fasteignina. Öld- ungur hefur annast rekstur hjúkr- unarheimilisins á grundvelli þjónustusamnings við íslenska ríkið frá árinu 2002 og hefur hingað til jafnframt átt fasteignina. Í tilkynningu frá Regin kemur fram að kaupin muni ekki hafa nein áhrif á rekstur og starfsemi hjúkr- unarheimilisins. Framvegis leigir rekstraraðilinn, Öldungur, húsnæðið af Regin, sem er nú aðaleigandi þess. Leigusamningurinn er á milli Öld- ungs og Sóltúns ehf. og hann breyt- ist ekki. Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Sól- túni, staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið. „Í stuttu máli er eng- in breyting hjá Öldungi,“ segir hún. Öldungur er í eigu Íslenskrar fjár- festingar, sem er í eigu Arnars Þór- issonar og Þóris Kjartanssonar, sem teljast til umsvifamestu fjárfesta landsins. Þeir eru áfram við stjórn- völinn í rekstrarfélaginu, sem, eins og áður segir, á enn 10% hlut í fast- eigninni. Vilja frekari uppbyggingu Samhliða sölu Öldungs hf. á Sól- túni til Regins segjast félögin vera búin að gera með sér samkomulag um að starfa frekar að uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þar mun „sérfræðiþekking og reynsla Öldungs nýtast við rekstur hjúkrunarheimila en reynsla og þekking Regins á rekstri og viðhaldi fasteigna. Með því er kominn nýr valmöguleiki fyrir ríki og sveitar- félög til að sinna uppbyggingu og rekstri hjúkrunarheimila á Íslandi sé vilji til staðar,“ segir í tilkynningu. Áhugi á samstarfi hins opinbera við einkaaðila Eignasafn fasteignafélagsins Reg- ins samanstendur af atvinnuhús- næði. Í lok árs 2020 átti félagið 115 fasteignir og heildarfermetrafjöld- inn var 378 þúsund fermetrar. Fé- lagið er skráð í Kauphöll Íslands. Í gögnum frá aðalfundi Regins 2019 er fjallað um að áhugi sé fyrir því að stefna að fleiri samstarfsverk- efnum á milli opinberra aðila og einkaaðila, svokölluðum PPP-verk- efnum, sem heita svo vegna enska titilsins Public-Private Partnership. Samkvæmt þessu hafa þeir nú þegar hafið sókn á því sviði.  Reginn hf. kaupir fasteign hjúkrunarheimilisins  Reksturinn verður hjá sama félagi, Öldungi, sem leigir framvegis húsnæðið af Regin  Reginn vill koma að frekari uppbyggingu hjúkrunarheimila Morgunblaðið/Árni Sæberg Hjúkrunarheimili Í Sóltúni í Reykjavík dveljast 92 manns að öllu jöfnu. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is KLETTARHEILSÁRSHÚS Klettareru sterkbyggðhús – sérhönnuðaf Efluverkfræðistofu. Húsineruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi aðgóðukunn. Húsinafhendastósamsett, aðhluta í forsmíðuðumeiningumogaðhluta semforsniðiðefni.Hentug lausnviðþröngaraðstæður. Uppsetninghúsannaerafarfljótleg. Klettar erumeðrúmgóðusvefnlofti (hæð2,1m) semeykurnotagildi hússinsumtalsvert. Klettar 65 –Grunnverð kr. 8.373.000,- Klettar 80 –Grunnverðkr. 10.807.000,- Ítarlegar upplýsingar og afhendingarlýsingumá finna á vefsíðu okkar. Húsið ámyndinni er af gerðinni Klettar 80 sem reist var 2019 á Vesturlandi. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þegar Morgunblaðið kom við í byrjun október síðastliðins var verið að setja upp fyrstu burðargrindurnar í Vetrarmýri, nýju fjölnota íþróttahúsi í Garðabæ. Þegar blaðið kom þar við um síðustu helgi var uppsetning á burðarvirkinu langt komin og búið að steypa upp hluta af frambyggingunni. Í húsinu verður rými fyrir knattspyrnuvöll í fullri stærð, auk upphitunaraðstöðu og tilheyrandi stoðrýma. Stærð íþróttasalarins verður um 80 x 120 metrar og flatarmál húss- ins alls verður um 18.200 fermetrar. baldura@mbl.is Ljósmynd/Þórður Magnússon/Onno ehf. Vetrarmýri tekur á sig mynd Tekist hefur að rekja síðustu GPS- staðsetningu fjallgöngumannsins Johns Snorra og föruneytis hans, Pakistanans Muhammads Alis Sad- para og JP Mohrs frá Síle. Pakist- anski miðillinn ARY News greindi frá þessu síðdegis í gær að íslensk- um tíma. Ekkert hefur spurst til föruneyt- isins síðan á föstudag fyrir viku er samband rofnaði við GPS-tæki þeirra, þar sem þeir voru á leið á næsthæsta tind jarðar, topp fjallsins K2. Pakistanski herinn hefur leitað að John Snorra og félögum síðustu daga, og undirbjó í gær stærstu leit- ar- og björgunaraðgerðina hingað til. Herinn fór í aðra flugferð sína yfir K2 í gær og notaði hitamyndavélar við leitina. Sams konar leitaraðgerð á fimmtudag bar ekki tilskilinn árangur. Illa hefur viðrað til leitaraðgerða. Engir fjallgöngumenn eru á fjallinu, utan nokkurra hópa í grunnbúðum þess. Snjóað hefur á fjallinu undan- farið, sem gerir skilyrði enn erfiðari. Bandaríska dagblaðið Wash- ington Post greindi frá því á mið- vikudag að stjórnvöld í Pakistan hefðu bannað vetrarferðir á K2. Blaðið hefur leiðrétt fréttina og vitn- ar í Karrar Haidri, ritara Alpa- klúbbs Pakistans, sem segir hópa göngumanna hafa hætt við ferðir sínar á fjallið vegna slæmra veður- skilyrða og vegna þess að leitar- aðgerðir að John Snorra og félögum hafi engan árangur borið. Stjórnvöld hafi ekki sett bann við ferðum á fjall- ið. Herinn leitar enn við K2  Röktu síðustu staðsetningu GPS-búnaðar Johns Snorra  Vont veður og slæm leitarskilyrði  Ferðir ekki bannaðar AFP K2 Leitaraðgerðir pakistanska hersins hafa ekki borið árangur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.