Morgunblaðið - 13.02.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.02.2021, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í slenska táknmálið er fjöl- breytt, fallegt, lifandi og þróast hratt,“ segir Margrét Auður Jóhannesdóttir tákn- málstúlkur. „Allt sem fólk segir í mæltu máli er sömuleiðis hægt að segja með táknum og færni til slíks kemur fljótt með þjálfun. Mér finnst einstaklega gaman að vinna með heyrnarlausum börnunum og gera mitt besta í því að vera brú þeirra til veraldar heyrandi fólks. Allt eru þetta krakkar sem eiga sína drauma og væntingar sem geta auðveldlega ræst, fái þau góðan stuðning og und- irbúning í skólanum þar sem grunn- urinn að framtíð þeirra er lagður.“ Táknmálið verður börnunum eðlislægt Dagur íslenska táknmálsins var sl. fimmtudag, 11. febrúar. Af því til- efni var efnt til ýmissa stafrænna við- burða í því skyni að auka skilning á tugumálinu, sem hundruð Íslendinga nota í sínu daglega lífi. Raunar verður heimur heyrnarlausra almenningi æ betur sýnilegri. Sjónvarpsefni, til dæmis upplýsingafundir almanna- varna, er flutt á táknmáli og mætti fleira nefna. Við Hlíðaskóla í Reykja- vík er starfrækt sérstök táknmáls- deild, hvar eru alls 13 börn. Öll eru þau í almennum bekkjum en er fylgt eftir af táknmálstúlkunum sem starfa við skólann. „Sú veröld sem býr að baki tákn- málinu er áhugaverð, en í raun ósköp svipuð og okkar sem heyrum. Móðir mín, Árný Elsa Þórðardóttir, er heyrnarlaus og þó ég væri ekki hjá henni í æsku komst ég ekki hjá því að kynnast viðhorfum og menningu þeirra sem ekki heyra. Lærði tákn- málið fljótt og í raun kom það af sjálfu sér að ég færi að starfa á þessum vettvangi,“ segir Margrét og bætir við: „Fyrst eftir nám í táknmáls- fræðum starfaði ég sem túlkur hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra. Síðastliðin fimmtán ár hef ég svo starfað hér í Hlíðaskóla. Vinn hér með góðu fólki og krökkum sem spjara sig vel. Nemendum verður táknmálið bókstaflega eðlislægt og þau eru fljót að færa atvik og við- fangsefni í sínu daglega umhverfi yfir á sitt tungumál. Starfið mitt krefst þess að ég fylgist vel með menningu krakkanna, sjónvarpsefni, leikjum og öðru sem þau hafa áhuga á og ræða um sín á milli.“ Farnist vel í framtíðinni Einn nemenda Margrétar Auðar í Hlíðaskóla er Amelia Daszkowoska, tíu ára stúlka úr Hafnarfirði, sem er í 6. bekk. Hún er heyrnarlaus rétt eins og foreldrar hennar, sem eru pólsk. „Ég tel mig samt vera Íslending, enda er ég fædd hér,“ sagði Amelia á máli sínu sem kennarinn túlkaði fyrir blaðamann. Amelia er einstaklega kurteis stúlka, og hefur fallegt bros sem nær til augnanna. „Mér gengur vel í skólanum enda fæ ég góða hjálp. Er hér með góðum krökkum og á tvo stráka, sem báðir eru heyrnarlausir, sem góða vini. Mér finnst gaman í leiklist og að flytja ljóð á táknmáli. Hef mikinn áhuga á dýrum og var í fimleikum. Núna æfi ég í Klifurhúsinu og finnst mjög skemmtilegt. Já, mér finnst gaman í skólanum og trúi að hér fái ég góðan undirbúning, svo mér farn- ist vel í framtíðinni, en þá langar mig að vinna við leiklist eða eitthvað í sambandi við dýr.“ Fallegt táknmálið þróast hratt Tákn! Mál þeirra sem ekki heyra. Túlkurinn byggir brýr milli heima. Í Hlíðaskóla í Reykjavík er deild fyrir heyrnarlausa nemendur og einn þeirra er Amelia Daszkowoska. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Samtal Starfið krefst þess að ég fylgist vel með menningu krakkanna, sjónvarpsefni, leikjum og öðru sem þau hafa áhuga á og ræða um sín á milli, segir Margrét Auður, táknmálstúlkur í Hlíðaskóla, hér í kennslustund með Ameliu. Kveðja Góðan dag, gaman að hitta þig, sagði Amelia Daszkowoska á tákn- máli. Foreldrar Ameliu eru pólskir, en sjálf segist hún vera Íslendingur. Í Listasal Mosfellsbæjar var í gær opnuð málverkasýning Steinunnar Marteinsdóttur sem ber yfirskriftina JÖKULL – JÖKULL. Sýningin er hald- in í tilefni af 85 ára afmæli Stein- unnar, 18. febrúar næstkomandi. Steinunn, sem býr á Hulduhólum við Vesturlandsveg í Mosfellsbæ, hefur unnið að myndlist í marga áratugi og er einn helsti leirlistamaður lands- ins. Steinunn hefur síðustu ár lagt stund á málun í vaxandi mæli og mikið lagt sig eftir að mála jökla. Á sýningunni nú eru myndir sem lista- konan málaði á árunum 1986-2019. Í verkum Steinunnar eru jöklar sterkt þema, þá ekki síst Snæfellsjökull, sem er í augsýn frá Hulduhólum. Í sýningarskrá stendur að jökullinn sé Steinunni eins konar aflvaki og kjöl- festa í listsköpun; tákn um þrá, ákall og markmið. Listasalur Mosfellsbæjar er í Bóka- safni Mosfellsbæjar og er opinn kl. 12-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Bent er á að ekki verð- ur formleg opnun vegna Covid-19. Jöklar þemað á málverkasýningu Steinunnar Marteinsdóttur Aflvaki og kjölfesta í senn Listakona Steinunn Marteinsdóttir hér við eitt sinna mörgu fallegu verka. Mynd Hver sér þá með sínum aug- um, jöklana sem hopa hratt. Íslenska táknmálið er eina hefðbundna minnihlutamálið hér á landi, en um 300 manns segja það vera sitt móðurmál. Miklu fleiri nota þó táknmál í sínu daglegu lífi, svo sem fjöl- skyldur, vinir og vandamenn heyrnarlausra sem og fólk sem vinnur eða sinnir þjónustu við þennan þjóðfélagshóp. Alls eru til um 140 tungur táknmála í heiminum sem jafnan eru sjálfsprottin og myndast í samskiptum þeirra sem þau nota. „Táknmál byggjast á táknum sem mynduð eru með hreyf- ingum handa, höfuðs og lík- ama, svipbrigðum, munn- og augnhreyfingum og eru skynj- uð í gegnum sjónina,“ segir í pistli á vefsetri Samskipta- miðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra (shh.is). Í lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls segir að táknmálið sé jafnrétt- hátt íslensku sem tjáningar- form. Óheimilt sé að mismuna fólki eftir því hvort málið við- komandi notar. Í lagafrumvarpi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra til breytinga á stjórnarskrá, sem nú liggur fyrir Alþingi til umfjöllunar og afgreiðslu, eru lagðar til breytingar á ákvæði sem styrkja myndu táknmál og stöðu þess. „Með ákvæðinu er lögð áhersla á rétt heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra Íslendinga til þess að nota móðurmál sitt auk þess sem aðgerðum stjórnvalda og lög- gjafa í þágu íslensks táknmáls er tryggður traustur grundvöll- ur,“ segir í greinargerð með frumvarpi forsætisráðherra. Grundvöllur sé tryggður MÓÐURMÁL 300 MANNS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.