Morgunblaðið - 13.02.2021, Side 20

Morgunblaðið - 13.02.2021, Side 20
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vakin er athygli á því í umsögnun nokkurra aðila við drög að breyt- ingu á lögum og reglum um nýtingu vindorkunnar að vikið sé í veiga- miklum atriðum frá skosku leiðinni sem rætt var um að væri leiðarljós reglusetningarinnar. Mun þrengri reglur muni því gilda um nýtingu vindorku hér á landi en í Skotlandi, ef tillögurnar verða að veruleika. Nítján einstaklingar, fyrirtæki og samtök sendu inn umsagnir um drög umhverfisráðherra að breyt- ingum á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun og þingsálykt- unartillögu um stefnu stjórnvalda um nýtingu vindorku sem birt voru í samráðsgátt stjórnvalda á dög- unum. Óhentug svæði til nýtingar Tillögurnar gera ráð fyrir að flokkun lands og náttúru verði lögð til grundvallar við staðsetningu vindorkuvera, samkvæmt fyrirmynd frá Skotlandi sem þó væri löguð að íslenskum aðstæðum. Bannað verði að nýta vindorku á tilteknum svæð- um og á öðrum svæðum þurfi fram- kvæmdaáform að fara til umfjöll- unar verkefnisstjórnar ramma- áætlunar samkvæmt sérstökum reglum. Nýting verði heimil á landi í þriðja flokknum eftir því sem skipu- lag sveitarfélaga og umhverfismat gefa tilefni til. Athugun á drögum að kortlagningu gefur til kynna að aðeins 5% landsins myndu falla í síðastnefnda flokkinn, þar sem heimilt verði að nýta orkuna án um- fjöllunar í rammaáætlun. Samorka, samtök orku- og veitu- fyrirtækja, bendir á að afar tak- mörkuð svæði séu í nýtingarflokki, þeim flokki sem að nafninu til eigi að ýta undir nýtingu vindorku. Þau séu að verulegu leyti tæknilega óhentug fyrir nýtingu vindorku. Skúli Thoroddsen lögmaður gengur lengra í sinni umsögn, segir að þessi svæði séu óhagkvæm og illa eða al- gerlega ónýtanleg. Samorka og fleiri sem veita um- sagnir benda á að kerfið sem hér er lagt til að verði innleitt sé töluvert strangara en það skoska, sem vitnað er til í tillögunum, og geri nýtingu vindorku hér erfiðari. Nefnt er að við flokk eitt sé bætt við fjölda land- svæða þar sem vindorka er bönnuð. Þá sé bætt við 10 km nærsvæðum í flokk tvö þar sem áform þurfa að fara fyrir verkefnisstjórn ramma- áætlunar. Séu þetta ákaflega íþyngjandi viðbætur sem ekki sé til- efni til. Við þetta sé bætt aðkomu ramma- áætlunar um alla virkjanakosti í öðrum flokki sem eigi ekkert skylt við skoska kerfið. Þarna sé því verið að blanda saman tveimur mismun- andi kerfum til auðlindastýringar. Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins telja að núverandi reglu- verk sé nóg og frumvarpið því óþarft. Samband íslenskra sveitar- félaga telur að ekki verði sátt við að beina uppbyggingu vindorkuvera al- gerlega að láglendi. Vilja þrengri reglur Landvernd, Umhverfisstofnun og fleiri gera litlar athugasemdir við efni tillagnanna. Nefna má þó að Landvernd telur varhugavert að láta reglurnar ekki ná til 10 MW virkjana og minni og Umhverfis- stofnun vill að svigrúm verði veitt til að koma í veg fyrir virkjanir meira en 10 km út frá friðlýstum svæðum. Íþyngjandi viðbætur við skoska leið  Nítján umsagnir um tillögur að reglum um nýtingu vindorku bárust við kynningu í samráðsgátt  Hörð gagnrýni frá Samtökum orkufyrirtækja og atvinnulífsins og áhugamönnum um vindorku Vindheimavirkjun Garpsdalur Sólheimar Alviðra Búrfell Tillaga að takmörkun vindorkuvera Öll uppbygging vindorkuvera verði óheimil Viðkvæm svæði, vindorkuver gætu þó komið til greina H ei m ild : N át tú ru fr æ ði st of nu n Nokkrir vindorkukostir Uppbygging vindorku verði heimil 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 ÚR BÆJARLÍFINU Jón Sigurðsson Blönduósi Það sem einna helst hefur ein- kennt bæjarlífið hina síðustu daga er lognið og hreinviðrið. Sólin hækk- ar á lofti og í samvinnu við snævi þakta jörð verður vaxandi birta enn meira áberandi. Þessa góðu daga hafa margir nýtt sér við allskonar iðju utan dyra. Fólk fer á skíði í Tindastólinn, gengur á föll eða bara um sitt næsta umhverfi og teygar lífsorkuna úr fersku andrúmsloft- inu. Svo eru líka þeir sem láta sér nægja að tala um veðrið og ýmist dásama það eða hnýta í sólina fyrir að opinbera skítinn á gluggunum, nú eða trufla skjágæði sjónvarpsins.    Af fuglalífinu er það að frétta að gráþrestir eru farnir að gera sig gildandi í bænum og er það mat margra að þetta sé fyrsti veturinn þeirra hér um slóðir. Þessi fugl er í fæðusamkeppni við svartþröst og skógarþröst og vegnar býsna vel í þeirri baráttu. Töluverður fjöldi stokkanda hefur og haft vetursetu á Blöndu undanfarin ár og að sögn kunnugra er fjöldi fugla um eitt hundrað. Nokkrar gæsir hafa und- anfarin ár haft hér vetursetu en ekkert hefur sést til þeirra eftir ára- mót. Þær hafa fundið sér griðastað við íbúðir eldri borgara við Flúða- bakka og komist af með velvild íbú- anna. Gæsirnar hafa með hæversk- um hætti goggað létt á rúður íbúa Flúðabakkans og gert þeim grein fyrir að gott væri að fá eitthvað í gogginn. Í upphafi þessara aðferða gæsanna komu upp ýmsar vanga- veltur íbúanna. Sumir héldu að lagnakerfið væri að gefa sig, aðrir að loft væri komið á ofnana, nú eða að jólaserían slægist í gluggann undan ólundarveðri. Allt þetta skýrðist að lokum og gæsirnar lifðu og íbúar Flúðabakka glöddust en nú er gæsanna saknað.    Þessir kóftímar sem við nú lif- um hafa haft mikil áhrif á sam- félagið og nánast allt félagsstarf hefur legið niðri. Kórar hafa hægt um sig, hverskonar hátíðarhöld eru í lágmarki og hinum vinsælu þorra- blótum hefur verið aflýst. Þetta síð- asta veldur auk þess því að margur maðurinn (konur eru líka menn) hefur fallið óbættur og gleymdur hjá garði vegna skorts á græsku- lausu gamni. Þrátt fyrir þessar miklu félagslegu takmarkanir tókst þó að velja mann ársins. Lesendur Húnahornsins völdu Valdimar Guð- mannsson mann ársins í Austur- Húnavatnssýslu árið 2020. Valdimar hefur farið fyrir góðu starfi við kirkjugarðinn á Blönduósi og hefur auk annars staðið fyrir vinsælum kótelettukvöldum á Blönduósi, stutt samfélagsverkefni á svæðinu og ver- ið óþreytandi að tala jákvætt um allt sem húnvetnskt er.    Mikil vinna er nú lögð í að kanna alla kosti og mögulega galla á því að sameina öll sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu í eitt sveit- arfélag, en þær viðræður eru nú komnar í formlegt vinnuferli eftir að sveitarstjórnir sveitarfélaganna samþykktu tillögu þar um í október sl. Eins og staðan er núna er stefnt að íbúakosningu um málið laug- ardaginn 5. júní 2021.    Það styttist í að 5 íbúða raðhús rísi við Sunnubraut, þar sem nú er búið að steypa plötu, en áætlað er að framkvæmdir við uppbyggingu hússins muni hefjast núna í febrúar. Þá eru sömu aðilar að skoða mögu- leika á því að byggja fleiri íbúðir, með öðru sniði. Einnig er unnið að því að koma af stað frekari upp- byggingu á atvinnutengdri starf- semi og hefur verið veitt leyfi fyrir að byggja atvinnuhúsnæði á svoköll- uðu Miðholti með því skilyrði að framkvæmdir hefjist innan sex mánaða.    Í vor verður boðin út framkvæmd við uppbyggingu á nýjum 8,5 km löngum stofnvegi frá hringvegi aust- an Blönduóss að Þverárfjallsvegi (744), skammt sunnan við brú á Laxá. Frá nýjum vegi verður byggður um 3,3 km langur vegur til norðurs, með nýrri 109 m langri brú yfir Laxá, og inn á núverandi Skagastrandarveg norðan við Hösk- uldsstaði í Skagabyggð. Heildar- lengd nýrra vega og brúar er um 11,8 km og áætlaður kostaður við verkið er 2,1 milljarður.    Arion banki hefur ákveðið að loka alfarið útibúi bankans á Blönduósi þann 5. maí. Sveit- arstjórn Blönduósbæjar mótmælti harðlega þessum áformum bankans á fundi sínum fyrr í vikunni og fól sveitarstjóra í samráði við byggð- arráð að kanna og koma með til- lögur um frekari viðbrögð við boð- aðri lokun bankans, með tilliti til framtíðar bankaviðskipta sveitarfé- lagsins. Með þessari ákvörðun lýkur 130 ára sögu banka á Blönduósi eða frá því að Sparisjóður Húnvetninga var stofnaður árið 1891. Skortur á græskulausu gamni Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Blönduós Aron og Sunneva ásamt hundinum Draupni undu hag sínum vel þrátt fyrir niðurstöður úr íbúakönnun. „Við erum hópur fólks sem býr í 1-2 km fjarlægð frá fyrirhugaðri vindorkuvirkjun upp á 130 MW. Við óskum eftir því við íslensk stjórnvöld að heimilum okkar verði tryggð a.m.k. sama frið- helgi og friðuðu landi er tryggð í lagabreytingu þessari. Það er að tryggt skuli í lögum að ekki skuli reisa vindorkuvirkjanir innan 10 km fjarlægðar frá heimilum fólks.“ Úr umsögn Steinunnar M. Sigurbjörns- dóttur. Heimili fái sömu friðhelgi NÁGRANNI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.