Morgunblaðið - 13.02.2021, Qupperneq 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
„Það veit enginn
hvað þessi Borgarlína
er!“ hefur maður
heyrt sagt. „Hvar á
hún að liggja? Er
þetta strætó eða lest?
Enginn virðist geta
svarað því!“ Þetta er
allt rétt … ef litið er
framhjá því að vika er
síðan gefin var út 160
blaðsíðna skýrsla,
Frumdrög Borgarlínu, sem sýnir
nákvæma legu Borgarlínunnar í
gegnum borgarlandið, legu stöðva,
þversnið gatna og útfærslur ein-
staka gatnamóta. Fyrir utan þetta
er vissulega lítið vitað um Borgarlín-
una.
Hvert fer hún?
Áhugasamir geta þannig farið á
borgarlinan.is og hlaðið niður ná-
kvæmri og myndrænni lýsingu á því
hvernig Borgalínan muni keyra nið-
ur Ártúnshöfðann, hvernig hún muni
tengjast inn á Suðurlandsbraut og
hvaða akreinar og bíla-
stæði muni þurfa að
víkja til að hún geti
fengið það rými sem
þarf. Menn geta séð
hvernig Borgarlínan fer
í gegnum miðbæinn,
hvar stöðvarnar verða
staðsettar við Háskól-
ann og Landspítalann,
hvernig hún þverar
Fossvoginn og hvaða
leið verður farin á Kárs-
nesinu.
Hvernig lítur hún út?
En fyrir utan þessa yfir hundrað
blaðsíðna löngu, myndrænu lýsingu
er lítið vitað. Og sérstaklega af
hverju þessi leið hafi verið valin en
ekki önnur! Það leiðarval virðist
ekki byggjast á neinu … nema 60
blaðsíðna skýrslu COWI-ráðgjafa-
fyrirtækisins frá 2017. Jú, ásamt ít-
arlegum tillögum Strætó að nýju
leiðarneti sem hafa verið í tvö ár í
smíðum og lesa má um í skýrslu
EFLU-verkfræðistofu og skoða á
vefsíðu Strætó. Já, og raunar glæ-
nýju umferðarlíkani höfuðborgar-
svæðisins sem unnið var af Mannviti
og COWI fyrir Vegagerðina. En fyr-
ir utan allar þessar skýrslur, ný
líkön og ítarlega vinnu sérfræðinga
Vegagerðarinnar og Verkefnastofu
Borgarlínu í nokkur ár er enn margt
óljóst.
Hvernig er hún fjármögnuð?
Til dæmis fjármögnunin. Ekkert
liggur fyrir varðandi fjármögnun
verkefnisins. Nema reyndar sögu-
legur 120 milljarða sáttmáli milli rík-
is og sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu sem útlistar nákvæmlega
hve miklu skuli kostað til og hvenær.
Þá er reyndar búið að stofna sér-
stakt félag um verkefnið, setja í það
eignir, skipa því stjórn og ráða fram-
kvæmdastjóra og starfsfólk. Ein-
ungis nánast allir flokkar á þingi
studdu stofnun félagsins. En að öðru
leyti er enn margt í lausu lofti varð-
andi þessi mál.
Hverju skilar hún?
Það er lítið vitað um hvort
Borgarlínu-verkefnið muni skila ein-
hverju til samfélagsins. Eina sem við
höfum í hendi til að geta rætt um
það af einhverju viti er ítarleg 60
blaðsíðna skýrsla um félagshag-
fræðilega greiningu á Borgarlínunni
sem bendir til að Borgarlínan skili
samfélaginu 26 milljarða ábata yfir
30 ára tímabil. En ef við lítum fram
hjá þessum útreikningum, þá gæt-
um við alveg eins verið að kaupa
miða í Lottóinu!
Á hverju keyrir hún?
Loks er það orkugjafinn. Það er
enn ekkert vitað um á hverju þessi
Borgarlína mun keyra. „Kolum?“
kann einhver að spyrja. Það er von
að fólk spyrji! Því það eina sem við
höfum í höndunum varðandi orku-
gjafann er ítarleg margra tuga blað-
síðna Orkugjafaskýrsla, gefin út af
Landsvirkjun og unnin af Royal
Haskoning DHV og VSÓ ráðgjöf.
Niðurstaða hennar er að valið standi
á milli vetnis eða „plugin“-
rafmagnslausna. En ef þessi skýrsla
er sett til hliðar, þá er flest enn á
huldu varðandi orkumál Borgarlín-
unnar.
Þar sem kaldhæðni skilst ekki
alltaf á prenti er rétt að leggja háð-
tóninn til hliðar hér í lok pistilsins og
segja hlutina eins og þeir eru. Það er
ekki hægt að halda fram góðu móti
að það sé „gríðarlega margt óljóst
með Borgarlínuna“. Auðvitað geta á
henni verið ýmsar skoðanir, skárra
væri það nú með framkvæmd þar
sem fyrst áfanginn einn kostar um
25 milljarða! En fáar samöngufram-
kvæmdir síðustu ára hafa verið jafn-
vel undirbúnar. Fáar jafnmikið
rýndar. Fáar jafnvel kynntar. Allt
við Borgarlínuna er að verða eins
ljóst og það getur orðið.
Eftir Pawel
Bartoszek » Fáar samöngufram-
kvæmdir síðustu ára
hafa verið jafnvel und-
irbúnar, rýndar og
kynntar. Allt við Borg-
arlínuna er að verða
eins ljóst og það getur
orðið.
Pawel Bartoszek
Höfundur er borgarfulltrúi
Viðreisnar og varaformaður
skipulags- og samgönguráðs.
Vel undirbúin Borgarlína
Að mörgu leyti geta
orð Jónasar Árnasonar
í texta sönglagsins um
Fröken Reykjavík
einnig átt við um borg-
ina sjálfa: „Ó, það er
stúlka engum öðrum
lík, það er hún fröken
Reykjavík.“ Með sinn
„djarfa svip og ögn af
yfirlæti“ má með
nokkurri einföldun
segja að Reykjavík sé
blanda af evrópskri stórborg með
þéttri byggð og úthverfum eins og í
Bandaríkjunum. Höfuðborgin okkar
hefur þannig fjölbreytta kosti fyrir
þá sem þar búa. Með þeim hætti
ættu kjörnir fulltrúar einmitt einnig
að nálgast borgarbúa, hvort sem er í
samgöngumálum, menntamálum,
velferðarmálum eða öðrum mála-
flokkum. Fjölbreytni og valfrelsi
eru góðir kostir.
Íbúar í Reykjavík eiga að búa við
mikil lífsgæði. Í Reykjavík eiga að
felast tækifæri, borgin á að vera að-
sópsmikil og litrík „á ótrúlega rauð-
um skóm“ líkt og segir í söngtext-
anum. Ungt fólk á að velja sér
borgina sem vænlegan kost fyrir sig
og sína fjölskyldu. Þar á að vera
auðvelt að stofna fyrirtæki, hafa að-
gang að leikskóla, komast leiðar
sinnar með skilvirkum hætti, njóta
afþreyingar og alls þess sem borgin
hefur upp á að bjóða.
Reykjavík er nógu stór til að
rýma fjölbreytt hverfi og ólíka val-
möguleika – en á sama tíma nógu
lítil til að tryggja að rekstur og
stjórn borgarinnar taki mið af þjón-
ustu við borgarbúa en ekki stjórn-
kerfið sjálft. Því miður endur-
speglar vinstri stjórnin í Reykjavík
hvorugt.
Valfrelsi í samgöngumálum
Lífsgæði borgarbúa byggjast að
stórum hluta á skilvirkum sam-
göngum.
Þau verða ekki til með því að
verja – eða eyða – löngum tíma til
að komast í og úr vinnu svo tekið sé
dæmi. Í fjölbreyttum hverfum borg-
arinnar er allur gangur á því hvern-
ig íbúar sinna öðrum daglegum
þörfum, svo sem verslunarferðum,
íþrótta- og tómstundastarfi barna
og öðru. Það sem skiptir mestu er
að kjörnir fulltrúar bjóði borgar-
búum upp á valfrelsi til að bæta lífs-
kjör þeirra. Óháð því hvort borgar-
búar velja að ferðast með bíl, strætó
eða á hjóli, þá þurfum við að hlúa
þannig að samgöngukerfinu í heild
sinni að hver og einn komist leiðar
sinnar á áreiðanlegan,
markvissan og fljótan
hátt. Það gerist ekki
með þvinguðum sam-
göngumáta heldur með
vönduðu skipulagi þar
sem ýtt er undir val-
frelsi borgarbúa.
Markmið allra kjör-
inna fulltrúa, bæði
borgarfulltrúa og þing-
manna, ætti að vera að
tryggja að borgarbúar
eigi auðvelt með að
komast á milli staða
með þeim hætti sem
hentar þeim best. Það felur vissu-
lega í sér uppbyggingu á innviðum,
svo sem almenningssamgöngum,
hjólreiðastígum og vegum. Þá er
ekki unnt að undanskilja einn sam-
göngumáta á kostnað annars.
Borgin rekin á yfirdrætti
Reykjavíkurborg er aftur á móti
nokkur vandi á höndum, því fjár-
hagur hennar er svo gott sem að
þrotum kominn. Þrátt fyrir góðæri
síðustu ára hafa skuldir borgarinnar
aukist um tæp 85% að nafnvirði og
eigið fé borgarinnar er innan við
20%. Aftur á móti jukust skatt-
tekjur borgarinnar um 48% umfram
verðlag á árunum 2012-2018 enda er
útsvar í hámarki og fasteignaskatt-
ar háir. Ef Reykjavíkurborg væri
heimilisbókhald væri rekstur heim-
ilisins í járnum og yfirdrátturinn
fullnýttur þrátt fyrir að heim-
ilismenn hefðu fengið launahækk-
anir síðustu ár. Ekkert má út af
bera í slíkri stöðu og þegar flest
heimilistækin eyðileggjast á sama
tíma er ekkert eftir aflögu. Því mið-
ur bendir fátt til þess að fjárhagur
Reykjavíkurborgar batni á næstu
árum.
Flest af stærri sveitarfélögum
landsins hafa bætt stöðu sína veru-
lega á liðnum árum og það hefur
ríkissjóður einnig gert. Reykjavík-
urborg sker sig úr hvað rekstur
varðar en ósjálfbær rekstur borg-
arinnar hefur neikvæð áhrif á dag-
legt líf borgarbúa til lengri tíma.
Það kemur alltaf að skuldadögum
og í tilfelli borgarinnar koma áhrifin
fyrst og fremst fram í verri þjón-
ustu við borgarbúa. Það er mikil
ábyrgð fólgin í því að reka sveitarfé-
lag enda byggjast lífsgæði íbúanna
á því að vel sé haldið á málum.
Fjölgum störfum
Áhrifaríkasta leið Reykjavíkur-
borgar til að bæta fjárhag sinn – og
auka um leið lífsgæði borgarbúa –
er að vaxa úr núverandi stöðu. Það
gerist öðru fremur með öflugu at-
vinnulífi og fjölgun starfa í einka-
geiranum. Óháð ytri aðstæðum
hverju sinni, þá ætti það ávallt að
vera stefna borgarinnar að laða til
sín fjölbreytt fyrirtæki, byggja upp
öflugt atvinnulíf og fjölga störfum. Í
því ástandi sem nú ríkir þarf að
ganga lengra en áður, til dæmis
með því að létta á regluverki og
lækka fasteignaskatta.
Fyrst og fremst þarf stjórnkerfi
borgarinnar að vera skilvirkt. Á síð-
ustu árum, og löngu fyrir Covid-19-
faraldurinn, höfum við ítrekað séð
og lesið fréttir af seinagangi í svör-
um borgarinnar við fyrirspurnum,
tafir í afgreiðslu beiðna o.s.frv.
Stjórnkerfi borgarinnar er orðið of
stórt og þunglamalegt og það mun
til lengri tíma skaða atvinnulífið í
borginni – og þar með lífsgæði borg-
arbúa.
Framúrskarandi menntakerfi
Rekstur grunnskóla er eitt mikil-
vægasta verkefni sveitarfélaga. Til
að auka lífsgæði í Reykjavík þarf að
efla menntakerfið til muna. Það er
ekki gert með því einu að fjölga
starfsmönnum á skrifstofu skóla-
ráðs.
Ein stærsta áskorun mennta-
kerfisins er að búa nemendur á öll-
um aldri undir framtíðina. Það verk-
efni er sífellt í þróun og því er
stöðnun líklega versti óvinur
menntakerfisins – og þá um leið at-
vinnulífsins, nýsköpunar, rannsókna
og þannig mætti áfram telja. Ísland
ver hærra hlutfalli landsframleiðslu
til grunnskóla en nokkurt annað
þróað ríki, 2,33%, en er þó í 39. sæti
á PISA. Þótt það sé ekki fullkominn
mælikvarði segir hann okkur hvar
við stöndum í samanburði við önnur
lönd. Við viljum að menntakerfið
okkar sé framúrskarandi og að við
fáum gæði fyrir þá fjármuni sem við
verjum í kerfið. Til þess verðum við
að auka sveigjanleika og tækifæri
hvers nemenda til að blómstra.
Skólastarf snýst þó ekki eingöngu
um einkunnir nemenda á prófum
heldur þá hæfni sem nemendur
þurfa til að spjara sig síðar í sam-
félaginu. Til að efla menntakerfið
þurfa borgaryfirvöld að bjóða upp á
aukinn sveigjanleika og aukið val-
frelsi. Í stað þess að leggja stein í
götu einkarekinna skóla ætti borgin
að greiða götu þeirra. Um leið er
hægt að efla kennslu í skólum borg-
arinnar til muna og bjóða upp á fjöl-
breytt skólastarf. Þetta þarf að gera
í góðu samstarfi við kennara og
hvetja til nýsköpunar í skólastarfi.
Allt felur þetta í sér aukin lífs-
gæði borgarbúa – og í þessu tilviki
yngstu kynslóðanna sem munu von-
andi sjá hag sinn í því að vilja búa í
Reykjavík til framtíðar.
Lítil borg en samt svo stór
Fleiri þættir fela í sér aukin lífs-
gæði í Reykjavík. Valfrelsi á ekki
síður við í heilbrigðis- og velferðar-
málum borgarinnar, rétt eins og í
samgöngumálum, atvinnumálum og
menntamálum líkt og hér hefur ver-
ið rakið.
Fyrir einhverjum kann það að
virka sem draumsýn að búa í borg
sem býður íbúum upp á fjölbreyttar
og greiðar samgöngur, framúrskar-
andi menntakerfi, öflugt atvinnulíf,
hófsama skattheimtu og skilvirkt
stjórnkerfi. Í þessu felst þó engin
draumsýn því eins og ég nefndi hér í
upphafi þá er Reykjavík nógu stór
en um leið nógu lítil til að byggja
upp þá þjónustuþætti og þau kerfi
sem til þarf til að íbúar hennar geti
búið við þessi lífsgæði.
Til að svo geti orðið þurfa kjörnir
fulltrúar í Reykjavík að taka mið af
þörfum einstaklinga og fyrirtækja.
Stærra stjórnkerfi felur ekki endi-
lega í sér betri borg eða betra líf
fyrir borgarbúa – öðru nær.
Stjórnmálin í Reykjavík þurfa
heldur ekki að snúast um
hagsmunaárekstra eða baráttu á
milli hverfa. Í samgöngumálum geta
hagsmunir Vesturbæjar og Mið-
bæjar farið saman við hagsmuni
Grafarvogs og Grafarholts, svo tek-
in séu dæmi. Allir þeir sem búa í
þessum hverfum þurfa að komast á
milli staða með einum eða öðrum
hætti. Því fleiri valmöguleikar, því
líklegra er að sátt ríki um innviða-
uppbyggingu borgarinnar og það
sem meira máli skiptir; því meiri
líkur eru á að sátt ríki á meðal íbúa
borgarinnar. Hið sama á við um
skólastarf, velferðarþjónustu og
aðra þá þætti sem hér hefur verið
fjallað um.
Við sem störfum sem kjörnir
fulltrúar Reykvíkinga erum líklegri
til að auka lífsgæði í borginni með
því að hlusta á borgarbúa, setja
okkur í spor þeirra sem búa í mis-
munandi hverfum, þeirra sem sækja
vinnu í aðra hluta borgarinnar,
þeirra sem treysta á menntakerfi
sem undirbýr börn undir framtíðina
og þeirra sem vilja hafa fjölbreytt
val um eigið líf. Reykjavík er nógu
stór en á sama tíma nógu lítil til að
við getum hlustað á allar þessar
raddir.
Eftir Áslaugu Örnu
Sigurbjörnsdóttur
»Reykjavík er nógu stór til að rýma fjölbreytt
hverfi og ólíka valmöguleika – en á sama tíma
nógu lítil til að tryggja að rekstur og stjórn borg-
arinnar taki mið af þjónustu við borgarbúa en ekki
stjórnkerfið sjálft. Því miður endurspeglar vinstri
stjórnin í Reykjavík hvorugt.
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Höfundur er dómsmálaráðherra og
þingmaður Reykjavíkur.
Fröken Reykjavík
Morgunblaðið/Hari
Reykjavík Höfuðborgin okkar hefur fjölbreytta kosti fyrir þá sem þar búa.