Morgunblaðið - 13.02.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 13.02.2021, Síða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 „Það veit enginn hvað þessi Borgarlína er!“ hefur maður heyrt sagt. „Hvar á hún að liggja? Er þetta strætó eða lest? Enginn virðist geta svarað því!“ Þetta er allt rétt … ef litið er framhjá því að vika er síðan gefin var út 160 blaðsíðna skýrsla, Frumdrög Borgarlínu, sem sýnir nákvæma legu Borgarlínunnar í gegnum borgarlandið, legu stöðva, þversnið gatna og útfærslur ein- staka gatnamóta. Fyrir utan þetta er vissulega lítið vitað um Borgarlín- una. Hvert fer hún? Áhugasamir geta þannig farið á borgarlinan.is og hlaðið niður ná- kvæmri og myndrænni lýsingu á því hvernig Borgalínan muni keyra nið- ur Ártúnshöfðann, hvernig hún muni tengjast inn á Suðurlandsbraut og hvaða akreinar og bíla- stæði muni þurfa að víkja til að hún geti fengið það rými sem þarf. Menn geta séð hvernig Borgarlínan fer í gegnum miðbæinn, hvar stöðvarnar verða staðsettar við Háskól- ann og Landspítalann, hvernig hún þverar Fossvoginn og hvaða leið verður farin á Kárs- nesinu. Hvernig lítur hún út? En fyrir utan þessa yfir hundrað blaðsíðna löngu, myndrænu lýsingu er lítið vitað. Og sérstaklega af hverju þessi leið hafi verið valin en ekki önnur! Það leiðarval virðist ekki byggjast á neinu … nema 60 blaðsíðna skýrslu COWI-ráðgjafa- fyrirtækisins frá 2017. Jú, ásamt ít- arlegum tillögum Strætó að nýju leiðarneti sem hafa verið í tvö ár í smíðum og lesa má um í skýrslu EFLU-verkfræðistofu og skoða á vefsíðu Strætó. Já, og raunar glæ- nýju umferðarlíkani höfuðborgar- svæðisins sem unnið var af Mannviti og COWI fyrir Vegagerðina. En fyr- ir utan allar þessar skýrslur, ný líkön og ítarlega vinnu sérfræðinga Vegagerðarinnar og Verkefnastofu Borgarlínu í nokkur ár er enn margt óljóst. Hvernig er hún fjármögnuð? Til dæmis fjármögnunin. Ekkert liggur fyrir varðandi fjármögnun verkefnisins. Nema reyndar sögu- legur 120 milljarða sáttmáli milli rík- is og sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu sem útlistar nákvæmlega hve miklu skuli kostað til og hvenær. Þá er reyndar búið að stofna sér- stakt félag um verkefnið, setja í það eignir, skipa því stjórn og ráða fram- kvæmdastjóra og starfsfólk. Ein- ungis nánast allir flokkar á þingi studdu stofnun félagsins. En að öðru leyti er enn margt í lausu lofti varð- andi þessi mál. Hverju skilar hún? Það er lítið vitað um hvort Borgarlínu-verkefnið muni skila ein- hverju til samfélagsins. Eina sem við höfum í hendi til að geta rætt um það af einhverju viti er ítarleg 60 blaðsíðna skýrsla um félagshag- fræðilega greiningu á Borgarlínunni sem bendir til að Borgarlínan skili samfélaginu 26 milljarða ábata yfir 30 ára tímabil. En ef við lítum fram hjá þessum útreikningum, þá gæt- um við alveg eins verið að kaupa miða í Lottóinu! Á hverju keyrir hún? Loks er það orkugjafinn. Það er enn ekkert vitað um á hverju þessi Borgarlína mun keyra. „Kolum?“ kann einhver að spyrja. Það er von að fólk spyrji! Því það eina sem við höfum í höndunum varðandi orku- gjafann er ítarleg margra tuga blað- síðna Orkugjafaskýrsla, gefin út af Landsvirkjun og unnin af Royal Haskoning DHV og VSÓ ráðgjöf. Niðurstaða hennar er að valið standi á milli vetnis eða „plugin“- rafmagnslausna. En ef þessi skýrsla er sett til hliðar, þá er flest enn á huldu varðandi orkumál Borgarlín- unnar. Þar sem kaldhæðni skilst ekki alltaf á prenti er rétt að leggja háð- tóninn til hliðar hér í lok pistilsins og segja hlutina eins og þeir eru. Það er ekki hægt að halda fram góðu móti að það sé „gríðarlega margt óljóst með Borgarlínuna“. Auðvitað geta á henni verið ýmsar skoðanir, skárra væri það nú með framkvæmd þar sem fyrst áfanginn einn kostar um 25 milljarða! En fáar samöngufram- kvæmdir síðustu ára hafa verið jafn- vel undirbúnar. Fáar jafnmikið rýndar. Fáar jafnvel kynntar. Allt við Borgarlínuna er að verða eins ljóst og það getur orðið. Eftir Pawel Bartoszek » Fáar samöngufram- kvæmdir síðustu ára hafa verið jafnvel und- irbúnar, rýndar og kynntar. Allt við Borg- arlínuna er að verða eins ljóst og það getur orðið. Pawel Bartoszek Höfundur er borgarfulltrúi Viðreisnar og varaformaður skipulags- og samgönguráðs. Vel undirbúin Borgarlína Að mörgu leyti geta orð Jónasar Árnasonar í texta sönglagsins um Fröken Reykjavík einnig átt við um borg- ina sjálfa: „Ó, það er stúlka engum öðrum lík, það er hún fröken Reykjavík.“ Með sinn „djarfa svip og ögn af yfirlæti“ má með nokkurri einföldun segja að Reykjavík sé blanda af evrópskri stórborg með þéttri byggð og úthverfum eins og í Bandaríkjunum. Höfuðborgin okkar hefur þannig fjölbreytta kosti fyrir þá sem þar búa. Með þeim hætti ættu kjörnir fulltrúar einmitt einnig að nálgast borgarbúa, hvort sem er í samgöngumálum, menntamálum, velferðarmálum eða öðrum mála- flokkum. Fjölbreytni og valfrelsi eru góðir kostir. Íbúar í Reykjavík eiga að búa við mikil lífsgæði. Í Reykjavík eiga að felast tækifæri, borgin á að vera að- sópsmikil og litrík „á ótrúlega rauð- um skóm“ líkt og segir í söngtext- anum. Ungt fólk á að velja sér borgina sem vænlegan kost fyrir sig og sína fjölskyldu. Þar á að vera auðvelt að stofna fyrirtæki, hafa að- gang að leikskóla, komast leiðar sinnar með skilvirkum hætti, njóta afþreyingar og alls þess sem borgin hefur upp á að bjóða. Reykjavík er nógu stór til að rýma fjölbreytt hverfi og ólíka val- möguleika – en á sama tíma nógu lítil til að tryggja að rekstur og stjórn borgarinnar taki mið af þjón- ustu við borgarbúa en ekki stjórn- kerfið sjálft. Því miður endur- speglar vinstri stjórnin í Reykjavík hvorugt. Valfrelsi í samgöngumálum Lífsgæði borgarbúa byggjast að stórum hluta á skilvirkum sam- göngum. Þau verða ekki til með því að verja – eða eyða – löngum tíma til að komast í og úr vinnu svo tekið sé dæmi. Í fjölbreyttum hverfum borg- arinnar er allur gangur á því hvern- ig íbúar sinna öðrum daglegum þörfum, svo sem verslunarferðum, íþrótta- og tómstundastarfi barna og öðru. Það sem skiptir mestu er að kjörnir fulltrúar bjóði borgar- búum upp á valfrelsi til að bæta lífs- kjör þeirra. Óháð því hvort borgar- búar velja að ferðast með bíl, strætó eða á hjóli, þá þurfum við að hlúa þannig að samgöngukerfinu í heild sinni að hver og einn komist leiðar sinnar á áreiðanlegan, markvissan og fljótan hátt. Það gerist ekki með þvinguðum sam- göngumáta heldur með vönduðu skipulagi þar sem ýtt er undir val- frelsi borgarbúa. Markmið allra kjör- inna fulltrúa, bæði borgarfulltrúa og þing- manna, ætti að vera að tryggja að borgarbúar eigi auðvelt með að komast á milli staða með þeim hætti sem hentar þeim best. Það felur vissu- lega í sér uppbyggingu á innviðum, svo sem almenningssamgöngum, hjólreiðastígum og vegum. Þá er ekki unnt að undanskilja einn sam- göngumáta á kostnað annars. Borgin rekin á yfirdrætti Reykjavíkurborg er aftur á móti nokkur vandi á höndum, því fjár- hagur hennar er svo gott sem að þrotum kominn. Þrátt fyrir góðæri síðustu ára hafa skuldir borgarinnar aukist um tæp 85% að nafnvirði og eigið fé borgarinnar er innan við 20%. Aftur á móti jukust skatt- tekjur borgarinnar um 48% umfram verðlag á árunum 2012-2018 enda er útsvar í hámarki og fasteignaskatt- ar háir. Ef Reykjavíkurborg væri heimilisbókhald væri rekstur heim- ilisins í járnum og yfirdrátturinn fullnýttur þrátt fyrir að heim- ilismenn hefðu fengið launahækk- anir síðustu ár. Ekkert má út af bera í slíkri stöðu og þegar flest heimilistækin eyðileggjast á sama tíma er ekkert eftir aflögu. Því mið- ur bendir fátt til þess að fjárhagur Reykjavíkurborgar batni á næstu árum. Flest af stærri sveitarfélögum landsins hafa bætt stöðu sína veru- lega á liðnum árum og það hefur ríkissjóður einnig gert. Reykjavík- urborg sker sig úr hvað rekstur varðar en ósjálfbær rekstur borg- arinnar hefur neikvæð áhrif á dag- legt líf borgarbúa til lengri tíma. Það kemur alltaf að skuldadögum og í tilfelli borgarinnar koma áhrifin fyrst og fremst fram í verri þjón- ustu við borgarbúa. Það er mikil ábyrgð fólgin í því að reka sveitarfé- lag enda byggjast lífsgæði íbúanna á því að vel sé haldið á málum. Fjölgum störfum Áhrifaríkasta leið Reykjavíkur- borgar til að bæta fjárhag sinn – og auka um leið lífsgæði borgarbúa – er að vaxa úr núverandi stöðu. Það gerist öðru fremur með öflugu at- vinnulífi og fjölgun starfa í einka- geiranum. Óháð ytri aðstæðum hverju sinni, þá ætti það ávallt að vera stefna borgarinnar að laða til sín fjölbreytt fyrirtæki, byggja upp öflugt atvinnulíf og fjölga störfum. Í því ástandi sem nú ríkir þarf að ganga lengra en áður, til dæmis með því að létta á regluverki og lækka fasteignaskatta. Fyrst og fremst þarf stjórnkerfi borgarinnar að vera skilvirkt. Á síð- ustu árum, og löngu fyrir Covid-19- faraldurinn, höfum við ítrekað séð og lesið fréttir af seinagangi í svör- um borgarinnar við fyrirspurnum, tafir í afgreiðslu beiðna o.s.frv. Stjórnkerfi borgarinnar er orðið of stórt og þunglamalegt og það mun til lengri tíma skaða atvinnulífið í borginni – og þar með lífsgæði borg- arbúa. Framúrskarandi menntakerfi Rekstur grunnskóla er eitt mikil- vægasta verkefni sveitarfélaga. Til að auka lífsgæði í Reykjavík þarf að efla menntakerfið til muna. Það er ekki gert með því einu að fjölga starfsmönnum á skrifstofu skóla- ráðs. Ein stærsta áskorun mennta- kerfisins er að búa nemendur á öll- um aldri undir framtíðina. Það verk- efni er sífellt í þróun og því er stöðnun líklega versti óvinur menntakerfisins – og þá um leið at- vinnulífsins, nýsköpunar, rannsókna og þannig mætti áfram telja. Ísland ver hærra hlutfalli landsframleiðslu til grunnskóla en nokkurt annað þróað ríki, 2,33%, en er þó í 39. sæti á PISA. Þótt það sé ekki fullkominn mælikvarði segir hann okkur hvar við stöndum í samanburði við önnur lönd. Við viljum að menntakerfið okkar sé framúrskarandi og að við fáum gæði fyrir þá fjármuni sem við verjum í kerfið. Til þess verðum við að auka sveigjanleika og tækifæri hvers nemenda til að blómstra. Skólastarf snýst þó ekki eingöngu um einkunnir nemenda á prófum heldur þá hæfni sem nemendur þurfa til að spjara sig síðar í sam- félaginu. Til að efla menntakerfið þurfa borgaryfirvöld að bjóða upp á aukinn sveigjanleika og aukið val- frelsi. Í stað þess að leggja stein í götu einkarekinna skóla ætti borgin að greiða götu þeirra. Um leið er hægt að efla kennslu í skólum borg- arinnar til muna og bjóða upp á fjöl- breytt skólastarf. Þetta þarf að gera í góðu samstarfi við kennara og hvetja til nýsköpunar í skólastarfi. Allt felur þetta í sér aukin lífs- gæði borgarbúa – og í þessu tilviki yngstu kynslóðanna sem munu von- andi sjá hag sinn í því að vilja búa í Reykjavík til framtíðar. Lítil borg en samt svo stór Fleiri þættir fela í sér aukin lífs- gæði í Reykjavík. Valfrelsi á ekki síður við í heilbrigðis- og velferðar- málum borgarinnar, rétt eins og í samgöngumálum, atvinnumálum og menntamálum líkt og hér hefur ver- ið rakið. Fyrir einhverjum kann það að virka sem draumsýn að búa í borg sem býður íbúum upp á fjölbreyttar og greiðar samgöngur, framúrskar- andi menntakerfi, öflugt atvinnulíf, hófsama skattheimtu og skilvirkt stjórnkerfi. Í þessu felst þó engin draumsýn því eins og ég nefndi hér í upphafi þá er Reykjavík nógu stór en um leið nógu lítil til að byggja upp þá þjónustuþætti og þau kerfi sem til þarf til að íbúar hennar geti búið við þessi lífsgæði. Til að svo geti orðið þurfa kjörnir fulltrúar í Reykjavík að taka mið af þörfum einstaklinga og fyrirtækja. Stærra stjórnkerfi felur ekki endi- lega í sér betri borg eða betra líf fyrir borgarbúa – öðru nær. Stjórnmálin í Reykjavík þurfa heldur ekki að snúast um hagsmunaárekstra eða baráttu á milli hverfa. Í samgöngumálum geta hagsmunir Vesturbæjar og Mið- bæjar farið saman við hagsmuni Grafarvogs og Grafarholts, svo tek- in séu dæmi. Allir þeir sem búa í þessum hverfum þurfa að komast á milli staða með einum eða öðrum hætti. Því fleiri valmöguleikar, því líklegra er að sátt ríki um innviða- uppbyggingu borgarinnar og það sem meira máli skiptir; því meiri líkur eru á að sátt ríki á meðal íbúa borgarinnar. Hið sama á við um skólastarf, velferðarþjónustu og aðra þá þætti sem hér hefur verið fjallað um. Við sem störfum sem kjörnir fulltrúar Reykvíkinga erum líklegri til að auka lífsgæði í borginni með því að hlusta á borgarbúa, setja okkur í spor þeirra sem búa í mis- munandi hverfum, þeirra sem sækja vinnu í aðra hluta borgarinnar, þeirra sem treysta á menntakerfi sem undirbýr börn undir framtíðina og þeirra sem vilja hafa fjölbreytt val um eigið líf. Reykjavík er nógu stór en á sama tíma nógu lítil til að við getum hlustað á allar þessar raddir. Eftir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur »Reykjavík er nógu stór til að rýma fjölbreytt hverfi og ólíka valmöguleika – en á sama tíma nógu lítil til að tryggja að rekstur og stjórn borg- arinnar taki mið af þjónustu við borgarbúa en ekki stjórnkerfið sjálft. Því miður endurspeglar vinstri stjórnin í Reykjavík hvorugt. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Höfundur er dómsmálaráðherra og þingmaður Reykjavíkur. Fröken Reykjavík Morgunblaðið/Hari Reykjavík Höfuðborgin okkar hefur fjölbreytta kosti fyrir þá sem þar búa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.