Morgunblaðið - 13.02.2021, Qupperneq 32
32 MINNINGAR
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta sunnudaginn 14. febrúar kl.
11. Brúðuleikhús, söngur og og leikir.
Umsjón hafa sr. Þór, Ingunn og Birkir.
Grímuskylda fyrir fullorðna.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta og barna-
starf kl. 9.30. Athugið breyttan tíma,
því nú tökum við daginn snemma í
Áskirkju og messum framvegis að
jafnaði kl. 9.30, klukkan hálftíu. Jó-
hanna María Eyjólfsdóttir djákni leiðir
samverustund sunnudagaskólans.
Séra Sigurður Jónsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur,
organisti er Bjartur Logi Guðnason.
Kirkjukaffi í Ási að guðsþjónustu lok-
inni þar sem fermingarbörn vorsins
leggja til meðlætið, og fá afhentar
Biblíur að gjöf frá Safnaðarfélagi Ás-
kirkju.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 17. Barnakór Ástjarnarkirkju
syngur undir stjórn Helgu Loftsdóttur.
Davíð Sigurgeirsson tónlistarstjóri
annast undirleik. Prestrar eru Arnór
Bjarki Blomsterberg og Kjartan Jóns-
son. 2 m reglan er virt og öllum er
skylt að bera grímur.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjón-
ustur hefjast á ný, því nú mega 150
manns koma saman í guðsþjónustu.
Grímuskylda er og 2 m reglan virt.
Þess vegna verður ekki máltíð eða
kaffi eftir guðsþjónusturnar að sinni.
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Magnús
Björn Björnsson þjónar fyrir altari. Örn
Magnússon organisti leikur og stjórn-
ar félögum úr Kór Breiðholtskirkju.
Sunnudagaskóli kl. 11. Steinunn Þor-
bergsdóttir djákni og Steinunn Leifs-
dóttir sjá um hann.
Alþjóðlegi söfnuðurinn kl. 14. Prestur
sr. Toshiki Toma
BÚSTAÐAKIRKJA |
Barnamessa og sunnudagaskóli
sunnudag kl. 11. Daníel Ágúst, Sóley
Adda og Jónas Þórir leiða stundina
ásamt prestum.
Guðsþjónusta kl. 13. Ath. tímann. Fé-
lagar úr Kór Bústaðakirkju ásamt Jón-
asi Þóri. Messuþjónar aðstoða. Sr.
Eva Björk Valdimarsdóttir messar.
Munum handþvott, 2 metra reglu og
grímur.
DÓMKIRKJAN | Guðþjónusta kl. 11.
Séra Elínborg Sturludóttir prédikar.
Kári Þormar, dómorganisti og Dóm-
kórinn. Fermingarbörn vorsins eru
hvött til að mæta, fermingarfræðsla
verður á kirkjuloftinu að lokinni
messu.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og prédikar. Kór
kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhild-
ar Valgarðsdóttur. Meðhjálpari er
Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir
stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Langþráð
létt fjölskylduguðsþjónusta 14. febr-
úar kl. 14.
Fermingarbörn taka þátt. Séra Hjörtur
Magni Jóhannsson safnaðarprestur
leiðir stundina. Fjölbreytt tónlist;
Sönghópurinn við Tjörnina og hljóm-
sveitin Mantra undir stjórn Gunnars
Gunnarssonar organista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta sunnudaginn 14. febrúar kl. 11.
Sr. Arna Ýrr prédikar og þjónar fyrir
altari. Organisti er Hákon Leifsson.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.
Sunnudagaskólinn verður einnig kl.
11 á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón
hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og
Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari
er Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Almenn guðs-
þjónusta kl. 11. Ásta Haraldsdóttir
kantor, leikur á orgel og stjórnar
Kirkjukór Grensáskirkju sem leiðir
sönginn. Messuþjónar og ungmenni
úr fermingarárgangi 2021 flytja lestra
og bænir. Prestur er María G. Ágústs-
dóttir. Sunnudagaskólinn er í Bú-
staðakirkju á sama tíma. Þriðjudagur:
Kyrrðarstund kl. 12. Fimmtudagur:
Núvitundarstund kl. 18.15. Velkomið
að mæta með grímu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf 14. febr-
úar kl. 11. Prestar eru Karl V. Matt-
híasson og Leifur Ragnar Jónsson.
Organisti er Hrönn Helgadóttir og kór
Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í
safnaðarheimilinu í umsjá sr. Péturs
Ragnhildarsonar, Ástu Guðrúnar og
brúðunar Viktoríu.
Hvetjum fermingarbörn og foreldra að
koma í kirkju. Meðhjálari er Guðný
Aradóttir og kirkjuvörður er Lovísa
Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Jón Helgi Þór-
arinsson þjónar, Guðmundur Sigurðs-
son leikur á orgel og Þórunn Vala
Valdimarsdóttir syngur. Sunnudags-
kólinn hefst í safnaðarheimilinu kl.
11 og umsjón hefur Bylgja Dís Gunn-
arsdóttir. Gætum að sóttvarna-
reglum, s.s. grímuskyldu fullorðinna
og tveggja metra reglunni. Ekki verður
boðið upp á kaffisopa eftir stund-
irnar.
HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli 14. febrúar
kl. 11. Sigurður Árni Þórðarson þjónar
fyrir altari og prédikar. Messuþjónar
aðstoða. Organisti er Björn Steinar
Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja. Kristný Rós
Gústafsdóttir stýrir sunnudagaskólan-
um. Helgistundir með passíusálmal-
estri eru einnig í Hallgrímskirkju
mánudaga til föstudaga kl. 12. Um
annað starf kirkjunnar sjá hallgrims-
kirkja.is
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Félagar í Kordíu kór Háteigskirkju
leiða kirkjusöng.
Kirkjugestir beðnir að virða sóttvarn-
arreglur með grímunotkun og fjar-
lægðarmörkum.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Guðs-
þjónusta á ný eftir langa lokun. Kór
Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn
Davíðs Sigurgeirsson tónlistarstjóra.
Prestarnir Arnór Bjarki Blomsterberg
og Kjartan Jónsson þjóna fyrir altari
og prédika.
Grímuskylda og við virðum 2 m regl-
una.
KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund kl.
11, dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson hér-
aðsprestur leiðir og sér um tónlist.
Sunnudagaskólinn á sama tíma í
safnaðarheimilinu Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa 14.
febrúar kl. 11. Aldís Rut Gísladóttir
prestur þjónar, Gradualekór Lang-
holtskirkju syngur undir stjórn Sunnu
Karenar Einarsdóttur, organisti er
Magnús Ragnarsson. Sunnudaga-
skólinn á sínum stað og Marta og
Pétur taka vel á móti börnunum
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Laugarneskirkju og
Kristján Hrannar Pálsson organisti.
Sr. Sigurður Jónsson þjónar fyrir alt-
ari.
Mánudagur 15.2. Kyrrðarkvöld kl. 20.
Kirkjan opnuð kl. 19.30.
Miðvikudagur 17.2. Foreldrasamvera
á milli kl. 10 og 12.
Virðum fjöldatakmarkanir og aðrar
smitvarnir.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl.
20.
Félagar úr Kór Lindakirkju leiða safn-
aðarsönginn undir stjórn Óskars Eina-
arssonar. Sr. Guðmundur Karl Brynj-
arsson þjónar. Steymt verður frá
guðsþjónustunni á lindakirkja.is
NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Org-
anisti er Steingrímur Þórhallsson.
Prestur er Skúli S. Ólafsson. Gengið
er beint inn í kirkjuna um aðaldyr.
Sunnudagskóli kl. 11. Umsjón Hilda
María Sigurðardóttir, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir og Ari Agnarsson. Geng-
ið er beint inn í safnaðarheimilið.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Vegna
ástandsins í þjóðfélaginu verður
streymt frá helgistund í kirkjunni
sunnudaginn 14. þ.m. Mexíkósk
hljómlist o.fl. Minnum á vefsíðu
Óháða safnaðarins, ohadi.is
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11. Guðsþjónusta kl. 13, ath. breytt-
an messutíma. Sr. Bryndís Malla Elí-
dóttir prédikar og þjónar fyrir altari,
Kór Seljakirkju syngur undir stjórn
Tómasar Guðna Eggertssonar.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Fræðslumorgunn kl. 10 á neðri hæð
kirkjunnar. Elísabet Bjarnadóttir talar
um Norður-Katalóníu og Frönsku-
Katalóníu. Sunnudagaskóli og guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarna-
son þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson
er organisti. Sveinn Bjarki Tómasson
sér um sunnudagaskólann ásamt
leiðtogum. Félagar úr Kammerkór
Seltjarnarneskirkju leiða almennan
safnaðarsöng. Fermingarbörnin fá
Biblíuna að gjöf frá Seltjarnarnessókn
í lok athafnar.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
sunnudag kl. 11. Prestur er Egill Hall-
grímsson. Organisti er Jón Bjarnason.
Vegna fjöldatakmarkana er hægt að
skrá þátttöku á vefsíðunni sregill.net
og ganga þannig fyrir varðandi sæti ef
aðsókn fer yfir þann fjölda sem leyfð-
ur er.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11.
Henning Emil Magnússon prestur pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Félagar í
kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn
Jóhanns Baldvinssonar organista.
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl.
10 og Vídalínskirkju kl. 11 sem Matt-
hildur Bjarnadóttir æskulýðsfulltrúi
heldur utan um.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Nauteyrarkirkja við Ísafjarðardjúp
✝ SigurbjörgGústafsdóttir
fæddist á Seltjarn-
arnesi 18. febúar
1933. Hún lést á
Hömrum í Mos-
fellsbæ 28. febrúar
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Ólafía Sig-
urðardóttir, f. 4.10.
1913, d. 20.9. 2001,
og Gústaf Adolf
Gíslason, f. 20.6. 1905, d. 23.10.
1942. Systkini: Ingólfur, f. 26.11.
1931, d. 6.4. 2005, Ólafur, f. 8.8.
1934, d. 19.11. 1988, Magnfríður
Perla, f. 9.8. 1936, d. 23.7. 2016,
Kristinn, f. 23.1. 1939, Guðni, f.
Líf, f. 28.3. 2007. b) Óttar Hjalti,
f. 19.4. 2011.
2) Kristrún, f. 6.1. 1985, sam-
býlismaður Kristinn Arnar
Svavarsson, f. 10.11. 1987. Börn
þeirra: a) Bjarki, f. 2.1. 2016. b)
Eyrún, f. 31.1. 2020.
3) Ásbjörg, f. 21.2. 1986, sam-
býlismaður Benjamin James
Collins, f. 5.5. 1995.
4) Jóhanna Gerða, f. 13.9.
1990.
5) Eygló Ósk, f. 1.2. 1995,
sambýlismaður Snorri Rafn
Theodórsson, f. 26.11. 1994.
Fóstursonur Hjalti Reynir
Ragnarsson, f. 31.7. 1961, dóttir
hans Aníta María, f. 15.6. 1983,
og á hún tvær dætur.
Útförin fer fram í Fella- og
Hólakirkju í Reykjavík 13. febr-
úar 2021 klukkan 13. Streymt
verður frá útförinni:
http://bit.ly/sistaamma
Virkan hlekk má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
1.3. 1940, Arn-
björg, f. 22.5. 1944.
Hálfsystkini:
Ólafía, f. 28.11.
1944, d. 6.8. 1996,
Gústav, f. 21.7.
1947.
Sigurbjörg var
gift Hjalta Gunn-
arssyni vélstjóra, f.
20.3. 1927. Þau
eignuðust eitt barn,
Gústaf Adólf, f.
21.1. 1955, eiginkona Guðrún
Gerða Sigurþórsdóttir, f. 5.10.
1956, börn þeirra: 1) Sigurþór
Hjalti, f. 5.5. 1979, eiginkona
hans Arna Þórdís Árnadóttir, f.
26.6. 1982. Börn þeirra a) Áróra
Fyrstu minningar mínar af
foreldrum mínum og þá móður
minni eru um fjögurra ára ald-
urinn á Brávallagötunni um það
leyti sem við litla fjölskyldan
fluttum að Írafossi í Grímsnesi.
Ég á minningar einmitt þegar
við bjuggum í mötuneytinu á
Írafossi.
Við fluttum svo í stóra húsið
sem var bústaður fjölskyldunn-
ar í 28 ár á afmælisdegi mín-
um, 21. jan 1960. Móðir mín
var glaðleg og hress manneskja
og tók öllum afar vel. Húsið hjá
okkur var oftar en ekki mið-
stöð barnanna á plássinu. Þó að
við höfum verið í byrjun bara
þrjú í heimili þá man ég ekki
eftir öðru en að húsið væri fullt
af börnum sem móðir mín tók
að sér í styttri og stundum í
lengri tíma. Þetta voru ætt-
ingjar en einnig börn frá
brotnum heimilum frá höfuð-
borgarsvæðinu. Móðir mín var
öflug í kvenfélaginu og var oft
fjör í kringum það á Minni-
Borg í félagsheimilinu. Hún
var mér afar góð og hugsaði
vel um mig. Ef vandamál urðu
var hún snögg til og leysti þau
með röggsemi. Einu sinni var
hún kölluð fyrir með mér til
skólastjóra Ljósafossskóla en
ég hafði slegið son skólastjór-
ans utan undir. En hún vissi að
sá hinn sami hafði lagt mig í
einelti lengi og móðir mín tók á
því máli af krafti.
Þegar ég varð eldri og komst
á unglingsárin voru fjarlægðir
ekki vandamál ef mig langaði til
að fara í bæinn, læra á hljóðfæri
eða annað þá var hún alltaf
tilbúin að leysa þau mál og
skutla mér.
Hún átti erfiða æsku þar sem
faðir hennar lést 1942 á Jóni
Ólafssyni en togarinn var skot-
inn niður af Þjóðverjum. Hún
var 9 ára þá, næstelst sjö systk-
ina.
Hún var send í sveit eins og
mörg börn á þessum árum og
sagði mér oft sögur af því þegar
hún kom í bæinn eftir sumardvöl
var hún krúnurökuð og fötin
brennd vegna lúsa. Þegar hún
var um 16 ára var hún send til
Danmerkur ásamt elsta bróður
sínum í skóla þar. Hún var í
lýðháskóla á Nykobing Falster
og lærði þar sauma og hann-
yrðir. Hún ræddi oft dvöl sína
þar og sló um sig með dönsku
tali og notaði dönskuna þótt við-
mælandi væri að tala ensku eða
önnur mál, það skipti ekki máli.
Hún kynntist svo föður mínum
sautján ára 1950 en þau giftu sig
svo í maí 1955. Foreldrar mínir
voru sem sé saman í 71 ár.
Móðir mín hafði gaman af því
að tala og segja sögur og ef sag-
an var dauf þá var lítið mál að
krydda hana aðeins og hef ég
örugglega erft sagnagleðina frá
henni.
Hún reyndist börnum mínum
afar vel og er söknuður þeirra
allra mikill. Foreldrar mínir
bjuggu með minni fjölskyldu í
Grjótaselinu í um 20 ár og var
húsið mitt með öllum mínum
börnum og barnabörnum fullt af
fjöri hvort sem það var yfir hjá
þeim gömlu eða okkar megin.
Ég mun minnast hennar með
gleði í hjarta og væntumþykju
og mun sakna hennar ávallt.
Hvíl í friði.
Gústaf Adólf Hjaltason
sonur.
Elsku amma mín, þú hjarta-
hlýja, gjafmilda og sterka fyr-
irmynd.
Þvílík forréttindi það voru að
vera „litla ömmustelpan þín“ og
ekki síðra besta vinkona þín í
gegnum árin. Endalausar eru
minningarnar okkar saman
enda hef ég dregist að þér frá
því ég man eftir mér. Ég veit
ekkert betra en að liggja í fang-
inu á þér og tala um lífið eða að
taka bíltúr um bæinn með tón-
listina í botni að skellihlæja yfir
því hversu falskar við vorum og
hversu krúttlegur afi er. Mér
finnst ég oft hafa þekkt þig frá
því ég var lítil stúlka út frá öll-
um sögunum þínum en þú hefur
alltaf verið til í að hjálpa og
aldrei leyft neinum að labba út
frá þér með tóman maga.
Oftar en ekki höfum við
systkinin heyrt „réttu mér
budduna mína“. Og áttir þú
stóran þátt í velgengni okkar
allra.
Ég elska þig og mun sárt
sakna þín en ég mun standa við
loforðið sem ég hvíslaði í eyrað
á þér að ég mun alltaf passa
upp á afa fyrir þig.
Þín
Jóhanna.
Elsku amma mín. Söknuður-
inn er gríðarlegur eftir að þú
fórst en ég er svo þakklát fyrir
tímann okkar saman og að ég
hafi verið svo heppin að eiga þig
sem ömmu.
Þú varst alltaf svo ljúf, glöð
og góð þegar við vorum saman
og yfirleitt að segja mér sögur.
Ég hef alltaf litið upp til þín og
sé svo mikið af þér í sjálfri mér.
Þegar ég hugsa til barnæsku
minnar minnist ég allra stund-
anna okkar í bústaðnum og á
einhverju flakki með ykkur afa.
Þegar ég var orðin unglingur
fluttum við saman í Grjótaselið
þar sem við bjuggum í sama
húsi og ég gat alltaf leitað til
þín. Hljóp yfir til ykkar afa,
kúrði hjá ykkur og þú hlustaðir
alltaf á mig.
Í seinni tíð voru það börnin
mín sem græddu svo mikið á
samskiptum við þig og þá að-
allega Bjarki. Þið áttuð sérstakt
samband og honum leið svo vel í
nærveru þinni og ófáar stundir
þar sem þið hlóguð saman. Þú
spilaðir alltaf við hann og hver
heimsókn endaði í salíbunu þar
sem þú keyrðir hann út að dyr-
um í hjólastólnum þínum.
Ég er sorgmædd að þær
stundir verði ekki fleiri og að
Eyrún fái ekki að kynnast þér
eins og Bjarki kynntist þér en
er svo þakklát fyrir tímann sem
við fengum saman. Síðustu dag-
arnir voru þér erfiðir en það
sýndi líka hve lífskrafturinn
þinn var mikill og hversu mikl-
um styrk þú bjóst yfir. Ég er
þakklát fyrir að hafa getað verið
með þér þína síðustu daga og
þegar þú fórst. Fann strax fyrir
miklum frið en tómið sem þú
skilur eftir þig er stórt og þú
verður alltaf stór hluti af mér
og hjarta mínu.
Kristrún Gústafsdóttir.
Ég held að það sé ekki hægt
að finna ljúfari manneskju en
hana ömmu mína. Hún var allt-
af tilbúin til að hjálpa hverjum
sem er og hugsaði alltaf fallega
til allra. Ég tel mig mjög
heppna að hafa alist upp við
hliðina á ömmu minni og afa
enda eyddi ég ófáum dögum hjá
þeim í æsku. Ég á svo mikið af
minningum um ömmu mína en
þær sem koma fyrst upp í hug-
ann eru allir þeir klukkutímar
sem hún nennti að sitja með
mér og spila heima hjá þeim og
öll knúsin og kúrið uppi í rúmi
hjá henni að horfa á teikni-
myndir. Amma var alltaf tilbúin
að hlusta á mann og gefa manni
ráð ef þess þurfti og hún var
alltaf tilbúin til þess að koma
með á eitthvert flakk og elta út-
sölur. Hún var ótrúlega sterk
kona og ég mun alltaf líta upp
til hennar. Ég mun sakna þín
alveg ótrúlega mikið og hlakka
til að hitta þig aftur til að heyra
fleiri sögur frá þér og gefa þér
stórt knús.
Eygló Ósk Gústafsdóttir.
Ó hvað ég á eftir að sakna
hennar ömmu minnar. Hún var
alltaf að segja okkur sögur og
upplifði mörg ævintýr á sinni
lífstíð. Amma var alltaf tilbúin
að gefa okkur að borða eða fara
með okkur á flakk. Sumar
skærustu minningar mínar með
henni voru margar ferðir okkar
á Miðengi og upp í bústað. Allar
ferðirnar með henni í sund,
knúsin og að spila við okkur
stelpurnar. Amma hafði mikil
áhrif á líf mitt. Hún var ein
besta fyrirmynd mín og hennar
verður saknað alveg ofboðslega.
Hvað ég á margar góðar minn-
ingar um hana og ég mun seint
gleyma henni. Vonandi hittumst
við aftur einhvern tímann og þá
er komið að mér að segja henni
sögur.
Ásbjörg Gústafsdóttir.
Sista, vinkona mín, amma
mannsins míns og langamma
barnanna minna, hefur kvatt
þennan heim.
Ég kynntist Sistu fyrir hart-
nær 18 árum þegar ég var
kynnt fyrir nýju tengdafjöl-
skyldunni. Sista tók mér afar
vel og í gegnum árin höfum við
orðið betri og betri vinkonur.
Nánari hjón en Sistu og
Hjalta er erfitt að finna. Þeirra
hjónaband byggðist vinskap og
virðingu í garð hvors annars.
Þeim þótti gott og gaman að
vera saman og var tekið eftir
því hvert sem þau fóru. Þau
leiddust alltaf og það er varla til
mynd af Sistu án þess að Hjalti
sé við hlið hennar.
Sista var einstök sagnamann-
eskja. Hún lifði fyrir að segja
sögur, sögur úr uppvextinum og
ævisöguna alla. Það vita allir
sem þekktu Sistu að henni þótti
afskaplega gaman að segja frá.
Stundum þá tókst henni að
byrja á sögu og fara yfir í nýja
sögu og aðra nýja sögu en klár-
aði alltaf fyrstu söguna.
Og hún pikkaði í mann ef
henni fannst maður ekki vera að
fylgjast nógu vel með. Þögnin
sem situr eftir núna er frekar
yfirþyrmandi.
Sista reyndi ýmislegt á sinni
ævi en sennilega var erfiðast að
missa pabba sinn 10 ára gömul
og þurfa mjög ung að taka
mikla ábyrgð á sinni fjölskyldu.
Systkinin voru mörg og mikið
að hugsa um. Það er von mín og
trú að pabbi hennar hafi verið
sá fyrsti sem tók á móti henni
hinum megin.
Elsku Sista. Það sem við
söknum þín öll ótrúlega mikið.
Það er erfitt að hugsa til þess
að heimurinn sé án þín. En við
sem eftir sitjum gleðjumst líka
og erum þakklát fyrir að akk-
úrat þú varst svo stór hluti af
okkar lífi og að við höfum fengið
að njóta tímans sem við fengum
með þér.
Við hittumst á ný þegar minn
tími kemur.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo eg sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Hinsta kveðja,
Arna Þórdís Árnadóttir.
Sigurbjörg
Gústafsdóttir