Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 Ferill minn sem knatt- spyrnumaður varð ekki jafn glæsilegur og ég hafði látið mig dreyma um. Eftir að hafa farið upp yngri flokkana hjá Fylki reyndi ég fyrir mér um skeið í þriðju deildinni en ákvað að láta gott heita 21 árs gamall. Það sem ég vann mér helst til „frægðar“ á slöppum ferli var þegar ég skoraði fyrir aftan miðju á yngra ári í þriðja flokki þegar Fylkir 2 mætti brjálæðis- lega góðu liði frá Gana á Tivoli Cup í Hilleröd í Danmörku. Ganverjarnir byrjuðu væg- ast sagt betur og voru komnir í 0:3 um miðjan fyrri hálfleik. Þar sem við í Fylki 2 höfðum beinlínis ekki komist yfir miðju allan hálfleikinn sá ég mér leik á borði þegar ég sá að mark- vörður þeirra stóð silkislakur á vítateigslínunni eftir að þeir skoruðu þriðja mark sitt. Ég minntist á þessa upp- götvun við tvo samherja mína í framlínunni sem voru í þann mund að fara að taka miðjuna, og bað þá um að rúlla bolt- anum stutt til mín þar sem ég stóð inni í miðjuhringnum. Þeir gerðu það og áætlun mín gekk upp, ég skoraði nokk- urs konar vallarmark fyrir aftan miðju sem fór yfir markvörð þeirra og endaði í miðju mark- inu. Staðan því 1:3 í hálfleik og við Fylkismenn skyndilega bún- ir að öðlast fulla trú á því að við gætum unnið okkur inn í leikinn. Skemmst er frá því að segja að það gekk ekki alveg eftir. Lokatölur urðu 1:8, Ganverj- unum í vil. Mark mitt var eina skot okkar í leiknum. Við áttum ekki beint mikla möguleika í þessum leik en ég hafði í það minnsta góða sögu upp úr krafsinu. BAKVÖRÐUR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is KÖRFUBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Valur vann óvæntan 85:72-sigur á toppliði Keflavíkur í Dominos-deild karla í körfubolta í gær. Valsmenn hafa valdið vonbrigðum til þessa í deildinni og áttu fáir von á Valssigri eftir þrjú töp í röð, m.a. á móti botn- liði Hauka. Á sama tíma vann Kefla- vík þrjá sigra í röð á móti KR, ÍR og Tindastóli. Þrátt fyrir það voru Vals- menn yfir allan tímann og var sig- urinn sannfærandi. Sinica Bilic skoraði 20 stig og tók 12 fráköst fyrir Val en maður leiksins var Pavel Ermolinskij. Pavel skoraði 18 stig, tók sex fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Hann spilaði auk þess stórglæsilega vörn og stöðvaði hvað eftir annað sterka leikmenn Keflavík- ur í góðum stöðum. Dominykas Milka var stigahæstur að vanda hjá Kefla- vík með 25 stig, en aðrir voru nokkuð frá sínu besta í slakri frammistöðu. Keflavík er enn í toppsætinu en með spilamennsku eins og í gær verður það ekki lengi. Valur er vaknaður og með hörkumannskap sem á bara eftir að vera betri. Valsmenn ætla sér að valda usla í úrslitakeppninni. Njarðvík hristi af sér taphrinu Njarðvík vann einnig kærkominn sigur eftir þrjú töp í röð þegar ÍR kom í heimsókn. Njarðvíkingar voru afar sannfærandi og urðu lokatölur 96:80. Kyle Johnson er góð viðbót við Njarðvíkurliðið og hann skoraði 25 stig og tók 10 fráköst. Zvonko Buljan, sem spilaði með Njarðvík í fyrstu um- ferðinni en skipti síðan yfir í ÍR, skor- aði mest fyrir Breiðholtsliðið eða 21 stig. „Það var Kyle Johnson sem ný- kominn er til liðs við Njarðvíkinga sem fór fyrir sínum mönnum. Kapp- inn setti 25 stig og var grimmur að sækja á körfuna. Hlutverkið sem hann á að fylla er það sem Maciej Baginski skilur eftir sig í meiðslum og kappinn virðist ætla að standa undir því,“ skrifaði Skúli B. Sigurðs- son m.a. um leikinn á mbl.is. Bæði lið eru með tíu stig og verða væntanlega í baráttu um sæti í úr- slitakeppninni það sem eftir lifir tímabils. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þjófóttur Jón Arnór Stefánsson stelur boltanum af Dominykas Milka. Valsmenn loks- ins vaknaðir  Njarðvíkingar aftur á sigurbraut FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Jón Guðni Fjóluson er kominn aftur til Svíþjóðar og samdi á dögunum við úrvalsdeild- arliðið Hammarby. Ekki er tjaldað til einnar nætur en Jón gerði þriggja ára samning við félagið og verður Hamm- arby þriðja liðið sem Jón leikur með í sænsku úrvalsdeildinni. Áður lék hann með Sundsvall og Norrköping og á að baki 133 leiki í efstu deild í Svíþjóð. „Það er mjög gott,“ sagði Jón Guðni þegar Morgunblaðið sló á þráðinn og spurði hvernig væri að vera kominn aftur til Svíþjóðar eftir dvöl í Rúss- landi og Noregi í millitíðinni. Jón veit að hverju hann gengur í sænsku deild- inni. „Já ég geri það og þægilegt er að koma inn í allt hjá nýju liði. Maður veit hvernig allt virkar og þekkir til dæmis tungumálið og slíkt auðveldar hlutina mjög mikið,“ sagði Jón en margir Ís- lendingar hafa komið við sögu hjá Hammarby í gegnum árin. „Í gegnum tíðina hafa mjög margir Íslendingar verið hérna. Aron [Jó- hannsson] var hérna á síðasta tímabili og Viðar Örn [Kjartansson] á undan því. Ögmundur [Kristinsson] og Birkir Már [Sævarsson] voru á undan þeim. Gunnar Þór [Gunnarsson] var hérna fyrir nokkru og Pétur Marteins,“ rifj- aði Jón Guðni upp eftir minni og við þetta má bæta þeim Pétri Birni Jóns- syni, Heiðari Geir Júlíussyni og Arnóri Smárasyni. Er Jón Guðni því tíundi ís- lenski leikmaðurinn í sögu Hamm- arby. „Vel er talað um Íslendingana hjá félaginu og þeir hafa verið vinsæl- ir,“ sagði Jón. Finna þarf rétta jafnvægið Leikmenn Hammarby voru sókn- djarfir á síðasta tímabili og varð Aron raunar markahæsti maður liðsins. Lið- ið hafnaði í 8. sæti í deildinni og fékk á sig býsna mörg mörk. Í því ljósi er ekki skrítið að félagið sæki miðvörð eins og Jón Guðna. „Liðið spilar mjög sóknarsinnaðan bolta og hefur gert það síðustu ár en liðið hefur fengið á sig mörg mörk. Þeir hafa jafnvel unnið leiki 5:3 o.s.frv. Þeir vilja skipuleggja vörnina betur og mitt hlutverk verður að hjálpa til við að bæta vörnina. Þeir vilja ná betra jafnvægi á milli sóknar og varnar. Ef menn vilja bara sækja verður vörnin opin og þá fá menn á sig mörk. Þar er hægt að gera betur,“ sagði Jón Guðni sem hefur nú leikið erlendis í liðlega áratug en hann hélt utan árið 2011. Hann er einn þeirra sem fóru til Rúss- lands um tíma og var þá hjá Krasnod- ar. „Rússland var svolítið öðruvísi um- hverfi en maður er vanur en gaman að upplifa það líka. Ég sé ekki eftir því. Á þessum tímapunkti passaði mjög vel fyrir mig að fara aftur til Svíþjóðar og einnig fyrir fjölskylduna. Við vorum lengi í Svíþjóð og okkur leið mjög vel. Þá voru krakkarnir orðnir hálfgerðir Svíar. Síðara árið mitt í Rússlandi voru krakkarnir heima á Íslandi og ég reikna með því að við komum heim til Íslands þegar ferlinum lýkur. En von- andi er enn nokkuð í það,“ sagði Jón Guðni sem segist vera vel á sig kominn líkamlega enda hefur hann svo gott sem aldrei glímt við meiðsli sem talist geta alvarleg. Vel er talað um Íslendingana  Tíundi Íslendingurinn hjá Hammar- by á að stoppa í götin í vörninni Morgunblaðið/Eggert Á landsliðsæfingu Jón Guðni Fjóluson hefur leikið 17 A-landsleiki. Njarðvíkingurinn Elvar Már Frið- riksson heldur áfram að gera það gott í litháíska körfuboltanum, en hann hefur verið einn besti leik- maður Siauliai á tímabilinu. Gengi liðsins hefur hins vegar ekki verið gott og mátti það þola 81:87-tap á útivelli gegn Alytaus Dzukija í efstu deild í gær. Fyrir vikið eru Elvar og félagar áfram í botnsætinu með aðeins fimm sigra í 18 leikjum. Elvar var stigahæstur allra í gær með 24 stig og þá gaf hann einnig fimm stoðsendingar. Elvar stigahæstur með 24 stig Ljósmynd/Sveinn Helgason Litháen Elvar Már Friðriksson í búningi litháíska liðsins. Knattspyrnudeild Leiknis í Reykja- vík gekk í gær frá samningi við Loft Pál Eiríksson. Loftur kemur til Leiknis frá Þór þar sem hann hefur leikið frá árinu 2015, en hann er uppalinn hjá Tindastóli. Loftur, sem er varnarmaður, hef- ur leikið 147 leiki í 1. deild og skor- að í þeim fimm mörk. Hann lék 20 leiki með Þór í deildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim eitt mark. Leiknir leikur í efstu deild í fyrsta skipti frá árinu 2015 á kom- andi leiktíð en liðið hafnaði í öðru sæti 1. deildarinnar í fyrra. Nýliðarnir sækja liðstyrk norður Skapti Hallgrímsson 1. deild Loftur Páll Eiríksson í leik með Þór á Akureyri. Grill 66-deild karla Fjölnir – Valur U.................................. 29:30 Selfoss U – Haukur U .......................... 25:25 HK – Fram U........................................ 29:17 Vængir Júpíters – Kría........................ 26:31 Staðan: HK 9 7 0 2 270:196 14 Víkingur 8 7 0 1 211:184 14 Valur U 9 7 0 2 269:255 14 Fjölnir 9 5 2 2 263:246 12 Kría 9 5 1 3 243:241 11 Haukar U 8 3 1 4 197:202 7 Selfoss U 9 2 2 5 248:262 6 Vængir Júpíters 9 2 0 7 191:241 4 Hörður 7 2 0 5 212:234 4 Fram U 9 0 0 9 212:255 0 Þýskaland B-deild: Bietigheim – Elbflorenz ..................... 28:29  Aron Rafn Eðvarðsson varði fimm skot í marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið. Konstaz – Gummersbach.................... 30:37  Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs- son þjálfar liðið. Danmörk Kolding – GOG..................................... 27:36  Ágúst Elí Björgvinsson varði 14 skot í marki Kolding.  Viktor Gísli Hallgrímsson varði 12 skot í marki GOG. Frakkland B-deild: Angers – Nice....................................... 25:29  Grétar Ari Guðjónsson varði 13 skot í marki Nice. 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.