Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Deiglumór – Keramik úr íslenskum leir 1930-1970 er heiti sýningar sem verður opnuð í Hönnunarsafni Ís- lands í dag. Á sýningunni verður þetta frjóa tímabili í leirlistarsögunni um miðja síðustu öld rifjað upp. Brautryðjand- inn, Guðmundur Einarsson frá Mið- dal, stofnaði Listvinahúsið 1927. Listvinahúsið var fyrsta leirmuna- verkstæðið sem starfrækt var á Íslandi og með stofnun þess var brotið blað í sögu listiðnaðar lands- ins. Á árunum 1946 til 1957 voru síðan stofnuð fimm leirmuna- verkstæði í Reykjavík: Leir- brennsla Bene- dikts Guðmunds- sonar, Funi, Laugarnesleir, Roði og Glit. Öll áttu þau það sam- eiginlegt að nota íslenskan leir, fram til um 1970. Á sýningunni eru verk frá ofan- greindum verkstæðum. Leitast sýn- ingarstjórarnir, Inga S. Ragnars- dóttir leirlistamaður og Kristín G. Guðnadóttir listfræðingur, við að gefa innsýn í framleiðslu verkstæð- anna og draga fram sérstöðu hvers og eins. Þar voru hannaðir og fram- leiddir bæði einstakir módelgripir og fjöldaframleiddir skrautmunir. Meðal annars stórir vasar, einstök matarstell, styttur og minjagripir fyrir ferðamenn. Mikill listrænn metnaður var lagður í einstaka muni og leitast var við að leiða almenningi fyrir sjónir, að módelhlutir úr leir stæðu jafnfætis málverki eða skúlp- túr. Hönnun og framleiðsla íslenskra leirmuna markaði upphaf íslensks listiðnaðar í nútímaskilningi þess orðs. Ný bók um íslenska leirlist Sýningin er unnin á grunni bók- arinnar Deiglumór, keramik úr ís- lenskum leir 1930-1970, sem kemur núna út. Sýningarstjórarnir eru jafnframt höfundar bókarinnar en bókin byggist á rannsóknum Ingu á sögu íslenskrar leirlistar. Í henni er fjallað um aðdraganda, upphaf og þróun íslenskrar leirlistar frá um 1930 í máli og myndum, auk þess sem saga leirnýtingar á Íslandi er rakin. Hönnuður bókarinnar er Arn- ar Freyr Guðmundsson hjá Studio Studio en Minningarsjóður um Ragnar Kjartansson (1923-1988) gefur bókina út. Guðmundur frumkvöðullinn Inga segir elstu heimildir um orð- ið deiglumó vera frá 17. öld en það þýðir leir og hafi Ragnar faðir henn- ar, myndhöggvari og leirkera- smiður, sem kemur mjög við sögu á sýningunni – enda starfaði hann á þremur þessara verkstæða, notað orðið. Deigla var leirker eða ílát sem notuð voru í smiðjum áður fyrr til að bræða í járn. Inga segir að á sýning- unni sé meðal annars fjallað um sögu notkunar íslenska leirsins en Bene- dikt Oddsson, skáld og sjómaður frá Gjarðey, hafi til að mynda verið í keramikframleiðslu um og upp úr 1880 og hafi fengið styrk árið 1879 til að fara í leirkeranám en af því hafi ekki orðið. „Í gögnum Guðmundar frá Miðdal má sjá að Benedikt hafi verið fyrsti leirkerasmiðurinn og Theodóra Thoroddsen átti skál eftir hann sem Guðmundur segir hafa verið fallega. Skálin finnst ekki hjá afkomendum hennar,“ segir Inga. Á sýningunni er til að mynda fjallað um það hvernig Guðmundur hafi náð í notanlegan íslenskan leir til blöndu úr deiglumó og hveraleir en hann var í sjö ár að prófa sig áfram við það í námi á verkstæði Joseps Königbauer í München, sam- hliða myndhöggvaranámi. Guð- mundur stofnaði Listmunahúsið árið 1927 en 1929 gerði hann endanlegar tilraunir með íslenskan leir í Münch- en og kom þá heim með tilbúna gripi, sýndi þá í Alþingishúsinu og fékk styrk frá Alþingi til að fjár- magna kaup á ofni og öðrum búnaði. Vasi frá þeirri sýningu, gerður af Guðmundi í München, er nú sýndur í Hönnunarsafninu. Alþjóðleg áhrif hér „Það eru síðan lærlingar Guð- mundar sem stofna flest þessara verkstæða sem við fjöllum hér um,“ segir Inga en Gestur og Rúna sem stofnuðu Laugarnesleir hafi þó ekki verið í þeim hópi, og ekki heldur Benedikt Guðmundsson sem var myndlistarmaður eins og þau. „Þau voru líka með íslenska leirinn og hjá öllum þessum verkstæðum fór nokk- uð mikil vinna í að þróa sína leir- blöndu. Dönsk hjón komu og unnu með Benedikt en það er merkilegt að þessi verkstæði voru flest mynd- listartengd. Við kynnum verk frá öllum sex verkstæðunum á sýningunni en síð- ast var Glit stofnað og það varð að einskonar miðstöð þar sem mynd- listarmenn unnu fyrir sér. Á öllum verkstæðunum mótaðist skemmtileg samvinna fólks sem ýmist var með bakgrunn í leirkerasmíði eða mynd- list,“ segir Inga og bætir við að á flest verkstæðanna hafi erlent fólk líka komið til starfa og þeim hafi fylgt allrahanda áhrif. Þessi leir- listarverkstæði hér um miðja síðustu öld hafi því verið býsna alþjóðleg. Meðal listamannanna sem fluttu til landsins og unnu á leirlistarverk- stæðunum var Dieter Roth, sem átti eftir að verða einn áhrifamesti evr- ópski myndlistarmaður sinnar kyn- slóðar, og eru eftir hann, eins og marga aðra, merkileg verk á sýning- unni. Íslenski leirinn erfiður Nú hefur oft verið sagt að íslenski leirinn sé erfiður að vinna með. „Og hann er það!“ staðfestir Inga sem sjálf er bæði með menntun í leir- munagerð og myndlist og gjörþekkir þessa sögu alla. Hún hefur til að mynda í ein 18 ár verið að safna efn- inu og vinna að bókinni sem nú kem- ur út. „Þetta fólk lagði rosalega mikla vinnu í leirinn. Það voru innflutn- ingshöft hér, erfitt að fá að flytja inn erlendan leir, en þjóðerniskennd kom líka við sögu, og hugsun um að nota leir sem væri öðruvísi en sá út- lenski,“ segir hún. Þegar leið á tutt- ugustu öldina hafi steinleir smám saman náð yfirhöndinnni í evrópski leirvinnslu en þangað til var jarðleir mikið notaður út um löndin í hefð- bundnu nytjakeramiki. Inga segir að þegar fólk á borð við Hauk Dór og Steinunni Marteinsdóttur hafi kom- ið með útlendan steinleir inn í sín verk hér þá hafi það boðið upp á meiri möguleika, til að mynda með glerung. Það hafi líka verið sterkari hlutir sem til dæmis mátti setja í uppþvottavélar. „Því það er rétt að ísleneki leirinn var mjög erfiður, það þurfti alltaf að blanda hann og hveraleirinn var mjög óhreinn. Undir lokin var farið að nota danskan leir í stað hvera- leirsins að þriðjungi á móti deiglu- mó, og þá varð vinnan auðveldari. Glit notaði á tímabili leir frá bökkum Elliðaánna í tonnavís.“ Módelgripirnir voru dýrir Þegar spurt er um úrval gripa sem hægt er að sýna frá verkstæð- unum sex, segir Inga mikið vera til og hafi þurft að velja úr. „Við hefðum getað valið miklu fleiri gripi á sýninguna en við viljum að þeir njóti sín, eins og þeir gera mjög vel. Það er alltaf augljóst frá hvaða verkstæði hver gripur er en ekki er alltaf víst hver hefur skreytt þá.“ Hún nefnir sem dæmi að Guð- mundur frá Miðdal hafi verið aðal- hönnuðurinn í Listvinahúsinu en hann hafi líka viljað að starfsfólkið ynni sjálfstætt. „Ragnar pabbi minn vann til að mynda hjá Guðmundi í ein sex ár og það kom okkur á óvart að komast að því að vasi sem við höfðum valið á sýninguna frá List- vinahúsinu reyndist vera eftir hann. Það er oft erfitt að segja hver hefur skreytt munina en það eru samt fáir á sýningunni þar sem við sjáum ekki hver gerði það.“ Á sýningunni eru bæði fjöldaunnir skrautgripir og módelgripir sem voru fágætari og dýrari. Inga segir að þannig hafi framleiðslan verið á öllum verkstæðunum. „Stefnan var að gera flotta en fjöldaframleidda gripi en líka módelmuni og þeir voru mjög dýrir. Flestir þessir stóru og fínu hlutir sem við sýnum voru gefn- ir, til að mynda sem brúðkaupsgjafir eða á stórafmælum. Og oft hafa þeir síðan verið í ættinni og passað vel upp á þá.“ Fetaði í fótspor föður síns Inga er alin upp í þessari deiglu leirlistarinnar, þar sem faðir hennar vann á þremur verkstæðanna þar til hann einbeitti sér síðustu æviárin að myndlistinni. Var ekki æskuheimilið fullt af þessum gripum? „Jú, vissulega, og mikið af gripum er í fjölskyldunni. Á sýningunni er því nokkuð af gripum í eigu nærfjöl- skyldunnar. En þegar ég fór árið 1975 í keramikdeildina í MHÍ þá fannst mér vera mjög langt síðan pabbi hætti í leirnum, ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég væri al- gjörlega að fara í hans fótspor,“ seg- ir hún og hlær. „Ég fór í leirlistina hér og svo í keramiknám í akademí- unni í München og þar hafði Guð- mundur frá Miðdal einmitt verið, að læra á verkstæðinu í borginni.“ Inga hrósar mjög góðu samstarf- inu við Hönnunarsafnið og líka með- sýningarstjóranum og meðhöfund- inum, Kristínu. Þær unnu áður að bókinni um útisýningar Mynd- höggvarafélagsins á Skólavörðuholti og í framhaldinu kom Kristín inn í þetta verkefni með Ingu árið 2018. Inga færir þakkir öllum þeim sem lánuðu verk á sýninguna en mörg þeirra koma frá Þjóðminjasafni Ís- lands en líka allmörg frá Rúnari Jónssyni, sem á stórt og merkilegt safn af íslenskri leirlist. Á verkstæði Funa Starfsfólk Funa, í fremri röð: Ásta Sigurðardóttir, ekki þekkt, Kristrún Gottliebsdóttir, Ásta Hannesardóttir. Aftari röð: Hjálmar Kjartansson, Haukur Kristófersson, Ragnar Kjartansson, Páll Sigurbjörnsson og Björgvin Kristófersson. Þar voru bæði framleiddir einstakir módelgripir og fjöldaframleiddir skrautmunir. Ljósmyndir/Vigfús Birgisson Vasi Gerður í Leirbrennslu Bene- dikts Guðmundssonar af Normu og Edmund Andersen árið 1950. Glæsilegir gripir úr íslenskum leir  Á sýningu í Hönnunarsafninu má sjá verk sem gerð voru á sex íslenskum leirlistarverkstæðum um nokkurra áratuga skeið um miðja síðustu öld  Mikill listræn metnaður einkenndi framleiðsluna Fimmhálsa Vasi gerður í Laugar- nesleir af Gesti og Rúnu 1950. Kaffistell Skapað af hinum kunna Dieter Roth í Gliti árið 1960. Vasi Sköpunarverk Ragnars Kjartanssonar í Funa árið 1957. Kanna Gerð af Guðmundi frá Miðdal í Listvinahúsinu árið 1935. Inga S. Ragnarsdóttir Kristín G. Guðnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.