Morgunblaðið - 13.02.2021, Page 48
Músin tónelska Maxímús Músíkús heimsækir Sinfóníu-
hljómsveit Íslands á tvennum tónleikum í Hörpu í dag,
laugardag. Uppselt er á þá fyrri en öðrum var bætt við,
kl. 16. Á efnisskránni er ævintýrið vinsæla, Maxímús
Músíkús heimsækir hljómsveitina, eftir Hallfríði Ólafs-
dóttur og Þórarin Má Baldursson en tónleikarnir eru
helgaðir minningu Hallfríðar. Hljómsveitarstjóri er Eva
Ollikainen, sögumaður Valur Freyr Einarsson en tónlistin
er úr ýmsum áttum. Sagan um Maxímús er eitt ástsæl-
asta tónlistarævintýri þjóðarinnar og hefur einnig verið
flutt víða um lönd á undanförnum árum.
Maxímús Músíkús heimsækir
Sinfóníuhljómsveitina tvisvar í dag
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 44. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Sem betur fer eru allir strákarnir hérna afskaplega
fínir. Þeir eru allir með eitt markmið og það er að vinna
Íslandsmeistaratitilinn í júní. Það er augljóst að þeir
hafa unnið mikið af titlum því það endurspeglast í kúlt-
úrnum sem þeir hafa skapað sér. Það er gott að vera
hluti af því,“ segir Ty Sabin meðal annars í viðtali við
Morgunblaðið í dag en hann hefur vakið athygli í
Vesturbæ Reykjavíkur í vetur og raðar inn stigunum
fyrir KR í Dominos-deildinni í körfuknattleik og er með
nærri 30 stig að meðaltali í leik. »40
Segir augljóst á vinnubrögðum að
KR-ingarnir hafi unnið marga titla
ÍÞRÓTTIR MENNING
„Bolludagurinn er geysivinsæll dag-
ur hjá okkur og virðist vera kær-
komin tilbreyting í skammdeginu,“
segir Auður Ögn Árnadóttir, eigandi
kökubúðarinnar 17 sorta, í samtali
við Morgunblaðið. Hún segir bollu-
daginn einn stærsta daginn hjá sér,
ásamt öðrum tilefnisdögum, frá því
að kökubúðin var opnuð árið 2015.
„Á Íslandi hefur tíðkast í yfir 100 ár
að baka bollur þannig að þetta er
rótgróin hefð í íslensku samfélagi.“
Auður segir söluna á bolludeg-
inum aukast með hverju árinu.
„Bollurnar eru árstíðarbundið bakk-
elsi sem fólk leyfir sér á þessum
tíma árs. Svo virðist sem bolludags-
hátíðin sé að lengjast og sum bakarí
eru jafnvel farin að vera með bollur
tveimur vikum fyrir bolludaginn,“
segir Auður Ögn.
„Í ár sláum við saman valentínus-
ardeginum og bolludeginum þar sem
þeir lenda hlið við hlið að þessu sinni
og kynnum til leiks valentínusar-
bolluna sem fólk getur fært ástvin-
um sínum til að gera daginn alveg
sérstakan. Það skemmtilega hefur
gerst á undanförnum árum að bak-
aríin eru að bregðast við samkeppni
með því að skapa sér sérstöðu og
bjóða upp á breitt úrval af bragðteg-
undum og fyllingum sem bætir flór-
una.“ Þannig eru t.d. yuzu- og blóð-
appelsínubollur og saltkaramellu- og
daimbollur í boði í ár.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bolludagur Auður Ögn segir meiri samkeppni í bollusölunni leiða til frumlegrar og skemmtilegrar bolluflóru.
Bollurnar kærkomin
tilbreyting á veturna
Bakaríin bregðast við samkeppni Meira bolluúrval
Valentínusarbollur Með carqelin-toppi og prosecco- og jarðarberjamauki.