Morgunblaðið - 18.02.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Miklar sveiflur hafa verið á umferð
ökutækja á höfuðborgarsvæðinu í
takt við bylgjur kórónuveirusmita og
sóttvarnaaðgerðir allt frá upphafi
faraldursins. Viðlíka breytingar á
umferðinni innan eins árs hafa ekki
áður sést í umferðarmælingum
Vegagerðarinnar.
Þegar slakað hefur verið á sam-
komutakmörkunum tekur umferðin
undantekningarlaust kipp og eykst
verulega á skömmum tíma. Eru jafn-
vel dæmi þess að meðalumferðin
verði svipuð eftir að dregið hefur ver-
ið úr umfangi sóttvarnaaðgerða og á
sama árstíma fyrir faraldurinn.
Athygli hefur vakið hversu mikil
umferðin hefur verið að undanförnu
þegar tekið er tillit til samdráttarins í
hagkerfinu í kórónukreppunni en
sérfræðingar Vegagerðarinnar hafa
bent á að mikil fylgni hefur verið á
umliðnum árum milli þróunar um-
ferðar á landinu og landsframleiðslu.
Að mati Seðlabankans dróst einka-
neysla landsmanna saman um 4,4% á
seinasta ári og er reiknað með hæg-
um bata á þessu ári. Á fyrstu þremur
ársfjórðungum síðasta árs dróst
landsframleiðslan saman um 8,1%.
Að sögn Friðleifs Inga Brynjars-
sonar, verkefnastjóra hjá Vegagerð-
inni, er erfitt að finna skýringar á því
að umferðin er komin aftur á svipað
ról og fyrir faraldurinn miðað við
hvað umsvifin í samfélaginu hafa
dregist mikið saman.
Svipuð að umfangi og áður fyrr
Í seinasta mánuði dróst umferðin á
höfuðborgarsvæðinu saman um 6,4%
samanborið við janúarmánuð fyrir
ári. Samanlögð meðalumferð á dag
um lykilmælisnið Vegagerðarinnar
var rúmlega 143 þúsund bílar á dag. Í
fyrstu viku febrúar reyndist umferð-
in vera einungis þremur prósentum
minni en í sömu viku fyrir ári síðan.
„Aukning mældist í einu af þremur
mælisniðum en svo virðist sem um-
ferðin á höfuðborgarsvæðinu sé að
verða svipuð að umfangi og undan-
farin ár þrátt fyrir Covid-19 og fækk-
un ferðamanna,“ sagði í umfjöllun
Vegagerðarinnar.
Metsamdráttur í apríl
Mælanleg áhrif sóttvarnaaðgerða
vegna kórónuveirunnar á umferðina
komu fram í tólftu viku seinasta árs
eða um miðjan marsmánuð. Þá dróst
umferðin mikið saman eða um rúm
10% miðað við sama tíma á árinu á
undan. Samdrátturinn í fyrstu bylgju
faraldursins varð raunar mun meiri
en í þriðju bylgjunni sl. haust og í
byrjun vetrar.
Í apríl varð metsamdráttur um-
ferðar á höfuðborgarsvæðinu. Þá
dróst hún saman um tæp 28 prósent
frá sama tíma á árinu á undan en
þegar samkomubannið var rýmkað
tók umferðin við sér í maímánuði og
óvænt aukning átti sér svo stað í júní.
Þá mældist meiri umferð á höfuð-
borgarsvæðinu en í sama mánuði
ársins á undan, sem þó var metmán-
uður.
Í júlí og ágúst minnkaði umferðin
miðað við sama tíma á árinu á undan
en þegar þriðja bylgja faraldursins
reið yfir og samkomutakmarkanir
voru hertar á nýjan leik dró verulega
úr umferð á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt upplýsingum Vegagerð-
arinnar dróst umferðin á höfuðborg-
arsvæðinu í október saman um 20
prósent miðað við sama mánuð á
árinu á undan en samdrátturinn varð
þó ekki jafn skarpur og í fyrstu
bylgju sl. vor. Umferðin dróst aftur
saman um 20% í nóvembermánuði
sem fyrst og fremst var rakið til
hertra sóttvarnareglna. Umferðin
fór svo smám saman vaxandi á að-
ventunni en yfir allan desember
mældist um átta prósenta sam-
dráttur miðað við seinasta mánuð
ársins á undan.
Þegar allt síðasta ár er gert upp
kemur í ljós að umferðin á höfuð-
borgarsvæðinu dróst fjórfalt meira
saman en áður hefur sést í umferð-
armælingum Vegagerðarinnar. Um-
ferðin allt árið dróst saman um ríf-
lega tíu prósent á höfuðborgar-
svæðinu. Sveiflurnar innan ársins
voru miklar eins og fyrr segir en um-
ferðin jókst einungis í einum mánuði
í fyrra borið saman við árið 2019 en
það var í júní.
Í umfjöllun Vegagerðarinnar um
samdráttinn á seinasta ári kom fram
að mesti samdráttur milli ára sem áð-
ur hafði mælst var á milli áranna
2008 og 2009 eða 2,4%.
Nýjustu mælingar á umferðinni
sem liggja fyrir eru vegna seinustu
viku. Reyndist umferðin á höfuð-
borgarsvæðinu vera 2,6 prósentum
meiri en í sömu viku í fyrra, en þá
vikuna fyrir ári var raunar óvenju-
lega lítil umferð. Umferð um Reykja-
nesbraut við Dalveg var sex prósent-
um meiri í seinustu viku og sjö
prósentum meiri umferð var á
Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku.
Umferð um Hafnarfjarðarveg dróst
aftur á móti saman um 3,4%.
Umferðin í takti við veiruna
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu tekur jafnan kipp þegar smitum fækkar og dregið er úr sótt-
varnaaðgerðum Veruleg bílaumferð að undanförnu þrátt fyrir minni einkaneyslu og umsvif
Umferð á höfuðborgarsvæðinu og nýgengi kórónuveirusmita
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb.
2020 2021
Heimild: Vegagerðin og covid.is
200
175
150
125
100
75
50
300
250
200
150
100
50
0
Nýgengi
innanlands Meðalumferð á dag, þúsundir ökutækja
Meðalsólarhringsumferð
um mæli svæði Vegagerðarinnar
Nýgengi smita innanlands,
14 daga nýgengi á hverja
100.000 íbúa
2020 2021
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á Kringlumýrarbraut Umferðin á höfuðborgarsvæðinu er að verða svipuð
að umfangi og undanfarin ár þrátt fyrir faraldurinn og fækkun ferðmanna.
Mót hestamannafélagsins Spretts í
Kópavogi í kvöld ber yfirskriftina
Fimmgangur Útfararstofu Íslands.
Keppnin er í deild sem ber heitið
Equsana, sem er kjarnfóður fyrir
hesta, framleitt í Danmörku. Mótið í
kvöld verður í beinni útsendingu á
netinu og hefst kl. 19. Keppendur
eru alls 39 talsins og er atburðurinn í
kvöld hluti af stærri mótaröð. At-
hygli vekur að mótið skuli vera
kennt við útfararstofu.
„Ég er er keppandi og tek þátt í
mótinu, er formaður Spretts, á út-
fararstofuna og er að styrkja gott
málefni,“ segir Sverrir Einarsson
útfararstjóri í samtali við Morgun-
blaðið. „Þetta ætti ekkert að mis-
skiljast enda þekkir fólkið í hesta-
mennskunni til. Þó er kannski
svolítið óvenjulegt að svona við-
burður beri nafn fyrirtækis sem
sinnir þjónustu við útfarir,“ segir
Sverrir enn fremur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hestafólk Tekið verður á rás í fimmgangi í Sprettshöllinni í kvöld.
Hestamannamót í
nafni útfararstofu
Óvenjulegt, segir formaður Spretts